Vísir - 05.05.1978, Qupperneq 7

Vísir - 05.05.1978, Qupperneq 7
vism Föstudag ur 5. maí 1978 c Umsjón: Guðmundur Pétursson J Suður-Afríka réðst á bœkistöðvar skœru- liða í Suður-Angóla Herlið frá Suður- Afriku fór i eins dags árásarleiðangur á bækistöðvar skæruliða i Angóla, og hefur það valdið miklu fjaðrafoki innan Sameinuðu þjóð- anna. Þykir iiklegt, að öryggisráðið verði kallað saman til að fjalla um málið. Yfirmaður herliðs S-Afriku i Namibiu sagði i gærkvöldi, að menn hans „hefðu þurrkað út” bækistöðvar Swapo-skæruliða i Suður-Angóla i árás, sem stóð daglangt. Frétst hefur, að um 700 manna herlið frá S-Afriku hafi tekið þátt i árásinni og notið að- stoðar herflugvéla. Herflokkar frá S-Afriku hafa áður elt skæruliða yfir landamærin inn i Angóla, en þetta er i fyrsta sinn, sem S-Afrikustjórn viðurkennir opinberlega, að hún hafi staðið fyrir slikri innrás. Fréttin af innrásinni barst til aðalstöðva Sameinuðu þjóðanna i gærkvöldi i sama mund sem allsherjarþingið var að ljúka umræðum um Namibiu. Varð uppi fótur og fit. — Utanrfkis- ráðuneytið i Washington lét i ljós „þungar áhyggjur” af þessu uppátæki og krafði S- Afrikustjórn skýringa á innrás- ínm Pieter Botha, varnarmála- ráðherra S-Afriku, sagði, að herliðið hefði verið sent til höf- uðs skæruliðunum, eftir margendurteknar árásir þeirra siðarnefndu á skotmörk i Nami- biu. Kvað hann stjórn sina hafa verið tilneydda, og lét i ljós von- ir um, að Swapo léti sér þetta að kenningu verða. Rauða h erdeild- in enn að verki Hryðjuverkamenn Rauðu herdeildarinnar á ítalíu særðu i gær- kvöldi tvo starfsmenn rikisverksmiðja i árás- um, sem gerðar voru á þá samtimis í Mílanó og Genúa. Rauða herdeildin, sem hefur Aldo Moror, fyrrum forsætisráð- herra á valdi sinu, héfur valdið dauða niu manna það sem af er þessu ári, og sært tiu — i árásum á lögreglumenn, iðjuhölda og framkvæmdastjóra. t gærkvöldi réðust þrir menn vopnaðir byssum á Umberto Degli Innocenti, verkfræðing, og skutu hann i fæturna. Innocenti var á leið heim til sin frá Sit-Siemenstelex-verksmiðjunni i Milanó. Nær samtimis var ráðist i Genúa á Alfredo Lamberti, einn af framkvæmdastjórum stáliðju- versins Italsiderog hann skotinn. Hann var ekki talinn alvarlega særður. Skömmu eftir árásirnar var hringt i' ritstjórnarskrifstofur fréttablaða i þessum borgum og tilræðunum lýst á hendur Rauðu herdeildinni. HVtUSPRAKK HJÁ BRtZHNlV Lundúna- höfn tapar Bretum var skýrt frá þvi i gær, að Lund- únahöfn, sem fyrir fimmtán árum var sú erilsamasta i heimi, sjái nú fram á gjald- þrot. Hafnarstjórinn varaði rikis- stjórnina við þvi, að róttækra. ráðstafana væri þörf tii þess að rétta fjárhag hafnarinnar, og þá meðal annars segja upp stórum hluta þeirra 9.000 starfsmanna, sem eru á veg- um hafnarinnar. Hrikalegur taprekstur hefur verið á höfninni. Fyrir fimm árum átti hún 54 milljónir sterlingspunda i sjóði, sem nú er uppétinn. Ef áfram heldur sem horfir verður tapið um 76 milljónir sterlingspunda árið 1982. Fyrir 15árum var Lundúna- höfn sú umsvifamesta i heimi, og störfuðu þar um 30.000 hafnarverkamenn. Gámar og hörð kröfupólitik stéttarfélag- anna hafa snúið dæminu við. Fjögurra daga heim- sókn Leonids Brezhnevs forseta Sovétrikjanna til V estur-Þýskalands hefur til þessa markast af mótmælaaðgerðum, stjórnmálaumræðum, veisluhöldum og hvell- sprengingu á hjólbarða undir bifreið hans. Hann og Helmut Schmidt kanslari áttu einnar og hálfrar stundar fund i gær, og munu halda áfram viðræðum sinum i dag. , t k völdverðarveislu, sem Brezhnev var haldin i Bonn i gær, hvatti hann til alþjóðasamkomu- lags um bann við framleiðslu nift- eindasprengjunnar. Viða mátti sjá spjöld á lofti á leið Brezhnevs um Bonn i gær. A þeim gat að lita áletranir eins og „USSR — þjóðarfangelsi”, eða „Hættulegur alþjóðlegur hryðju- verkamaður”. A sumum spjöld- unum var Brezhnev lýstur ábyrg- ur fyrir fjöldamorðum i A-Evrópu og Afriku. Um 25.000 manna lögreglulið hafði mikinn viðbúnað vegna heimsóknar forsetans. Lögreglan handsamaði nokkra, sem henni þótti full-aðgangsharðir i mót- mælunum, og lagði hun hald á sum spjöldin. A einni mótmæla- samkomunni kom fram Pjotr Grigorenko, fyrrum hershöfðingi sem sviptur var sovéskum rikis- borgararétti, og flutti hann ræðu. Þegar ekið var með Brezhnev eftir „autobahna” (hraðbraut) á 125 km hraða, hvellsprakk annar afturhjólbarði bifreiðar hans. Héldu menn i fyrstu að hryðju- verkamenn hefðu gert árás. 011 bi'lalestin nauðhemlaði og full- yrða menn, að stórslys hefði hlot- ist af, ef akbrautin hefði ekki verið þurr og hemlunarskilvrði þau bestu. FYRIR BARNIÐ ÞITT Savlon baby care hóðvörn Danskir fiskimenn loka höfnum í mótmarfaskyni Nær fimmhundruð danskir fiskibátar munu safnast i innsiglinguna i Kaupmannahöfn i dag til að hindra skipaum- ferð um hana og mótmæla þannig veru- legri minnkun aflakvóta i Eystrasalti. Leiðtogi bátasjómannanna, Ole Basse, sagði fréttamönnum i gær, að um leið og innsiglingunni i Kaupmannahöfn yrði lokað, mundu aðrir fiskibátar gripa til svipaðra aðgerða i sex öðrum dönskum höfnum. „Eftir að forsætisráðherrann hefur neitað að tala við okkur, höfum við ekki önnur ráö, en loka höfnunum,” sagði hann. Bátasjómenn i Danmörku hafa nú misst stóran hluta af sinum fyrrifiskimiðum i Eystrasalti eft- ir útfærslu fiskveiðilögsögu Sviþjóðar, Austur-Þýskalands, Póllands og Sovétrikjanna. Danmörk, sem -er i Efnahags- bandalagi Evrópu, hefur ekki get- að samið við þessi riki um undan- þágur fyrir danska fiskibáta, vegna þess að EBE hefur ekki enn komiðsér saman um ákveðna stefnu i fiskveiðimálum. Fiskimennirnir dönsku (flestir fráBornholm) sækjast eftir þvi, að stjórnin semji um stærri aflakvóta þeim til handa, eða bæti þeim með öðrum hætti upp miss- inn á fiskimiöunum. Fœst um allt land. Heildsölubirgðir: ■SUfc.! Sími 82700.

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.