Morgunblaðið - 31.01.2001, Blaðsíða 16
VIÐSKIPTI
16 MIÐVIKUDAGUR 31. JANÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ
AFKOMA Íslandsbanka-FBA hf. var
töluvert undir spám fjármálafyrir-
tækja, sem birtar voru fyrr í þessum
mánuði. Bankanum hafði verið spáð
hagnaði á bilinu 900 til 1.050 milljónir
króna, að meðaltali 993 milljónir
króna. Hagnaðurinn reyndist 662
milljónir króna, eða þriðjungi undir
væntingum.
Valur Valsson, forstjóri Íslands-
banka-FBA, var spurður hvaða skýr-
ingar væru á þessari afkomu. „Fyrst
vil ég segja að síðasta ár var í mörg-
um efnum óvenjulegt,“ sagði Valur,
„þetta var sameiningarár og því
fylgir alltaf kostnaður, bæði beinn og
óbeinn. Á árinu urðu einnig óvenju-
miklar sveiflur á verðbréfa- og gjald-
eyrismarkaði og slíkt hefur ávallt
mikil áhrif á rekstur fyrirtækja, ekki
síst fjármálafyrirtækja. Við fórum
ekki varhluta af því og afkoman á síð-
asta ári ber þess glöggt merki. Við
urðum fyrir umtalsverðum áföllum
vegna hækkandi markaðsvaxta fyrri
hluta árs og fallandi verðs á hluta-
bréfum síðari hluta ársins.
Út af fyrir sig er það hins vegar já-
kvætt að almenn starfsemi bankans
gengur vel og skilar góðum hagnaði.
Við gáfum út afkomuviðvörun í
byrjun þessa mánaðar, þar sem ljóst
var að þróun á hlutabréfamörkuðum
hafði verið með þeim hætti að það
yrði tap á síðasta ársfjórðungi.“ Val-
ur bætti því við að þá hefði ekki verið
ljóst hvert tapið yrði, en nú lægi það
fyrir. Sagði hann óvenjulegt að svo
stórt fyrirtæki gæti skilað uppgjöri
svo skömmu eftir að uppgjörstímabili
lýkur, en Íslandsbanki-FBA legði
mikla áherslu á skilvirkt upplýsinga-
kerfi og það væri gagnlegt fyrir
stjórnendur bankans til að bregðast
við breyttum aðstæðum.
Basisbank lækkaður um 60% í
reikningum Íslandsbanka-FBA
Fjárfestingarverðbréf eru færð
niður um 1.667 milljónir króna, en
þau höfðu þegar verið lækkuð um
1.164 milljónir króna í uppgjöri um
mitt ár.
Þá ákvað bankinn einnig að færa
bókfært verð hlutabréfa í danska net-
bankanum Basisbank A/S niður um
393 milljónir króna eða um 60%. Val-
ur sagði ástæðuna vera þá sömu og
varðandi aðrar eignir bankans, lögð
væri áhersla á að allt væri bókfært á
markaðsvirði og varfærnissjónar-
miða gætt. Hann sagði Basisbank
hafa gengið vel að afla viðskiptavina,
en kostnaður í upphafi hefði verið
mikill og þessi niðurfærsla væri gerð
til að hann væri bókfærður á verði
sem er nálægt markaðsvirði, þótt
Basisbank væri að vísu ekki skráð
félag.
Laun og launatengd gjöld námu
3,5 milljörðum króna á síðasta ári og
hækkuðu um 14% á milli ára, en þó
verður að hafa í huga að Íslandsbanki
og FBA sameinuðust á síðasta ári
þannig að tölur eru ekki fyllilega
sambærilegar. Meðalstöðugildum
fjölgaði um 8%, úr 833 í 902, en sam-
kvæmt upplýsingum frá bankanum
er skýringin líka sú að mikil yfirvinna
var vegna sameiningar bankanna og
hún á þátt í hækkun launakostnaðar.
Beinn kostnaður vegna sameining-
arinnar nam 150 milljónum króna og
afskriftir hækkuðu um 144 milljónir
króna vegna afskrifta á viðskiptavild
sem stafar aðallega af kaupum á öll-
um hlutabréfum í R. Raphael and
Sons PLC.
Talið líklegt að arðsemis-
markmið náist í ár
Kostnaður bankans sem hlutfall af
tekjum var 64,2% í lok árs, en var
samanlagt 55,3% hjá bönkunum
tveimur í fyrra. Í tilkynningu frá
bankanum segir að rekstrarkostnað-
ur bankans sé í endurskoðun og að
ekki sé gert ráð fyrir að fjölga starfs-
fólki á árinu.
Stjórnendur telja arðsemi eigin
fjár óviðunandi, en hún var 6,8% mið-
að við 23,3% hjá bönkunum tveimur
árið á undan. Þar sem almenn starf-
semi bankans gangi mjög vel og ef
ekki verði óvæntar sveiflur á mörk-
uðum á árinu 2001 sé þó líklegt að
markmið um 17–20% arðsemi náist á
árinu.
Bankinn hefur þá stefnu að greiða
hluthöfum arð og í samræmi við hana
hyggst bankaráð leggja til við aðal-
fund að greiddur verði 5% arður af
hlutafé eða 495 milljónir króna. Sú
arðgreiðsla nemur 75% af hagnaði, en
að sögn Vals Valssonar er stefna
bankans sú að greiða arð á bilinu 25%
til 50% af hagnaði. Í undantekning-
artilvikum sem nú er þó réttlætan-
legt að greiða hærra hlutfall, enda
telur bankinn að hluthöfum sé mik-
ilvægt að greiddur sé út arður.
29% aukning útlána en vanskil
með allra minnsta móti
Eins og sjá má í meðfylgjandi töflu
jukust heildareignir mikið, eða um 71
milljarð. Útlán jukust um 29% og
námu 227 milljörðum króna, en inn-
lán jukust minna, eða um 18%, og
voru 67 milljarðar í árslok. Vaxta-
munur var 2,7% en 2,8% árið á undan.
Framlag í afskriftareikning hefur
verið aukið um 27,5% og er það gert
vegna aukningar útlána. Afskrifta-
reikningur stendur í 4,7 milljörðum
króna eða 2,0% af útlánum og
ábyrgðum bankans. Spurður um van-
skil sagði Valur að þau hefðu í fyrra
verið með allra minnsta móti og að
bankinn hefði ekki enn séð almenn
merki um aukningu þeirra. Þó væri
gert ráð fyrir að þau myndu aukast
vegna minni hagvaxtar.
Fjármögnun Íslandsbanka-FBA
gekk vel á árinu að því er fram kemur
í tilkynningu frá bankanum. Þar seg-
ir að aðgangur hans að lánsfjármagni
hafi batnað enda hafi hann hæstu
lánsfjárhæfiseinkunn íslenskra
banka og hún hafi verið hækkuð í
kjölfar sameiningarinnar í fyrra.
Einnig kemur fram að alþjóðleg
skuldabréfaútgáfa bankans hafi num-
ið jafnvirði 27 milljarða íslenskra
króna, sem sé stærsta skuldabréfaút-
gáfa sem íslenskur útgefandi hafi
staðið fyrir á alþjóðlegum markaði til
þessa.
Útlit jákvætt í upphafi árs
Á síðasta ári var greiddur út arður
að fjárhæð 1.611 milljónir króna. Eig-
ið fé bankans var nú um áramótin
6,5% lægri en ári áður og eiginfjár-
hlutfall var 9,7% en langtímamark-
mið bankans er að vera með 10% eig-
infjárhlutfall.
Samkvæmt tilkynningu frá bank-
anum hefur sameining Íslandsbanka
og FBA, sem tilkynnt var 3. apríl og
formlega lokið 2. júní, gengið mjög
vel og er því sem næst lokið. Þá segir
í tilkynningunni að útlitið sé á ýmsan
hátt jákvætt í byrjun nýs árs og þótt
hagvöxtur verði minni en verið hafi
virðist verðbólga einnig á undanhaldi
og horfur séu á meira jafnvægi á
mörkuðum en í fyrra. Hlutafé í Ís-
landsbanka-FBA er 9.895 milljónir
króna og markaðsvirði hans er rúmir
37 milljarðar króna þegar miðað er
við lokagengi í gær.
Arðsemi
eigin fjár
óviðunandi
! "#$%
&'(&&
&)&&(
*'(&
+&&(
**,)
'-,
(
.*-/
,(/'()
&0&(,
,)1)2
0)+
!
"
""
""
"
!
# # # 3 4 5
6
7 6 ,((( 8
9
SALA Nýherja hf. á 41% eignar-
hlut í Fjarskiptafélaginu Títan hf.,
sem Nýherji stofnaði í apríl á síð-
asta ári, skilaði félaginu 275,6 millj-
óna króna hagnaði í fyrra. Þessi
söluhagnaður hlutabréfanna er
undir liðnum hreinar fjármuna-
tekjur í rekstrarreikningi og ræður
mestu um að þrátt fyrir lakari
rekstrarhagnað árið 2000 en árið
1999 er hagnaður ársins í fyrra 38%
hærri en árið á undan. Á móti kem-
ur að sá söluhagnaður sem nú
flokkast undir rekstrartekjur sam-
kvæmt reglum reikningsskilaráðs
er lægri árið 2000 en 1999 vegna
þess að sala húss félagsins við
Skaftahlíð var bókfærð árið 1999.
Hækkun launa og launatengdra
gjalda réð mestu um lægri rekstr-
arhagnað í fyrra en árið 1999.
Hækkunin nam 236 milljónum
króna eða 31% og var launakostn-
aður í fyrra 1.010 milljónir króna.
Að sögn Frosta Sigurjónssonar,
forstjóra Nýherja, eiga flutningar
félagsins úr Skaftahlíð í Borgartún
sinn þátt í þessari hækkun og sá
kostnaðarauki muni ekki koma aft-
ur. En fjölgun starfsfólks og launa-
skrið eigi einnig þátt í þessari
hækkun. Þá segir Frosti að nú sé
hagræði af flutningunum farið að
skila sér, stjórnunar- og stoðsviðum
hafi fækkað um helming og verk-
ferlar hafi einfaldast við að starf-
semin er nú öll undir einu þaki.
Verkefnastaða fyrirtækisins
óvenju góð
Starfsemi Nýherja er að veita
ráðgjöf og þjónustu á sviði upplýs-
ingatækni. Félagið selur bæði hug-
búnað, tækni- og rekstrarþjónustu
og tölvu- og skrifstofubúnað.
Spurður hvort útlit væri fyrir að
samdráttur hjá tölvufyrirtækjum
erlendis hefði áhrif á Nýherja sagði
Frosti að ekki væri einhlítt að illa
gengi hjá slíkum fyrirtækjum er-
lendis. IBM og SAP hefðu selt
meira en búist hafi verið við og Ný-
herji selji mikið af vörum frá þess-
um fyrirtækjum. Þá sagði hann að
útlitið væri óvenjugott nú ef tekið
væri mið af verkefnastöðunni, því
ekki hefði áður á sama árstíma ver-
ið jafn mikið af verkefnum fram-
undan og nú. Einnig skipti miklu að
rekstur Nýherja hvíli á mörgum
stoðum.
Eins og að framan segir stofnaði
Nýherji Fjarskiptafélagið Títan hf.
á tímabilinu en auk þess stofnaði
hann Klak hf., sem veitir sprotafyr-
irtækjum aðstöðu og þjónustu auk
þess að fjárfesta í þeim.
Duldar eignir í
hlutdeildarfélögum
Gera má ráð fyrir að Nýherji eigi
töluverðar duldar eignir í hlutdeild-
arfélögunum Hópvinnukerfum ehf.
og Fjarskiptafélaginu Títan hf., en
Nýherji á 24% í fyrrnefnda félaginu
og er sá hlutur bókfærður á 8 millj-
ónir króna og 34,9% í hinu síðar-
nefnda með bókfært virði 59 millj-
ónir króna. Engin leið er að fullyrða
um verðmæti þessara félaga þar
sem þau eru óskráð, en þó má nefna
að í haust var Títan 1,3 milljarða
króna virði ef marka má söluverð
hlutar í félaginu þá.
Hlutafé í Nýherja er 262,7 millj-
ónir króna og var lokagengi þess í
gær 12,5 eftir 1,6% hækkun frá
upphafsverði dagsins. Markaðsvirði
félagsins er því tæpir 3,3 milljarðar
króna.
Spár fjármálafyrirtækja um af-
komu Nýherja fyrir árið 2000 lágu
á bilinu 270–285 milljónir króna.
Niðurstaðan, 289 milljónir króna,
er því nálægt væntingum.
Mikil hækkun
launakostnaðar
!" #
$%$&'(&
)*+(,
$%--'(&
*,(+
'($
+(&
))'(.
&&&(*
/&&(*
)&&(&
'*(,
+'(-0
$'(+0
,-&
!!
"
"
"
"
"
"
"
!
!
♦ ♦ ♦
● Í GREIN í Computerworld segir
að Basisbank, sem sé fyrsti raun-
verulegi netbankinn í Danmörku,
hafi náð gríðarlega góðum árangri.
Bankinn hafi náð í svo marga við-
skiptavini, síðan starfsemin hófst í
september í fyrra, að starfsmenn
hafi hreinlega ekki haft tíma til
þess að þróa allar þær þjón-
ustulausnir sem lofað hafði verið.
Bankinn hefur nú fengið um 25
þúsund viðskiptavini en í áætl-
unum var stefnt að því að þeir
væru orðnir 20 þúsund í lok ársins
2002. Það að viðskiptavinum hef-
ur fjölgað svo hratt hefur haft það
í för með sér að starfsmenn hafa
ekki annað öðru en að afgreiða
viðskiptavinina. Í Jyllandsposten
kemur fram að Basisbank hafi lof-
að að bjóða upp á Masterkort,
húsnæðislán í samvinnu við BRF
Kredit, viðskipti með verðbréf og
lán til bílakaupa en hafi ekki enn
náð að gera neitt af þessu. Hluta-
fjáraukning upp á 50 milljónir
króna danskra veiti honum þó
ákveðið svigrúm en að fjárfest-
arnir, þar með talinn Íslandsbanki-
FBA og fjárfestingarfélagið Bank-
investment, haldi nú að sér hönd-
um við að leggja bankanum til
meira fé enda þótt gert sé ráð fyrir
að bankinn muni verða rekinn með
hagnaði árið 2002.
Basisbank
safnar að
sér við-
skiptavinum
● EKKERT lát virðist á efnahags-
uppgangi Norðmanna ef marka má
tölur um viðskiptahagnað við út-
lönd. Í nóvember sl. nam hann
22,5 milljörðum nkr, um 185 millj-
örðum íkr. Sem er rúmlega 100%
hækkun frá árinu áður er hann var
10,2 milljarðar nkr., um 84 millj-
arðar.
Fyrstu ellefu mánuði síðasta árs
var vöruskiptajöfnuðurinn 177,4
milljarðar nkr., um 1.454 milljarðar
ísl. kr., en árið áður 36,9 milljarðar,
eða um 301 milljarðar. Sala vöru og
þjónustu til útlanda gaf af sér 24,7
milljarða í nóvember, um 202 millj-
arða íkr., sem er mesti hagnaður
sem fengist hefur á einum mánuði í
Noregi.
Aukinn við-
skiptahagnað-
ur Norðmanna
Kaupmannahöfn. Morgunblaðið.