Vísir - 31.07.1978, Side 19

Vísir - 31.07.1978, Side 19
23 VÍSIB Mánudagur 31. jiili 1978 Þvi er haldift fram aft Steingrlmur Hermannsson hafi stungift upp f ólaf og hyggi á frekari metorft innan flokksins. „Framsóknarflokkurinn er svo sveitó. Og þaö er ekkert nema greinar um landbúnaö i Timanum”. Setningar á borð við þessar hafa oft heyrst. Allir ætttu að vita að fásinna er að bera slikt á borð, en orsökin er augljós. Framsóknarflokkurinn hefur ekki haft skelegga mál- svara til kynningar á stefnu sinni og flokksmálgagnið Tim- inn hefur verið sett skör lægra af lesendum sökum þess að það hefur ekki i neinu fylgt breyt- ingum þess umbrotatima sem verið hefur i islenskum blaða- heimi siðustu misseri. Ætli flokkurinn sér að vaxa aftur til vegs og viröingar i islenskum stjórnmálum verður þetta að breytast. Ungt fólk fylkir sér ekki um Framsóknar- flokkinn eins og nú er ástatt og úrslit kosninganna sýna svo ekki verður um villst aö ibúar þéttbýlissvæða krossa við aðra flokka i kjörklefanum. Jón fagnar — aðrir æpa. „Timinn fagnar þeim nýju viðhorfum sem upp hafa kömið i islenskri blaðamennsku. Nútið- in hefur skorað gömlu blöðin á hólm, og þeirri áskorun verður drengilega tekiö”, sagði Jón Sigurðsson ritstjóri Timans i grein á sunnudaginn. Máltækiö „betra er seint en aldrei” á við hér. En þótt Jón Sigurðsson fagni hinum nýju viöhorfum islenskrar blaöamennsku er ekki sömu sögu aö segja um marga flokksbræftur hans. „Ég held að aðalorsök þessara óvæntu úrslita sé i fyrsta lagi nýjar aðferðir i áróðurstækni og þar á ég við siðdegisblöðin, sem viröast af ásettu ráöi hafa beint spjótum sinum að Framsóknar- flokknum i þvi skyni að brjóta hann niður,án þess að flokksfor- ystan hafi tekið upp rétt vinnu- brögð til varnar”, sagði eini nýi þingmaöur Framsóknar, Alexander Stefánsson, i viðtali við Timann eftir kosningar. Þessi setning hefur hrotið af vörum margra Framsóknar- manna i ýmsum myndum og sumum svæsnari en þessar. Ummælin segja að visu meira um höfunda þeirra en siðdegis- blöðin eða eins og Friðrik Sóf- usson þingmaður Sjálfstæðis- flokksins lét hafa eftir sér: „Ekki við siðdegisblöðin að sakast heldur þá flokka sem ekki tóku tillit til þeirra”. Gegn kliku Kristins Ef marka má ýmis ummæli forystumanna Framsóknar- flokksins eftir kosningar stendur flokkurinn nú á tima- mótum. Ólafur Jóhannesson talaði um að breyta starfshátt- um og starfsaöferðum og Þórarinn Þórarinsson talaði um breytingu á skipulagi, starfs- háttum og málefnalegri baráttu flokksins. Ýmsir eru þó efins um að þeir vilji breyta miklu og þar á meðal eru ungir framsóknar- menn I Reykjavik sem skorið hafa upp herör gegn ákveðinni „kliku” I flokknum, sem þeir nefna svo. Til hennar teljast m.a. Kristinn Finnbogason, framkvæmdastjóri Timans, Jón Aðalsteinn Jðnasson, formaður fulltrúaráðs Framsóknarfélag- anna f Reykjavik, Alfreö Þor- steinsson,fyrrum borgarfulltrúý og Alvar Óskarsson, fram- kvæmdastjóri Framsóknarfé- laganna i Reykjavik. Hafa ungu mennirnir þegar fengið þvi áorkað að Alvari hefur verið vikið úr stöðu sinni. Næst á að höggva að Kristni og i ályktun fundar félagsins fyrir skömmu er Kristni gefið aö sök að hafa ritstýrt Timanum i krafti fjármálastjórnar sinnar. Ekki fámennur hópur unglinga Vert er að vekja athygli á þvi að hér er ekki um fámennan hóp „unglinga” að ræða, eins og sumum er gjarnt aö halda á lofti heldur eru áhrifamenn i flokkn- um innan þeirra raða, þ.á.m. Eirikur Tómasson, aðstoðar- maður dómsmálaráðherra, og Gerður Steinþórsdóttir, vara- borgarfulltrúi. Boöa nýja tið Atök innan Framsóknar- flokksins vegna ákvörðunar þingflokksins um þátttöku i stjórnarmyndunarviðræðum hafa borið hátt siðustu daga. Þau boða nýja tið i flokknum. Vald Ólafs Jóhannessonar hefur minnkað, en áhrif hóps manna sem vill sveigja stefnu flokksins til vinstri hafa vaxið stórlega. Þar er Steingrimur Hermanns- son i broddi fylkingar. Steingrimur hefur að sögn margra Framsóknarmanna stefnt að þvi leynt og ljóst aö taka viö formennsku af Ólafi þegar hann kýs að draga sig i hlé. En þaö eru ekki allir á eitt sáttir um Steingrim og ákafir stuðningsmenn Ólafs lita hann hornauga eftir að hann hafði Ólaf undir i glimunni um vinstri stjórnina. Og það skal hafa i huga að i miðstjórn flokksins á Ólafur öruggt meirihlutafylgi. „Þátttaka þingflokksins I stjórnarmyndunarviðræðunum nú eru mistök”, segir Jón Skaftason fyrrum alþingis- maður i Timagrein og talar um „raunsæisskort” og „bráðræöi” þeirra þingmanna, sem knúðu á um þátttöku i viðræðunum. Kynslóðaskipti Allt ber að sama brunni. Þótt ekki sé beinlinis hægt að nefna Steingrim og Ólaf sem andstæö- inga, eru fylkingar þeirra and- stæð öfl i flokknum, sem vilja fara mismunandi leiöir varð- andi stöðu flokksins út á við og bera vott um kynslóöaskipti i flokknum. Hvað innra starf áhrærir eru fylkingarnar óljós- ari og þar greinir menn mjög á um leiðir i endurreisnarstarf- inu. Sumir vilja sem fyrr fara hægt i sakirnar en aðrir vilja nota tækifærið meöan stjórn- málaflokkarnir eru undir smá- sjá þjóðarinnar. Allt þetta mun leiöa til innbyrðis átaka þar sem sárindi veröa i kjölfarinu, en ósagt skal hvort þessi átök muni verða flokknum til góðs eða ills. Til þess eru þau of skammt á veg komin. „Það er deginum ljósara að má veröur af flokknum það óorð um fjármálaspillingu sem loðir við hann”, sagði einn ungur Framsóknarmaður. Eflaust hárrétt, en spurningin snýst ekki um það heldur um leiðirnar að settu marki. Um það munu Framsóknarmenn deila næstu vikurnar. 0, ÞESSI ÞURRA HÚÐ! I VIDI krem m/Korbamid er fróbœrt rakakrem, jafngott á allan líkamann, sérstaklega eftir sund og sólböð 100 ml. túpur Fœst í APÓTEKINU og snyrtivörubúðum pl iarma mctlica a > i FARMASÍA I -Æ Simi: 25933. „Peoples Problems and Progress" Tveggja stunda samstund með SYSTUR CHRISTINE fyrrverandi yfirráðgjafa Veritas-Villa HÓTEL ESJU (2. HÆÐ) Mánudag 31. júli kl. 20-23, þriðjudag 1. ágúst kl. 20-23. Þátttökugjald kr. 2.500.- pr. mann KRISTÍNARVINIR 77 Hárgreiðslustofan Qk Öðinsgötu 2 ' Simi u 22138 illllllllllllllllllllllllllllllllllillilllltiiiiiiiiiiii 1 lllllllílrf k —Gsai/ÓM.

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.