Morgunblaðið - 31.01.2001, Side 37
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 31. JANÚAR 2001 37
Þótt haustið sé liðið
og þorrinn genginn í
garð finnst mér eins og
dauðinn hafi bundið
enda á þetta fallega
ævintýri, sem líf þitt
var, í gær. Svo sterk er nærvera þín
og einhvern veginn grunar mig að
allir sem urðu fyrir þeirri náð að
kynnast þér upplifi það sama. Rétt
eins og ég hafa einhverjir litið út um
gluggann í morgun og séð þennan
dýrðlega janúarmorgun og hugsað
til þín. Vissulega voru síðustu dag-
arnir þínir eins og fallegur góðviðr-
isdagur um hávetur; allir njóta hans
og gleðjast en vita að lægðirnar eru
einhvers staðar úti á hinu víðáttu-
mikla hafi og stefna að okkur og þá
verður dimmt á ný. En þessi eini
BERGLJÓT
STEFÁNSDÓTTIR
✝ Bergljót Stefáns-dóttir fæddist í
Ási, Ásahreppi,
Rangárvallasýslu 14.
maí 1938. Hún lést
12. ágúst síðastliðinn
og fór útför hennar
fram í kyrrþey frá
Fossvogskapellu 18.
ágúst.
dagur heldur voninni í
fólkinu og sannfærir
það um að það muni
vora á ný. Þú tókst á við
óumflýjanlegan dauð-
daga á fallegan hátt og
auðveldaðir okkur að
kljást við þá sorg sem
fylgdi veikindum þín-
um. Það varst þú sem
huggaðir okkur og
gafst okkur von.
Þú varst einstök
kona og líf þitt var ljóð í
verki og athöfnum.
Gjafmildi þín og góð-
semi var mikil og þegar
maður hugsar til baka sér maður
hvað það var áreynslulaust fyrir þig
að gleðja aðra. Og er hægt að
ímynda sér meiri kost í fari einnar
manneskju? Ég man einn dag þegar
ég kom að heimsækja þig, þá varstu
að vinna í garðinum. Við vissum þá
að tíminn var naumur en mér fannst
aðdáunarvert að þú skyldir nýta
hann til þess að rækta garðinn þinn.
Hvað er fallegra en feig maneskja
sem sáir blómum fyrir þá sem eftir
lifa? Þetta eitt segir allt það sem
segja þarf um þig Bergljót Stefáns-
dóttir. Þú hugsaðir vel um garðinn
þinn en mestur tími fór í að sá blóm-
um í garð annarra. Þau blóm vaxa
eftir þinn dag og minna okkur á til-
vist þína og ólíkt öðrum blómum
munu blómin þín ekki visna.
Ég sakna þín afar mikið og dauði
þinn er hörmulegasti atburður minn-
ar stuttu ævi. Þú hafðir staðið af þér
gjörningaveður og góðviðrisdaga
með auðmýktina eina að vopni. Þú
áttir að fá að njóta efri áranna í frið-
sæld með barnabörnunum, en það
varð ekki. Það er dapurlegt til þess
að hugsa að barnabörnin skuli ekki
fá að kynnast ömmu sinni því betri
og skemmtilegri manneskju geta
þau ekki kynnst. Manni er ekki ætl-
að að skilja allt og þetta fær maður
aldrei skilið.
Rétt eins og þegar þú varst á lífi
fylgir nærvera þín og hlýja mér til
fjarlægra landa og um úfin höf. Sál
þín var merkileg og hún kvaðst á við
forna tíma og í henni bærðist niður
aldanna og allir sem þér kynntust
upplifðu þetta. Og eins merkilegt og
það annars er þá er þetta ennþá fyrir
hendi eftir að þú ert farin. Dagarnir
hafa verið ansi dimmir eins og verða
vill. En í myrkrinu búa stjörnur og
tungl sem skína skært og þegar vet-
urinn hefur læst klóm sínum í sálar-
líf okkar yljar minningin um þig sem
býr í hjarta okkar og veitir birtu, rétt
eins og stjörnurnar og tunglin.
Örn.
Það var 15. nóvem-
ber að móðir mín
hringdi í mig út á sjó
og segir mér að hann
Þröstur okkar sé dá-
inn. Það var mikið
áfall og tók ég þetta
mjög nærri mér því mér þótti
óskaplega vænt um Þröst, og
reyndar fannst mér hann alltaf
meiri pabbi minn en minn eiginn.
Það var mjög erfitt að geta ekki
stutt við bakið á mömmu í þessari
miklu sorg, sem hún gekk í gegn-
ÞRÖSTUR
BJARNASON
✝ Þröstur Bjarna-son fæddist á
Blönduósi 23. ágúst
1945. Hann lést 15.
nóvember síðastlið-
inn og fór útför hans
fram frá Fella- og
Hólakirkju 24. nóv-
ember.
um og við öll. Þröst
var ég búinn að
þekkja í rúm 10 ár,
við unnum lengi sam-
an hjá sama fyrirtæki,
og eftir þann tíma
unnum við saman í
allskonar verkefnum
sem viðkomu múr-
verki og voru þau ár
mér mjög lærdómsrík
því hann kunni nánast
allt.
Þröstur var alltaf
svo lífsglaður og vildi
allt fyrir alla gera ef
hann gat, hann var
einnig mikill húmoristi og kom
manni oft til að hlæja. Hann var
einstaklega góður við mömmu og
okkur systkinin og héldu Halli og
Hugrún mikið upp á Þröst.
Mömmu gerði hann mjög ham-
ingjusama, en þannig hafði ég ekki
séð mömmu fyrr en hún hitti hann
Þröst sinn, og var hann það besta
sem hefur hent þessa fjölskyldu
nokkurn tíma. Mamma og Þröstur
ætluðu að gifta sig 30. desember
og var búið að ganga frá öllu, eina
sem mamma og Þröstur þurftu að
gera var að mæta í kirkjuna, en 15.
nóvember varð hann bráðkvaddur
á heimili sínu. Ég átti margar frá-
bærar stundir með Þresti sem
verða ætíð ofarlega í huga mér. Ég
votta börnum Þrastar samúð mína,
þeim Jónínu og Heimi, og elsku
mömmu og systkinum mínum og
vona að mamma hitti einhvern
jafngóðan mann og Þröst, en það
verður ekki auðvelt. Ég veit að
Þröstur er á góðum stað og líður
vel og kemur til með að vaka yfir
okkur öllum.
Guð geymi þig, elsku Þröstur
minn, ég mun alltaf sakna þín.
Hvíl í friði.
Hann mun þig miskunn krýna
þú mæðist litla hríð
þér innan skamms mun skína
úr skýjum sólin blíð.
Þórður.
Sérfræðingar
í blómaskreytingum
við öll tækifæri
Skólavörðustíg 12,
á horni Bergstaðastrætis,
sími 551 9090.
ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS
Sjáum um alla þá þætti sem hafa ber í huga
er andlát verður í samráði við aðstandendur
Sími 581 3300
allan sólarhringinn — utforin.is
Suðurhlíð 35, Fossvogi
Sverrir
Olsen
útfararstjóri
Sverrir
Einarsson
útfararstjóri
Kistur
Krossar
Duftker
Legsteinar
Sálmaskrá
Blóm
Fáni
Erfidrykkja
Tilk. í fjölmiðla
Prestur
Kirkja
Kistulagning
Tónlistarfólk
Val á sálmum
Legstaður
Flutn. á kistu milli landa
Sjáum um
útfararþjónustu á
allri landsbyggðinni.
Áratuga reynsla.
!
! "#$%&''
"
#$
% &"' '(
(
) *
*
*
+
)*"+,-./01233
4#!
5#6
78 8
$,
-
$ . # / 0+!
,&
#
9 5
&
5!:;' #
#
#,
,&
#
&
<#!5
=
,&
#
#
,&
'>85
/ #
&
/ 5!?
#
1 :,&
'>8 #
/ #
,&
'>8 &
#'<>'$5
,&
'>8 &(
1
*
* $
-)*-
? #>;
!
<
7 @
!
#
0
2 +!
3 4!
$ &#$%&&'
5
$
# 6 $
$
0
2 + 'A
#!
#8 #
<#!5
&
#
;
'5
;
' &
-:&
#
#
,
># &
# 5
!5
&
&
= #
!5
;
' #
A
#!
#8&
&
2'@5!
B;' #
&
#&
&
;#! 1 #
#
?
?
& ?
?
?
(
(
)
*
7
*
"==-
8#% $! $#
#
%#
!#
78 8
0*
*
!
7
#$%8''
$*
9
9
$
$
$
# ##
,$ #
!5
@> #
@># 5
@#5
"
&
#
!5
#
#
5!
B"
#
"
C
9 "
#
"
# @> &
; 5
# $
C &5?
; ''
/
$5
@> &(
1$
$
*
#* )=)-
"'><$
5$
78 8
$,
-
$. #
% 4! +9+
: $
9$
$
$%%1+#) !
*
;
@ #
"#
#
,(5
&
5!
B
5
#
' "(5
#
= :
# 5
! &
5
>''
#?
"
/ #
!5
;#! C
@>C>
/ B ;
@
#2 8
&
C #
(