Vísir - 09.12.1978, Síða 29
VISIR Laugardagur 9. desember 1978
JAZZ
QUEEN
Þegar stórstirni draga sig i
hlé um lengri eöa skemmri tima
gerist þaB oftast aö stælingar á
þeim, yfirleitt lélegar, spretta
fram á sjónarsviöiö og notfæra
sér þaö tómarúm og þær
ófullnægöu þarfir sem stórstirn-
in skilja eftir sig. Á árunum
1973-’74 haföi Led Zeppelin sig
litiö I frammi og sú hljómsveit
sem einkum fyllti skarö hennar
áBretlandseyjum, var QUEEN.
Queen varö til á árinu 1972
þegar gitarleikarinn Brian May
og trommarinn Roger Taylor
hættu i smágrúppunni Smile og
hófu aö vinna meö gömlum
félaga, söngvaranum og
pianistanum Freddy Mercury.
Þeir leituöu I sex mánuöi aö
bassaleikara og fundu loks John
Deacon. Siöan eyddu þeir
nokkrum mánuöum i aö semja
lög og æfa.
Fyrsta plata Queen kom út
1973 og var mjög zeppelinleg ef
svo má aö oröi komast. Hún
gekk ekkert of vel, en ári seinna
varö lagiö, „Seven Seas Of
Rhye”, af Queen II nokkuö
vinsælt. Svo kom platan „Sheer
Heart Attack” og á henni var
lagiö „Killer Queen”, en þaö
geröi Queen heimsfræga. Næsta
plata, „A Night At The Opera”,
er tvimælalaust hápunktur
ferils hljómsveitarinnar hingaö
til. A henni var óperustúfur,
„Bohemian Rhapsody”, sem
sat lengur i hásæti breska
vinsældarlistans en nokkurt
annaö lag haföigertum átta ára
skeiö. Siöan hefur Queen hjakk-
aö nokkuö í sama farinu.
Jazz
Þótt Queen hafi komiö fram
sem zeppelinigildi, þá fer þvi
fjarri aö þeir séu alger zeppelin-
stæling (þó get ég bent á lagiö
„Sheer Heart Attack” af siöustu
plötunni „News, Of The
World”). Þaösem þeir taka frá
Zeppelin er hinn þungi
rokktaktur, en siðan bæta þeir
ofaná miklum söng, og fallegum
melódium, þannig aö zeppelin-
áhrifin eru nú eingöngu undir-
tónninn i lögunum. En þaö sem
gerir Queen sérstæöa er söngur-
inn: ég verö aö segja fyrir mig,
aö mér þykir Freddy Mercury
einn sá albesti söngvari sem
fram hefur komiö I sögu rokks-
ins og framlag hans skipar
Queen á bekk meö bestu hljóm-
sveitum, hvaö söng varöar, sem
fram hafa komiö þ.e. Beatles,
Beach Boys, Crosby, Stills,
Nash & Young og Eagles.
En vikjum nú aöeins aö jóla-
glaöningi hinna mörgu
aödáenda Queen: nýjustu plöt-
unni,,Jazz”. Og þaö fyrsta sem
um hana er aö segja er aö nafniö
á henni er hrein og bein fjar-
stæöa: viö gætum alveg eins
kallaö Guörúnu A. Símonar
rokkara. Þeir heföu miklu frek-
ar átt aö kalla hana „Hjólreiöa-
keppni þrýstinna stúlkna-
rassa”, eftir þeim tveimur lög-
um af plötunni sem nú eru fast
viö efsta sæti breska vinsældar-
listans, „Bicycle Race/ Fat
Bottomed Girls”, enda fylgir
plötunni yndislegt plakat frá
þeirri keppni.
A plötunni eru 13 lög og voru
þau öll samin og hljóörituö i
júli-október i Montreux í Sviss
og Nice i Frakklandi. Þau koma
aödáendum hljómsveitarinnar
örugglega ekki á óvart. Queen
er enn á sama staö og á plötunni
„A Night At The Opera”, enda
er það vlst þannig sem fólk vill
hafa þaö. Þó finnst mér þessi
nýja plata þeirra betri en sú siö-
asta aö mörgu leyti t.d. er hún
heilsteyptariogmeiraum góöar
melódiur, en þaö hefur alltaf
veriö eitt helsta tromp Queen
auk söngs Freddy Mercury.
Þeir sem unna Queen ættu þvi
ekki að veröa vonsviknir meö
„Jazz”, og þá er vist tilgangin-
um náð.
—pp.
29
Mfnnisbók
t^«mi /
og vasadagbókin ’79
eru að koma út.
Fyrirtæki og stofnanir,
sem vilja fá bókina
afhenta fyrir áramót
með nafngyllingu
og ekki hafa enn
staðfest pantanir, eru
vinsamlega beðin að
Smurbrauðstofan
E3wlÖRr\IÍfMIM
Njálsqdtu 49 ~ Simi 15105
Frá árinu 1978
hefur LUBIN í Paris
framleitt ilmvötn og
lagt höfuðáherslu á að
f ram leiðsla þeirra
væri i takt við tímann.
de iubín
Þaö nýjasta frá LUBIN er „L”
kvenlegt og heillandi,dularfull-
ur ferskur ilmur fyrir kvenlegu
konuna, óháöa og frjálsa.
„L” fæst I Parfume og Eau de
toilette meö og án úðara, einnig
sápur og falleg gjafasett.
Pá er hún komin
Bókin um
JOHN TRAVOLTA
/Evi og leikferill
JOHN TRAVOLTA
í máli og nærri eitt /
hundraó myndum L
Stórt litprentaó
plakat fylgir bókinni
Bókin um JOHN TRAVOLJA - Bók unga fólksins í ár
ISLEN
zSQnteríékci £
Tunguhálsi 11, R. Simi 82700.
SETBERG