Morgunblaðið - 31.01.2001, Síða 17
VIÐSKIPTI
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 31. JANÚAR 2001 17
GENGIÐ hefur verið frá láns-
fjármögnun upp á tæplega sex
milljarða króna vegna fram-
kvæmda Smáralindar ehf., sem
reisir stærstu verslunarmiðstöð
landsins í Smárahvammslandi í
Kópavogi. Íslandsbanki–FBA og
Landsbankinn höfðu yfirumsjón
með fjármögnuninni en alls koma
að henni nítján lífeyrissjóðir og
fjármálafyrirtæki, innlend og er-
lend. Fulltrúar þeirra og Smára-
lindar skrifuðu undir samninga á
sérstökum kynningarfundi í gær.
Fjármögnun Smáralindar er ein
sú stærsta sem einkaaðili á Íslandi
hefur staðið að og er einnig sú
stærsta sem íslensk fjármálafyr-
irtæki hafa haft umsjón með. Fjár-
mögnunin er skipulögð sem verk-
efnisfjármögnun, sem er aðferð
sem oft er beitt við stærri fjárfest-
ingarverkefni. Fjármögnunin er
tvíþætt, annars vegar sambankalán
og hins vegar skuldabréfaútgáfa.
Sambankalánið er fjölmyntalán, að
jafngildi 3,5 milljarða íslenskra
króna, til fimm ára frá því fram-
kvæmdum lýkur. Auk Íslands-
banka–FBA og Landsbankans tóku
fimm aðrir bankar þátt í lánveiting-
unni. Hlutur umsjónarbankanna
tveggja er stærstur en hlutur Nor-
ræna fjárfestingarbankans (NIB) er
einnig umtalsverður. Aðrir þátttak-
endur í sambankaláninu eru Banca
Monte dei Paschi í Lundúnum,
Frjálsi fjárfestingarbankinn og
Sparisjóður vélstjóra.
Skuldabréfin eru í íslenskum
krónum, samtals um 2,1 milljarður,
og eru gefin út til 25 ára. Auk Ís-
landsbanka–FBA og Landsbankans
keyptu tólf íslenskir lífeyrissjóðir
og Vátryggingafélag Íslands
skuldabréfin. Lífeyrissjóður versl-
unarmanna er umboðsaðili skulda-
bréfafjárfestanna.
Nær lokið við
að steypa upp húsið
Pálmi Kristinsson, framkvæmda-
stjóri Smáralindar, segir að fram
eftir síðasta sumri hafi verkið
gengið hægar en gert hafði verið
ráð fyrir. „Ástæðan fyrir því var
meðal annars sú að það var mjög
mikil þensla á vinnumarkaði og það
gekk ekki nógu vel að manna í
verkið auk þess sem iðnaðarmenn
voru að taka sér sumarfrí. Frá og
með haustinu, þegar fór að slakna
aðeins á þenslunni á vinnumark-
aðnum, hefur verið mjög góður
gangur í verkinu. Tíðin hefur auð-
vitað verið okkur alveg sérlega
hagstæð í vetur og það má heita að
það hafi verið sumartíð frá því í
nóvember. Það hefur aðeins verið
einn eða einn og hálfur dagur í vet-
ur sem hafa verið einhverjir smá-
erfiðleikar við framkvæmdirnar og
þá vegna vinds.“ Aðspurður segir
Pálmi að búið sé að steypa upp um
85–90% af húsinu. Ístak hafi nú lok-
ið við um 35–40% af heildarverkinu
og mest eftir við framkvæmdir inni
og við frágang á lóð og mannskap
muni því fjölga verulega á næstu
vikum. „Fyrir utan undirverktaka
eru hér um 250 manns í vinnu en
þeim mun fjölga í um eða yfir 400
innan skamms. Það er unnið hér
alla daga vikunnar á vöktum og það
má gera ráð fyrir að hér verði um
1.000 manns að störfum undir lok
verksins en opna á verslunarmið-
stöðina 10. október í haust.“
Fimm milljónir
gesta á ári
Smáralind ehf. var stofnað í árs-
byrjun 1996. Stofnendur félagsins
voru Byggingarfélag Gylfa og
Gunnars ehf., BYKO hf., Olíufélag-
ið hf., Skeifan 15 sf. og Saxhóll ehf.
Vorið 1999 bættust síðan Baugur
hf. og Gaumur ehf. í hluthafahóp-
inn. Nú er Smáralind ehf. að fullu í
eigu Fasteignafélags Íslands hf. en
stærstu hluthafar þess eru fram-
angreind fyrirtæki.
Á vormánuðum 1999 var gengið
frá samningum við Baug hf. um
leigu á 4.500 fermetra leigurými
fyrir verslun Debenhams og um
leið var samið við Baug hf. um leigu
á rúmlega 10 þúsund fermetra rými
undir stórmarkað Hagkaups. Því
næst var frá því gengið að Norður-
ljós starfræktu fimm fullkomna
sýningarsali með sætum fyrir rúm-
lega 1.200 manns. Í markaðsrann-
sóknum er gert ráð fyrir að um
fimm milljónir gesta heimsæki
verslunarmiðstöðina á ári og að
starfsmenn verslunarmiðstöðv-
arinnar verði á bilinu 800–1.200
manns.
Nærri eitt hundrað verslanir og þjónustufyrirtæki verða undir sama þaki í Smáralind
Framkvæmdir
á áætlun
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Séð yfir miðskip verslunarmiðstöðvarinnar í Smáralind.