Morgunblaðið - 31.01.2001, Page 15
LANDIÐ
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 31. JANÚAR 2001 15
Sjóferðir Hafsteins og
Kiddýjar á Ísafirði fá
nýjan bát í vor
Leysir
gamla
Blika af
hólmi
Ísafirði - Sjóferðir Hafsteins og
Kiddýjar ehf. á Ísafirði eiga von á
nýjum Blika á vordögum. Þau eru
búin að semja við Trefjar í Hafn-
arfirði um smíði á nýjum báti til
fólks- og vöruflutninga, sem leysir
gamla Blika ÍS af hólmi eftir tíu ára
þjónustu. Þetta verður sjötti bátur-
inn í eigu Hafsteins og Kiddýjar frá
upphafi. Auk gamla Blika reka þau
farþegabátinn Guðrúnu Kristjáns
ÍS, sem þau fengu nýjan á síðasta
vori og getur tekið allt að 50 farþega.
Nýi Bliki verður 10 metra langur
eða jafnlangur og sá gamli. Hann
verður hins vegar 3,60 m á breidd
eða rúmum hálfum metra breiðari.
„Það munar ótrúlega miklu hvað nýi
báturinn verður burðarmeiri þó að
ekki muni meiru á breiddinni,“ segir
Guðrún (Kiddý) Kristjánsdóttir,
annar eigendanna. Trefjar eiga
skrokk nýja bátsins tilbúinn en yf-
irbyggingin og aðstaðan verður sér-
hönnuð að öllu leyti fyrir eigend-
urna. „Hann verður miklu
skemmtilegri fyrir farþegana og líka
mun hentugri fyrir vöruflutningana
og ber meira,“ segir Kiddý. „Í útliti
kemur hann til með að minna veru-
lega á stóra bátinn okkar, þannig að
segja má að hann verði eins konar
kynblendingur af bátunum okkar
tveimur sem við erum með núna.“
Nýi Bliki mun taka 19 farþega eins
og sá gamli. Fullbúinn mun báturinn
kosta á bilinu 18–19 milljónir króna.
„Dæmið ætti að ganga upp ef við
fáum eins marga farþega og í fyrra.
Þetta verður eflaust erfitt fjárhags-
lega en ég vonast þó til að við fáum
gott verð fyrir gamla Blika,“ segir
Hafsteinn Ingólfsson. Í bátnum
verður Cummins Marine 450-vél.
„Þetta er fyrsta vél sinnar tegundar
á Íslandi. Það má segja að ég sé
áskrifandi að Cummins en ég hef
hingað til átt fimm slíkar vélar,“ seg-
ir Hafsteinn. Nýi báturinn mun geta
gengið um 25 mílur í sléttu. Sjóferðir
Hafsteins og Kiddýjar annast reglu-
legar ferðir út í eyjarnar á Ísafjarð-
ardjúpi samkvæmt samningi við
Vegagerðina. Þar er um að ræða
þrjár fastar ferðir í viku og flutning-
urinn er póstur, mjólk, olíukálfar,
fóðurbætir, áburður og aðrar vörur,
svo og skólabörn og aðrir farþegar.
„Við erum þannig í hlutverki gamla
Fagranessins,“ segir Kiddý.
Eyja- og Miklaholtshreppi - Bænd-
ur á Snæfellsnesi hittust sunnudag-
inn 28. janúar í Dalsmynni í Eyja-
og Miklaholtshreppi með smala-
hunda sína til að þjálfa þá. Eig-
endur smalahunda á þessu svæði
eru í Vesturlandsdeild Smala-
hundafélags Íslands og eru þeir
duglegir að hittast og þjálfa hunda
sína. Notuðu þeir því tækifærið í
góða veðrinu og hittust um
helgina.
Hundunum var skipt í tvo hópa,
þeim sem dálítið er búið að kenna
og hinum sem óreyndir eru. Þeir
óreyndu voru heima við hús og var
nokkrum gemlingum sleppt út og
eigendur þeirra reyndu einföldustu
skipanir, eins og fara til hægri og
vinstri, stoppa og að bíða. Þeir sem
dálítið eru búnir að læra fóru niður
á tún þar sem búið var að búa til
braut sem þeir áttu að reka kind-
urnar eftir.
Hundarnir eru mislangt komnir í
þjálfun og mishlýðnir eins og sást á
þeim. Sumir þoldu ekki hve margir
hundar voru í kringum þá og
hlýddu ekkert og er þetta því góð
æfing fyrir þá.
Í lokin sýndi Svanur Guðmunds-
son í Dalsmynni átta mánaða
hvolpa sína en þeir eru undan
verðlaunatíkinni Skessu. Hann hef-
ur þjálfað þá meira en flestir á
svæðinu og hefur það borið árang-
ur. Allir þáðu kaffiveitingar hjá
Höllu og Svan í lokin.
Að sögn þeirra sem þarna voru
með hunda sína er þetta sérlega
gott og mikil hvatning að koma
svona saman og læra hver af öðr-
um. Góður hundur er mikilvægur
fyrir bændur í dag þar sem alltaf
fækkar þeim bændum sem búa með
sauðfé og smalamennska leggst á
færri. Hætt var með sauðfé á
þremur bæjum í Eyja- og Mikla-
holtshreppi á síðasta hausti og á
einum bæ í Kolbeinsstaðahreppi.
Einmuna blíða hefur verið hér
undanfarna daga, eins og á vor-
dögum. Þykir það tíðindum sæta
að bændur hafa haft kindur sínar
úti dag eftir dag þó þær hafi verið
rúnar í haust.
Morgunblaðið/Daníel Hansen
Ungur hundur reynir sig við kindur.Þátttakendur með hunda sína að loknu námskeiði.
Smalahundar
þjálfaðir
Tálknafirði - Fyrir skömmu hélt
UMFT árlega uppskeruhátíð sína
þar sem starf liðins árs er rifjað upp
og afreksmönnum félagsins veittar
viðurkenningar. Að þessu sinni var
samkoman haldin á veitingastaðnum
Hópinu og var þetta eins konar há-
degisverðarfundur.
Eyrún I. Sigþórsdóttir, formaður
UMFT, fór yfir helstu atburði í starfi
félagsins á liðnu ári, ásamt því að
veita viðurkenningar þeim sem þóttu
skara fram úr í hverri íþróttagrein.
Viðurkenningar voru veittar fyrir
frjálsar íþróttir, sund, körfubolta og
knattspyrnu. Úr þeim hópi var síðan
útnefndur íþróttamaður ársins hjá
UMFT og hlaut Olga R. Bragadóttir
þann titil, fjórða árið í röð. Olga er
mjög efnilegur íþróttamaður og varð
m.a. Íslandsmeistari í spjótkasti á
meistaramóti Íslands sl. sumar í sín-
um aldursflokki. Þá varð hún stiga-
hæsti frjálsíþróttamaðurinn hjá
UMFT með 13.097 alþjóðleg stig.
Keppnislið UMFT í sundi tók þátt
í ÍA-Essó-mótinu á Akranesi sl. sum-
ar þar sem keppendur frá UMFT
urðu tvisvar í fyrsta sæti, þrisvar í
öðru sæti og einu sinni í því fjórða.
Einnig fékk liðið bikar, sem ÍSÍ gaf,
til þess að hvetja lið til góðrar fram-
komu og kurteisi á mótum. Þá gekk
sundfólkinu úr UMFT vel á Vest-
fjarðamótinu sem haldið var á Flat-
eyri, en 28 keppendur fóru úr
Tálknafirði og hafnaði liðið í öðru
sæti á mótinu. Þar féllu m.a. átta
héraðsmet.
Þá var þess getið að keppnislið
HHF í knattspyrnu í 5. flokki, þar
sem þrír liðsmanna voru úr UMFT,
náði góðum árangri á Unglinga-
landsmóti UMFÍ, en liðið lék sex
leiki og sigraði í þeim öllum og hlaut
fyrsta sætið.
Það kom fram í ávarpi formanns
UMFT að ungir íþróttamenn á
Tálknafirði ættu bjarta framtíð og
von um góðan árangur, hvort sem
væri á héraðs- eða landsvísu.
Morgunblaðið/Finnur
Verðlaunahafar ásamt þjálfurum sínum, þeim Fannari Steindórssyni
körfuboltaþjálfara og Robert Branson knattspyrnuþjálfara, en fjarver-
andi voru Ingibjörg Inga Guðmundsóttir sundþjálfari, Sigrid Worth-
mann sundþjálfari og Sverrir Guðmundsson frjálsíþróttaþjálfari.
Uppskeruhátíð UMFT
Mývatnssveit - Veitingahúsið Hver-
inn í Reykjahlíð hefur verið auglýst
til sölu. Rekstur hófst á Hvernum
1992 og hefur verið þar rekstur sum-
arlangt síðan. Þar eru sæti fyrir 50–
60 gesti.
Í Reykjahlíð er einnig til sölu
Gistiheimilið Birkihrauni 11, en þar
eru ellefu gistiherbergi með 24 rúm-
um í ágætu húsnæði.
Morgunblaðið/BFH
Veitingahúsið Hverinn.
Veitingahús
til sölu í Mý-
vatnssveit
Flateyri - Húsin í skugganum eru
elstu íbúðarhús Flateyrar reist upp
úr 1880. Til hægri við rætur Eyr-
arfjalls er uppljómað bæjarstæði
Sólbakka með núverandi íbúðarhúsi
sem stendur á grunni þess gamla.
Morgunblaðið/Högni Sigurþórsson
Ljóminn á Sólbakka
Fagradal - Þegar fréttaritari Morg-
unblaðsins í Mýrdal fékk sér göngu-
túr ásamt nokkrum öðrum í veður-
blíðunni um síðustu helgi rákust
þau á einmana lambhrút inni í Haf-
ursárgili en þar hefur hann líklega
orðið eftir þegar farið var í hefð-
bundnar smalamennskur í haust.
Eftir smá hlaup hafðist að hand-
sama hrútinn og koma honum inn í
bíl.
Lambhrútinn átti Tómas Pálsson,
bóndi á Litlu Heiði, og sagði hann
að hrúturinn væri tvílembingur
undan þriggja vetra á. Lambhrút-
urinn er í góðum holdum þótt að
hann hafi gengið úti í vetur, enda
hefur veturinn verið einstaklega
góður í Mýrdalnum það sem af er.
Lambhrút-
ur heimtur
á þorra
Morgunblaðið/Jónas Erlendsson