Vísir - 05.08.1978, Blaðsíða 9

Vísir - 05.08.1978, Blaðsíða 9
¥ism Laugardagur 5. ágúst 1978 9 SPURT A GÖTUNNI Hefur þú komist i kast vætti? Björn Blöndal Ég er allt of jarðbundinn til aö trúa á drauga eða annað slikt. Sjálfur hef ég aldrei séð neitt, og alltaf þegar mér eru sagðar draugasögur tek ég þeim cum grano salis, sem er latina og þýðir ,,með salti”. Þær fara sumsé inn um annað og út um hitt. Hinir dánu bita ekki og ég held að þaö sé engin ástæöa til að hræðast þá. Það er frekar að þeir sem eru á lífi geti gert manni mein. við drauga eða aðra Máífriður Einarsdóttir Aldrei hef ég séð neitt en trúi öllu. Sumt læt ég að visu liggja milli hluta, en annað er óvéfengjan- legt. Um daginn sagði mér kona, aö hún hefði séð hest, sem búið var að lóga á öðrum bæ. Þegar hún sá hestinn vissi hún ekki, að hann hafði verið aflifaður, en þótti hann mjög dapur og sár á svipinn. Lárus Asbjörnsson. Eg trúi álika litið á drauga og á guð almáttugan, og kann lítið af þeim að segja. Þó kann ég sögu af manni, sem fór i striðið. Hann var svo óheppinn að hann missti lim og var sendur heim. Konan hans skildi ekkert i þvi hvað hann var fálátur við sig. Eina nóttina dreymir hann að álfadis kemur til hans og segir að hann megi óska sér hvers sem hann vildi. I draumnum sér hann lika þrjá gráa hesta sem hann átti, einn lit- inn, annan stærri og þriðja stærstan, og segir disinni að hann vilji fá það sem á hann vanti, af þeim i miðið. Um morguninn er allt komið i samt lag, og maður- inn segir konunni sinni söguna. Hún verður glöð við, en segir Moris Spivac Allt tal um drauga er hreinasta bull I minum eyrum. Góðu verið ekki að angra mig með þvi. Hver eg sé? Ég er frægur málari og fæddist i Rússlandi i nágrenni Moskvu. Þaðan var ég borinn i reifum þriggja ára til Bandarikj- anna. Þar dvaldist ég á meðan gott var, en svo þegar Nixon komst til valda ákvað ég að forða mér og koma hingað. Ég veit að Nixon var hættulegur maður, en um drauga veit ég ekkert. samt: Datt þér ekki i hug aó stóri Gráni væri kannski heppilegri. Þetta er eina draugasagan, sem ég kann, og hún er vist heldur óvirðuleg. KROSSGATAN

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.