Morgunblaðið - 31.01.2001, Qupperneq 38
MINNINGAR
38 MIÐVIKUDAGUR 31. JANÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ
✝ Páll SigurjónHelgason fæddist
á Patreksfirði 26.
maí 1928. Hann lést á
Landspítalanum við
Hringbraut að kvöldi
sunnudagsins 21.
janúar síðastliðins.
Foreldrar Páls voru
Helgi Arent Árna-
son, rafvirki og vél-
smíðameistari, f.
17.11. 1893 á Króki í
Vestur-Barðastrand-
arsýslu, d. 23.3. 1958,
og Klásína Helga
Jónsdóttir, f. 10.7.
1894 í Rakknadal í Vestur-Barða-
strandarsýslu, d. 29.9. 1985. Systir
Páls er Ingibjörg Jóhanna Helga-
dóttir, f. 7.3. 1926. Hennar maður
er Steingrímur Gíslason, f. 17.1.
1925.
Páll kvæntist 11. október 1952
Jónínu Stefaníu Kristínu Jakobs-
Elvar Ingi Egilsson, f. 29.10. 1973;
Ingi Páll Helgason, f. 9.3. 1976, d.
24.1. 1994. 3) Helgi Arent, f. 7.3.
1961, búsettur í Kópavogi.
Páll vann ötullega að ýmsum
félagsmálum, hann var t.d. mjög
virkur í skátahreyfingunni á Pat-
reksfirði. Eftir hefðbundið grunn-
skólanám hóf hann nám í vélsmíði í
Vélsmiðjunni Sindra á Patreksfirði
og stundaði nám í Iðnskólanum þar
frá 1947–51. Hans ævistarf var
lengst af við vél- og rennismíði. Hann
stofnaði sitt eigið fyrirtæki, Vél-
smiðju Páls Helgasonar, í Síðumúla
11 í Reykjavík. Heimili hans var
lengst af á Þinghólsbraut 54 og þar
bjó hann vel um sína fjölskyldu í yfir
40 ár. Félagsmálin voru ævinlega
hans fylginautur, hann vann að bæj-
armálefnum í Kópavogi og gegndi
formennsku í sunddeild Breiðabliks í
Kópavogi. Hann var formaður bygg-
ingarnefndar Kópavogs og starfaði
einnig í ýmsum öðrum nefndum. Í
Oddfellow-regluna gekk hann 9.12.
1971 og gegndi þar mörgum þýðing-
armiklum trúnaðarstörfum.
Útför Páls Sigurjóns Helgasonar
fer fram frá Digraneskirkju í dag og
hefst athöfnin klukkan 13.30.
dóttur, f. 19.6. 1927 í
Hnífsdal. Foreldrar
hennar voru Jakob
Jakobsson, sjómaður í
Hnífsdal, f. 7.1. 1880 á
Kirkjubóli í Grunna-
víkurhreppi, Norður-
Ísafjarðarsýslu, d.
25.10. 1934, og kona
hans Guðbjörg Helga
Kristjánsdóttir, f.
12.10. 1891 í Sútara-
búðum, Grunnavíkur-
hreppi, d. 26.5. 1985.
Börn Páls og Jónínu
eru 1) Guðbjörg
Helga, f. 7.5. 1952,
maki Guðlaugur Valgeirsson, f.
6.12. 1953. Börn: Páll Erlendsson,
f. 4.2. 1974; Valgeir Guðlaugsson, f.
11.2. 1978; Árni Arent Guðlaugs-
son, f. 19.8. 1980; Kristín Lórey
Guðlaugsdóttir, f. 12.1. 1982. 2)
Hrönn, f. 4.4. 1955, maki Egil Helgi
Kristinsson, f. 18.2. 1954. Börn:
Kæri afi og kæri, kæri vinur. Nú er
þrautagangan á enda og þú farinn
heim til þíns sanna heimilis, ljóssins
sjálfs. Ég vil byrja á því að þakka þér
kærlega fyrir allt sem þú hefur gert
fyrir mig og gefið mér, en stærst er
þó vináttugjöfin, minn kæri afi. Ég
veit vel hvar þú ert, þú ert ekki langt í
burtu vegna þess að himnaríki er
ekki langt uppi eins og sumir halda
fram heldur hér og nú. Eini munur-
inn á okkur sem erum enn í líkama og
þér er að nú veistu hver þú ert og ert
laus við allar líkamlegar þjáningar.
Já, er ekki himnaríki dýrlegur stað-
ur? Ég sagði þér það. Jæja en hvað
um það. Ég veit að þú ert hér hjá mér
núna og ert að aðstoða mig við skrif-
in, og ég veit að samskipti okkar
halda áfram að vera í báðar áttir þó
svo þú hafir yfirgefið þennan jarð-
neska líkama. Aldrei hef ég fundið
jafnmikið fyrir þér og einmitt nú, og
þau gleðitár sem þú hefur gefið mér
þegar þú snertir strengi hjarta míns
eru ákaflega falleg, eins og þú ert og
varst alla tíð, minn kæri afi. Ég elska
þig og mun ávallt elska þig, bara al-
veg eins og þú ert.
Ég ólst upp mikinn hluta ævinnar
heima hjá þér og ömmu og það var
mikil blessun að fá að kynnast ykkur
báðum eins og ég fékk að kynnast
ykkur. Það hefur gert mig að betri
manni. Og ég er ykkur ævinlega
þakklátur. Þó svo að ég hafi mikið
verið hjá ykkur á yngri árum minnk-
uðu þær heimsóknir mikið á ung-
lingsárunum, en þú og amma voruð
þó alltaf til staðar, alltaf þegar ég
þurfti þess með. Hjálpsemin var allt-
af fyrir hendi og ég veit að þú vildir
dekra mig og gerðir það og er allt
gott og blessað með það. Það var þó
aukaatriði, því þegar ég fór síðan að
heimsækja þig aftur og eyða tíma
mínum með þér kenndirðu mér
margt sem máli skiptir í heiminum,
þ.e. að gleðin og kærleikurinn og vin-
áttan skipta í raun öllu máli, og hef ég
í raun aldrei upplifað það jafnsterkt
og einmitt núna þegar þú ert farinn
yfir, í heim sælu og friðar. Guði sé lof
að lífið er eilíft og að við erum í raun
alltaf saman. Takk Guð, minn kæri
vinur.
Nú vil ég kveðja þig með tárum og
gleði, því yfir þú ert kominn í birtuna
björtu, gaman er að lifa og verður svo
áfram, líf eftir líf, við erum saman.
Takk fyrir allar ísátsstundirnar
okkar, takk fyrir alla sunnudagsbílt-
úrana okkar, ég mun halda þeim
áfram, og ferðirnar á kaffihúsin til að
fá okkur vöfflu með miklum rjóma og
heitt kakó. Takk fyrir friðinn og
kennsluna, takk fyrir allt. Palli.
Þinn vinur,
Páll Erlendsson.
Mig langar til að hripa niður
nokkrar línur til minningar um mág
minn Pál S. Helgason. Maður verður
víst seint viðbúinn andlátsfregnum,
jafnvel þótt maður viti að viðkomandi
sé mikið veikur, þótt hann hafi fóta-
ferð og geti ekið milli vina og ætt-
ingja.
Mér brá því þegar Helga dóttir
Palla hringdi á mánudagsmorgun 22.
janúar í okkur hjónin úti á Kanaríeyj-
um þar sem við ætluðum að dvelja út
janúarmánuð og sagði: „Pabbi er dá-
inn, hann dó í gærkvöld.“ Okkar
fyrsta verk var að hafa samband við
fararstjóra okkar og athuga um flýtta
heimferð sem við fengum 25. janúar.
Ég kynntist Palla mági mínum
ekki fyrr en eftir 1953 að ég giftist
Ingibjörgu systur hans, en þá hafði
hann lokið vélsmíða- og rennismíða-
námi og var fluttur frá Patreksfirði til
Reykjavíkur. Hann ólst upp við líkar
aðstæður og drengir í öðrum þorpum
á Vestfjörðum. Hann naut ástríkra
foreldra, ömmu og tveggja afa sem
öll voru á heimilinu auk eldri systur.
Hann byrjaði eins og flestir piltar á
þessum árum, fermingarvorið á skaki
(handfæraveiðum) og stundaði það
ásamt fleiru þar til hann 16 ára hóf
nám í vél- og rennismíði. Þegar ég
kom til Patreksfjarðar í ágúst 1951
var hann farinn til Reykjavíkur og
vann við fag sitt hjá vélsmiðju Jens
Árnasonar föðurbróður síns sem
naut mikillar viðurkenningar fyrir
fagmannlega vinnu á suðu og renni-
smíði. Palli varð fljótlega viður-
kenndur sem einn besti rennismiður
landsins og fékk verkefni víða að á
landinu. Hann vann við vélsmiðju
Jens Árnasonar þar til Jens dó en þá
tók hann ásamt Hafsteini Guðjóns-
syni tengdasyni Jens við smiðjunni
og þeir ráku hana um tíma. Síðar
byggðu þeir yfir starfsemina og ráku
hana saman í nokkur ár en slitu eign-
arböndum og Palli opnaði sína eigin
vélsmiðju í Síðumúla 11 og rak hana
meðan heilsa leyfði.
Hugur Palla var oft við sjóinn og
skrapp hann á síldveiðar með frænda
sínum Finnboga heitnum Magnús-
syni sem var skipstjóri á aflaskipinu
Helgu VE. Eftir að hann seldi vél-
smiðjuna í Síðumúla 11 keypti hann
smátrillu af Finnboga frænda sínum
og skrapp þá vestur á Patreksfjörð til
að fara á sjó og fá sér í soðið. Síðar lét
hann ásamt Jóni Magnússyni, skip-
stjóra og útgerðarmanni, bróður
Finnboga kunnum afla- og athafna-
manni, en þeir Finnbogi Jón og Palli
voru systkinasynir, byggja hraðfiski-
bát sem heitir Jón Páll og fór Palli
vestur til að fara til veiða þegar hann
gat.
Eitt sinn þegar hann kom að landi
og lagði að bryggju var hann mállaus
og var sendur með sjúkraflugi til
Reykjavíkur þar sem hann gekkst
undir aðgerð vegna blóðtappa í háls-
æð en þá var hann tvívegis búinn að
ganga undir hjartaaðgerð vegna
kransæðastíflu og fyrir tveimur árum
voru gerðar aðgerðir með stuttu
millibili á báðum fótum þar sem skipt
var um æðar.
Palli var hörkukarl og gaf ekkert
eftir, hann var vinur vina sinna en gat
verið þungur á bárunni ef honum
mislíkaði. Palli var lunkinn veiðimað-
ur þótt í upphafi þætti honum lítið til
þess koma að standa við á með stöng
og bíða eftir að biti á, þá var nú skakið
eitthvað annað í hans huga.
Ég fékk hann þó til að koma með
mér norður í Svartá. Ég þekkti ána
og sagði honum að fara á ákveðinn
stað og hvernig hann ætti að kasta.
PÁLL SIGURJÓN
HELGASON
4!
..);=.3=1233)
8
%<9!# 5
0 ;+ 7
%#$%&&'
C B &
5!
B0
# C B #
?
?
& ' $$5?
(
< $ 9 $ ) !$$ 9
= *
* $= $
* ! $
$ *
7
! * $ !
+)21233)
<B8
5
<#$#'#555<'!
>!5
#
5
0 % & #(
6,
9$
$
6#=$$
> $$
%%
7
*
*
$
6 $
*
+
!
$ ;
!5
; ''
&
,
#
7 #
5
; ''
&
< < #
$$5?
& ' $$5?
(
4!! ! *
2;+)"+1233)
@
>
#
$,
$ 6$
$
0*
*
$$ !
#$%&&'
=
<#'5
=
' #
2
=
' &
5 #=
' &
1 !#=
' &(
2$9 $ $$9
= *
* $= $$ * !
*
) .-=)2.A = 0
# > #
5 '@5
4$5 &
.& #
"
8#8<
! &
0
# >A
& #.& &
.& #
1 !#5 '@ &
<#!5
8<
! #
; ''
"
5 '@ &
C
9 /(=5!5 (
:
)
1D=103-. @7
(@'5
#
; 58 #
! ?4
$,
-
$ 0*
*
? 0+!
;
'5
15 '
E
# 15 '
& @' 87'5
(
1$
$
*
* $
;=)0);C=F-
@ '# #G
0@' 8
$,
-
$ . # 7
9
" ,&
!5
,&
?
#
5!
!5
; 58 #
=! ' #5!?
&
C ; 58 #
#'?&
,
5; 58 #
"&
=
$ &
C B ;
#
; 58 &
= ;'!
#
?
?
& ?
?
?
(
.)
#*
* $
;*=/C)1-
%%5' # $#
#
=5 5
?
BH
78 8
(
!
#$%8''
7!
#
#
85
/ $5 &
5!$55
/ $5 &
?
?
?
?
& ' @ ?
(
1$
$ *
*
22.A-
.#
5G
$,
-
$0*
*
? 4!.
8#$%&&'
#
B1
@ #
;#!
5! &
A
#!
#8;
@ &
1
@ '$?
'# =# #
,
=' &
& ?
?
(