Morgunblaðið - 31.01.2001, Blaðsíða 13
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 31. JANÚAR 2001 13
UM 50 hafnfirskir listamenn
mættu til fundar í Hafnar-
borg í fyrrakvöld til þess að
hlýða á Magnús Gunnarsson
bæjarstjóra kynna hugmynd-
ir um staðarval fyrir Listahá-
skóla Íslands í Hafnarfirði. Í
samtali við Morgunblaðið
sagði Magnús að mikilvægt
væri fyrir bæinn að fá
listaháskólann og að ef af því
yrði myndi það virka sem vít-
amínsprauta fyrir bæjar-
félagið.
„Það er langt síðan þessar
hugmyndir komu fyrst fram
og þær tengjast byggingará-
formum á norðurbakkanum,
þ.e.a.s. gamla hafnarbakkan-
um,“ sagði Magnús. „Við
höldum því fram að það sé
einstakt tækifæri að byggja
upp listaháskóla hér í Hafn-
arfirði.
Sterkur miðbæjarkjarni
í Hafnarfirði
Þá er hugmyndin sú að rífa
þessar byggingar sem eru á
norðurbakkanum. Bak við
þær, handan götunnar, er
gamli vesturbærinn, með
stærstu samfelldu byggð
gamalla húsa á Íslandi. Við
erum að opna bókasafn í
haust í hjarta bæjarins, þar
sem verða m.a. 40 tölvur sem
almenningur getur haft þar
afnot af. Kvikmyndasafnið er
hér og hefur aðgang að Bæj-
arbíói, sem er hér rétt hjá og
við höfum bankastofnanir og
verslanir og allt er þetta í
göngufæri. Menn þurfa því
ekki einu sinni að setjast und-
ir stýri, heldur geta rölt hér á
milli og notið alls þess sem
sterkur miðbæjarkjarni í
Hafnarfirði hefur.
Í annan stað segjum við, að
það sé líka gott fyrir Hafn-
arfjörð að fá hingað skóla á
háskólastigi. Við sjáum hvað
slíkt hefur t.d. gert fyrir Ak-
ureyri. Þetta hefur komið þar
inn með miklum krafti. Þá
gæti staðsetning Listahá-
skóla Íslands í Hafnarfirði
verið afar gott innlegg í þær
áherslur sem lagt er upp með
fyrir svæðisskipulag á höfuð-
borgarsvæðinu. Við eigum
frábæra listamenn hérna í
bæjarfélaginu; margir hverj-
ir starfa í Reykjavík, en velja
að búa hér. Við eigum mjög
öfluga menningarstofnun,
sem er Hafnarborg. Við eig-
um tónlistarskóla, sem fyrir
arkitektúr hefur verið til-
greindur í erlendum fagtíma-
ritum. Þar fer fram öflugt
tónlistarstarf. Við erum hér
með mjög öfluga kóramenn-
ingu; höfum náð frábærum
árangri varðandi uppbygg-
ingu íþróttastarfsemi og er-
um á hverjum degi á síðum
dagblaðanna vegna árangurs
íþróttafólks okkar. Við höfum
líka afþreyingarmöguleika
fyrir þá sem hér eru. Við er-
um með varðskipið Thor á
bryggjukantinum, sem er
veitingahús í dag. Við erum
með hvalaskoðun. Við tökum
á móti fleiri hundruð erlend-
um ferðamönnum í viku
hverri sem nýta sér þjónustu
Íshesta og við erum með
Fjörukrána. Svona gæti ég
haldið lengi áfram.
Við erum m.ö.o. með heild-
ræna bæjarmynd, þar sem er
stutt í alla þjónustu og að-
drætti og að fá listaháskóla í
Hafnarfjörð væri alveg ein-
stakt, það yrði algjör vítamín-
sprauta fyrir bæjarfélagið.
Ég veit að Hafnarfjörður
myndi blómstra sem bær
menningar og lista, því til
þess hefur hann alla burði,“
sagði Magnús að lokum.
Samþykkt áskorun til
viðeigandi yfirvalda
Í þessum anda var á áður-
nefndum fundi í Hafnarborg í
fyrrakvöld samþykkt eftir-
farandi áskorun til viðeigandi
yfirvalda:
„Við, undirritaðir lista-
menn og listunnendur búsett-
ir í Hafnarfirði, skorum á
hlutaðeigandi félög og stjórn-
völd Listaháskóla Íslands, að
íhuga af kostgæfni þann
möguleika að skólanum verði
valinn staður í Hafnarfirði.
Staðsetning hér er frábær
kostur fyrir skólann, nem-
endur hans og starfslið og
Listaháskóli í Hafnarfirði
myndi styrkja mjög ímynd
höfuðborgarsvæðisins sem
samstæðrar heildar ólíkra
sveitarfélaga. Hafnarfjörður
státar af öllum þáttum sam-
félagsþjónustu, bæjaryfir-
völd hafa boðið einstakan val-
kost fyrir skólann í hjarta
bæjarins, bærinn státar af
kröftugu lista- og menningar-
lífi og samgöngur eru traust-
ar og góðar við miðborg
Reykjavíkur og aðra kjarna
nágrannasveitarfélaganna.
Að okkar mati er hér er um
raunverulegan valkost að
ræða sem stenst fyllilega
samanburð við aðrar stað-
setningar sem nefndar hafa
verið í umræðu um staðarval
fyrir Listaháskóla Íslands.
Við skorum á alla þá, sem
taka munu ákvörðun um stað-
setningu skólans, að velja
honum stað í hjarta Hafnar-
fjarðar.“
Bæjarstjóri Hafnarfjarðar fundar með hafnfirskum listamönnum um staðsetningu Listaháskóla
Hafnarfjörður
Samsett mynd/Bernard Engle
Hér sést hvernig menn hugsa sér norðurbakkann í Hafnarfirði í framtíðinni. Austast á norðurbakkanum (lengst til hægri á
myndinni) er stefnt að því að einhvers konar menningarstarfsemi hafi aðsetur og þar með talinn Listaháskóli Íslands, ef til
þess kæmi að ákveðið yrði að setja hann þar á fót. Yst eða vestast á hafnarbakkanum er fyrirhugað að rísi íbúðabyggð með
um 70 íbúðum, en ekki er víst hvar skilin verða á milli hennar og menningarbygginganna.
„Hafnarfjörður myndi
blómstra sem bær
menningar og lista“