Vísir - 09.12.1978, Qupperneq 7
VISIR Laugardagur
9. desember 1978
Vanessa, 4 ára,málaöi þessa mynd.
Svo er borðað á eftir eða
á undan. Þá borða litlu
börnin, sem geta ekki
vakað svo lengi. Jóla-
maturinn er oftast ostrur,
gæsalifur og önd. Svo
setja börnin skóna sina
fyrir framan arininn og
fara svo að sofa, en á
jólanóttinni kemur jóla-
sveinninn með pokann
sinn á bakinu niður skor-
steininn, nema ef jóla-
sveinninn er of feitur, þá
kemur hann í gegn um
gluggann. Svo skreytir
jólasveinninn jólatréð og
setur gjafirnar við arin-
inn. Um morguninn, 25.
desember, vöknum við
snemma við jólamúsik og
förum inn í stofu. Þá er
búið að kveikja á öllum
Ijósunum á jólatrénu. Þá
opnum við jólagjafirnar.
Svo er hádegisverðurinn,
mikið af góðum mat og
jólakaka á eftir, sem er
gerð eins og tréklumpur,
og hún er úr súkkulaðiv
Florence Helga Guérin, 7
ára.
Jólakúlur úr
silkipappír
Það er ekkert
mjög erfitt að búa til
þessar jólatréskúlur
úr silkipappir.
Klippið út tólf
kringlótt stykki i
hverja kúlu. Stykkin
verða að vera öll
nákvæmlega jafn
stór. Stykkin tólf eru
svo lögð þétt saman
og saumað niður
miðjuna. Siðan er
kúlan opnuð og band
fest efst i hana.
Síóasta bók Magnúsar Storms
Voru þingmenn meiri
skörungar og reisn Alþingis
meiri fyrr en nú? Upprisa al-
þingismanna svarar þessu að
nokkru, en þar er að finna
mannlýsingar 55 alþingis-
manna og ráðherra, eftir '
háðfuglinn Magnús Storm.
Þessar mannlýsingar hans
einkennast af fjörlegum stíl
og fullkomnu valdi á kjarn-
góðu, hnökralausu máli og
margar eru þær stórsnjallar,
einkum hvað varðar hið bros-
lega I fari viðkomandi.
Bregður þá fyrir á stundum
dálftiö meinlegri hæðni.
Magnús Stormur bjó Upprisu alþingismanna undir
prentun stuttu fyrir andlát sitt og sjálfur mun hann hafa
talið marga þessara palladóma meðal þess besta sem
hann lætur eftir sig á prenti.
'
7
*
Horold Sherman
Lœkningamáttur
þinn
Þú hefur þann mátt, innra með þér, að
geta læknað sjálfan þig, bæði á sál og
likama.
Þetta er stórfróðleg bók og nytsöm og
hverjum manni hollt að kynna sér efni
hennar. Hún segir frá undraverðum
tilraunum á lækningamætti hugans, en
rannsóknir hafa staðfest trú höfundar-
ins á það, að Guðskrafturinn er til
staðar I hverjum manni til að endur-
vekja og styrkja hug og lfkama.
Rannsóknir Harold Sherman eru taldar merkustu sannanir fyrir þeirri
undraorku, sem i huga mannsins býr og hann segir frá þessum rann-
sóknum sfnum, birtir sögur af árangursrikum lækningum og gefur þeim,
sem lækninga þarfnast, holl og nytsöm ráð.
Jón Helgason
Rautt í sárið
Þetta er bók fagurkerans á
sviði skáldskapar og telst til
bókmenntalegra tíðinda. Hér
má lesa um Ingvar Ingvars-
son og dætur hans, Bjögga í
Folaldinu og brúarmennina í
Árvogum, frúna í Miklagerði
og leiðina í Munaðarnes, kon-
una sem beið eftir bréfi frá
Boston, litlu stúlkuna sem
fékk púpu í sálina, postulíns-
koppinn á Flatey og slysatil-
burðinn í Kaupmannahöfn og
loks Sigvalda garðmeistara,
dásemdina rauðhærðu og
austanstrákinn.
Rautt í sárið eru listilega sagðar sögur á fögru Jcjarnmiklu
máli, enda er Jón Helgason landskunnur frásagnar-
snillingur.
VÍSIR-SMÁAUGLÝSINGAR
OPIÐ SUNNUDAGA
KL. 14-22
VÍSIR
Simi 86611
VÍSIR
VISIR
Simi 86611
VfSIR
VISIR
Simi 86611
VISIR