Vísir - 14.11.1978, Side 23

Vísir - 14.11.1978, Side 23
23 VTSIR Þriðjudagur 14. nóvember 1978 Fundur um vam- \ ir gegn meng- un hafsins Riki sem eiga aðild að alþjóðasamningi um varnir gegn mengun hafsins vegna losunar úrgangsefna og ann- arra efna héldu sinn fund i London [örrrmu. 1 upphafi fundarins var Hjálmar R. Báröarson, siglingamálastjóri, endurkjör- inn formaöur til eins árs en hann hefur gegnt starfi for- manns frá upphafi. Á dagskrá fundarins voru ýmis mikilvæg mál er varöa varnir gegn mengun sjávar. Tvær nefndir störfuöu aö sér- stökum verkefnum, laganefnd sem fjallaöi um breytingu samningsins og viöauka um lausn deilumála milli aöildar- rikjanna og fleira,og visinda- og tækninefnd. Settar voru reglur um kröfur varöandi eyöingu efna meö brennslu um borö i skipum á hafi úti, en mjög.fer I vöxt aö hættulegum efnum sé eytt um borö I skipum. Þá má nefna aö á dagskrá fundarins var skýrslugerö um Hjálmar R. Báröarson siglinga- málastjóri. losun efna i hafiö, tæknileg aö- stoö varöandi varnir gegn mengun hafsins, samvinna og samstarf viö ýmsar sérstofn- anir og verkefni þau sem fram- undan eru hjá aöildarrikjum þessa alþjóöasamnings. Næsti fundur veröur haldinn 1 október ánæsta ári. —SG Gras- köggla- framleiðsla í ár um 10.000 tonn Heildarframleiöslan á gras- kögglum I sumar var um 10 þús- und tonn hjá 5 verksmiöjum. Framleiöslan gekk mjög vel I sumar og hefur aldrei veriö jafn- mikil. Mest afköst voru hjá „Fóöur og fræ”, um 3400 tonn. Verksmiöjurnar héldu áfram vinnslu fram i október, þá var slegiö grænfóöur,aöallega hafrar. Taliö er aö þaö þurfi 1 kg. til 1,25 kg i eina fóöureiningu. Veröiö er frá 65 krónum upp I 72 krónur fyrir hver 5 kg. Birgöir af graskögglum fyrra árs framleiöslu seldust allar snemma i sumar. Salan hefur veriö mjög góö aö undanförnu og ekki taliö aö nein vandkvæöi veröi meö sölu i vetur. —BA SONYfira venjuleg tæki (myndlampi) 3 Byssur 3 litlar linsur TRINITRON (myndlampi) 1 Byssa 1 linsa SONY hlout EMMY-verðlaunin fyrir hönnun sína á þessum tœkjum. TRINITRON litsjónvarpskerfi og myndsegulbönd hafa mikla sérstöðu vegna stórkostlegra gœða, sem nást vegna vísindarannsókna SONY fyrir- tœkisins. Einn af frumkvöðlum þessara kerfa dr. LEO ESAKI hlaut Nóbelsverðlaunin árið 1973. APERTURE GRILLE SONY VtlTIR YKKUR CILIFA ANÆGJU JHPIS Lœkjargötu 2 Box 396 Símar 27192 27133 SHADOW MASK SONY BETAMAX Myndsegulbönd Ævintýramenn „Ég ætla aö leita ævintýra, spennings og fagurra kvenna,” sagöi sonurinn viö fööur sinn. „Reyndu ekki aö stööva mig, ég er aö fara.” * „Stööva þig, hver er aö reyna aö stööva þig?” hrópaöi faöirinn. „Ég ætla aö koma meö þér.” Allir vilja aur Allir vilja aur frá rikinu, eins og kom mjög svo greini- lega fram þegar Ragnar Arnalds var á beinni linu i útvarpinu á sunnudags- kvöldiö. Allt eru þetta góö félög sem aurana vilja og mörg hver vel aö þeim komin. Þó veröur þaö aö teljast nokkur bjartsýni á þessum siöustu og verstu timum veröbólgu og vinstri stjórnar aö ætiast til aö hiö opinbera fari aö leggja fé i sjóöi bridgespil- ara. Nú eru bridgespilarar sist verri menn en aörir, né held- ur bridge ómerkilegra tóm- stundagaman en margt ann- aö. En einhverstaöar verö- ur nú aö draga linuna, þegar t.d. sjúkrahúsin á iandinu eru aö lokast vegna fjár- skorts. Annars var mest gaman aö þvi á „linu Ragnars” þegar hann var aö reyna aö út- skýra hver væri munurinn á kaupráninu I febrúar siöast- iiönum og þvi sem rikis- stjórnin hyggst fremja núna I desember. Munurinn er aö sjálfsögöu ekki annar en sá aö Alþýöu- bandalagiö stjórnar verka- lýösfory stunni og getur væntanlega komiö i veg fyrir skemmdarstarfsemina sem fylgdi i kjölfar febrúar-aö- geröanna. Þaö er greinilega ekki sama hver rænir mann. Nœturbeini? Hótelhaldarinn á Hótel Akureyri á nú I miklu striöi viö fógetann þar I bæ út af kvöld- og nætursölu sem hann tók upp um helgina. Halldór Lárusson hótel- haldari telur sig hafa ótak- markaö veitingaleyfi og hyggst meöal annars selja ýmsa matvöru. Hann segir aö fógeti hafi i upphafi hvatt sig til þess en neiti sér nú um leyfi. ófeigur Eiriksson, bæjar- fógeti kveöst hinsvegar ekki geta veitt þetta leyfi enda sé heilbrigöisnefnd á móti þvi. Halldór kveöst ætla aö halda fast viö sitt og mun þvi tiöinda aö vænta úr næturlifi Akureyringa. —ÓT

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.