Morgunblaðið - 14.01.2001, Síða 19

Morgunblaðið - 14.01.2001, Síða 19
séð frá höfuðborg norðursins. Átti fyrir mér að liggja að fara yfir þetta? Þetta virtist „óyfirhlaupan- legt“ á þessu stigi. Uppgjafartilfinn- ing helltist yfir mig. Aldrei aftur, hugsaði ég eitt augnablik. Löngunin til að fara að ganga varð yfirþyrm- andi og togaðist á við óttann við að þá yrði erfitt að byrja að hlaupa á nýjan leik. Þeim fjölgaði, hlaupur- unum sem höfðu látið slíkt eftir sér og ég fór að fara fram úr fleiri og fleiri. Staða mín í hlaupinu hlaut að hafa vænkast. Sjálfstraustið jókst. Þegar hæðin framundan virtist vera orðin ófrávíkjanleg tók vegurinn skyndilega stefnubreytingu til aust- urs meðfram heiðinni og sveigði síð- an upp í skarð til suðurs. Hér var kominn hinn margrómaði „vitastíg- ur“ (Beacon hill) sem er brattasti hluti leiðarinnar, þegar á að giska 7 mílur (11 km) voru eftir að marki. Uppi á Beacon-hæð beið hópur fólks sem var að fylgjast með og bauð drykki og aðstoð af ýmsu tagi. Nú var að duga eða drepast. Ein- ungis um 10 km voru eftir. Sálfræði niðurtalningarinnar var hafin fyrir alvöru. Hversu oft hafði ég ekki hlaupið 10 km æfinga- og almenn- ingshlaup heima á Fróni og ekki þótt það neitt tiltökumál. Það var ólýsanleg tilfinning að sjá hafið við suðurströnd Englands skyndilega blasa við. En hvar var Brighton? Af hverju var önnur hæð þarna fram- undan? Af hverju sveigði vegurinn til austurs skyndilega? 50 mílna (80 km) markið blasti við. Einungis 5 mílur (8 km) eftir. Umferð jókst. Húsum fjölgaði. Brött brekka niður, umferðarljós, torg, strætisvagnar, fólksmergð, hróp og köll í fjarska. Ég leið áfram líkt og í leiðslu. Hvar var ströndin? Þar átti markið að vera. Annað torg, breiðgata. Ætlaði þetta engan enda að taka? Fólks- mergðin þéttist. Framundan sá ég annan hlaupara. Mér var orðið sama um allt. Best að auka bara hraðann. Ég gæti kannski náð honum? Strönd. Gæslumaður stöðvaði um- ferð við gatnamót, veifaði höndun- um og benti mér að beygja til vinstri. Markið blasti við. Það stytt- ist jafnframt í hinn hlauparann. Ég tók á öllu sem ég átti. Það var ólýs- anleg tilfinning að renna yfir mark- línuna eftir að hafa farið fram úr suður-afrískum þjáningarbróður mínum og að fá viðurkenningarpen- ing um hálsinn úr höndum brosandi yngismeyjar. 55 mílna (88 km) af- mælishlaupinu London-Brighton ár- ið 2000 var lokið. Fjórða ofurmara- þoninu mínu á erlendri grundu var bætt í safnið. Það hafði tekið sam- tals 7 klukkustundir, 58 mínútur og 13 sekúndur sem skilaði mér í 27. sæti og í 5. sæti í mínum aldurs- flokki. Ég var bærilega sáttur við það. Eftir að hafa kastað mæðinni um stund og rölt um af veikum mætti í nágrenni við markið til að forðast of mikla stirðnun staulaðist ég ásamt nokkrum öðrum hlaupurum að sundlaug í næsta nágrenni, til að skola svitastorkinn skrokkinn. Ný- strokinn og þveginn sneri ég því- næst aftur að marklínunni staðráð- inn í að taka eftirminnilega á móti félaga mínum, Sigga, sem gert hafði ráð fyrir að klára stuttu fyrir 10 klukkustunda tímamörkin. Tíminn leið, en ekkert bólaði á Sigga. Hlauparar streymdu að; margir hverjir illa á sig komnir. Enginn Siggi. Mér fór ekki að standa á sama. Hafði kannski eitthvað komið fyrir? Þegar um 10 mínútur voru eftir til loka tímatöku afréð ég að fara og grennslast um afdrif félaga míns og gaf mig á tal við einn tíma- vörðinn og spurði hvort hann hefði einhverjar fregnir af „hinum Íslend- ingnum“. „Oh, yes, Mr. Gunnsteins- son,“ hrópaði hann upp fyrir sig. „Hann kom í mark fyrir tæpum klukkutíma(!). Félagi minn, Sigurð- ur Gunnsteinsson, 11 árum eldri en ég, hafði gert sér lítið fyrir og lokið hlaupinu á rétt rúmlega níu klukku- stundum (9.08́44́) og hafnaði í 9. sæti í sínum aldursflokki. Frábært! Það voru fagnaðarfundir þegar við hittumst stuttu síðar í ráðhúsi borgarinnar þar sem við fylgdumst með verðlaunaafhendingu og tókum á móti viðurkenningarskjölum. Sig- urvegari hlaupsins og handhafi far- andbikars Arthurs Newtons árið 2000 var að þessu sinni Suður-Afr- íkubúi, Sarel Ackerman að nafni, sem sigraði nú öðru sinni og hljóp vegalengdina á 5 klukkustundum, 56 mínútum og 50 sekúndum. Þjáningin gleymd og hugað að næsta hlaupi Í rútunni á leiðinni til baka til London skiptumst við félagarnir á reynslusögum af hlaupum hvors annars. Þjáningarhluti þrekvirkj- anna var fljótur að gleymast og áður en við vissum af vorum við farnir að leggja á ráðin um næsta ofurmara- þon, árið 2001(?). TENGLAR ..................................................... Áhugasömum er bent á að frekari upplýsingar er unnt að finna á vefsíð- unni http://www.raunvis.hi.is/~agust/ lbpistill.htm Umfjöllun og myndefni á verald- arvefnum: frétt: http://www.raunvis.hi.is/~agust/ lbpistill.htm kynninarefni á aðalfundi Félags Maraþonhlaupara (myndefni og texti): http://www.raunvis.hi.is/ ~agust/LondonBrighton1.htm Rétt fyrir hlaup (mynd): http:// www.raunvis.hi.is/~agust/lbfraes.htm Íslendingar koma í mark (myndir): http://www.raunvis.hi.is/~agust/ lbmyndak.htm Afmælisveisla hlaupsins í lok hlaups (mynd): http://www.raunvis.hi.is/ ~agust/lbeftirhl.htm Millitímar í hlaupi (línurit og tafla): http://www.raunvis.hi.is/~agust/ lbmillit.htm Hlaupaúrslit (tafla): http:// www.roadrunnersclub.org.uk/ lb2000_race_results_.htm Þjálfun og þjálfunaráætlun: http:// www.raunvis.hi.is/~agust/hlp00.htm Heimasíða hlaupsins, London- Brighton (texti og myndir): http:// www.roadrunnersclub.org.uk/ lonbrigh.htm MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 14. JANÚAR 2001 B 19 Guðjón Karl Reynisson framkvæmdastjóri sölusviðs Tals hf.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.