Tíminn - 26.10.1969, Síða 1

Tíminn - 26.10.1969, Síða 1
 „Kvalirnar voru ægilegar. Mér fannst heilinn í mér sjóða og hljóðhimnurnar þenjast út og verða að stórum blöðrum, sem bráðlega myndu sprengja utan af sér höfuðkúpuna. Alla þessa nótt og fram á næsta dag, sem var hinn fjórði, héldu pyntingarnar áfram. Ég var orð- inn máttfarinn af næringarskorti og illri meðferð." — George Volsky. * „I guðanna bænum drepið mig heldur'7 í Nan-Tao búðunum í Shang- ihai var sérstök álma bygging- arinnar fyrir það sem rauðu Kínverjarnir álitu ,,enfið“ mál. Þegar ég hafði divalizt í Nan- Tao í þrjá mánuði og verið yfirheyrður daglega, án þess að segja nokkuð, komust fanga verðir minir að þeirri viður- stöðu, að ég skyldi teljast „erf- itt“ tilfelli. Morgun einn í aprílibyrjun, rétt eftir sólarupprás, var ég sóttur í klefa minn í aðalbygg ingunni og leiddur út og þvert yfir garðinn, í átt til lágrar byggingar, vinstra megin við aðaihúsið. Við gengum inn um dyr fyr- ir miðju og þegar inn kom, sá ég, að álmu þessari var deilt niður í smáherbergi til beggja handa og eftir endi- löngu fyrir miðju var gangur. Þakið var allt úr gleri og gegn um það sá ég verði vopnaða vélbyssum, spígspora um á ein hverju grindverki og fylgjast vel með hiverju herbergi niður í gegn um þakið. Mér var vísað inn í eitt her- bergið hægra megin, nálægt útgöngudyrunum. Framan við mig var borð, sem stóð á upp- hækkuðum palli, líklega tæpan metra frá gólfi. Hinum megin við borðið sat forljótur ná- ungi. Framan við borðið, niðri á gólfinu, stóð armstóll og var gild járnkeðja fest milli arm- anna. Ég var látinn setjast í stólinn og vörðurinn tók keðj- una, vafði hana utan um mig, þannig að handleggirnir voru rígfastir niður með síðunum. Síðan festi hann keðjuna aftur við arma stólsins og læsti öllu saman með hengilás. Nú kom annar náungi inn, engu frýnilegri en hinn. Hann bretti upp aðra ermi mína ög festi litla járnplötu á fram handlegginn á mér. Tvær leiðslur voru festar við plöt- una og lágu þær að innstungu í veggnum við borðið. Yfir- heyrandinn fyrir ofan mig, hallaði sér fram yfir borðið: „Við höfum verið mjög þolin móðir við ■ yður, Volsky, en þrátt fyrir það hafið þér ekki viljað vera samvinnuþýður. Nú fáið þér síðasta tækifærið. Ff þér segið okkur ekki núna allt sem þér vitið, skal ég sjá til þess, að þér lifið nógu lengi til að iðrast þess rækilega". Ósjálfrátt endurtók ég það, sem ég hafði ætíð svarað áð- ur: „Ég er ekki njósnari og ég hef ekki framið neina glæpi gagnvart kínversku þjóðinni“. Hann kinkaði kolli og hinn ýtti á hnapp við innstunguna á veggnum. Þegar rafstraumur inn fór um mig, glenntust jálkar mínir sundur og' kval- irnar voru ægilegar. Mér fannst heilinn í mér sjóða og hljóðhimnurnar þenjast út, og verða að stórum blöðrum, sem bráðlega myndu sprengja utan af sér höfuðkúpuna. Þá rofnaði straumurinn. Ég féll aftur á bak í stólnum, hríðskjálfandi. Verkurinn í augunum og höfðinu var að gera út af við mig og ég hafði klipið sjálfan mig til blóðs í lærin. Rödd yfirheyrandans heyrð- ist eins og langt úr fjarska og mér fannst hann mjóróma, eins og kvenmaður. „Segðu það sem þú veizt. Hverjir eru samstarfsmenn þínir?“ Ég reyndi að svara ein- hverju, en mér fannst tungan fylla alveg út í munninn, svo ég kom ekki upp nokkru orði. Straumnum var hleypt á aft- ur, og aftur. . . og aftur. Ljósa- peran fyrir framan mig virtist springa í milljón hluta, sem þyrluðust um í hringiðu. Síð an hivarf allt í myrkur og þögn. Eg veit ekki, hiversu lengi ég var þarna. Mér var fleygt meðvitundar- lausum inn í klefa minn og Ling, hinn kínverski klefanaut ur minn, vafði mig í teppi og lagði mig á fletið. Þannig lá ég til næsta dags, vafinn teppinu, en hríðskjálfandi. Þá komu þeir aftur og yfir- heyrzlunum var haldið áfram. Þeir fóru með mig í sama her- bergið, en í þetta skiptið var mér skipað, að setjast á stein gólfið með krosslagða fætur. Enginn sagði neitt. Yfirheyr- andinn sat við borðið fyrir of- an mig og reykti brúna kin verska vindlinga í mestu mak- indum. Tíminn leið, en ekkert gerðist. Ef mér varð á, að hall- ast fram yfir mig fékk ég spark í bringuna frá fangaiverð inum, ásamt hvæsi, sem átti að vera skipun um að sitja upp réttur. Eftir fjórar til fimm klukku- stundir, hallaði sá ljóti sér nið- ur yfir borðið og hreytti út úr sér: „Stattu >úPP“- En ég var löngu orðinn stíf ur af kulda og náladofa, svo ég gat alls ekki hreyft mig. „Stattu upp“ hivæsti fanga- vörðurinn og þreif í axlirnar á mér og kippti mér upp. En þegar hann sleppti takinu, seig ég aftur niður á gólfið. Hann kippti mér upp aftur. Yfirheyr andinn bandaði frá sér hend- inni og vörðurinn fór með mig aftur í klefann. Þannig hélt þetta áfram í fjóra mánuði, dag eftir dag. Þá var þolinmæði Kínverjanna á þrotum. Ég var orðinn veik- burða af næringarskorti og meðferðinni og átti orðið erf- itt með að ganga yfir garðinn. Morgun einn, seint í maí, var ég vakinn eins og venju Framhald á bls. 14

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.