Vísir - 14.11.1978, Page 24
t vinnslusal Coldwater. Visismynd: KS.
Þriðjudagur 14. nóv. 1978
Coldwater Seafood:
íslenska blokkin
veldur vanda
Meiri gallar hafa komið
fram á lögun íslensku fisk-
blokkarinnar I ár en I fyrra
viö vinnslu fiskrétta í verk-
smiöjum Coldwater
Seafood I Bandarikjunum.
Þessir gallar valda erfiö-
leikum viö vinnslu sem
koma fram I verri nýtingu
og meiri kostnaöi viö
endurvinnslu á afskuröi.
Þessar upplýsingar komu
fram i kynnisferö blaöa-
manna til verksmiðja Cold-
water Seafood.
Hins vegar koma þessir
gallar ekki fram á gæöum
framleiöslunnar og taldi
opinber gæöaef tirlits-
maöur i Bandarikjunum, er
blaðamenn ræddu viö aö
gæöi islenska fisksins væru
mjög mikil.
Skiptar skoöanir eru á
þvi hvað valdi þvi aö gallar
á lögun islensku fisk-
bolkkarinnar hafa aukist.
Telja sumir að tækni viö
framleiðsluna hér heima sé
áfátt en aörir benda á aö
Færeyingar noti sömu
tækni meö betri árangri og
halda þvi fram aö bæta
þurfi vinnubrögð og vand-
virkni i islenskum frysti-
húsum. —KS.
Tók út af bóti
Nitján ára gamall piitur,
Jón Ingi Ingimundarson,
féll útbyröis af tóif tonna
báti, Flosa SH-136,á sunnu-
dagskvöld. Jón Ingi var
ásamt eiganda bátsins um
borö I bátnum. Slysiö varö
um tiu mflur út af Garö-
skaga. Þegar var hafin lcit,
en hún bar ekki árangur.
Jón Ingi var til heimilis I
Keflavik. —EA.
Skrif Vísis um Fríhöfnina:
Ritstjóri Vísis
kvaddur fyrir
Þorsteinn Pálsson, rit-
stjóri, hefur veriö kvadd-
ur til yfirheyrslu vegna
skrifa VIsis um mál Fri-
hafnarinnar á Kefla-
vikurflugvelli.
Lögreglurannsókn er
nú hafin á vegum Lög-
reglustjóraembættisins á
Keflavikurflugvelli vegna
þeirra fullyröinga VIsis,
aö 25 senta aukagjald hafi
veriö la gt á vodkaflöskur
I Frlhefninni. Ritstjóri
Visis er sá fyrsti sem
kvaddur er fyrir vegna
þessa máls.
—KP.
„Framtíð stjórn-
arinnar var róð-
in i Ölfusborgum,r
„Framtiö rikisstjórnar-
innar var ráöin I ölfus-
borgum 1 slöustu viku”,
sagöi einn fuiltrúinn á þingi
Alþýðuflokksins I viötali
viö Visi I gær.
Nokkrir forystumenn
verkalýöshreyfingarinnar,
þeir Guömundur J. Guö-
mundsson, Asmundur Stef-
ansson, Karl Steinar
Guönason og Snorri Jóns-
son.komu saman til fundar
I ölfusborgum I siðustu
viku til aö ræöa tillögur til
lausnar efnahagsvand-
anum 1. desember n.k. Eft-
ir þvi sem næst veröur
komist munu þeir hafa
komið sér sáman um aö
gera allt sem i þeirra valdi
stæöi til þess aö rlkisstjórn-
inni mætti takast aö leysa
þann efnahagsvanda, sem
að steöjaöi 1. desember og
tryggja þannig áframhald-
andi setu þessarar rikis-
stjórnar. —GBG
Sikorskyþyrlan og Landhelgisgœslan:
Ákverðun í
nóvemberlok
„Höfum fengið frest þangað til" segir Steingrimur
Hermannsson, dómsmólaráðherra
,,Ég er nýbúinn að
koma á fót starfshópi um
málefni Landhelgisgæsl-
unnar. Hlutverk hans er
aö skila áliti um hvernig
starfiö veröi betur lagaö
aö breyttum aöstæöum.
Hugsanleg þyrlukaup
veröa aö sjálfsögöu
athuguö þar meö,” sagöi
Steingrimur Hermanns-
son, dómsmálaráöherra
er hann var spuröur,
hvort ákvöröun heföi
veriö tekin varöandi
þyrlukaup fyrir Land-
helgisgæsluna.
„Þessi starfshópur
mun athuga hvaöa
valkosti viö höfum
varöandi fluggæslu.
Spurningin er til dæmis
hvort okkur kemur betur
aö hafa eina þyrlu frekar
en tvær Fokker flugvélar;
Þaö kæmi til greina aö
selja annann Fokkerinn.
Einnig þarf aö athuga
hvort Landhelgisgæslan
fer meira út i björgunar-
starfsemi, sem varnar-
liöið hefur annast. Þaö er
þvi margt sem þarf aö
huga aö I sambandi viö
flugmálin.”
Aöspuröur sagöi Stein-
grimur aö framleiöendur
Sikorskyþyrlunnar heföu
veitt frest út nóvember-
mánuö með þaö hvort af
kaupunum yröi eöa ekki.
Landhelgisgæslan
pantaöi þyrluna á siöasta
ári, en hún mun hins
vegar ekki tilbúin til
afhendingar, ef af
kaupunum veröur, fyrr
en á árinu 1979.
I sumar var skrifaö hér
I Visi um hugsanleg
þyrlukaup Landhelgis-
gæslunnar og var þá
greint frá tveimur þyrlu-
tegundum sem starfs-
menn Landhelgisgæsl-
unnar höföu skoöaö.
MIKID TJÓM Af
GUFU OG REYK
Miklar skemmdir uröu
frá reyk og gufu, þcgar
eldur kom upp i geymsium
á neöstu hæö hússins
númer tiu viö'StelkshóIa I
Reykjavik. Sex ibúöir eru I
stigaganginum og sex
geymslur. Uröu miklar
skemmdir á fjórum
geymslum, og á einni fbúö-
anna.
Tilkynnt var, um eldinn
klukkan 16.22 i gærdag. Fór
allt liö slökkviliösins á
staðinn, en samkvæmt
upplýsingum Gunnars
Sigurössonar varaslökkvi-
liösstjóra, var mjög erfitt
aö komast aö eldinum.
Varö aö komast aö honum
innan úr húsinu, og þvi ekki
hægt aö komast hjá þvi að
stigagangurinn fylltist af
reyk og gufu þegar byrjaö
var aö sprauta vatni á
eldinn.
Hurö á einni Ibúöanna
stóð oþin, og uröu tals-
veröar skemmdir á ibúö-
inni. Smiöir úr nálægu húsi
höföu bjargað ibúum
hússins niður af svölunum I
stiga, þar á meöal konu
meö nokkurra vikna
gamalt barn.
Gunnar Sigurösson sagöi
aö þaö hefði bætt mjög
mikið ef gluggi heföi veriö
á geymsluhæöinni, svo
unnt heföi veriö aö komast
aö eldinum annars staöar
en innan úr húsinu, og
sagði aö þaö heföi sannast
þarna, eins og reyndar á
fleiri stööum, aö búa mætti
betur um hnútana.
1 morgun var ekki vitaö
um eldsupptök, en verið
var aö athuga rafmagn, þó
litlar likur væru taldar á
þvi aö eldsupptök mætti
rekja til þess. —EA.
Enn ekki samið við stundakennara við Háskólann:
Engin kennsla í janúar?
„Viö héidum aöalfund f
gærkvöidi og þar var
samþykkt áiyktun, þar
sem skoraö var á stjórn-
völd aö taka aftur upp
viöræöur. Þar er þvi lýst
yfir aö takist ekki samn-
ingar veröi óhjákvæmi-
legt aö gripa til einhverra
frekari aögeröa ekki siö-
ar en i byrjun vormiss-
eris, sem er I janúar”,
sagöi Ólafur Jónsson sem
veriö hefur f fyrirsvari
fyrir stundakennara viö
Háskólann.
„Þaö er ekki tiltekiö
hvaöa aögeröir þetta eigi
aö vera, en ég held aö þaö
sé ekkert launungarmál
aö okkar afstaöa er sú, aö
þá yröi aö öllum llkindum
ekkert byrjaö að kenna.
Félag stundakennara
er mjög ánægt meö þátt-
tökuna. Þetta er mjög
ungt félag og fyrirfram
var ekkert vitaö um sam-
stööuna. Arangurinn
gagnvart fjármálaráöu-
neytinu er hins vegar
enginn eins og er. Þaö var
ekkert talast viö I vikunni
og viö höfum engin viö-
brögö fengiö frá ráöu-
neytinu, enda ekki búist
viö þvl.
Stúdentar hafa hins
vegar eindregiö staöið
meö okkur. Þaö er ákaf-
lega meinlegt að þær aö-
geröir sem viö getum
gripiö til skuli I fyrsta lagi
bitna á stúdentum. Þetta
ættu háskólayfirvöld aö
sjá, aö ekki er sann-
gjarnt. Stúdentar hafa
komiöákaflega vel fram I
þessu máli”.
—BA—-
Husqvarna er heimilisprýði ^jmnaí S4t>2fdu>bm k.f.
SUÐURLANDSBRAUT 16 - SÍMI 35200 - 105 REYKJAVÍK