Tíminn - 26.10.1969, Síða 10

Tíminn - 26.10.1969, Síða 10
22 SUNNUDAGUR 26. október 1969. TIMINN Norðurlandsáætlunin Framhald af bls. 19 efnum eftir leiðum, sem Al- þingi hefur ákveðið. — Það virðist ljóst, að þú hugsar Norðurlandsáætlun sem alhliða þróunaráætlun. Hvað viltu helzt benda á í því sam bandi? — Norðurlandsáætlun sem slík er ekkert nýtt patent í sjálfu sér. Hún er raunvætt s'kipulagsátfiorm, til þess að koma f ramf arahugstj ónum Norðlenrlinga í framkvæmd. Stefnu Norðurl a ndis á lætlu n ar- innar markaði ég þannig m.a. í tillögum mínum, að sam- kvæmt fyrirfram gerðri áætlun verði fjármagni, tækni og öðr- um þjóðfélagsaðgerðum beint að því marki að skapa þau skU yrði á Norðurlandi, að þar ná ist fuilt jafnvægi um húsetu og hagþróun, svo og þau félags leg skilyrði, að landshlutinn nái fyllsta hlut í þjóðfélaginu og alhliða jafnvægi í þjóðar- búskapnum. Stefnt verði að fyr irfram settum áföngum, með Miðsjón af mismunandi tíma mörkunum, eftir aðstæðum á hverju stvæði og eðli verkefna að þyí. Auk þess að miðast við landshlutann sem heild. miði áætlunarstefnan jafnhliða við einstök sveitarfélög ein sér eða í samvinnu við önnur í byggðalögunum eða á héraða-. svæðum, sem búa yfir fram- leiðslu og þjóðfélagsskilyrðum þannig að stefnt verði að því, -—^að eðlileg búseta eigi að verða tryggð. Norðurlandsáætlun stuðli að verkaskiptingu um staðsetningu framleiðslutækja milli byggðasvæða, í atvinnu jöfnunarskyni, með hliðsjón af landkostum, og skapi þannig eðlilegan byggðavöxt. Hlutazt verði til með kerfisbundinni áætlun, að komið verði á fót á Norðurlandi þeim félagslegu stofnunum og starfsskilyrðum sem krafizt er að séu fyrir hendi í nútíma þjóðfélagi. Enn frernur benti ég á, að h lut Norðurlandsáætlunar í heildar þjóðhagsáætlun verði að tryggja verkaskiptingu, um staðsetningu veigameiri fram- leiðslutækja og annarra stofn- ana, á milli landshluta. Ekki fer því á milli mála, að ef Norðurlandsáætlun verður gerð á grundvelli áður nefndra ábendinga, verður um að ræða víðtækar þróunarað gerðir, sem spanna yfir öll stanfssvið þjóðfélagsins. TIL SÖLU Wel með farin notnð hús- gögn. Selst allt mjög ódýrt. Óska eftir tilboði í gamlan ruggustól. Upplýsingar í síma 99-1413, Selfossi. PENNAVINUR Óska eftir að komast 1 bréfaskipti við stúlku á aldrinum 15—17 ára. Vaídimar Jón Guðmunds- son, Bakkakoti, Éngilhlíð- arhreppi. A.-Hún. ' — Hvert er hlutverk fram- kvæmdastofnunar og Norður- landssjó'ffsins? — Hlutverk framkvæmda stofnunarinnar er í aðalatrið- um að gera kannanir eða rann sóknir, vegna þróunar í Norð- urlandi, sem áætlunargerðin byggist síðan á. Hér er í fremstu röð að gera könnun, hverjar félagslegar og efna hagslegar ástæður valda byggðaröskuninni. Slík frum- athugun befur ekki vqrið gerð á Norðurlandi. Vitaskuld mætti draga þýðingarmiklar á- lyktanir af niðurstöðum slíkr- ar könnunar. Ég geri ráð fyrir, að framkvæmdastofnuninni verði falin yfirumsjón með rannsóknum t.d. á veðurfari, gróðrarskilyrðum, beitarþoli og jarðvegsrannsóknum, vegna landbúnaðarins. I>á benti ég á, að framkvæmdastofnunin geng ist fyrir rannsóknum, vegna nýtingar fallvatna og jarðhita. Ennfremur drap ég á, sem verkefni þessarar stofnunar, að gangast fyrir könnun fiski miða, á grundvelli iöghelgunar landgrunnsins og skipulagn- ingu veiðisvæða, með skiptingu á milli verstöðva í huga. Ég taldi eitt meginverkefni fram- kvœmdastofnunarinnar, að skipuleggja úrvinnsluiðnað hrá efna frá sjávarútvegi og land búnaði á sjálfum framtleiðslu- svæðunum, þannig að hvert svæði búið að iðnþróun vegna hráefna, sem þar falla til. í hlut stofnunarinnar .íátti að koma gerð framleiðslúáætláha fyrir landbúnað og sjávarútveg á einstökum byggðasvæðum. Aðalverkefnið mundi verða könnun ög leiðir til iðnþróun- ar bæði að því er varðar nú- verandi iðnað og nýjar grein- ar. Þá átti framkvæmdastofn unin að gera samgönguáætlun, sem í senn væru svæðabundin og fyrir landshlutann allan. Til viÆbótar þessu átti stofn unin að gera skipulag um fram tíðar verkaskiptingu fram- leiðslutækja, bæði með al'hliða nýtingu landkosta í huga og til atvinnujafnvægis. Vitaskuld er hægt að vinna þessi verk- efni hjá stofnunum suður Reykjavík. Hins vegar eru miklu meiri líkur til þess, ef íorðlenzkri stofnun verði fal- in verkefnin og þeim stiórn- að af heimamönnum, að starf ið verði sótt fastara og pein • norðlenzk sjónarmið marka frekar áætlunarstarfið. Á þess um sömu forsendum lagði ég til. að stofnaður væri sérstak- ur norðlenzkur byggðaiþróunar sjóður. Ég lagði til að tekjur sjóðsins væri 1% af brúttó- tekjum sveitarfélaga, einstaki- inga, fyrirtækja og opinberra stofnana. sem hafa starfsstoðv ar í Norðurlandi og sami hundr aðshluti brúttótekna aðila, sem eru staðsettir utan Norður- lands, af brúttótekjum vegna viðskipta í Norðurlandi. Ríkis- sjóður skyldi leggja fram jafn hátt framilag. Eg nef ekki reikmað út, hve miklar ár- legar tckjur sjóðurinn mundi fá. Mér var ljóst að tryggja þyrfti sjóðnum viðbótarfjár- magn. Drap ég á í því sam- bandi, að Seðlabankinn endur iáni sjóðnum innllánsbundið fjármagn banka, sparisjóða og inniánsdeilda sem mynd azt hefur og bætist við á Norð- urlandi. Ennfremur benti ég á, að Atvinnuleysistryggingasjóð- ur framláni sjóðnum framlög siveitarfélaga á Norðurlandi. með sama fyrirkomulagi og urn innlánisbindingarféð. Til við bótar lagði ég til. að Fram- •kvæmdasjóður íslands væri skyldaður til að leggja til sjóðnum hluta mótvirðis- sjóðanna. Ennfremur að tekin verði erlend eða innlend fram kvæmdaián í samráði við ríkis- stjórnina. Það er mjög þýð- ingarmikið fyrir Norðlendinga að ráða yfir eigin framkvæmda stofnun og byggðasjóði. — Hvernig hefurðu hugsað þér útvegun fjármagns og ráð stöfun þess? — Áætlun þjónar því aðeins markmiðum, að framkvæmd hennar verði studd með fjár- magni. í þessu sambandi benti ég á, . að endurskoða þyrfti fjárlagastefnu ríkisins með það fyrir augum, að framlög greiddust í samræmi við ráð- gerðan framkvæmdahraða. Jafnframt taldi ég grundvall- aratriði, að skylda þyrfti fjár- festingarsjóði til þess að lána til áætlaðra framkvæmda, inn an lagalegra heimilda, í sam- ræmi við áætlunaráfanga og ennfremur að beina þyrfti út- lánastefnu bankanna samsíða. til að tryggja framkvæmd áætl aðra verkefna. Þá er gert ráð fyrir skipulegum fjárútvegun um til stærri áfanga. Verkefni Atvinnujöfnunarsjóðs á að vera samikvæmt tillögum þess- um. að veita lán til þess að koma í veg fyrir tilfallandi at- vinnuleysi og vinna bug á mis gengi framleiðslustaða og byggðalaga. Hann á að vera viðlagasjóður eins og nú er. Norðurlandssjóðnum er áætlað að Hána fyrirtækjumi, sem eru byggð upp eða endurskipu- lögð, samkvæmt Norðurlands- áætlun, viðbótarlán á eftir eðli- legum stofnlánum. Annað aðal Verkéfni sjóðsins eru lán til sveitaiTélaga, Vegna félags- legra framkvæmda. Sjóðnum er einnig æfclað það hlutverk að leggja fram fé, til að mynda höfuðstól nýrra fyrirtækja, þar sem eigin fjármagn skortir í byggðalög'unum. Þá er sjóðn- um ætlað að framlengja stofn- lán til fyrirtækja, sem ekki eiga aðgang að stofnlánasjóð um. Ég gerði ennfremur tillög- ur um. að sjóðurinn láni fé til að endurskipuleggja at- vinnuhætti og legði fram fé til rannsókna á framleiðslu og rekstrarskilyrðum, vegna nýrra atvinnugreina. Hugsað er að sjóðurinn hefði á hendi fyrirgreiðslú um útvegun rekst rarfjár til fyrirtækja á byrjun arstigi og annaðist milligöngu við viðskiptabankana. Þar sem mikill hluti þróunarfram- kvæmdanna verður á vegum sveitarfélaganna taldi ég rétt, að stofnuð væri sérstök deild í jöfnunarsjóði, sem byggðist á ríkisframlögum og sérstök um tekjustofni og hefði það nlutverk að veita aukafram- lög til sveitarfélaga, sem stæðu í miklum félagslegum fram kvæmdum. þetta er einkum nauðsynlegt sökum þess, að margar framkvæmdirnar eru meira miðaðar við framtíðina, en við núverandi aðstæður ein ar. Þessu til viðbótar benti ég á að nauðsyn þess, að sveitar- félögin fengju uppgerð ríkis- framilög til þess að koma fjár málum beirra á heilbrigðan grundvöll. — Hvernig viltu samhæfa Norffurlandsáætluiiina efna hagskerfinu? — Ég hugsa mér Norður- landsáætlunina, sem hluta af heiidarþjóðhagsáætlun. Það «r alveg vonlaust að koma í fram- kvæmd iafn víðtækri þróunar- áætlun eins og Norðurlands aætlun á að vera, til þess ið komi að fullum notum, nema gerð verði þjóðhagsáætlun sem geri ráð fyrir hlutverki hennar. Allt áætlunarstarf, sem á að ná tilgangi verður að byggjast á víðtækri skipu lagshyggju í efnahagskerfi og um stjórnun þjóðfélagsins. Ég tel það frumskilyrði, að sjálf þjóðhagsáætlunin beini fram- kvæmdafé þjóðarinnar, bæði einkafjármagni og opinberu fé inn á framkvæmdaleiðir lands- hlutaáætlana, eftir efnahagsleg um og stjórnunarlegum leið- um. Um þessi atriði gerði ég nokkrar tillögur til fjórðungs ráðsins. Nefna má, að ég taldi að í lögum þyrfti að vera al- menn heimild, til þess að binda ráðstöfun lánsfjármagns við áætlunarleiðir, ennfremur um íhlutunarrétt um staðsetn- ingu fyrirtækja, sem nytu sér- stakrar fyrirgreiðslu um fjár mögnun. Til viðbótar drap ég á nauðsyn lagaheimildar til verndunar fyrirtækjum á byrj unarstigi, sem stofnuð eru sam 'bvæmt Norðurlandsáætlun t.d. um tollvernd og skáttaívilnan- ir. Enn drap ég á nauðsyn lagafyrirmæta til tækni- og vís- indastofnana um að láta rann sóknir og tækniaðstoð við áætl- unargerðina sitja í fyrirrúmi. Ekki er það sízt að ég legg til, að með lagafyrirmælum verði stjórnsýslu og fjármála 'kerfið beint að sjónarmiðum landshlutaáætlana. Alveg er ljóst að raunhæfar þróunar- áætlanir krefjast gerbreyttrar þjóðfélagsstefnu, þar sem al- menn skipulagshyggja mótar þróunina í þjóðhagslegum til gangi t.d. með því að efla byggðaþróun. — Nú er um það deilt, hvort miða skuli byggffaáætlanir fj'rst og fremst við einstök svæffi, effa við landshluta í heild. Hverjar vonx þínar til- lögur um þessi efni? — Norðúrlaniisáætliun hlýt ur að verða tvíþætt, að því er varðar einstök byggðasvæði annars vegar og landshlutana í heild hins vegar. Meginástæð- urnar til þess, að ekki er hægt að láta við svæðaáætlanir ein- ar sitja, eru að þannig væri ekki hægt að skipuleggja ný svið í þjónustustarfseminni, sem eru ofvaxin byggðasvæði, en hefðu þróunarskilyrði á Norðurlandi sem heiid, og enn fremur með samræmdri lands hlutaáætlun gætu byggðasvæð- in stutt hvort annað þróunar- lega séð t.d. með verkaskipt ingu um staðsetningu stofn ana. Varðandi landshlutamið- stöðina, sem væri Akureyri, benti ég á, að þar væru stjórn sýslu og fjármálastofnanir, fyr- ir umdæmið, sem ekki hefðu nægilegt starfsrými á einstök- um svæðum, og ennfremur að þar' væru staðsettar menn- ingar- og félagsmálastofnanir fiyrir landshlutann. Ilins vegar væri, að öðru leyti stuðzt við svæðaskipulagið. þó með sam hæfingu þeirra á milli. Ég benti á, að byggðasvæðin ættu landfræðilega að vera sex. Það er Húnaflóaisvæði, Skagafjörð- ur (ásamt Siglufirði) Eyjafj. (Deggja vegna fjarðarins), Húsavíkursvæði (frá Ljósa- vatnsskarði að Keldubverfi), Axafjarðarsvæði og Þistilfjarð- arsvæði. Meginhlutverk hinn ar samræmdu áætlunar er að stuðla að jafnri þróun svæð- anna eftir því, sem kostur er. Ég benti á skipulagningu sam- gangna bæði innan svæðanna og við aðalsamgöngukerfið. Ennfremur á skipulagningu skólakerfisins og heilbrigðis þjónustu innan hvers héraðs. Kjarnann taldi ég vera, að hvert svæði eða sveitarfélag, hafi eft- ir þvi sem aðstæður leyfa. þau þjónustu og viðskiptafyrir- tæki, sem telja verður grund- vallarskilyrði fyrir eðlilega bú setuþróun, staðsett innan svæð isins. í þessum efnum verði beitt verkaskiptingu milli þétt bvlisstaða Þá taldi ég nauð- synlegt, að samliggjandi byggðasvæði hefðu verkaskipt ingu um stærri framleiðslu- greinar urn veigameiri félags- og menningarstofnanir og enn fremur um þjónustuiðnað og viðskiptaþjónustu. Þetta á að stuðla að því, að Norðurland þróist í áttina til þess að verða samræmt framleiðslu og viðskiptastæði, þar sem heima- markaðurinn er skipulagður, vegna framleiðslu og þjónustu greina á Norðurlandi. Þessi efnahagslega samihjálp er grundvallaratriði, og er raun- verulega eins konar markaðs- bandalag innan landshlutans. Það liggur í augutn uppi mið að við skipulega beiningu fjár- magnsins, að forðast verður of setningu í vissum starfsgrein- um. Skynsamleg sanwinna inn an starfsviðanna um fram leiðslufyrirtæki tryggir bezt hagkvæma nýtingu fjármagns ins og kemur í veg fyrir of- setningu í sumum greinum og vöntun á öðrum sviðum. Ein- stefna um uppbyggingu ör fárra þróunarkjarna getur or- sakað nýja byggðaröskun. Mín ar hugleiðingar gera ráð fyrir bandalögum byggðanna og samvinnu á eðlilegum grund- velli, þannig áð einstök byggða svæði og landshlutar þróist samsíða. — Hvernig hugsar þú áætl unarstarfið innan héraffasvæff- anna? — Eg tel aö endurskipu leggja þurfi sýslufélögin með nýrri svæðaskiptingu, og enn fremur með aðild kaun- staðanna. Héraðasvæðanefnd irnar, sem kosnar væru af sveitarfélögum vinni að áæti- unargerð fyrir svæðið f sam- vinnu við fjófðungssáöitökin. Meginverkefni þessara nefnda er að stuðla að verkaskiptingu innbyrðis á milli þéttbýlis staða um viðskiptaþjónustu, ýmis konar iðnaðar, menning- arstofnanir og félagsiega að- stöðu, sem þjóni öllu héraðs svæðinu í heiid, þrátt fyrir dreifða staðsetningu. Héraðs- svæðanefndirnar munu að sjálf sögðu að beita sér fyrir fram- leiðsluáætlun á hverju svæði, svo að landkostir verði bezt nýttir. Þær hljóta að gæta liags muna svæðisins og reyna að koma í veg fyrir óeðliiegt mis gengi á milli einstakra héraðs- svæða. Með héraðasvæðaskipu laginu er beinlínis barizt gegn st j örnukenningunni að efla einstafca staði sérstafclega og leiða hjá sér hin dreifðu af- komuskilyrði. Þetta er röng stefna, sem jafngildir því að valda byggðarö'skun innbyrð- is á áætlunarsvæðinu. — Hefurðu trú á því, að gerð verði víðtæk þróunaráætl un fyrir Norðurland? — Ég er ekki bjartsýnn á það. Kemur þar einfcum tvennt til, engin áberandi vilji stjórnvailda til annarra úrræða en þeirra, að draga úr mestu áföllunum og ekki sízt það, að í Norðurlandi skortir sam- hæfða forystu um hagsmuna- mál landshlutans. Það er óþarft að vera nokkuð bjart sýnn á þessi mál. Augljóst er áð myndun þróttmikils sam- bands sveitarfélaga í Norður- iandi er frumskilyrði um sam virka forystu. Norðlendingar hafa hér dregizt aftur úr. Ég legg engan dóm á það hér, hvers vegna svo er komið Um tillögur mínar, sem hér hafa verið raktar er það að segja. að ég hef ekki hirt um að flagga þeim, sökum þess að ekki hafa verið til staðar nein skilyrði til þess að hefja bró unarstarf í anda þeirra, hvað sem verða kann síðar. Fram- tíðin mun skera úr um hvort ég hef unnið með þeim gagn- legt starf eða ekki.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.