Vísir - 05.08.1978, Qupperneq 12

Vísir - 05.08.1978, Qupperneq 12
12 Laugardagur 5. ágúst 1978 VÍSIB Konurí viðskiptum Heldur hefur þótt ganga hægt, að konur hösluðu sér völl meðal framámanna í viðskipta- rekstri á íslandi. Þó hef- ur það farið vaxandi eins og á öðrum sviðum þjóð- lifsins, og eru nú talsvert margar konur í ýmiss konar atvinnurekstri. I tilefni verslunarmanna- fridagsins ræddum við lítillega við f jórar konur, sem allar eiga það sam- eiginlegt að hafa rekið verslun eða fyrirtæki um nokkurt skeið. Það eru þær Arndís Björnsdóttir, eigandi Rosenthal-versl- unarinnar, Bára Sigur- jónsdóttir, eigandi versl- unarinnar Hjá Báru, Gerður Hjörleifsdóttir, verslunarstjóri tslensks heimilisiðnaðar, og Kristin Þorkelsdóttir, eigandi Auglýsingastofu Kristínar. Eins og búast mátti við barst talið að ýmsu og margar skoðanir og mismunandi komu f ram. Viðtölin er að f inna hér á opnunni. „Var dawðhrcedd við bankastjór- ana í fyrstu" — rabbað við Gerði Hjörleifsdóttur, verslunarstjóra íslensks heímilisiðnaðar .,Ég veit i rauninni ekki almennilega hvernig það gerðist, aö ég tók að inér þetta starf” sagði Gerður Hjörleifsdóttir, verslunarstjóri beggja deiida isiensks heimilisiðnaðar, sem reknar eru á vegum Heimilis- iðnaðarfélagsins, er við áttum tai við hana.” Einu sinni ætlaði ég aö veröa leikkona. Ég útskrifaöist mcð fyrsta hópnuin sem lærði I Leikiistarskóla Þjóðleikhússins, en hætti siðan við að fara út i leik og fór að vinna á skrifstofu i staöinn.” ,,Ég hafði unnið viö skrifstofu- störf i tuttugu ár, og aldrei borið mikla ábyrgð á herðum, þegar Sigrún Stefánsdóttir, fyrsti verls- unarstjóri Islensks heimilisiðn- aðar, kom að máli við mig einn góðan veðurdag fyrir mörgum árum árum og bað mig að taka við af sér. Ahuginn beindist i þessa átt, þvi að ég hafði tekið vefnaðarkennarapróf úr Mynd- lista- og handiðaskólanum en á hinn bóginn kunni ég varla að skrifa vixil, og vissi yfirleitt litið um fjármál. Auk þess var ég mjög rótgróin þar sem ég vann og leið vel, og þá er alltaf erfitt að rifa sig i burtu. Ég hugsaði mig þess vegna um i þrjú ár, en allt i einu greip mig einhvernveginn eldiegur áhugi, ég trúði þvi fast- lega að þetta mundi ganga vel, og ákvað að drifa mig i að taka boði Sigrúnar. Það var fyrir ellefu árum.” „Ákaflega lifandi starf” „Siðan hefur þetta verið þrot- laus vinna, en þó hægst aöeins um með timanum, þvi að fyrstu árin vann ég allar minar fristundir af þvi sem þurfti að gera i sambandi viö reksturinn’.’ bætti Gerður viö „AUt i einu greip mig eldlegur áhugi, ég trúði þvl fastlega, að þetta mundi ganga vel, og ákvað að drlfa mig í aö taka boðinu”. Gerður Hjörleifsdóttir hefur veriö verslunarstjóri tslensks heimilisiðnaöar I eilefu ár, en haföi áður unnið skrifstofustörf I tvo áratugi. Mynd Jens og brosti ánægjulega. „Hins vegar gerði þaö ekkert til, þvi að þetta starf var og er mikilvægur hluti af lifi minu og ég hef geysi- lega ánægju af þvi. Ég hef verið afskaplega lánsöm með sam- starfsfólk, og það hefur verið minn mesti styrkur. Þetta starf er lika ákaflega lifandi. Ég kemst yfirleitt i mjög náin tengsl við þá, sem selja okkur heimilisiðnaðarvörur. Þar er aðallega um konur að ræða, á öllum aldri, en þó kemur oft fyrir, að við eigum viðskipti við karl- menn. Til dæmis man ég eftir þvi, að fyrir nokkrum árum fengum við hver vettlingapörin á fætur öðrum frá tveimur menntaskóla- strákum, sem unnu sér inn dálitinn vasapening með þvi að prjóna. Svo er talsvert um að full- orðin hjón prjóni lopapeysur i sameiningu, og einnig kemur fyrir að við fáum hosur frá karl- mönnum. Fjölbreytnin eykst sifellt, og vörurnar, sem við höfum á boðstólum virðast falla i mjög góðan jarðveg nú á dögum. Fólk virðist vera farið að læra að meta gott handbragð aftur”. „Erfiðast að gera fólk afturreka” „Það sem mér finnst erfiðast við þetta starf er þegar ég þarf að gera fólk afturreka með vörur, sem það kemur með til að sýna okkur. Við verðum að gera vissar kröfur til gæða þeirra vara, sem við tökum viö, og auk þess kemur stundum fyrir, að við höfum ekki fjármagn til að kaupa vörur, jafnvel þótt þær séu mjög vand- aðar. Þá þreytist ég mest, þvi aö það tekur svo hræðilega á sálina. Mér finnst miklu minna gera til, þótt ég verði likamlega þreytt. Ég man lika, að mér þótti mjög erfitt fyrstu árin að ganga fyrir banka- stjórana og biðja um lán. En það hefur breyst, og nú er ég ekki eins bljúg.þegar ég heimsæki þá góðu menn, og ég var.” „Að sumu leyti kemur það sér vel i þessu starfi, að ég er ógift, þvi að vinnudagurinn er oft langur. Ég bjó með móður minni siðustu árin, sem hún lifði, og þótt oft leiðnlegt að geta ekki eytt meiri tima með henni. Einnig gerir þessi langi vinnudagur það að verkum, að ég hef ekki eins mikinn tima til að sinna vinum og ættingjum og ég vildi. En þrátt fyrir allt hefur verslunarstarfið veitt mér mikla gleði, og ég held að ég geti sagt, að ég hafi hlakkað til hvers vinnudags. AHO „Enginn sœll að standa í „bisniss" í Reykjavlk" segir Bára Sigurjánsdáttir, eigandi verslunarinnar Hjá Báru „Mér hefur alltaf veist allt létt, sem ég hef tekiö mér fyrir hendur, hvort sem um er að ræða að skúra gólf, þvo upp eöa standa i búðinni”. MyndSHE „Það er ábyggilega enginn sæll aö standa i bisniss hér i Reykja- vík, sérstaklega ekki fólk sem er aö byrja núna. Fjármagnið, sem þarf til að koma á fót verslun i dag, er alveg gifurlegt. Mér hefur þó gengið ágætlega með verslun- ina, enda byrjaði ég með lítið og stækkaði svo við mig smátt og smátt”. Það er Bára Sigurjónsdóttir, eigandi verslunarinnar Hjá Báru.sem talar. Bára hefur rekið verslun i rúman aldarfjórðung, lengst af i Austurstrætinu en nú siðustu tvö árin á Hverfisgötu 50. Að sögn Báru hafa viðskiptin gengið mjög vel eftir að hún flutti á Hverfisgötuna, og er ætlunin aö stækka verslunina i haust. „Tiskuverslanirnar voru ekki margar þegar ég byrjaði. Þá var bókstaflega ekkert til á Islandi. Mér er það minnisstætt, aö ég setti gólfteppi á búðina áður en ég opnaði, en varð fljótlega að taka það af aftur þvi að væntanlegir kúnnar þorðu ekki að ganga um i versluninni af ótta viöað skemma gólfteppið”. ,/Elska fegurö í allri sinni mynd" „Nú hefur afstaöa fólks breyst dálitið, svo ekki sé meira sagt” heldur Bára áfram. „Ég hef verið að burðast við að gera huggulegt i búðinni hjá mér, meðal annars með þvi að segja blóm i ker utan á gluggana og teppi á tröppurnar að innganginum. Þar er þó aug- ljóslega gott að sitja, þvi að tepp- iðer þegar komið með brunagöt.” „Ég hef alltaf lagt mikið upp úr umhverfinu, enda elska ég fegurð i allri sinni mynd. Mér finnst mik- ilvægt að verslunin liti vel út, þannig að viðskiptavinurinn geti slappað af og látið sér liöa vel. Það er ánægjulegt að veita góða þjónustu og finna, að fólk verður fyrir áhrifum af þvi,, sem maöur hefur skapað. Viö konurnar vilj- um hafa stemningu. Það á bæöi við um viðskiptavininn og starfs- fólkið, enda hef ég verið óskap- lega heppin meö starfsfólk, og sama fólkið hefur unniö hjá mér i fjölda ára.” //Hef mikla ánægju af að vinna" „Astæðan til þess að ég fór út i verslunarrekstur var sú, að ég vildi gera eitthvað meira viö tim- ann en að vera heima”. sagði Bára er talið barst að þvi. „Að visu er mikil vinna i sambandi viö heimilishald, en mér hefur alltaf veist allt létt, sem ég hef tekið mér fyrir hendur, hvort sem um er að ræða að skúra gólf, þvo upp eða standa i búðinni. Það kemur bæði til, að ég er heilsuhraust, og hef einnig mikla ánægju af að vinna. Það á ég ekki sist foreldr- um minum að þakka, þvi að við börnin vorum alltaf vanin á að vinna. Ég hef ekki verið með neina heimilishjálp siðan strák- arnir minir voru litlir, en þá fékk ég manneskju til að hjálpa mér dálitið. „Auðvitað hefur það lika hjálp- að til, að maðurinn minn, Pétur Guðjónsson, hefur séð um inn- flutninginn og bókhaldið fyrir búðina. Ég sé hins vegar alveg um daglegan rekstur, innkaup, gluggaútstillingar og annað slikt, og það vill oft verða drjúgt með heimilinu.” //Er engin Rauösokka" „Mér finnst nefnilega, að kona, sem vinnur úti, eigi lika að sjá um öll störf á heimilinu. Það er engin sanngirni i að heimta að maðurinn taki við heimilisverkunum þótt konan vilji fara út að vinna.Ég tel heldur ekki, að konur ættu að fara út aö vinna fyrr en börnin eru orð- in svona þriggja ára. Þegar þau ná þeim aldri er þeim orðið nauð- synlegt að kynnast öðrum börn- um og hætta að hanga i pilsfaldin- um á mömmu. Hins vegar hafði ég það að reglu meðan drengirnir voru ungir að vera heima við á kvöldin, og forðast að taka mik- inn þátt i félagsstarfsemi. Þegar maður er svona mikið i burtu veitir ekki af að nota hverja fri- stund með börnunum . Þiö sjáið náttúrulega á þessu, að ég er engin rauðsokka — langt i frá. Rauðsokkur láta allt of illa að minu áliti. Þær þurfa ekki að láta svona illa. Að visu er sjálf- sagt að berjast fyrir launajafn- rétti og öðru af þvi taginu. En að vera að tala um að karlmenn setji fótinn fyrir konur og þar fram eftir götunum virðist mér út i blá- inn. Ég hef aldrei lent i vandræð- um ef ég hef þurft að sækja eitt- hvað undir karlmenn, heldur alltaf mætt fullum skilningi og sanngirni. Ég sé lika enga ástæðu til að konur séu aö setjast á trakt- ora eða önnur slik tæki og reyna aö vera eins og karlmenn. Meö þvi tapa þær alveg þessu kven- lega”. —AHO

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.