Vísir - 09.10.1978, Blaðsíða 8

Vísir - 09.10.1978, Blaðsíða 8
8 Mánudagur 9. október 1978 ( ömar Ragnarsson skrifar um bíla: D 1 þetta sinn er reynsluakstur á dagskrá hér á síöunni annan mánudaginn í röö. Þaö er alltaf hætt viö þessu sföla árs, þegar nýjar geröir fara aö lfta dagsins ljós, hvaö þá, þegar um algerlega ný ja og nýstárlega bila er aö ræöa eins og Daihatsu Charade 1000. Meö Daihatsu Charade 1000 bæt- ist enn nýr bill i hóp japanskra smábila i veröflokknum þrjár til fjórar milljónir. Fyrir eru Honda Civic, Toyota Starlet og Corolla, Mazda 323, Subaru, ódýrustu geröir Datsun og Mitsubishi fyrirferð. 7,9 kgm er óvenju mikið tog á ekki stærri vél og þaö við aö- eins 2800 snúninga, 2-500 snúning- um neðar en flestar nýtizku vélar, og afliö, 55 hestöfl, er einnig óvenju mikið, miðað við snún- ingshraðann, 5500 snúninga á minútu og þjöppu sem er 8.7:1. 1150 cc vél gæti veriö fullsæmd af þessum tölum. Það eina, sem ekki getur talizt frábært, er gangur vélarinnar. Hún er að visu mun þýögengari en tveggja strokka vél og hávað- inn er ekki meiri en i flestum fjögurra strokka vélum. Gangur- inn er hins vegar ekki alveg eins jafn, þrátt fyrir sérstakan búnað, jafnvægisás og hjól, sem jafna á hann. Gangurinn likist nokkuð ganginum i flatri ,,boxer”-vél, fjögurra strokka vél, ein og i Subaru, svolitið grófur. Þegar vélin er köld fyrst eft- ir kalda gangsetningu, er svo- litill „hrollur” i henni og dálitið lag þarf til þess að ná góðu sam- spili við hana með benzingjöfinni. Arangurinn i smiði þessarar vélar er samt góður, og sá maður er yfirmáta vandfýsinn, sem hættir við að kaupa Charade vegna þess að vélin er ekki hundrað prósent eins þýðgeng og Hva, þaö vantar eítt kerti? Nei, þetta á aö vera svona. Lancer. 1 þessum veröflokki er einnig aö finna ótal vestræna bila, sem of langt yröi upp aö telja. A Daihatsu Charade nokkurt erindi i þessa höröu samkeppni? Viö fyrstu kynni af bilnum er svariö hiklaust jákvætt, og þvi er þegar hægt aö slá strax föstu, aö hér er kominn mjög skæöur keppinautur bilanna, sem fyrir eru. Fyrsta þriggja strokka f jórgengisvélin Sá timi er liðinn, að fjöldi strokka i fjórgengisvélum þurfi að standa á 'jafnri tölu, þ.e. tveir, fjórir, sex eöa átta strokkar. Fyrstur reiö Audi 100 á vaöið meö fimm strokka vél, sem átti að vera sparneytin eins og fjögurra strokka vél og þýðgeng eins og sex strokka vél. Og nú kemur Daihatsu Charade með þriggja strokka vél, sem á að vera spar- neytin, fyrirferöalitil og einföld eins og tveggja strokka vél, en aflmikil og þýðgeng, eins og fjög- urra strokka vél. Af þessum fimm takmörkum hefur tvimælalaust tekist að ná fjórum, þ.e. sparneytni, afli og einfaldri og fyrirferðarlitilli byggingu. Meira að segja er leitun aö vél með eins litra sprengirými, sem skilar jafn miklu afli og togi (torque) og hefur jafn lltið fyrir þvi og eyðir jafn litlu. Verksmiðj- urnar fullyröa, að 330 rúmsenti- metra rúmtak á hverjum strokki sé hið heppilegasta. Þvi fáist mest út úr tveggja strokka vél, sem sé 660 cc, þriggja strokka vél, sem sé 1000 cc og fjögurra strokka vél, sem sé 1300 til 1400 cc. Segjast framleiðendur hafa miöað stærð bilsins viö 1000 cc. vél, og þvi hafi þrir strokkar orðið fyrir valinu. Sem áöur sagði hefur frábær árangur náðst aö fernu leyti, afli, sparneytni, einfaldleika og litilli Reynsiuakstur Vísis: Daihatsu Charade 1000 Skynsamlegur og skemmtilegur, sprœk ur og sparneytinn fjögurra strokka vél. Til þess er vélin of góö að öðru leyti. Skemmtilegur í akstri Japanskir bilar hafa verið i stöðugri sókn á heimsmarkaðn- um undanfarin ár, þótt ýmsum hafi fundizt Japanir seinir að til- einka sér nýjustu framfarir i gerð bila, einkum hinna smærri. Undantekningar frá þvi hafa verið Datsun Cherry, Honda Civic og þó einkum Honda Accord, allt bilar meö þverstæða vél, fram- hjóladrif og tannstangarstýri, og Hondurnar þar að auki með yfir- liggjandi kambás. Þaö eru að mörgu leyti svipuö áhrif, sem það hefur á mann að reynsluaka Dai- hatsu Charade 1000 og Honda Accord. Báðir þessir bilar eru mjög vel hannaðir, og aksturs- eiginleikarnir með þvi bezta, sem gerist. Honda Accord er þó stærri bill og dýrari og fjöðrunin hefldur dýpri og mýkri en á Charade, en Charade er hins vegar miklu létt- ari i stýri, svo undraléttur, fljótur og nákvæmur, aö minnir mest á Volkswagen Polo og Derby, sem einnig hafa þessa frábæru stýris- eiginieika. t þessum hópi er einnig Ford Fiesta, álika léttur, en ekki alveg eins undrafljótur. Þaö eru þessir góöu stýriseigin- leikar, ásamt mjög sprækri vél og sportlegri fjöðrun, sem skapa þá akstursgleöi, sem er helzta að- dráttarafl Charade 1000. Ekki dregur úr ánægjunni ágætt framsæti, og prýðilega skipulagt umhverfi ökumanns, sem og rikulegur búnaður á dýr- ustu gerðinni, sem reynsluekiö var. Það má finna áhrif frá Honda i útlitinu, en Charade er ögn stærri að innan, miöað við ytri mál, og má að þvi leyti helzt likja honum við Ford Fiesta. Fiesta og Mazda 323 eru að visu 3-4 sentimetrum breiðari að innan og farangurs- rýmiö örlitið stærra, en hjólskál- ar skaga ekki eins mikið inn i aftursæti á Charade 1000, og bill- inn er skráður fyrir þrjá i aftur- sæti, þótt þröngt sé um þrjá. Svo að haldið sé áfram samanburð viö Ford Fiesta, er gluggalinan ekki eins lág á Charade, og aftur- glugginn hefði að skaðlausu mátt ná lengra niður og vera stærri. Blinda horniö þegar horft er á ská aftur er fullstórt. Hins vegar skagar ekkert aftur úr bilnum fyrir aftan afturglugg- ann, þannig, að það er barnaleik- ur að smjúga á þessum bil, bakka i stæöi og aka af öryggi I þrengsl- um. Þar hjálpar einnig firna- krappur beygjuhringur, sem hægter að taka, aðeins 9.2metrar i þvermál, einn sá minnsti, sem völ er á. Ekki sama, hvaöa hjól- barðar eru undir Sem áður sagði hefur Charade mjög góða aksturseiginleika á malbiki og góöu slitlagi, fór kröppu malbiksbeygjuna mina á 70 kilómetra hraða, sem er jafn- gott og á þeim beztu, sem ég hef reynsluekiö. Sportlega stinn fjöörun og höggdeyfar valda þvi, aö billinn hallast litið i beygjum, og enda þótt fjöörunin sé grunn og fremur stinn og billinn skoppi að- eins á öldóttum vegi, er ekki hægt að segja, aö hann sé hastur. Fyrstu tvo dagana, sem Dai- hatsu var reynsluekið, var billinn á stálþræddum þverbörðum, sem voru mjög góðir á malbiki, en þegar komið var út á malarveg, kom annaðhljóð i strokkinn: bill- inn var hreinlega eins og á hjóla- skautum, og konan min, sem haföi kunnað mjög vel við bilinn á malbikinu, var ekki hrifin. I lausamöl var billinn hreinlega hættulegur á þessum hjólbörðum, afturendinn fór á fleygiferð út til hliðar, ef vikja þurfti snögglega eða beygja. Á venjulegum malarvegi var billinn hvikur á þessum hjólbörð- um og ógerlegt að aka alveg beint áfram, jafnvel með itrustu at- hygliog sifelldri hreyfingu á stýr- inu. Þriðja daginn voru settir venjulegir skábarðar undir bil- inn, og hvilikur munurlÞetta var eins og annar bill. Það er að visu ekki ráölegt fyrir ökumanninn að snúa sér mikiö við á ferð til þess að kjafta viö aftursætisfarþega, þvi að billinn er eftir sem áður fljótur og hvikur i stýri. En á þessum hjólbörðum er hann nákvæmur og alveg ágæt- lega rásfastur, og skvettir ekki Qt afturendanum, nema teknar séu hreinar rall-akstursbeygjur. A malbiki missti billinn i engu þá góöu aksturseiginleika, sem hann hafði á þverbörðunum. Niðurstaða: Ef mögulegt er, er ráðlegt að skipta um nema menn fari sjaldan út á mölina eða séu vel á veröi gagnvart lymskuleg- um hrekkjum þverbaröanna. Þar að auki er billinn 1.5 senti- metrum hærri frá jörðu á ská- börðunum. A holóttum malarvegi og grófum er Charade ekki ósvip- aður flestum japönskum smábil- um, fremur stinnur og fjöðrunin grunn. Sem sé ekki eins sáttur við slæma vegi og t.d. franskir smá- bilar. Fyrir minn smekk hefði fjöðrunin mátt vera heldur mýkri og dýpri, en þetta er smekksatriði og svona fjöðrun fullnægir þörf- um meirihluta landsmanna lengst af. Fremur litið farangurs- rými, en... ...sérlega auðvelt að stækka það. Plús: Sprækur. Sparneytinn. Léttur. Fljótur, léttur og ná- kvæmur i stýri. Framhjóladrif. Leggur vel á i beygjum. Rikulegur búnaður. Góður frágangur. Auðvelt að fella niður aftursæti. Agætt rými miðað við stærð. Mjög góðir og öruggir ak- Ksturseiginleikar á mal- biki. Gott að komast að vél. Minus: Hvikur á malarvegi á þverbörðum Farangursrými í minna lagi. Litið hanskahólf og pláss fyrir lausa hluti. Fremur grunn og stinn fjöðrun. Gangur vélar i grófara lagi. Fremur lágt aftursæti. Leiðinleg öryggisbelti.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.