Vísir - 09.10.1978, Blaðsíða 9

Vísir - 09.10.1978, Blaðsíða 9
Mánudagur 9. október 1978 9 Aftursæti: ágætt rými fyrir höfuð og hné/ en setan fremur lág. I meðallagi hávær Hávaðinn á 70 kilómetra hraða á malarvegi var 83 til 84 desibel, sem er i meðallagi. begar vélin er þeytt, má greina nokkrar drunur úr útblásturskerfi, en allt er það i hófi. 1 slæmum þvottabrettum koma takmarkanir fjöðrunarinn- ar i ljós, eins og á mörgum öðrum smábilum. Þóslær fjöðrunin ekki oft saman og er heldur betri en t.d. á Ford Fiesta, en lakari en t.d. á Volkswagen Derby. Högg frá veginum leiðir ekki mikið upp i stýri. Smáhlutir á hrakhólum Sem áður sagði, eru ágæt fram- sæti i Charade 1000, og fer vel um 17,5 cm undir á þverbörðum, 19 á skábörðum. litla sem stóra menn. Þó fæst ekki alveg nógu mikið fótrými undir stýri fyrir langfættustu menn. öllum helztu stjórntækjum er komið fyrir i tveimur stilkum við stýrið. Mælar og ljós er vel úti- látið, vælir meira að segja, ef maður gleymir ljósum á. Það er ekkert endurkast i mælunum, eri vel mættu bæði hraðamælir og snúningshraðamælir vera stærri. öryggisbelti eru leiðinleg, sýnast i fyrstu vera rúllubelti en eru það ekki. Hanzkahólfið er litið, og annan stað ekki að finna fyrir smáhluti, enga vasa i hurðum, engan stokk á gólfi. Furðuleg gleymska i vel hönnuöum og búnum bil! Auðvelt að stækka far- angursrýmið Rými i aftursæti er sæmilegt, nógu hátt til lofts fyrir höfuðið og pláss fyrir hnén, en sætið er full lágt, þannig, að ekki fæst stuðn- ingur fyrir lærin, nema glenna fætur sundur. Fyrirkomulagið á þvi að fella niður aftursætið og stækka þannig farangursrýmið er eitthvert það einfaldasta og auö- veldasta, sem þekkist. Aðeins aö taka i tvo takka, og sætisbakið fellur ofan á setuna. Ein hreyf- ing: gott. Rúmtak farangurs- geymslu mældist mér vera ca. 180 litrar og um 1000 litrar þegar aftursætið var fellt niður. Ekki lágt undir Það er góð hugsun á bak við undirvagninn á Charade 1000. Lægsti punktur er afturöxullinn, 18 sentimetrar á skábörðunum, en þessi punktur sigur ekki niður við hleðslu. Næst lægsti punktur á óhlöðnum bilnum er hlif undir vél að framan, 19 sentimetrar ef bill- inn er á skábörðum, og hæð undir oliupönnu er þá 20.5 sentimetrar. Þegar billinn er hlaöinn, sigur hann niður um ca. 4-5 sentimetra. Charadeerþvi i hærra lagi miðað við keppinautana, og ekki að sjá viðkvæma bletti að neðanverðu. Kveikjan situr hátt á vélinni, og það er gott að komast að flestum hlutum á henni, enda sparast smá-rými i fjórða strokknum á vélinni, sem þeir slepptu hjá Dai- hatsu. A dýrustu geröinni er þurrka á afturrúðu með sprautu og þrir hraðar á framrúðuþurrkum, og liklega verður mest keypt af þessari gerð, sem hefur allt fram yfir ódýrari gerðirnar, nema hjólbarðana, ef ekið er á malar- vegi, þvi að skábarðar eru á ódýr- ari gerðunum. Billinn eyðir þó liklega minna benzini á þverbörð- unum og þeir endast lengur. Benzineyðsla á Charade er lik- lega um sex litrar á hundraðið á langferðum og upp i 8-9 litra i bæjarskjökti. Bilablöð i ná- grannalöndum hafa þó ekki enn reynsluekið honum, en eyðslutöl- ur þeirra eru oftast marktækari en auglýst eyðsla framleiðenda. Skynsamlegur og skemmtilegur Reynsluaksturinn á Charade benti til þess, að ekki heföi verið út i hött að útnefna hann bil ársins i Japan 1977. Þetta er mjög skyn- samlega hannaður og skemmti- legur bill, og fyrir þvi séö, að eng- in þörf er á að bjóða hann með stærri vél eða lengri gerö af hon- um. Það hefur tekizt vel aö útfæra formúluna: framhjóladrif og fimm dyr, og siðast en ekki sist: hann er japanskur. Charade 1000 og nokkrir keppinautar : Charade 1000 Ford Fiesta VVV Derbv Honda Civic Mazda 323 Lcngd: 3,46 3,56 3,85 3,55 3,83 Breidd ’ 1,51 1,57 1.56 1,51 1,39 v þvngd: 660 kg. 675 kg. 675 kg. 670 kg. 810 kg. rúmtak vélar: 993cc 1117CC 1093CC 1238CC 1272cc llestöfl: 55 53 50 55 60 Viðbragð 0-100 km.' 14 sek. 16 sek. 17,3 sek 15sek 17 ^ek. llamarkshraði: 140 km 145 km 137 km 140 km 138 kni. hjólhaf: 3,30 m. 2,29 m. 2,33 m. 2,20 m. '• ’ 2,32 m. breidd innan: 1,28 m. 1,28 m 1,30 m. 1,25 m. 1,30 m. farangursrými: ca 180-1000 1 255-12551. 4251. ea 170-800 ca. 190-1000 bæð undir (1 maður): 18 cm 15 cm 19 cm. O 17 cm. bevgjuhringur ; 9,2 m. 9,3 m 9,6m. 9,4 m 8,8 m. dyr: -5. 3. 2. 3- 3-5 eyðsla: ca. 6-9 ca.6-9 ca.6-9 ca.6-9 ca.7-10 I ■ á íslandi Suðurlandsbraut 20, sími 38772, Heykjavík ACCÖ°RD 1979 Þeir sem hafa lagt inn pant- anir eru vinsamlega beðnir að hafa samband við umboðið Nokkrum bíliun óráðstafað bifreiðar árgerð 1979 eru komnar til landsins Aðeins kr. 3.384 þús. á götuna CI yiC 1979

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.