Vísir - 09.12.1978, Síða 2

Vísir - 09.12.1978, Síða 2
2 Laugardagur 9. desember 1978 trtsm Hækkun á fasteignaskatti hdssins aö Hlaöbæ 6 hækkar um 68,64% Myndir: GVA Fasteignaskattur af þessu hdsi sem stendur viö Kiírland 11 mun hækka úr 89.774 krónum i 151.400 krónur Fasteignaskattur af þriggja herbergja fbiíö aö Alftamýri 30 mun hækka tir 31.953 krónum I ár upp f 53.890 krónur. Lóöarleiga Suöurlandsbraut 32 mun hækka um 144,8% úr 311.400 krónum f 762.400 krónur. Fasteignaskattur mun hins vegar liækka um 110,8% IÐNAÐAR- OG VERSLUNARHÚSNÆÐI: Borgarstjórn Reykjavíkur hefur samþykkt breytingar á álagningarhlutfaili lóðarleigu af atvinnuhúsnæði og fasteignagjalda af íbúðar- og atvinnuhúsnæði. Þessi ákvörðun var tekin á borgarstjórnarfundi á fimmtudagskvöldið, en borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins greiddu atkvæði gegn tillögu meirihlutans. Inn í umræðurnar kom einnig nýtt fasteignamat sem tók gildi l. desember siðast- liðinn, en þá hækkuðu eins Lóöarleiga af ibúöarhilsnæöi helst óbreytt og er 0,145% af fasteignamatsverði, en leiga eftir verslunar- og iðnaðarlóðir verður eftir breytinguna 1% af fasteignamatsveröi lóðarinnar. Á árinu 1979 skal hlutfall fast- eignaskatta af Ibúöarhúsnæöi hækka úr 0,421% i 0,5% af fast- eignamatsverði, en hlutfall skattanna af atvinnuhúsnæði skal vera 1% og heimild til 25% álags á skattinn sjálfan verður fullnýtt. Eftirfarandidæmi sýna hækk- anir á lóðaleigu og fasteigna- skatti 1979. Hér er miðaö við 42% hækkun á fasteignamati. Einbýlishús Dæmi er tekið af Hlaðbæ 6, en lóðarleiga I ár var 3.176 krónur. kar fasteignir um 42% mill Lóöarmat árið 1979 er 3.110 þús- und krónur og verður lóöarleiga á næsta ári 4.510 krónur. Fasteignaskattur I ár var 63.877, en fasteignamat árið 1979 eru 21 milljón 546 þúsund og verður fasteignaskattur 107.730 krónur. Ef dæmi er tekið af ööru ein- býlishúsi sem stendur viö Hlyn- gerði, en fasteignamat þess er 39.111 miðaö við árið 1979. Lóöarleiga árið 1978 8.989 krónur, en veröur 12.764 kr. árið 1979. Fasteignaskattur af húsinu var 115.956 krónur i ár, en verða 195.555 krónur á næsta ári. Raðhús Lóöarleiga af raöhúsi sem stendur viö Réttarbakka 11 voru ára. 1.408 krónur i ár, en veröa 2000 krónur á næsta. Fasteignamat árið 1979 eru 19 milljónir og 705 þúsund krónur. Fasteigna- skatturinn i ár voru 58.422 krónur, en verða 98.525 krónur. Fjölbýlishús Fasteignaskattur og lóöar- leiga af ibúðum i fjölbýlishúsum breytast einnig. Ef tekiö er mið af meðalstórri ibúö aö Kóngs- bakka 3 var lóöarleiga 537 krónur i ár en verður 761 króna á næsta ári. Fasteignamat ibúöarinnar verður 12 milljónir 242 þúsund krónur. Fasteigna- skatturinn I ár var 36.294 krónur, en verður 61.210 krónur. Iðnaðar- og verslunar- húsnæði Hækkun á gjöldum hjá eig- FASTEIGNA- MAT RÍF- LEGA TVÖ- FALDAST endum iðnaðar- og versl- unarhúsnæðis verður meiri en hjá þeim sem eiga ibúðarhús- næði. Ef tekiö er dæmi af Bildshöföa 18, en fasteignamat lóðar árið 1979 veröur 31 milljón 848 þús- und krónur. Lóðarleiga I ár nam 130.100 krónum, en veröur 318.480 krónur á næsta ári. Fast- eignaskattur nam I ár 1 milljón 124 þúsund 954 krónum. Fast- eignamat eignarinnar verður 189 milljónir 719 þúsund á næsta ári. Fasteignaskattar á næsta ári veröa 2 milljónir 371.488 krónur. Hækkun á fasteignaskatti nemur 110,8 prósentum. —BA Hjörleifur Guttormsson tók tengillnuna formlega I notkun. — Mynd: JA Tengilína tekin í notkun á Austurlondi: DIESELVINNSLA ÞAR MEÐ ÓR SÖGUNNI ,,Þetta er mjög mikill og stór áfangi sem leysir af hólmi þá dfsilvinnslu sem við höfum haft. A næsta ári leysir þetta af hólmi um 40 gigawattstundir sem eru að verðmæti I dfsilollu 1200 milljónir króna”, sagði Erling Garðar Jónsson, rafveitustjóri Austur- lands er rætt var við hann skömmu eftir að tekin hafði verið I notkun tengillna frá Kröflu. ,,Þesi tengilina er 142 kilómetra löng og endar I aðveitustööinni í Hryggstekk í Skriödal. Frá þeirri stöð liggja tvær llnur, önnur niður i Reyðarfjörö og hin til Grlmsár- virkjunar, sem tengist þar viö samveitukerfið. Flutningsgeta llnunnar er breytileg eftir þvl hvar orkan kemur inn. Hún getur flutt um 70 megawött frá Kröflu en til dæmis um 20 megawött úr Hvalfirði. Austurland er mað þessu tengt Landsvirkjunarsvæöinu, en þaö sem skortir á fullkomna sam- tengingu er tengilina héöan til Vopnafjarðar annars vegar og slðan llna um Djúpavog til Hornafjaröar. A Vopnafirði er alger dlsil- vinnsla en I Austur-Skaftafells- sýslu er lítil vatnsaflsstöð, Smyrlabjargárvirkjun, en dlsil- vinnsla er þar enn I meirihluta. Það er talað um það I dag, aö þegar lagningu vesturllnu ljúki, þá verði hafist handa við bygg- ingu llnu til Hornafjarðar”. Að- spurður sagði Erling að kostnaður viö lagningu linunnar frá Kröflu I Skriðdal hafi kostað um 1500 milljónir króna. Hjörleifur Guttormsson, iðnaöarráðherra tók tengilinuna formlega I notkun um hádegi I gær. Viö þaö tækifæri sagði hann m.a.: „Austurllna er áfangi að þvl marki að aðalorkubrautin um landiö nái saman með hringteng- inu sunnan jökla. Þvl verki verður væntanlega lokiö innan 10 ára, en áður en lengra er haldiö I þá áttina, þarf að ljúka tengingu Vestfjaröa við landskerfið”. Að athöfninni lokinni var haldiö samkvæmi I Valaskjálf, þar sem iönaðarráöherra rakti sögu raf- orkumála Austurlands og Kristján Jónsson forstjóri Raf- magnsveitna rikisins geröi grein fyrir kostnaði og fleira. —BA HÓLSKIRKJA SJÖTÍU ÁRA Sjötlu ára vigsluafmæli Hóls- kirkju I Bolungarvik er á sunnu- dag. Barnaguösþjónusta verður I kirkjunni klukkan ellefu á sunnudag, en hádegisguös- þjónusta klukkan 14. Þar mun biskup Islands, herra Sigur- björn Einarsson, prédika, en sóknarprestur þjónar fyrir altari. A sunnudagskvöldið verður samkoma I kirkjunni með fjöl- breyttri dagskrá, sem hefst klukkan 9. I haust hlaut kirkjan þarfa viðgerö og var auk þess máluð innan af þeim hjónum Jóni og Grétu Björnsson, kirkjumálur- um. Bókasalan: Ekki eins mikil hreyfing og í fyrra „Það er ekki komin eins mikil hreyfing á bðksöluna og á sama tlma Ifyrra. Einnig eru ekki allar bækur komnár á markaðinn ennþá, svo það er erfitt að segja til um það hverjar verða mest seldu jólabækur I ár". Þetta svar fengum við hjá Bókaverslun Sigfúsar Eymunds- sonar þegar viö grennsluðumst fyrir bóksöluna. Islenskar skáldsögur eru tals- vert fleiri I ár en I fyrra, meira af þýddum skáldsögum en minna af ljóðabókum. Mikið hefur selt hjá Eymundsson af bók Halldórs Laxness Sjömeistarasögunni, einnig má nefna Disneyrimur Þórarins Eldjárns, Vetrarbörn, nýju bókina hans Péturs Gunnarssonar, Spilaö og spaugað, endurminningar Rögn- valdar Sigurjónssonar, Kallað I Kremlmúra eftir Agnar Þórðar- son, Að leikslokum eftir Gunnar Benediktsson og Móöir mln hús- freyjan. Þá seljast einnig þýddar bækur eftir Alister MacLean vel. Stjörnustriðið er vinsælt, sama má segja um bókina um Prúðu- leikarana og nýútkomna bók um John Travolta. Hjá Máli og Menningu var okkur sagt aö bóksalan væri nú að glæöast. Góð sala hefur veriö á Eldhúsmellunum hans Guölaugs Arasonar og nýju bókinni hans Péturs Gunnarssonar, Ég um mig frá mér til mln. Þá má einnig nefna Vetrarbörn af þýddum sögum. Sjömeistarasagan, Vatn á myllu kölska eftir Olaf Hauk Símonarson, Or sálarkyrnunni eftir Málfriöi Einarsdóttur, Oldin okkar seljast einnig vel svo ein- hverjar séu nefndar. Rétt er að leggja áherslu á að ekki eru allar bækur komnar á markaöinn, svo rétt mynd fæst ekki af bóksölu fyrr en I næstu viku.

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.