Vísir - 31.07.1978, Qupperneq 6
6
blaóburðarfólk
óskast!
BERGÞÓRUGATA
Frakkastigur
Kárastigur
ÞÓRSGATA
Freyjugata
Njarðargata
Lokastigur
STIGAHLÍÐ
Bogahlið
Grænahlið
Afleysingar
LEIFSGATA
Fjölnisvegur
Mimisvegur
Þorfinnsgata
BÚÐIR II GARÐABÆ
4/8 — 10/8
Asparlundur
Hliðarbyggð
Þrastarlundur
SEL I frá 1/8-22/8
Brekkusel
Dalsel
Engjasel
KÓP. AUST. 4
Frá 4/8-1/9
Birkihvammur
Fifuhvammsvegur
Reynihvammur
VÍSIR
Afgreiðslan: Stakkholti 2-4 Sirni 86611
Bindindismótið
Galtalœk
4.-7. ógúst
Útihátið fyrir þá sem vilja forðast ein-
angrun og njóta úrvals skemmtunar i und-
urfögru umhverfi.
Verð miða Kr. 5.000.-
Bœjarútgerð Hafnarfjarðar
óskar eftir að ráða tvo framkvæmda-
stjóra, annan til að annast rekstur fisk-
iðjuvers og togara, hinn til að annast fjár-
mál og skrifstofustjórn. Umsóknir skulu
sendast fyrir 15. ágúst til útgerðarráðs,
pósthólf 120,Hafnarfirði.
Kennarar — Kennarar
Við grunnskólann á Akranesi vantar fjóra
kennara, þar af einn til að kenna liffræði
og eðlisfræði við efstu bekki grunnskólans
og einn til sérkennslu. Umsóknarfrestur
til 10. ágúst.
Nauðungaruppboð
scm auglýst var í 48., 51. og 54. tbl. Lögbirtingablabsins
1978, á fasteigninni Leynisbraut 10, Grindavik, þingl. eign
Jóns Guömundssonar, fer fram á eigninni sjáifri föstu-
daginn 4. ágúst 1978 kl. 15.
Bæjarfógetinn i Grindavik.
i otm. J
Mánudagur 31. júli 1978
vtöm
Mintoff á Möltu
virðir Helsinki-
sáttmólonn jafn-
lítils og Sovét
v__________________J
Það eru fleirien austantjalds-
rikin, sem skrifuðu undir
Helsinkisáttmálann en virðast
samt eiga erfitt með að standa
við ákvæði hans um grund-
vallarmannrettindi, frjálsa fjöl-
miðlun og óheft upplýsinga-
streymi milli landa.
Dom Mintoff, forsætisráð-
herra Möltu, var meðal þeirra,
sem létu töluvert að sér kveða á
öryggisráöstefnu Evrópu i Hels-
inki á sinum tima, þegar
Helsinkisáttmálinn var f smið-
um. Mintoff var mebal tals-
manna þess, aö sett yrði inn i
sáttmálann ákvæði um, að auð-
velduð yröi skipti á upplýs-
ingum yfir landamæri rikjanna.
Það voru Vesturlandamenn,
sem sóttu þetta fast, og höfðu þá
sérstaklega ihuga austantjalds-
rlkin, þar sem einstaklingar
liafa verið ofsóttir og dæmdir
fyrir „áróður”, ef þeir hafa sent
frá sér nokkrar bréflínur <aö
ekki sé minnst á bækur) vestur
fyrir járntjaldið, sem ekki voru
að skapi Kremlherranna.Til eru
líka dæm,i um, að vestrænir
fréttamenn liafi verið bornir
fölskum njósnasökum fyrir að
hafa sent að austan fréttir af
málefnum, sem yfirvaldiö vildi
dylja á bak við járntjaldiö.
En nýlega sýndi Dom Mintoff,
að hann túlkar ekki þetta
ákvæði sem svo, að það nái lika
til Möltu, sem var þó meðal
þeirra rikja, er skrifuðu undir
Helsinkisáttmálann.
Það var kannski tilviljun, en
einkennilegt samt,að það bar
upp á sama daginn, sem 26 ára
gömul dóttir hans lét hrossa-
skitnum rigna yfir þingmenn i
neðri málstofu breska þingsins,
og Dom Mintoff forsætisráð-
herra bannaði öllum breskum
fréttamönum að koma til Möltu.
Hann skýrði bannið fyrir full-
trúadeild Möltuþings þannig, aö
sér hefði gramist heiftarlega
umfjöllun BBC, breska útvarps-
ins, og frásögn, af heimsókn
Kaddafis ofursta, leiðtoga
Libýu, til Möltu.
Það hafði þott koma greini-
lega fram I sameiginlegri yfir-
lýsingu, sem þeir Mintoff og
Kaddafi gáfu eftir viðræður
sfnar, sá mikli áhugi, sem
Libýuleiðtoginn hefur á þvi að
gerast herverndari Möltu.
Bresku fréttaskýrendurnir
héldu þvi blátt áfram fram, að
Dom Mintoff hefði lagt sig allan
fram við að gera hosur sinar
grænar fyrir Kaddafi ofursta,
en Mintoff mundi heldur vilja
kalla það tilraunir til þess að
auka vinsamleg samskipti
Möltu og Libýu. í frásögnunum
af heimsókn ofurstans var bent
á, að Libýumenn drægju ekki
lengur dul á, aö þeir teldu sig
eiga hönk upp i bakið á Möltu-
búum fyrir mikla rausn, sem
þeir hefðu sýnt Möltu i sölu oliu
á verði, sem er langt undir
hei msm arkaðs verði. Enn
fremur var velt vöngum yfir
þeim áhuga, sem Libýumenn
liafa sýnt deilum stjórnar Min-
toff við samtök lækna og
kennara á Möltu.
Þetta var allt meira en Min-
toff þoldi, og hann þurfti ekki
annað til þess að lýsa algjöru
banni á veru breskra frétta-
manna á Möltu. Þangað skyldu
þeir ekki fá að stiga fæti.
Engin furöa, þótt leiðtogi
stjórnarandstöðunnar, Edward
Fenech-Adami, varaði Möltu-
búa við þvi fyrir skemmstu, að
þeir þyrftu að standa vörð um
frelsi sitt, sem smátt og smátt
væri saxað á. — Þvi að jafn-
óstinnt og Mintoff tekur frétta-
flutningi erlendra blaðamanna
upp, þá tekur hann þó hálfu
harðar á gagnrýnisskrifum
heimamanna, sem hann lætur
vera undir lögreglueftirliti.
ER VERÐBOLGAN
ÓLEYSANLEGT VANDAMÁL?
- NEI EKKI FYRIR OKKUR
SPARIÐ 20% -
NOTIÐ AGFACOLOR FILMU
Austurstrœti
Simi 10966