Morgunblaðið - 11.01.2001, Síða 2
KNATTSPYRNA
2 C FIMMTUDAGUR 11. JANÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ
ÞAÐ voru uppgefnir og
þreyttir leikmenn Úrúgvæ
sem komu á hótelið sem
hýsir íslenska liðið um
miðjan daginn í gær. Ferð
íslenska landsliðsins er
stutt gamansaga í sam-
anburði við þá leið sem
Úrúgvæmenn lögðu á sig.
Þeir komu við í Argentínu
á leið sinni frá Úrúgvæ,
flugu þar yfir til Suður-
Afríku, millilentu í Zim-
babve á leið sinni til
Madríd. Frá Spáni héldu
þeir til London, þaðan til
Dubai, síðan til Bombay áð-
ur en þeir komu til Cochin.
Þessi erfiða ferð á eflaust
eftir að koma niður á leik
þeirra er þeir mæta Íslend-
ingum í dag.
Von-
brigði að
sjá ekki
Indverja
ÞAÐ voru Atla Eðvalds-
syni, landsliðsþjálfara í
knattspyrnu nokkur von-
borgði þegar Indónesíu-
mönnum var vísað úr
keppninni í gær. Þar með
missti hann af eina tæki-
færinu til þess að sjá Ind-
verja leika, en heimamenn
mæta íslenska landsliðinu á
sunnudaginn. Indverjar eru
nærri því sem óskrifað blað
fyrir Atla og lærisveina
hans sem eins og fleiri vita
ekki hvers má vænta þegar
þjóðirnar eigast við.
„Það hefði verið í fyrsta
skipti sem ég sé indverska
landsliðið leika knatt-
spyrnu knattspyrnu – við
vitum hreinlega ekkert
hvernig þeir leika,“ sagði
Atli.
Þreyttir
Úrúgvæ-
menn
Atli sagði að hann vissi aðÚrúgvæmenn kæmu ekki
með stóru stjörnurnar sínar til
leiks. „Þeir eiga
marga leikmenn
sem vilja sanna sig,
eins og er hjá okk-
ur,“ sagði Atli, sem
ætlar að leggja upp leikinn eins og
hann hefur gert hingað til. „Við
munum leika með fjóra menn í öft-
ustu varnarlínu og einn leikmann
rétt fyrir framan miðverðina. Það
verður Þórhallur Örn Hinriksson
sem fær það hlutverk að leika fyr-
ir framan Gunnlaug Jónsson og
Bjarna Þorsteinsson. Sverrir
Sverrisson og Kjartan Antonsson
verða við hlið þeirra. Þá verða
fjórir leikmenn á miðjunni,
Tryggvi Guðmundsson, Sigurvin
Ólafsson, Ólafur Örn Bjarnason og
Sigþór Júlíusson. Fremstur meðal
jafningja verður svo Guðmundur
Benediktsson.
Við verðum að leika yfirvegað
frá byrjun og gæta okkur á að
Úrúgvæmenn geti ekki brotist upp
miðjuna. Þeir eru leiknir og fljótir
– við verðum að gæta okkur á
þeim. Við ætlum að loka á þá og ég
vona að það gangi eftir. Eins og ég
sagði áðan þá höfum við ekki feng-
ið mikinn tíma til að undirbúa okk-
ur, en ef við gerum hlutina rétt er
þetta einfalt.“
Hvað þarftu mikinn tíma til að
sjá út styrkleika Úrúgvæmanna?
„Við sjáum styrk þeirra á fyrstu
fimmtán mínútunum. Ef við náum
að halda þeim niðri á þeim tíma,
getir það okkur auðveldara fyrir.
Ég hef trú á því að jafnvægi okkar
verði í lagi ef við náðum að halda
aftur að Úrúgvæmönnum fyrstu
tuttugu til tuttugu og fimm mín-
úturnar, Já, svo framarlega að hit-
inn nái ekki að brjóta okkur á bak
aftur. Hitinn verður óvinur okkar
númer eitt, tvö og þrjú.
Strákarnir eru líkamlega sterkir
til að eiga við Úrúgvæmenn. Þeir
bíða spenntir eftir að mæta þeim
og eiga eftir að leggja sig alla
fram í orrustunni.
Leikurinn gegn Úrúgvæ skiptir
okkur miklu máli – það er alltaf
gott að byrja vel. Við leikum síðan
næst gegn Indverjum eftir aðeins
tvo daga og verður sá leikur erf-
iður, því að þá gæti farið svo að
strákarnir mæti þreyttir til leiks
eftir átökin við Úrúgvæmenn. Við
mætum heimamönnum á frábær-
um velli fyrir framan hundrað þús-
und áhorfendur, sem verður mikil
upplifun fyrir strákana.“
Atli sagði að strákarnir væru
spenntir fyrir því að komast áfram
í 8-liða úrslitin. „Ef það tekst væri
best að komast áfram sem fyrsta
liðið úr riðlinum. Þá þurfum við
ekki að fara héðan frá Cochin,
heldur að leika hér fimmtudaginn
átjánda janúar við Júgóslavíu eða
Bosníu. Hér er gott að vera og hér
viljum við vera áfram.“
Atli Eðvaldsson landsliðsþjálfari segir að nú sé komið að alvörunni
Við ætlum að loka
á Úrúgvæmenn
Morgunblaðið/Einar Falur
Hvít drossía beið Atla Eðvaldssonar þjálfara og Ásgeirs Sigurvinssonar við komuna til Cochin í
fyrradag. Um hálsinn eru þeir með blómakransa sem þeim voru færðir við komuna.
„ÉG er þokkalega sáttur við allt
og allt miðað við erfiða ferð og
stuttan undirbúning fyrir átökin
hér í Indlandi. Þreytan er að líða
úr mönnum, en hitinn er og
verður áfram hér til staðar. Það
er erfitt að leika knattspyrnu í
yfir þrjátíu stiga hita. Þannig er
staðan og við vissum að hún
yrði þannig. Við vitum ekkert
um mótherja okkar og þeir ekk-
ert um okkur þannig að við
göngum jafnir að borði,“ sagði
Atli Eðvaldsson, landsliðsþjálf-
ari Íslands í knattspyrnu, í gær-
kvöldi.
Morgunblaðið/Einar Falur
Valur Fannar Gíslason leikur sér með boltann áður en morgunæfing knattspyrnulandsliðsins
hófst í breiskjuhita í gærmorgun. Bakvið hann skokkar landslið Bangladesh.
Sigmundur Ó.
Steinarsson
skrifar
frá Indlandi
Fimm Íslendingar léku saman
FIMM Íslendingar léku síðari hálfleikinn með Stoke City gegn
Halifax í bikarkeppni ensku neðrideildaliðanna í fyrrakvöld. Aldrei
áður hafa jafnmargir íslenskir leikmenn leikið saman með erlendu
félagsliði en þetta er í fyrsta skipti sem fimm íslenskir leikmenn hjá
Stoke eru innan vallar á sama tíma, þótt alls séu þeir sex í her-
búðum félagsins.
Þeir Brynjar Björn Gunnarsson, Bjarni Guðjónsson, Ríkharður
Daðason og Birkir Kristinsson spiluðu allan leikinn og Stefán Þór
Þórðarson lék síðari hálfleikinn. Stefán hefur verið frá keppni
vegna veikinda undanfarnar vikur en er kominn á ferðina á nýjan
leik.
Bjarni Guðjónsson skoraði tvö marka Stoke í 3:2 útisigri, sigur-
markið með skoti af 20 metra færi á síðustu mínútu leiksins, og
Ríkharður Daðason gerði eitt en Halifax komst í 2:0 á fyrstu 27
mínútum leiksins.