Morgunblaðið - 14.01.2001, Blaðsíða 5
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 14. JANÚAR 2001 B 5
Þarft þú að styrkja
útlínurnar eftir
hátíðirnar?
...ferskir vindar í umhirðu húðar
Súrefnisvörur
Karin Herzog
Switzerland
Silhouette og Body
Scrub frá Karin Herzog
er frábær hjálp til að
undirstrika fagrar útlínur
í byrjun nýja ársins!
VIÐSKIPTASTRÍÐ virðist vera yf-
irvofandi milli Bandaríkjanna og
Kanada vegna deilu um kartöflur frá
Prince Edward-eyju í Kanada.
Viðskiptadeilan blossaði upp
vegna sveppasjúkdóms í kartöflum á
akri einum á eyjunni og hefur hann
orðið til þess að bandarísk yfirvöld
hafa nánast bannað innflutning á
kartöflum frá eyjunni.
Kanadastjórn hefur hótað að
grípa til gagnaðgerða og benti land-
búnaðarráðherra Kanada, Lyle
Vanclief, á það að uppskera bænda
muni rotna, verði banninu ekki af-
létt. Vanclief sagði að ríkisstjórnin
hafi vakið máls á deilunni í Fríversl-
unarsamtökum Norður-Ameríku,
NAFTA, en viðbrögð í málinu muni
koma of seint til að uppskerunni
verði við bjargandi.
Terrys Normans, deildarstjóri í
kanadíska landbúnaðarráðuneytinu,
segir aðgerðir Bandaríkjastjórnar
óréttmætar en nýjum reglum sem
hún hefur sett verði fylgt enda ann-
ars hætta á því að Bandaríkjastjórn
banni allan innflutning á kartöflum
frá Kanada.
Kanadískir embættismenn hafa
sakað Bandaríkjamenn um að nýta
sér sveppasjúkdóminn til að hygla
bandarískum kartöflubændum, eng-
in merki séu um að hann hafi breiðst
út.
Sjúkdóms varð vart í október
Sveppasjúkdómsins varð fyrst
vart á akri í New Annan á Prince
Edward-eyju í október. Bandaríkja-
menn ákváðu þá að takmarka kart-
öfluinnflutning frá eyjunni en höml-
urnar voru mildaðar um miðjan
desember.
Bandaríska landbúnaðarráðu-
neytið setti síðan strangari reglur
um kartöfluinnflutninginn í vikunni
sem leið og Kanadamenn hafa mót-
mælt þeim harðlega. Samkvæmt
nýju reglunum þurfa bandarískir
embættismenn að skoða alla kart-
öflufarma frá eyjunni og leggja þarf
fram ýtarlegar skýrslur um uppruna
þeirra. Bannað er að flytja inn kart-
öflur frá 40.000 hektara sóttkvíar-
svæði á Prince Edward-eyju og inn-
flutningur á kartöflum frá öðrum
svæðum á eyjunni er takmarkaður.
Landbúnaðarráðuneytið í Wash-
ington krefst þess einnig að kanad-
ísk yfirvöld herði eftirlitið með flutn-
ingi á kartöflum innan Kanada til að
koma í veg fyrir að sýktar kartöflur
verði sendar til Bandaríkjanna frá
stöðum utan bannsvæðisins.
Susan McAvoy, talsmaður banda-
ríska landbúnaðarráðuneytisins,
sagði að reglurnar hefðu verið settar
að ráði vísindamanna frá Bandaríkj-
unum og Kanada sem komu saman
19. desember til að ræða málið. Hún
sagði að sveppasjúkdómurinn hefði
verið upprættur í Bandaríkjunum
árið 1991 og markmiðið með inn-
flutningshömlunum væri að koma í
veg fyrir að hann bærist aftur til
landsins.
Kartöflur orðnar
að þrætuepli
Toronto. AP.