Vísir - 15.09.1978, Qupperneq 5
.—\
ífffcé. Á
Eitt verka Hollendingsins á sýningunni.
Vfsismynd Gunnar V. Anaresson
Hollendingur sýnir
í Gallerí Langbrók
Nýlega var opnuö málverka-
sýning i Galleri Langbrók Vita-
stig 12. Myndirnar eru eftir hol-
lenskan myndlistarmann J. Van
de Brand ab nafni.
Hann er 35 ára aö aldri og
stjórnaði auglýsingafyrirtæki
áður en hann hóf nám i listaskola
og lagði myndlistina fyrir sig.
Hann hefur hlotið verðlaun á
stórri málverkasýningu i Hol-
landi, Kreato 1976.
Verk Hollendingsins eru raunsæ
og hann málar mjög smágerðar
myndir. Sum smáatriðin eru
varla millimetri að stærð. Mynd-
listarmaðurinn vill að áhorfendur
stansi við smáatriðin og skoði
myndirnar mjög nálægt.
Galleri Langbrók er opið alla
virka daga frá kl. 13 til 18.
—KP.
Útivist:
Heldur uppi ferðum
í allan vetur
„Viö látum veöur ekki skipta
okkur nokkru máli og höldum
uppi feröum i allan vetur um
helgar. Fram eftir hausti veröa
farnar heigarferöir og einnig
styttri ferðir”, sagöi Kristján M.
Baldursson hjá Otivist i spjalli
viö Visi.
A laugardag kl. 13 veröur hald-
ið af stað i ferð um Reykjanesið i
fylgd með jarðfræðingi, Jóni
Jónssyni. Ekið verður um Heið-
mörk og farið upp undir Hellis-
heiði. Siðan verður gengið Ur
Hveradölum og niður að Eldborg-
um. Þar verða skoðaðar gigja-
ráðir og hraunmyndanir.
Jón er með fróðustu mönnum
um jarðfræði Reykjanesskaga
Vefrarstarfið
hofið hjá
Loftinu
— Vignir ióhannsson
sýnir grafik
Vignir Jóhannsson frá Akranesi
opnar sýningu á Loftinu Skóla-
vöröustig 4 i dag kl. 18..
Vignir sýnir teikningar og gra-
fik, sem hann hefur unniö undan-
farið ár. Hann lauk námi frá Gra-
fikdeild Myndlista- og handiöa-
skóla íslands siðastliðið vor og er
nú ráðinn við skólann sem kenn-
ari i vetur.
Sýningin verður sú fyrsta i
upphafi vetrarstarfsins hjá Loft-
inu, en þær hafa le'gið niðri i sum-
ar vegna eigendaskipta. Hún
verður opin frá kl. 9-18 virka daga
og frá kl. 10-18 á laugardögum, en
frá kl. 14 til 18 á sönnudögum.
—KP.
svo menn verða margs visári sem
fara með honum þessa ferö.
Tunglskinsganga veröur farin á
laugardag og lagt upp kl. 20.
Gengið verður frá Kaldárseli yfir
i Valabók og um Helgadal. Tungl-
myrkvi verður þennan dag og ef
skyggni verður gott, þá ætti að
vera hægt að fylgjast meö honum.
A sunnudag verður gengið á
Esju kl. 10.30. en kl. 13 verður
■f arið i Kræklingaferð upp i Kjós.
Þær feröir hafa verið mjög vin-
sælar og allt upp I eitt hundrað
manns hafa tekið þátt i þeim..
—KP.
SKYNMMYNDIR
Vandaðar iitmyndir
í öll skírteini.
bama&fjölskyldu-
Ijosmyndir
AUSTURSTRÆTI 6 SIMI
12644
litla franska
TRÖLLIÐ
1979
Höfum fengið 1979 árgerðina af þessum
eftirsóttu og margreyndu SIMCA 1100.
SIMCA 1100 sendibíllinn er lipurt og
þolmikið atvinnutæki, sem hefur marg-
sannað ágæti sitt á fslandi, enda er hann í
eigu fjölmargra fyrirtækja, stofnana og
sveitarfélaga.
Við getum boðiðtværgerðiraf sendibílnum
og eina pick-up gerð.
Hafið samband við okkur strax í dag og
tryggið ykkur bíl.
Sölumenn Chrysler-sal
sími 83330 eða 03454
9 Uökull hf.
ÁRMÚLA 36, Símar 84366 - 84491
Sniðill hf., Óseyri 8 Akureyri. Sími 22255.
UTSOLUMARKAÐURINN
STENDUR SEM HÆST
.—■i Opið til kl. 7 í kvöld
ATH. LAUGARDAG KL. 9-12
VINNUFATABÚÐIN
Iðnaðarhúsinu
v/Hallveigarstíg