Vísir - 15.09.1978, Qupperneq 10

Vísir - 15.09.1978, Qupperneq 10
10 utgefandi: Reykjaprent h/f Fra mkvæmdast jári: Davlö Guömundssun Ritstjórar: Þorsteinn Pálsson ábm. úlafur Ragnarsson Ritstjórnarfulltrúi: Bragi Guðmundsson. Fréttastjóri erlendra frétta: Guðmundur Pétursson. Umsjón meö helgarblaöi: Arni Þórarinsson. Blaöa- menn: Berglind Asgeirsdóttir, Edda Andrésdóttir, Elias Snæland Jónsson, Guðjón Arngrlmsson, Jón Einar Guðjónsson, Jónina Mikaelsdóttir, Katrln Páls- dóttir, Kjartan Stefánsson, Oli Tynes, Sæmundur Guðvinsson. Iþróttir: Gylfi Kristjánsson og Kjartan L. Pálsson. Ljósmyndir: Gunnar V. Andrésson, Jens Alexandersson. Utlitog hönnun: JónOskar Hafsteinsson, Magnúsóíafsson. Auglýsingd- og sölustjóri: Páll Stefánsson Dreifingarstjóri: Sigurður R. Pétursson Auglýsingar og skrifstofur: Siöumúla 8. Simar 88611 og 82260 Afgreiösla: Stakkholti 2—4 simi 86611 Ritstjórn: Siðumúla 14 simi 86611 7 Ifnur Askriftargjald er kr. 2000 á mánuöi innanlands. Verö i lausasölu kr. 100 eintakið. Prentun Blaöaprent h/f. ALÞINGI ER EKKI ÓMERKILEGRA EN GUÐMUNDUR J. Með sanni verður ekki sagt að það sé nýtt af nálinni, að meiriháttar ráðstafanir í efnahagsmálum skuli vera ákveðnar með bráðabirgðalögum. Hver ríkisstjórnin á fætur annarri hefur hagnýtt sér heimasetu þingmanna til þess að setja bráðabirgðalög. En í raun og veru eru þau ekkert annað en tilskipunarstjórnarform. Ríkisstjórnir hér á landi hafa beitt bráðabirgðalaga- heimildinni mjög f rjálslega. Vitaskuld er það matsatriði hvenær brýna nauðsyn ber til að leysa mál með slikum hætti. En þegar til lengri tíma er litið má fullyrða, að rikisstjórnir hafa gengið of langt í þessu ef ni og þar með dregið úr völdum Alþingis, sem sjaldnast getur annað gert en staðfesta tilskipanirnar. Og spurningin er ekki einvörðungu sú, hvort bráða- birgðalög fái staðfestingu Alþingis. Aðalatriðið er, að undirbúningur lagasetningar sé með þeim hætti, að opn- ar umræður á löggjafarsamkomunni fari fram áður en málum er endanlega ráðið. Núverandi ríkisstjórn hefur þegar ráðist í umfangs- miklar aðgerðir í efnahagsmálum og komið þeim fram með tilskipunaraðferð bráðabirgðalaganna. Nú er þetta orðinn svo venjubundinn háttur við stjórn efnahags- mála, að ósanngjarnt væri að gagnrýna þessa ríkisstjórn sérstaklega fyrir vikið. Hún hefur svo mörg fordæmi til þess að réttlæta vinnubrögð af þessu tagi. En eigi að síður er eðlilegt að menn velti því fyrir sér, hvort eðlilegt geti talist að ráða svo mikilvægum málum til lykta án þessað kalla Alþingi saman. Víðast hvar ann- ars staðar hefði það verið gert við svipaðar aðstæður og við höfum staðið frammi fyrir siðustu vikur. Hér er verið að gera svo umfangsmiklar ráðstafanir, að í raun réttri er óverjandi að sniðganga Alþingi eins og gert hefur verið. Þó að fordæmin fyrir þessum vondu siðum séu mörg, réttlætir það eitt út af fyrir sig ekki að þeim sé haldið áf ram. Alþingi hefði því að réttu lagi átt að kalla saman, þegar ný ríkisstjórn var mynduð. Sumar af aðgerðum ríkisstjórnarinnar þoldu að vísu ekki bið eins og gengisskráningarákvörðunin. En slíkar ákvarðanir taka rikisstjdrnir án afskipta Alþingis eins og vera ber. Aðrar ákvarðanir gátu hæglega beðið þess að Alþingi tæki afstöðu til þeirra. I þessu sambandi er þó einnig á það að líta, að ríkis- stjórnin hefur fleiri afsakanir en fordæmin. Stjórnar- andstaðan sýnist t.d. hafa verið í sumarfrii. Þau sjálf- sögðu vinnubrögð að kalla Alþingi saman hefðu þvi ugg- laust komið henni í opna skjöldu og e.t.v. raskað um of ró hennar. En jaf nvel þessi af sökun breytir ekki því, að tilskipun- arstjórnarhættirnar eru óeðlilegir. Ríkisstjórnir sækja vald sitt til Alþingis og eiga að virða vald þess meir en gert hef ur verið. Ríkisstjörnin telur sér það til ágætis að hafa gert þessar ef nahagsráðstafanir í nánu samráði við forystumenn verkalýðsfelaganna. Og sumir ráðherr- anna hafa gefið til kynna að þeir geri ekkert, nema verkalýðsforystan samþykki það fyrirfram. Við þessi vinnubrögð hafa menn ekki gert athuga- semdir. En þyki það sjálfsagt, að rfkisstjórnir taki ákvarðanir í samráði við verkalýðsforystuna ætti ekki að vera ósanngjarntað þær legðu mál sín einnig f yrir Al- þingi. Þegar allt kemur til alls er Alþingi ekkert ómerki- legra en Guðmundur J. »wi .»< ■múnhmair, Föstudagur 15. september 1978 ViBlJti Sonur skóarans og dóttir bakarans: Nýir leikarar í stórum hlutverkum Þjóðleikhúsið frumsýnir í kvöld Þjóðleikhúsið frumsýnir í fyrsta sinn á þessu leikári i kvöld. Starfsárið hefst , með leikriti Jökuls Jakobs- sonar, Sonur skóarans og dóttir bakarans, eða Söngurinn frá My Lai. Viðamesta verk Jökuls. Sonur skóarans og dóttir bakarans er viðamesta verk Jökuls. Hann færist hér meira i fang en áður og fæst hér við heilt sjávarpláss úti á landi, en skir- skotar langt út fyrir landstein- ana. t plássinu er allt i niður- niðslu og ibúarnir lepja dauðann úr skel uns heim kemur hann Jói, sem er sonur skóarans. Hann hefur verið úti i hinum stóra heimi. Jói kemur með rikisbubba með sér, Kap að nafni, sem setur fabrikkuna i gang að nýju, en hún hefur verið stopp i langan tima og allir verið atvinnulausir i þorp- inu. Jökull Jakobsson var lengi með þetta verk i smiðum, enda ber það þess nokkur merki. Hann var viðstaddur fyrstu sýningar þess i vor, en lést sem kunnugt er skömmu eftir að þær hófust. Nýjir leikarar í stórum hlutverkum. Titilhlutverkin, sonur skóarans og dóttir bakarans eru i höndum þeirra Arnars Jónssonar og Kristinar Bjarnadóttur. Þau leika Disu og Jóa. Kristin er nú i fyrsta sinn á sviði hér á landi. Hún stundaði nám i Danmörku og útskrifaðist sem leikari árið 1974. Siðan hefur hún leikið t.d. i sjón- varpskvikmyndum og i leikritum erlendis. Mikill fjöldi skemmtilegra per- sóna koma við sögu i leiknum. Fyrsta skal telja Fiu hótelstýru, en hana leikur Kristbjörg Kjeld. Hún man betri daga sem voru og hétu i Hótel Aróru, sem hún stýrir af mikilli röggsemi. Albjartur og Matthildur eru skötuhjú, sem Rúrik Haraldsson og Þóra Friðriksdóttir leika. Róbert Arn- finnsson leikur oddvitann i pláss- inu og ErlioingurGislason leikur Kap, auðkýfinginn sem lætur öll hjól snúast á nýjan leik i plássinu. Tveir nýútskrifaðir leikarar fara einnig með stór hlutverk i leiknum. Það eru þau Edda Björgvinsdóttir og Emil Guðmundsson. Edda leikur stúlku sem á heima hinum megin við heiminn og er kölluð Flör i leiknum. Emil leikur ólaf, sem er kallaður Óli og selur fisk á torg- inu. Þetta er þriðja leikrit Jökuls Jakobssonar sem sýnt er i Þjóð- leikhúsinu. Hin fyrri voru Klukkustrengir sem sýnt var árið 1973 undir stjórn Brynju Bene- diktsdóttur, Herbergi 213 sem sýnt var 1974 en þvi verki leik- stýrði Kristjörg Kjeld. Þaðer Helgi Skúlason sem leik-. stýrir Syni skóarans og dóttur bakarans, en leikmyndina hefur Magnús Tómasson myndlistar- maður gert. __KP. Kristin Bjarnadóttir I fyrsta sinn á sviði hérlendis. Almenningur mun brótt heimta kosningar á ný Undarlegur er sá aflægislegi kjaftháttur, sem sæmilega skyni- bornir menn taka upp, hvenær sem þeir taka sig til við að setja saman stjórnmálaleg stefnumið. Þar stendur gjarnan: „Rikis- stjórnin leggur áherslu á . og siðan kemur tál almenns eölis, sem mestan part er samhljóða þeim vindum sem gjarnan biása um höfuðborgina úr norðri, vestri suðri eða austri. t starfslýsingu núverandi, rikisstjórnar er mikið talað um áætlanir og endurskoðun, en þó viðast að „stefnt skuli að” einhverju. Óttinn við að taka af skarið i ákveðnum efnum er næstum al- gjör, enda er meginstefnan það gamla húsráð að auka niður- greiðslur og efla skattheim tuna. Til hliösjönar má svo hafa stefnuskrár rikisstjórna frá fyrri tima. Þá kom það m.a. fyrir að samsteypustjórn Framsóknar og Aiþýöuflokks var búin að uppfylla öll ákvæði stjórnarsamnings, þess fyrsta sem geröur var skrif- legur milli flokka, á miðju kjör- timabili, og hófust af því titefni ýfingar og störfelld vandræði i stjórnarsamstarfinu. t dag mundi þurfá þrjátiu ár til að ráða fram úr og skilgreina hin einstöku af- brigði starfslýsingar núverandi stjórnar, og raunar aldrei Ijóst hvort vinna mætti verkiö, enda ekki sterkar kveðið að orði en stefna skuli að einhverju og endurskoða annað. Sama hvaða stjórnar- samningar eru gerðir Allt frá þvf á sumardögum árið 1971 höfum við, þegnar landsins, verið að vona að á næstu mánuðum yröi einhver uppstytta i kollsteypum og slénið milli kvið- anna reyndist ekki alveg eins yfirþyrmandi. En það ér álveg sama hvaða stjórnarsamningar eru gerðir og hvernig starfs- skýrslur eru samdar. Við lendum stöðugt lengra inn i kastþröng óðaverðbólguþannig, að stórfelld uppgjör eiga sér nú stað á þriggja til fjöggurra mánaða fresti, og þótti þó mikið þegar aöeins hálft ár leið á milli þeirra. Rikisstjórn- in, sem hratt þessu af stað, tók viö af svonefndri viðreisnarstjórn, sem hafði staðið með nokkrum kyrrðum i meira en áratug. Fyrir kosningarnar sumarið 1971 voru uppi raddir um þaö, aö við- reisnarstjórnin yrði að falla m.a. vegna þess að ungtfólk kvað upp úr með það, að hart væri að þurfa að eyða unganum úr ævinni við óbreytta stjórnarhætti. Þessu unga fólki varð að óskum sinum. Ný stjórn tók við góðum fjárhag og kyrrlátum stjórnarháttum, og nú var ákveðið aö láta hendur standa fram úr ermum, svo a.m.k. hið unga og óþreyjufulla fólk, sem hafði kviðið þvi að þurfa að eyða ævinni uncúr við- reisn, fengi séð hvernig nýir herr- ar stjórnuöu. Menn héldu helst ekki minni ræður en upp á 500 milljónir Þróun mála siðan er öllum kunn. Eyðslustefna vinstri stjórnarinnar fyrri virtist hrein- legaekki sjálfráð, og má kannski kenna um, að hún tók við góðu búi, en margir og stórir þrýsti- hópar hugsuðú gott til glóðarinn- ar af bólgnum sjóðum. Menn héldu helst ekki minni ræður á Alþingi en upp á fimm hundruð milljónir, ráðherrar sperrtu sig i samningasölum og brátt var svo komið, að engu var likara en uppi hefði verið ákveðin áætlun um að eyðileggja borgaralegt samfélag, efnahagslega. Ríkisstjórn Geirs stund- aði prósentureikriing kvölds og morgna Þegar rikisstjórn Geirs Hallgrimssonar tók við á haust- dögum 1974, bjuggustmennviðað

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.