Morgunblaðið - 14.01.2001, Blaðsíða 2
2 B SUNNUDAGUR 14. JANÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Í desember á þessu ári mun nýsjá-
lenski leikstjórinn Peter Jackson
frumsýna fyrstu mynd sína af þrem-
ur sem hann byggir á Hringadrótt-
inssögu eftir J.R.R. Tolkien en með
henni lýkur fyrsta kvikmyndaári ald-
arinnar, sem sýnist ætla að verða
spennandi að mörgu leyti. Mýgrútur
mynda verður framleiddur í Holly-
wood-vélinni og sjálfsagt ekki allt
jafnvandað en nokkrir titlar eru sér-
lega áhugaverðir og skal nú hlaupið á
nokkrum þeirra.
Hringadróttinssaga:
270 milljónir dollara
Sífellt bætast við upplýsingar um
Hringadróttinssögu en Peter Jack-
son hefur reynt að takmarka aðgang
fjölmiðla að upplýsingum um fram-
leiðsluna svo leyndardómurinn verði
ekki allur upplýstur þegar kemur að
frumsýningu. Um er að ræða dýrustu
kvikmyndaframleiðslu sem nokkru
sinni hefur verið ráðist í en mynd-
irnar þrjá eru sagðar munu kosta
ekki minna en 270 milljónir dollara,
sem er vel á þriðja tug milljarða ís-
lenskra króna. New Line Cinema
framleiðir.
Hugmyndin er að frumsýna mynd-
irnar hverja á fætur annarri árin
2001 til 2003 og er hver þeirra byggð
á einni bók Tolkiens í trílógíunni.
Vandamálið sem Jackson stendur
frammi fyrir er auðvitað að gefa öll-
um þeim milljónum sem þekkja vel til
sagnanna það sem þeir vilja en jafn-
framt reyna að gera sögurnar skilj-
anlegar og spennandi þeim sem
þekkja hvorki haus né sporð á Hobb-
itum. „Það er ekki hægt að gera
Hringadróttinssögu almennilega án
þess að búa til þrjár bíómyndir,“ hef-
ur Jackson látið hafa eftir sér, „í það
minnsta ef þú ætlar að kvikmynda
hana af einhverju viti.“
Jackson var í tvö ár að undirbúa
kvikmyndatökuna en myndirnar
þrjár eru teknar hver á fætur annarri
á síðasta ári og þessu sem nú fer í
hönd og leika Elijah Wood, Ian
McKellan og Cate Blanchett aðal-
hlutverkin.
Bandaríski leikstjórinn Michael
Mann er meðal fremstu kvikmynda-
gerðarmanna Bandaríkjanna og er
mynda frá honum ætíð beðið með
nokkurri eftirvæntingu. Síðast sendi
hann frá sér Uppljóstrarann eða The
Insider en líklega er þekktasta mynd
hans Síðasti móhíkaninn. Hann send-
ir frá sér á þessu ári ævisögulega
mynd um mesta hnefaleikakappa
allra tíma, Múhameð Alí. Það er súp-
erstjarnan og gleðipinninn Will
Smith sem fer með hlutverk Alís og
lagði á sig heilmikið erfiði. Hann æfði
hnefaleika í hálft ár áður en tökur
hófust og fitaði sig upp í 109 kíló.
Ástamál
og Hannibal
Sagt er að Mann kafi ofan í
kvennamál Alís og reki málaferlin
sem urðu þegar hann neitaði að
gegna herþjónustu í Víetnam svo og
tengsl kappans við samtökin Nation
of Islam eða Þjóð Íslams. „Hann var
hetja fólksins,“ er haft eftir Mann.
„Hann var fulltrúi allra þeirra sem
vinna sig upp úr engu.“
Neil LaBute vakti athygli vestra
og ekki síður hér heima fyrir gam-
andramað Hjúkkuna Betty eða
Nurse Betty en hann sendir frá sér
nýja mynd á árinu sem er talsvert
ólík henni. Hún heitir Possession og
er byggð á samnefndri 555 síðna bók
eftir A.S. Byatt. Aðrir leikstjórar
reyndu að kveikja líf í sögunni á tjald-
inu eins og Sidney Pollack (Random
Hearts) og Gillian Armstrong (Little
Women) en hún reyndist þeim ofviða.
Með aðalhlutverkin fara Gwyneth
Paltrow og Aaron Eckhart ásamt
Jeremy Northam og Jennifer Ehle
en myndin greinir frá bókmennta-
fræðingum í nútímanum sem velta
fyrir sér leynilegu ástarsambandi
nítjándu aldar skáldanna Roberts
Brownings og Christinu Rossetti.
Þá mun dr. Hannibal Lecter sem
kunnugt er snúa aftur á hvíta tjaldið,
sjálfsagt flestum til gleði og ánægju,
hvursu öfugsnúið sem það nú hljóm-
ar. Anthony Hopkins leikur enn
mannætuna hjartahlýju í framhalds-
tryllinum Hannibal, sem byggist á
samnefndri metsölubók Thomas
Harris, en Julianne Moore hefur tek-
ið við hlutverki FBI-konunnar Clar-
ice Starling.
Í Hannibal greinir Harris frá því
að titilpersónan hafi mótast af hryll-
ingi sem hún upplifði í æsku og
Hannibal reynist verndari Clarice á
stundum. Breski leikstjórinn Ridley
Scott stjórnar blóðbaðinu í þetta sinn
og segir að nýja myndin gefi tækifæri
til þess að kanna betur hið viðkvæma
sálarlíf morðingjans illskeytta.
„Þetta er ástarsaga sem aldrei er
uppfyllt,“ er haft eftir Scott. Öruggt
má þó teljast að Hannibal fái fylli
sína.
Hanks sem glæpaforingi
Leikstjórinn Sam Mendes gerði
Ameríska fegurð og vakti mikla at-
hygli en hann hafði ekki áður fengist
við kvikmyndaleikstjórn. Hann hefur
hins vegar verið eftirsóttur í
draumafabrikkunni síðan og stýrir
nú Tom Hanks í nýrri mynd sem ber
heitið Road to Perdition. Hún er
byggð á samnefndri og talsvert of-
beldisfullri skáldsögu sem segir frá
glæpaforingja í Chicago er hefnir
morðsins á uppáhaldssyni sínum.
„Þetta er mynd um þá leynilegu ver-
öld sem foreldrar manns lifa í og
maður kynnist í rauninni aldrei,“ seg-
ir Sam Mendes.
Það furðulega er að Tom Hanks
fer með aðalhlutverkið í myndinni.
Hanks hefur hingað til ekki leikið
glæpaforingja í hefndarhug heldur
miklu fremur góðviljuð, góðhjörtuð
góðmenni í „góðum“ myndum þar
sem engar eru blóðsúthellingarnar.
Er Cast Away, sem núna er vinsæl-
ust mynda vestra, gott dæmi um
Hanks-mynd. Hvort leikarinn vill
með Road to Perdition bæta á sig
fjölbreyttari karakterum skal ósagt
látið en í það minnsta verður fróðlegt
að sjá glæpaforingjann Hanks út-
deila réttlætinu á hvíta tjaldinu.
Og loks er það Rauða myllan eða
Moulin Rouge sem nefnd skal á þess-
ari yfirreið yfir nokkrar af áhuga-
verðustu myndum ársins 2001. Leik-
stjóri hennar er Baz Lurhmann sem
síðast gerði nútímaúgáfu af Rómeó
og Júlíu eftir Shakespeare. Lýsingin
á Moulin Rouge bendir til þess að hér
sé á ferð nokkurt furðuverk. Myndin
gerist á hinum fræga skemmtistað í
París árið 1899 og er með Nicole Kid-
man og Ewan McGregor í aðalhlut-
verkum en Nicole leikur dansmey og
söngkonu á staðnum og McGregor
tónskáld, sem hrífst af henni.
Lurhmann gerir póstmódernískt
sambland af „dansklúbbi, leikhúsi og
hóruhúsi“ úr Rauðu myllunni og
splæsir saman dansa og tónlist úr
samtímanum (Madonnu og Fatboy
Slim svo einhverjir séu nefndir) og
hundrað ára gamalt söguefni. Mynd-
in er að hluta til söngleikur og að
hluta ástarsaga sem Lurhmann sjálf-
ur spáir að muni ýmist heilla áhorf-
endur eða fá þá til þess að ráðast inn í
miðasöluna og heimta endurgreiðslu.
Ef eftirfarandi kvikmyndir sem frumsýndar
verða á árinu heppnast vel er öruggt að gaman
verður að fara í bíó 2001 að sögn Arnaldar
Indriðasonar sem fjallar um helstu framleiðslu
þessa árs eins og mynd Michaels Manns um
Múhameð Alí, Hannibal eftir Ridley Scott og
Hringadróttinssögu Peters Jacksons.
AP
Múhameð Alí ræðir hér við skemmtikraftinn Will Smith og mætti
halda að þeir væru að hvetja hvorn annan til dáða. Þeir voru hins
vegar með viðureign dóttur Alís, Lailu, í huga því að myndin var tek-
in skömmu áður en hún sté í hnefaleikahringinn í Kaliforníu í fyrra-
sumar. Smith leikur Alí í væntanlegri mynd Michaels Manns um
hnefaleikakappann.
Reuters
Tom Hanks bregður sér í ýmis gervi. Hann leikur glæpaforingja í hefndarhug í myndinni The Road to Perdition. Hér er hann í hlutverki strandaglóps í myndinni Cast Away.
Leikararnir Julianne Moore og Anthony Hopkins komu fram á
blaðamannafundi, sem haldinn var þegar tökur hófust á myndinni
Hannibal, sem er framhald af Lömbin þagna. Moore tekur við því
hlutverki, sem Jodie Foster lék í fyrri myndinni.
2001:
Bíóferð