Morgunblaðið - 31.01.2001, Síða 23
Danska prestsfrúin þorir varla út
úr húsi því að í hennar augum eru
Færeyingarnir frumstæðir og
fjandsamlegir auk þess sem þeir
tala óskiljanlegt mál bara til að
hrella hana. Danski amtmaðurinn
neitar að flytja mál fólksins sem vill
fá leyfi til siglinga og verslunar við
Ísland í fyrri heimsstyrjöldinni.
Bretar loka siglingarleiðunum, eng-
ar vistir berast frá Danmörku og
amtmaðurinn telur það fráleitt að
Færeyingar hafi eitthvað að sækja
til þessarar skítaeyju í norðri.
Hungursneyð verður í eyjunum þar
til Færeyingum tekst að komast
fram hjá amtmanninum til yfirvalda
í Danmörku og hið hataða yfirvald
þeirra er sett af. Það kemur sér vel
fyrir aðra aðalpersónu bókarinnar,
Enok, sem á lífleg viðskipti við Ís-
lendinga þar sem hann er í óðaönn
að smíða skip fyrir þá.
Það þarf kannski ekki að koma
neinum á óvart að kominn er beisk-
ari og herskárri tónn í garð Dana en
verið hefur áður í færeyskum bók-
menntum, það ég best veit. Bók
Oddvarar er skemmtileg aflestrar
og stórfróðleg en öfugt við aðrar
bækur sem hér hefur verið fjallað
um er hún merkilega fáorð þó að
hún sé mjög efnismikil. Hún er að-
eins ríflega hundrað síður. Textinn
er samþjappaður og stuttarlegur og
tími er ekki tekinn til að sviðsetja
eða sýna atburði og persónur eins
og Kirsten Thorup gerir eða segja
sögur og vefa flókin mynstur í allar
áttir eins og Jan Kjærstad gerir eða
leika sér í tungumálinu eins og Jón
Fosse gerir.
Og loks er það stúlka
með fingur
Ísland leggur fram bókina Stúlka
með fingur eftir Þórunni Valdimars-
dóttur (f. 1954). Þórunn hefur sagt
frá því í viðtali að hún hafi séð stutta
frétt í blaðinu Ísafold um aldamótin
þar sem sagði frá stúlku sem lifði af
snjóflóð af því að fylgdarmenn
hennar sáu fingur hennar standa
upp úr snjónum. Þessi fingur var
nóg til að skilja á milli lífs og dauða
og fréttin varð Þórunni kveikja að
sögunni um Unni, verkamannsdótt-
urina sem elst upp á sýslumanns-
setri nokkru í góðu yfirlæti þangað
til „flóðið“ skellur á líf hennar og
grefur hamingjuna.
Sagan er dramatísk og ferill þess-
arar aldamótakonu verður ákaflega
viðburðaríkur svo að ekki sé meira
sagt. Unnur verður eins konar tákn-
gervingur nútímakonunnar sem fær
alls konar lík í lestinni frá foreldrum
sínum en lætur það ekki aftra sér í
að taka sér farið inn í nútímann.
Stúlka með fingur er söguleg skáld-
saga eins og saga Oddvör Jóhansen
en bækurnar eru merkilega ólíkar
þó. Ólíkastar eru frásagnaraðferðir
þeirra tveggja.
Stíll bókar Þórunnar er magnað-
ur, munúðarfullur og endurskapar
orðfæri aldamótarkynslóðarinnar.
Það er löngu orðið aðalsmerki Þór-
unnar Valdimarsdóttur sem höfund-
ar að flétta saman fræðistörf og list-
ræna sköpun og það gerir hún
listilega í sögunni af stúlkunni Unni
sem sigraðist á dauða og náttúru-
hamförum.
Í næstu grein verður sagt frá bók-
unum sem lagðar eru fram frá Sví-
þjóð, Finnlandi, Samalandi og
Grænlandi auk hinnar bókarinnar
sem Ísland leggur fram eða Sumarið
bakvið brekkuna eftir Jón Kalmann.
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 31. JANÚAR 2001 23
Gullsmiðir
SÝNINGIN, sember yfirskriftinaÞögn efnisins, erí Galleria Bedoli í
borginni Viadana, sem er
skammt frá Mantova.
Galleria Bedoli er rekið af
borgaryfirvöldum og hef-
ur á margan hátt sam-
bærilega stöðu þar syðra
og Kjarvalsstaðir í
Reykjavík, að sögn Stein-
unnar.
Forráðamenn sýningar-
salarins og borgarinnar
komust í kynni við verk
Steinunnar í gegnum
Claudio Parmiggiani, sem
hafði séð þau hér á landi á
liðnu sumri og hrifist af og í fram-
haldi af því fékk hún boð um að
setja upp einkasýningu í Viadana.
Ekki gat Steinunn neitað svo góðu
boði og nú eftir áramótin voru sett
upp tíu höggmyndir sem fluttar
voru til Ítalíu af þessu tilefni. Verk-
in eru öll ný af nálinni eða unnin á
undanförnum árum.
Höggmyndalist
í hávegum höfð
Sýningin var opnuð 7. janúar og
lýkur nú um mánaðamótin og segir
Steinunn viðbrögð sýningargesta
hafa verið mjög jákvæð. Sýningar-
húsnæðið segir hún hafa verið sér-
staklega gott, hátt til lofts og vítt til
veggja. Sum verkanna sem hún
sýndi þar voru á sýningu hennar,
Maður um mann, í
Ásmundarsafni á
síðastliðnu vori.
„Maður sér alltaf
einhverja nýja fleti
á eigin verkum í
nýju umhverfi. Það
var mjög skemmti-
leg reynsla að sýna
í húsnæði með sex
metra lofthæð og í
ítölskum stíl með
bogum og tilheyr-
andi. Svo var líka
gaman að fá gamla
félaga og kennara á
sýninguna,“ segir
Steinunn en hún
lærði á Ítalíu á sín-
um tíma í Bologna.
Í tengslum við Galleria Bedoli er
gefið út vandað menningartímarit,
Coevit, og í síðasta hefti þess er ein-
mitt grein eftir Ólaf Gíslason list-
fræðing um verk Steinunnar í tilefni
af sýningunni.
Komin í samband
við gallerí í London
„Borgarstjórinn í Viadana, Luigi
Meneghini, er mjög áhugasamur
um menningu og listir og hefur
skapað borginni ákveðið nafn á því
sviði á undanförnum árum,“ segir
Steinunn. Sérstaklega segir hún að
höggmyndalist sé í hávegum höfð.
„Þarna er til dæmis búið að koma
upp skúlptúrgarði með nútímaverk-
um, sem er óvenjulegt fyrir borg af
þessari stærðargráðu,“ segir hún.
Óhætt er að segja að Steinunn
hafi mörg járn í eldinum um þessar
mundir, því sýningin í Galleria Bed-
oli er þriðja einkasýning hennar í
Evrópu frá því í haust. Í september
sýndi hún í Þýskalandi, þá í Dan-
mörku og núna á Ítalíu. Auk þess er
Steinunn nú í samstarfi við gallerí í
London. „Þetta gallerí heitir Berk-
eley Square Gallery og er í Mayfair.
Ég sýndi verk hjá þeim í nóvember
og á sama tíma voru þar á veggj-
unum verk eftir Henry Moore,“
segir Steinunn. „Galleríið hefur sér-
hæft sig í verkum Henry Moore og
Lynn Chadwick og svo er það með
nokkra yngri myndhöggvara, eins
og Sean Henry og Sophie Ryder,
sem hafa getið sér gott orð í Bret-
landi. Aðalviðskiptavinir gallerísins
í höggmyndum eru í Bandaríkjun-
um og núna er galleríið með á sín-
um snærum verk eftir mig á tveim-
ur listamessum í Flórída,“ segir
hún.
Tvö útiverk eftir Steinunni hafa
nýlega verið keypt til Bandaríkj-
anna og verða þau sett upp í tveim-
ur nýjum höggmyndagörðum sem
opnaðir verða þar vestra á næst-
unni, annar í Frisco, Texas og hinn í
Napa Valley, skammt frá San
Fransisco. Eigandi garðanna er
Kathryn Hall, sendiherra Banda-
ríkjanna í Vínarborg, en það var
einn af útsendurum hennar sem sá
verk Steinunnar á sýningunni í Ás-
mundarsafni síðastliðið vor.
Sér nýja fleti á verkun-
um í nýju umhverfi
Þessa dagana stendur yfir einkasýning
Steinunnar Þórarinsdóttur myndhöggvara
á Ítalíu. Margrét Sveinbjörnsdóttir hitti
Steinunni og komst að því að hinn kunni
ítalski myndlistarmaður Claudio Parmiggi-
ani, sem sýndi í Listasafni Íslands á liðnu
vori, átti milligöngu um að koma verkum
hennar á framfæri á Ítalíu.
Ljósmynd/Angelo Roberto Tizzi
Frá sýningu Steinunnar Þórarinsdóttur myndhöggvara í Galleria Bed-
oli í borginni Viadana á Ítalíu. Verkið í forgrunni heitir Horfur.
Steinunn
Þórarinsdóttir