Tíminn - 21.10.1969, Síða 7

Tíminn - 21.10.1969, Síða 7
ÞRIÐJUDAGUR 21. okí.vl.cr 1969. TIMINN 7 „Ég er víða- vangsins barn -'f "v'z'y mm Aldarafmæli Indriða Þórkelssonar skálds á Fjalli ■. Indriði Þórkelsson á miðjum aldri. Klvkert hérað Iandsins átti eins fjölmenua og liðtæka skáldafylk- ingu og Suður-Þingeyjarsýsla á fyrsta áratug þessarar aldar — ská'ld, sem voru ebki aðeins hér aðsfræg, heldur landskunn af Ijóðum sinum og sögum, s'káld, sem lifa enn í verkum sínum með þjóðireni og skipa flest varanlegan sess í bókmenntuim hennar. Við getur til hægðarauka nefnlt töluna sjö, þótt varla sé fulltalið. Þessi sjö skálda fylking var furðulega jafnaldra, og aldarafmæliu ber nú að hivert af öðru. Höfuðsmað- ur hennar, og þá þegar þjóð- skáld orðinn, er Guðmundur á Sandi. Y-n.gst er.u þa-u Jóhann Sigurjónsson og Hulda, fœdd 1880 og 1881, en „aþýðuskáldin þing- eysku”, sem Guðmundur á Sandi nefndi sv-o og kynnti í Eimreið- i-nni 1902, eru þeir Jón Þorsteins son á Arnarvatni, fædd-ur 1851, Sigurjón Friðjónsson fseddur 1867. Indriði Þórkelsson á Fjalli, fæddur 20. október 1869, sá, sem hér er minnzt í tilefoi aldarafmæl is og loks Sigur'ður Jónsson á Arn arvatni, fæddu-r 1878. „Iudriði Þórkelsison er aíTlra þessara ma-nna dulastur og tor- veldastu-r til ranusóknar, leggur ság mest eftir ælttfræði í tóm- stundum síuum og hefur ort inin-na en góðu hófi gegnir. Kvæði h-ans eru þuugskilin, og er eng- urn m-auni ætlandi að ná öllum mergnum úr þeim í fyrsta kasti.“ Þannig kyu-nir Guðmundur á Sandi þenna-n þrítuga jafnaldra sinn og náfrænda. Sú lýsing er að mín-um dtómi ekki ýkja nær- færin, en þó mó vera, að hún sé nær sa.nni á þeim aldri Indriða á Fjalli en öðrum þrjátíu árum siðar. Á síðari ævihel-ft gat Indriði ekki talizt dulur maður, og skáldskapur hans varð léttari og fley.gari með áru-m. En það er rétt, að enginn dregur í fyrsta kas-ti allan merg úr vísum og kvæðum Indriða á Fjalli, en þa-u kynnast því betur, og þess vegna ci'u menn enn að uppgötva það, ágætt skáld Indriði á Fjalli var. /Et.tir Indriða Þórkelssonar voru þin-geyzkar í marga liði. Að honum stóðu bændur, alþýðuskáld og fræði-men-n — rnargir sja-ldigæf- 3r orðlis-tarmenn og málhigar. I-lann var Aðaldælingur frá vöggu til grafar, fæddist í Sýrne-si, ólst upp á Syðra-fjalli og bjó á Ytra fjalli hálfan fjórða árat-u-g með konu sinni. Kristínu Friðlaug-s- d'óttur. Þau ei-g-nuðust ellefu börn, tvö dóu í berns-ku, en níu komust til manndóms, kjarnmikið gá-fu- fólk með skýr einkenni hi-ns sterka æ-ttarmeiðs. Hann lézt að Brúum við Laxárfossa 7 í.ojiúar 1943. sjötíu og þrigg^a ára að aldri. Þessi æfiferilshringur verð ur ali-ur séður af einum sjónar- hóli. En því stærri voru þeir heim ar, sem han-n hugtók. Indriði Þórkelsson óx upp við kröpp efnaleg kjör þingeysks sveitabarn*. eins og þau voru al- gen-gust á síðari hluta nítjándu a-ldar. Hann var snem-ma settur tii daglegra starfa og lifði í náinni snertingu við frjáisa n-átt- úru. fegurð dalsi-ns og dýrin. sem þar lifðu í húsi og hlíð. Honum rann í merg og blóð hrjúfleiki hraunsins, sön-gvaseiður Laxár, ©ggjun o-g s-kyggni fjallsius. í bæivum og sveitin-ni lifði. fólkið t-v.íþættu lífi. Meðan höndin vann sér lífsbrauð, und-i huigur við lestur, skáldskap o-g fræði fólks og lí-fs í la-ndinu. Indriði Þórkels- son gekk aldrei í sikóla fremur en fles-tir aðrir íslenzkir ja-fnaldr- ar hans, en mig minnir, að Guð- m-undur á Sandi orðaði það svo, að ha-nn menniaðis-t í Berurjóðri. Þar lá sagn-amálið en-n á tung-u föður og a-fa, og næmur barns- hugur teygaði þær lindir af lífs- þorsta og logand-i fróðleiksþrá. Medingasögurnar, Eddurn-ar, fcvæði og sögur sa-mtíðarskálda og greinar blaða og tímarita um land-smál og sjálfstæðisbarátt-u var svalandi bru-nnur hins a-nd- lega lí-fs. Lífssaga fólksins í sam- tima og um-h-verfi, ætt þess og erfðir, var kvikmynd kvöldsins. Indriði hefur biugðið skáldlegri töfrabirtu á þennan barnsheim si-nn í bréfi til bróðursonar síns, Þórkels Jöhannessonar, fyrru-m háskóiarektoi's. en það bréf hefur birzt í ritsafni Þingeyinga. Ef orð eru þess umkomin að bregða upp lifandi mynd fyrir sjónum maivna, þá er hana að finna í lýs- ing-u Indriða á komu Hrúta-Gríms í baðstofuna á Syðrafjalli. Á u-n-g lin-gsárunum nær hin féla-gslega vaknin-g í Þingeyjarsýslu tök-um á Iridriða. sem flestum öðru-m ungum mönnu-m og mótar mjög skoðanir hans og lífsviðhorf. og sa-mvinnumaður o-g ungmennafé- la.gi var hann af heitum eld-móði alli til [okadags. Snemma á arum motaSist einnig hin bjarteyna frjálstrúarhyggja hans, og ekki er ólíkiegt, að skáldin Þonsteinn Erli-ngss-on o-g Stephan G. hafi áitt þar einhvern h-lut að, enda munu þau haf-a haft mest áhrif sa-m-tímaskálda á ha-nn, svo og rit Björnso-ns, sem þá voru mjög dáð í Þingeyjarþin-gi. Indriði á Fja-lli -m-un ekki ha-fa verið síztur boð- beri þeirrar þingeysku frjáls- hyg-gju i trúmálum, sem mest kvað að um a-ldamóti-n og s-a-gt var að hefði að trúarjátninigu þessi orð Björnsons: Þar sem góðir menn fara eru guðs vegir. Ölí skáldskaparboðun hans fyrr og síðar ber þessu vitni. Ha-nn var þó einlægur o-g heitur guðs- trúarmaður, en hann leitaði ja-fn- an þess guðdóms í náttúrunni og mannlífinu. Þar var biblía hans en ek-ki í austrænum orðu-m. O-g varnaðarorð hans voru sterk og hljómrík: Lát þig en-gan blindan blekkja bóksfafsþræl í neinni mynd. Höfð var á orði í héraði d-eila milli Indriða og sóknarprestsi-ns á ungmennafdlagsfundi úm Maríu-kvæði, þar sem harkalegur árekstur, varð milli gamallá og nýrra trúarsjonarmiða. Indriði reis af móði gegn þeirri gömlu kennin-gu að djúp væri staðfest milli m-annleikans og guðdómsins — maðurinn væri ofurseldur erfðasyndinni og sálarheill hans væri fólgin í endurlausn fyrir guð lega náð Ilann vildi ekki á annað faliast, er guðdómsneistinn væri í manninum sjálfu-m og náttúr- unni. og þar væri unnt að efia hann og fegra. þvi að sá, sem skapar, býr sjalfur i sköpunar- verkí sínu. í hans augum var lífið eilíf sókn með ábyrgð í hiutfalli við vitsmuni. Þetta við'horf var gi’u-nd-völur trúar hans á mennina og er rauður þráður skáldskapar hans og lífs. Vafaiítið stóð h-ugur hans mest til skáldskapar og fræða, en þó hafði ábyrgðarkennd hans som fjölákylduföður, bónd-a o«g hu-g- sjónaman-ns alian forga-ngsrétt í daglegu lí-fi. Lífs-barátta hans -fyrir stórri fjölslkyldu v-ar þrot laust erfiði á vin-n-uharðri jörð og fátækri tíð. Sveitin hans, n-áttúra h-ernar, var honum va-gga o-g skaut, hin sjálfsa-gða gróðurmold, se-m hann lifði og óx í. Ég er tíðu-m göng-ugjarn gra-mur hýði þýðu. Ég er víðavan-gsins barn, va-núr blíðú og stríð-u, kvað ha-nn af skarpskyggni sinni og einlægni. Bfckent íslenzkt skáld hef-ur ort af eins djúpri innlifun um veðurfarið né bru-gðið upp j-afn lifandi myndum af tilbrigðum þess og skiptum mannsins við það. Sá þáttur einn í skáldskap Indriða á Fjalli væri fullgiit rannsóknarefni til doktorsritgerð- ar. Indriði á Fjall-i var félagsmála maðúr og vel til forystu fallinn í fylkin-gu, þótt fáir vævu meiri einj farar en hann. Félagshyggja hans j átti sér einnig rætur í hinn-i - sterku og mannlegu ábyrgðar-; kennd. Hann var deildarstjóri kaup - félagsins í sveit sinhi langa stund I og oddv-iti sveitarinnar í áratugi. I úngmennaféláginu Geisla var, -hann lif og sál. Þar flutti hann i mörg hinna beztu kvæða sinna ný- ort í fyrsta sinn. Framan a.-f árum var íræðastarf ið hon-u-m draumur. Kveikja þess þegar á ungum aldri var sívakaiidi áhugi á fólki og lífi. Ættfræðin var hon-um aldrei aðeins innantóm nöfn, dagsetningar og ártöl, heldur \"egvísar að líf-i og gerð manna...í ættars-kráim hans eru oftast gagn orðar lýsingar á mönnum og r-okkrir drættir úr lífssögu þeina. Nöfnin fá svipmót og segja sögu brot. Framan af árum meðan a-nnir voru mestar viðaði hann að sér eftir getu á stopulum stund um og bjó í haginn fyrir það fræðastarf, sem hann vonaði að geta helgað sig á sextugsaldrinum. Það dróst fram á sjötugsaidur, að sú von rættist, en við leiðarlok átti hann þó mikið og dýrmætt safn þingeyskrar ættfræði og sagnaþátta. Fræðastarf hans var alla stund unnið af harðhentri ná kvæmni, k-röfuhörku um traustar heimildiir og fágætri rökvísi. Hann færði-st mikið í fang, steíndi að ritvei’ki, sem ættfærði flcsta menn búsetta í Þingeyjarþingi eít ir 1700, safnaði til bændatals hér aðsins fré þeim tím-a, og vann að mikil-li ritgerð, er hann nefndi Frá vög-gu til grafar, þar sem mönn-u-m var skipað eftir fæðingar dögum og rakið í fáurn dráttu-m ævihlaup, v-erustaðir og vistafar eítir því sem aðdrættir fengust. In-driði sonu-r hans hefur haidið verki föður sín-s áfra-m og er nú hafin útgáfa þess í myndarlegu rit- saf-ni um ættir Þin-geyinga. En hvað sem margþættum störf um og áhu-ga-málum líður, vcrður Indriði Þórkelsson fyrst og fremst skáld í a-u-g-u-m sa-mtíðar og framtíð ar, dijúpiviturt, málsnjallt og mynd auðuigt skáld, sem er enn að v<axa í vitund þeirra, sem slika kosti meta. Mál h-ans, jafnt bundið sem laust, ritað sem talað, bjó yfir fágætri kyrtgi og fegurð. Ým-si-r töldu það fyrnt um of og sa-man barið. Rétt var, að það átti allar rætur sínar í gullaldarbókimenntum þjóðarinn a-r, en það var In-driða á Fjalli aldrei dautt og kalt marmara- musteri, heldur ný og hljómrik kl-ukka úr göml-um málmi. Það málfar varð lion-um ekki heldur nein sjaldhafnarflík, heldur dag- legt og sjálfgefið tungutak. Hann var ek-ki brot af bergi ættarsveit ar si-nnar og sögiuerfða, heldur berg ið sjá-lft h-eilt og ósprungið. Hvað eftir annað k-emur það skýrt fram í kvæðum hans og vísum, að hann -trúir því, að hann hefðj aldrei notið sín annars staðar. Alkunna hu-gsun ýmsra skálda orðaði haim sivo: Rótarslitinn visnar vísir vafinn faðmi anna-rs lands Framhald á bis. 15 (onliiH'iiícil HjólbarlaviSgeriir OPIÐ ALLA DAGA (LÍKA SUNNUDAGA) FRÁ KL. 8 TIL 22 GÚMMÍVlNNUSTOm HF. Skipholti 35, Reykjavíic SKRIFSTOFAN: 5Ími30688 VERKSTÆÐI& sfmi310 55

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.