Vísir - 24.10.1978, Blaðsíða 3
VTSIB Þriðjudagur 24. október 1978 '
3
Svitinn rann og menn þerruðu sig
og kældu — en urðu að dansa á-
fram á meðan
i Klúbbinn til þess að fylgjast með
dönsurunum. En um kvöldið varð
hreinlega ekki þverfótaö fyrir
fólki. Húsið fylltist og um leið
skapaöist geysistemning á fyrstu
hæðinni.
Keppendur voru hvattir með
lófataki og hópur ungs fólks fékk
augastað á pari númer fjögur og
hvatti það sérstaklega. En þá
þegar höfðu glöggir dómnefndar-
menn sennilegast gert upp hug
sinn, þó að um tima hafi kannski
verið erfitt að velja par númer
eitt.
Á slaginu eitt tilkynnti Heiðar
Ástvaldsson úrslitin. Hann byrj-
aöi reyndar á þriðja sæti. Það
varð par númer tólf, Haukur
Harðarson og Guðrún Bernharðs-
dóttir. Númer tvö var par ellefu.
Hörður Haröarson og Anna M.
Guðmundsdóttir. Þeir Hörður og
Haukur eru tvfburabræður. Heið-
ar tók það fram aö þessi pör hefðu
,,Þið sláið allt út I dugnaði”, sagði
Heiðar Ástvaldsson danskennari
og formaður dómnefndar meðal
annars.
sýnt sérstakan dugnað i dansi sin-
um. Og sigurvegararnir. Par
númer fjögur, Hjalti Jensson og
Ragna Sigursteinsdóttir. Auk
þess aö sýna mikið þrek, sýndu
þau lika besta dansinn frá upp-
hafi til enda.
Bikar handa sigurvegurunum
og blómvöndur og blóm handa
öllum hinum. Hljómplötur frá
Hljómplötuútgáfunni handa pör-
unum þremur og ókeypis dans-
kennsla i vetur hjá Heiðari Ast-
valdssyni.
,,Nei, við höfum ekkert æft okk-
ur fyrir þetta”, sögðu Ragna og
Hjalti við VIsi. ,,Ég hef verið veik
I þessari viku”, sagði Ragna, og
Hjalti sem missteig sig illa fyrir
nokkru, var enn með bundið um
fótinn. En sigurvegarar urðu þau
samt, og það má geta þess, að
þennan dag lögðu þrjú þúsund
manns leið sina i Klúbbinn.
—EA
Áfengi fyrir
3,2 milljarða
Afengissalan frá 1. júli tii 30
september nam 3,2 milljörðum
króna. Sfðustu þrjá mánuði á
undan var áfengi selt fyrir 2,8
milljarða.
Þessar upplýsingar koma
fram I frétt frá Afengisvarnar-
ráði. Hér er um að ræða mikla
aukningu i krónutölu miðað við
sama timabil I fyrra. Hins
vegar hafa orðiö miklar hækk-
anir á áfengi og því ekki hægt að
sjá af tölunum hvort áfengis-
neysla hefur aukist eða ekki.
—SG.
MÓTMÆLAFUNDUR
BANDALAGS
HÁSKÓLAMANNA
,,VIÐ stjórnarskiptin I haust
vöknuðu vonir launþega um að
kjaraskerðingunni yrði aflétt og
samningar tækju gildi að nýju,
enda hafði stjórnarandstaöan
lagt höfuðáherslu á þá kröfu I
kosningabaráttunni. Sú von brást
þó þegar septemberlögin um ráð-
stafanir í kjaramálum litu dags-
ins ljós,” segir i fréttatilkynningu
frá Baridialagi háskólamanna.
„Einungis hluti launþega fær
greitt samkvæmt samningunum,
þeir sem höfðu laun yfir 200 þús. I
des. s.l. fá hins vegar verðbætur I
fastri krónutölu. Með þessu er
umsömdum launahlutföllum
raskað verulega og fer sú röskun
vaxandi eftir þvi sem lengra
liður. Verðbólgan á sem sagt að
ákveða launamun i þjóðfélaginu,
það á ekki aö gerast við samn-
ingaborðið”, segir meðal annars I
tilkynningunni, en lokaorðin eru:
„Rikisstarfsmenn innan BHM
eru seinþreyttir til vandræða, en
svo kann þó að fara að lang-
lundargeð þeirra þrjóti. Launa-
málaráð BHM hefur ákveðiö að
boða til almenns fundar I dag 24.
október kl. 13.30 og verður fund-
urinn haldinn i Súlnasal Hótel
Sögu. A fundinum verður staðan i
kjaramálum rædd og tekin
ákvörðun um framhald
baráttunnar fyrir þvi aö samn-
ingar háskólamanna verði virt-
ir.” —BA.
HAGKAUP VILL
BYGGJA SUNNAN
VIÐ SMÁLÖND
Hagkaup hefur óskað
eftir þvi að fá lóð í höfuð-
borginni fyrir aðalstöðvar
fyrirtækisins. Leggur
fyrirtækið áherslu á að
æskilegt væri að fá úthlut-
að svæði sunnan til í og
sunnan við Smálöndin, frá
vesturjaðri golfvallarins
og að framlengdum Suður-
landsvegi.
Borgarráö hefur visaö erindinu
til borgarverkfræðings, þar sem
það er til umsagnar.
Hagkaup vakti athygli borgar-
ráös á þvi aö hér væri um aö ræöa
4—5 ha. land. Það þætti þvi ekki
koma að notum, nema það næði
alveg noröur að hitaveitustokk-
Gœti leitt
til lokunor
verslano
Fundur I Félagi matvöru-
kaupmanna og Félagi kjöt-
verslana haldinn að Hótel
Loftleiðum 17. október 1978, þar
sem einnig voru mættir
fjölmargir kaupmenn úr
nágrannaby ggðarlögunum ,skor-
ar á verðlagsyfirvöld að láta
nú þegar fara fram leiðréttingu á
samásöluálagningu til samræmis
við þær hækkanir, sem orðið hafa
á reksturskostnaði verslana á
árinu.
Fundurinn vekur sérstaklega
athygli á að nú þegar eru
fjölmargar smásöluverslanir
reknar með tapi, og að óbreyttu
ástandi leiöir það til uppsagna
starfsfólks fyrirtækjanna og e.t.v.
lokunar þeirra.
Fundurinn varar eindregið viö
þvi að gerðir veröi kjarasamn-
ingar við launþega meðan ekki er
ljóst hvaða ákvörðun verðlags-
yfirvöld taka I verölagsmálum og
hvort nauðsynleg leiðrétting til
handa smásöluverlsuninni fæst.
—EA
unum. Með þvi aö ná honum lentu
inn á svæöinu 2—3 yfirgefnir kof-
ar og tvö ibúöarhús.
Það sem Hagkaup hefur i huga
er aö fá vilyrði fyrir framtiöarlóö
undir aðalstöðvar fyrirtækisins
og hafa bent á að enda yröi erfitt
að hefja verslun þarna i útjaöri
byggðarinnar alveg á næstunni.
Fyrirtækið segist þurfa að reisa
sem fyrst vörugeymslu og helst
byggingu fyrir kjötvinnslu og
saumastofu. Þetta væri gott aö
hafa sambyggt og sem byrjun á
vöruhúsi fyrir framtiðina.
Hagkaup kveöur það æskilegt
að hægt væri að hefja slikar bygg-
ingarframkvæmdir strax næsta
vor. —BA
Um tuttugu fóstrur
starfo ó Austurlandi
— hafa stofnað með sér samtök
Fóstrur, sem starfa á
AustulandL hafa
stofnað með sér
samtök, sem þær nefna
Fóstrusamtök Austur-
lands. Aðalmarkmið
samtakanna er að
sameina fóstrur innan
fjórðungsins.
Nýlega héldu fóstrur fund i
Neskaupstaðþar sem kom fram
að aðstöðu- og launamismunur
er mikill milli staða.
Vegna fjarlægðar við höfuð-
borgina hafa fóstrur á Austur-
landi átt erfitt með að sækja-
námskeið og fylgjast með
nýjungum i starfi. Til að bæta
hér um er ráögert að halda
námskeiö fyrir fóstrur á
Austurlandi.
Um tuttugu fóstrur starfa á
Austfjöröum. I stjórn Fóstru-
samtaka Austurlands eru:
Elisabet Jóhannesdóttir,
formaður, Asdis Blöndal ritari
og Aðalbjörg Pálsdóttir gjald-
keri. Þær starfa allar á Egils-
stööum, en ákveðið var að
stjórnin flyttist árlega milli
staða.
—KP.
BRUNE
RAKATÆKI
Á heimiii, skrifstofur, skóla og
víðar.
Heilsa og vinnugleði er mikið
undir andrúmsloftinu komin.
Okkur líður ekki vel nema að rak-
inn í loftinu sé nægilegur, eða 45-
55%. Loftið á ekki aðeins að vera í
réttu hitastigi heldur einnig réttur
raki.
Það bætir heilsuna, varnar þurrki á húsgögnum.
Það vinnur gegn rafmagnsmyndun í teppum.
Tækið vinnur hljóðlaust og dreifir rakanum rétL_
Það vinnur með eðlilegri uppgufun vatns,
en það sprautar ekki vatni í herbergin.
Lungun þreytast á að vera notuð sem ryk-
suga.
unnai SitjfMÍVMn Lf.
SUÐURLANDSBRAUT 16 - SlMI 35200 - 105 REYKJAVÍk!
Ég óska eftir upplýsingum um BRUNE
rakatæki
Nafn
Heimili