Vísir - 20.03.1978, Page 28
VÍSIR
Mánudagur 20. mars 1978
Tveir menn fórust
þegar bandarísk flugvél brotlenti á
Grœnlandsjökli
Tveir menn biðu bana þegar tveggja
hreyfla bandarísk flugvél af gerðinni
Beechcraft 80-Queen Air fórst á Grænlandi
aðfararnótt laugardagsins.
Vélin var á leið til
Reykjavikur frá Syöri
Straumfiröi, en mun hafa
lent i mikilli isingu yfir
jöklinum og brotlent.
Ekki voru aörir um borö
en þeir tveir sem létu
lifið.
—ÓT.
Seðlobankinn:
f/Við eru bundnir
þagnarskyldu"
„Viö erum bundnir þagnarskyldu og höfum ekki
heimild til aö birta þennan lista. Þaö breytir þvi engu
þótt búiö sé aö birta hluta hans”, sagöi Björn Tryggva-
son, bankastjóri I Seölabankanum, I morgun.
Eftir aö nöfn margra af
þeim sem áttu innistæöur
I Finansbanken hafa orö-
iö opinber, hafa raddir
um aö birta eigi allan list-
ann oröiö háværari.
Þeir aöilar sem hafa
listann undir höndum eru
hins vegar allir bundnir
þagnarskyldu og þvi ekki
líkur á aö upplýsingar
komi frá þeim. Þaö yröi
þvi aö koma til ákvöröun-
ar stjórnvalda ef birta á
rumræddan lista i heild,
ásamt nauösynlegum
upplýsingum.
—SG.
Eggert Haukdal í effsta sœtið á Suðurlandi:
Árnesing-
ar gengu
af fundi
Sviptingar urðu á fundi kjördæmisráðs sjálfstæðisfélaganna f
Suðurlandskjördæmi þegar gengið var frá framboðslista Sjálf-
stæðisflokksins fyrir alþingiskosningarnar. Fundur ráðsins á laug-
ardaginn byrjaði með því að kosið var á milli Eggerts Haukdals og
Steinþórs Gestssonar í fyrsta sætið. Eggert fékk 49 atkvæði en
Steinþór 27.
Þaö voru Rangæingar,
Skaftfellingar og Vest-
mannaeyingar, sem fyrst
og fremst studdu Eggert,
og þegar þessi úrslit voru
kunn gengu flestir Ames-
ingar af fundinum en þeir
eiga 21 mann i kjör-
dæmisráðinu. Steinþór
Gestsson hélt siöan ræðu
og var beiskur yfir þess-
um úrslitum.
Aö þessum átökum
loknum var gengiö frá
röðun á framboðslistan-
unn og er hann þannig
skipaöur:
1. Eggert Haukdal, bóndi
Bergþórshvoli
2. Guömundur Karlsson,
forstjóri, Vestmannaeyj-
um.
3. Steinþór Gestsson, al-
þingismaður, Hæli.
4. Siggeir Björnsson,
bóndi, Holti.
5. Arni Johnsen, blaða-
maöur Reykjavik.
6. Óli Þ. Guðbjartsson,
skólastóri, Selfossi.
7. Sigurbjartur Jóhannes-
son, tæknifræðingur,
Reykjavík.
8. Jón Þorgilsson, fulltrúi.
Hellu.
9. Sigurður óskarsson,
framkæmdastjóri, Hellu.
10. Steinunn Pálsdóttir
húsmóðir, Vik.
11. ólafur Steinsson,
garöyrkjubóndi, Hvera-
gerði.
12. Gisli Gislason fram-
kvæmdastjóri. Vest-
mannaeyjum.
1 siðustu alþingiskosn-
ingum fékk Sjálfstæðis-
flokkurinn 4.050 atkvæði i
Suöurlandskjördæmi og
þrjá menn kjörna.
—SG.
Egilsstaðabúar
ó móti kaupstað
Sú hugmynd að
Egilsstaðir ættu að
bætasti hópkaupstaða
fékk ekki fylgi meiri
hluta ibua viö al-
menna atkvæöa-
greiðslu um helgina.
Samkvæmt upplýs-
ingum Guðmundar
Magnússonar oddvita
reyndust 230 á móti
kaupstaðarréttindum,
190 voru með. Sjö seöl-
ar voru auðir og tveir
ógildir. A kjörskrá
voru 606. —SG.
Einn úrskurðaður
í gœsluvarðhald
vegna fíkniefna
RUmlega tvitugur
íslendingur var i laug-
ardagskvöld Urskurö-
aöur I allt aö 30 daga
gæsluvarðhald vegna
rannsóknar fikniefna-
máls. —EA.
Þaö var allt hvitt yfir aö lita, þegar Ibúar á höfuöborgarsvæöinu vöknuðu f morgun, og má búast viö aö þeir, sem eiga
aö sjá um framkvæmd Skfðalandsmóts tslands I nágrenni Reykjavfkur um páskana hafi fagnað snjóföiinu. En of
snemmt er aö spá um hvort páskarnir veröa hvítir eöa rauöir á höfuöborgar svæðinu. Þessi mynd er frá höfninni I
Hafnarfiröi, en hana tók Magnús Hjörleifsson.
„UFSA- OG KARFAVEIÐI EYKST EKKI
NEMA ÞORSKVEIÐI VERÐI TAKMÖRKUÐ"
— segir Kristjón Ragnarsson, formaður LÍÚ
'Viö höfum talið aö yfir sumartímann eigi aö beina sjávarútvegsmál sem haldin var á Stykkishólmi um
sókninni í ufsa og karfa, sérstaklega vegna þess að Þjóð- helgina, kom það fram hjá fiskifræðingum að stórauka
verjareru farniraf miðunum", sagði Kristján Ragnars- mætti sókn í þessar fisktegundir.
son,formaður Liú, við Visi i morgun, en á ráðstefnu um
Kristján sagði að það
þyrfti aö gera einhverjar
ráöstafanir til þess að
menn verði að veiða þess-
ar fisktegundir. Meðan
frjáls aðgangur væri að
þorskinum reyndu menn
frekar að veiða hann.
Þorskur væri allt aö tvö--
falt verðmeiri miðað viö
þunga en karfi og ufsi.
,,Það hefur verið lagt til
að á timabilinu júni-
september megi þorskafli
ekki vera meiri en fjórð-
ungur af heildaraflan-
um”, sagði Kristján,
„Þetta var samþykkt á
siöasta fiskiþingi af öllum
hagsmunaaðilum i
sjávarútvegi. Þannig að
nú er beðið eftir undir-
tektum stjórnvalda. En ef
engar ráðstafanir verða
geröar, er ekki hægt að
búast við þvi að sóknin I
karfa og ufsa aukist.”
—KS
Fimm
árásarmál
um helgina
Fimm árásarmái
komuupp um helgina.
A laugardagskvöld
lenti tveimur mönnum
saman eftir að þeir
höfðu verið að
skemmta sér I Þjóð-
leikhúskjallaranum.
Sló annar þcirra hinn í
andlitiö og var hann
fluttur á slysadeild.
Sama kvöld sló maður
konu i andlitið I Sig-
túni og var hún bólgin
eftir. Þrjú önnur mál
komu upp, meðal ann-
ars eitt i gærdag. Mun
þá maður hafa ráöist
aö fuliorðnum manni i
húsi i borginm og sleg-
ið liann. —EA.
Hellisheiði
lokuð, fœrt
um Þrengsli
Hellisheiöi lokaöist i
gærkvöld vegna snjóa
og var enn lokuö I
morgun, en hins vegar
varaö sögn vegaeftir-
litsins fært um
Þrengsli, þótt þar
væru él.
—ESJ.
Ölvun og
rúðubrot
Talsvert var um
ölvun i miðborginni á
föstudagskvöld og
voru meöal annars
brotnar þar fjórar
rúöur. Ein rúöan
brotnaöi þegar 15 ára
piltur kýldi annan,
þannig aö hann datt á
rúöuna. Það var i
versluninni London i
Austurstræti. Sá sem
féll var fluttur á slysa-
deild. Þá voru brotnar
rúöur I óöali, Garöa-
stræti 4 og i Fjarkan-
um i Austurstræti. i
gærmorgun var brotin
rúöa i Nesti viö
Elliöaárvog. —EA
Fundu poka
með tóbaki
og bruggefni
Komiö var meö
stóran piastpoka tii
lögreglunnar i Arbæ I
gærdag. Haföi pokinn
fundist úti á viöavangi
og innihéit hann 50
pakka af sigarettum,
vindlapakka og tölu-
vert af efni sem notaö
er til þess að brugga.
Var talið aö innihaidiö
væri úr innbroti._EA
Maðurinn ekki
fundinn
Magnús Gunnar
Kristinsson sem hvarf
af Kleppsspitalanum á
iaugardagskvöid, er
ekki kominn i ieitirnar
enn. Þaö var um
klukkan hálf átta á
laugardagskvöld, sem
hann fór af spítaian-
um og hófst leit þá um
nóttina. Magnús
Gunnar er fæddur
1948. Hann er 172 cm á
hæö, þéttvaxinn,
dökkhæröur, kiæddur
bláum jakkafötum,
blárri skyrtu og svört-
um skóm. —EA.
DREGIÐ 1. APRÍL n.k. um hinn glœsilega
FORD FAIRMONT
Ertu orðinn áskrifandi?
órgerð '78, að verömæti 4.1 millj. kr.