Morgunblaðið - 31.01.2001, Síða 41
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 31. JANÚAR 2001 41
Um hvað snúast stjórnmál?
Kynntu þér málið í Stjórnmálaskóla
Sjálfstæðisflokksins í Valhöll mánudags-,
þriðjudags- og fimmtudagskvöld frá
5. febrúar til 1. mars
Fyrirlestrar og umræður, m.a. um:
● Hornsteininn.
● Fjölmiðla og stjórnmál.
● Hugvitið verður í askana látið.
● Sveitarfélög í örum vexti.
● Borgin í seinni hálfleik.
● Heilbrigðisþjónusta í þróun.
● Flokksstarfið.
● Jafnrétti í reynd.
● Ísland í samkeppni þjóðanna
Dagskráin er kynnt á vefnum www.xd.is undir
Stjórnmálaskólinn. Skráning og nánari upp-
lýsingar í síma 515 1777/515 1700, einnig á
netfangi disa@xd.is og xd@xd.is .
KENNSLA
Fjölbrautaskólinn í Breiðholti
Innritun í Kvöldskóla FB
1. febrúar frá kl. 16.30—19.30
5. febrúar frá kl. 16.30—19.30
6. febrúar frá kl. 16.30—19.30
Kennsla hefst 8. febrúar
Verð: 2 áfangar (1—6 einingar) 17.500 kr.
3 eða fleiri áfangar (7—15 einingar) 23.500 kr.
2000 krónur hver eining umfram 15.
Í myndlistaráföngum, verklegum áföngum og
tölvuáföngum eru greidd efnisgjöld.
Visa og Euro
Finna má áfanga í boði á heimasíðu skólans.
Veffang: www.fb.is
Netfang: fb@fb.is
Skólameistari.
SMÁAUGLÝSINGAR
DULSPEKI
Völva vikunnar
verður með per-
sónulega ráðgjöf
í gegnum síma,
þar sem stuðst er
við næmni og
innsæi.
Einnig skráðar niður pantanir
fyrir einkatíma og fyrirlestra.
Sími 908 6500.
Sigríður Klingenberg.
FÉLAGSLÍF
GLITNIR 6001013119 I
I.O.O.F. 7 18113171/2 8.0.
I.O.O.F. 9 1811318½ 9.l
HELGAFELL 6001013119 VI
Hörgshlíð 12.
Boðun fagnaðarerindisins.
Bænastund í kvöld kl. 20.00.
Háaleitisbraut 58—60.
Samkoma í Kristniboðssalnum í
kvöld kl. 20.30.
Hildur Hallbjörnsdóttir og Birna
G. Jónsdóttir tala.
Allir hjartanlega velkomnir.
Netfang http://sik.is .
Þorrablótsferð Útivistar 2.-4.
febrúar Húnaþing vestra með
Vatnsnesi, Kolugljúfri o.fl. Takið
miða strax. Básabandið mætir.
Mánudagur 5. febrúar kl.
20.00 Myndakvöld Útivistar í
Húnabúð, Skeifunni 11. Þröstur
Þórðarson sýnir glæsilegar
landslagsmyndir, mest úr
óbyggðum.
Ferðaáætlun 2001 er komin út,
margt nýtt!
Sunnudagsferð 4. febrúar kl.
11.00 Nánar kynnt síðar.
Skoðið heimasíðuna: utivist.is
(Á döfinni: myndir úr áramóta-
ferð). Textavarp RUV bls.
616.
R A Ð A U G L Ý S I N G A R
FÉLAGSSTARF
Nafn prestsins misritaðist
Rangt var farið með nafn prests
með brúðarmynd af Ásu Ólafsdóttur
og Þóri Sigurðssyni sem birtist í
blaðinu í gær, presturinn heitir Sig-
urður Arnarson. Morgunblaðið biður
hlutaðeigandi velvirðingar á mistök-
unum.
Mynd sneri ekki rétt
Ljósmynd af grafíkverki eftir
Guðfinnu Hjálmarsdóttur, sem birt
var í blaðinu í gær, sneri ekki rétt.
Um er að ræða
eitt af verkunum
sem stolið var úr
sýningarsal Ís-
lenskrar grafíkur
í Hafnarhúsinu á
dögunum.
Í sömu frétt var
verk eftir Valdi-
mar Steffensen
Harðarson eignað
Ólafi Stefánssyni. Um leið og beðist
er velvirðingar á þessu birtir Morg-
unblaðið hér mynd Guðfinnu á ný.
Ekki sama teymi
Í blaðinu í gær komu fram misvís-
andi upplýsingar í grein um íslensk-
ar kvikmyndir styrktar af Kvik-
myndasjóði. Þar var sagt að sama
teymi stæði að fyrirhugaðri mynd
Roberts I. Douglas, Maður einsog
ég, og stóð að síðustu kvikmynd hans
Íslenski draumurinn. Hins vegar
mun framleiðslufyrirtækið Elíza
ehf., sem var meðframleiðandi Ís-
lenska draumsins, ekki koma að
framleiðslu fyrirhugaðrar myndar
Róberts.
Í samvinnu við Mál
og menningu
Í kynningu með kafla úr væntan-
legum endurminningum Gabriels
García Márquez í Morgunblaðinu á
sunnudag láðist að geta þess að hann
var birtur í samvinnu við Mál og
menningu. Beðist er velvirðingar á
þessu.
LEIÐRÉTT
FÉLAG stjórnmálafræðinga og
LögfræðiAkademían efna til ráð-
stefnu laugardaginn 3. febrúar undir
yfirskriftinni „Hvert stefnir valdið?
Staða þjóðþinga og framkvæmda-
valds á Norðurlöndum“, með þátt-
töku sérfræðinga frá Danmörku, Ís-
landi, Noregi og Svíþjóð, samkvæmt
því sem fram kemur í fréttatilkynn-
ingu. Ráðstefnan, sem er öllum opin,
fer fram í húsnæði ReykjavíkurAka-
demíunnar á Hringbraut 121, 4. hæð.
Hún hefst stundvíslega kl. 10 og lýk-
ur kl. 15.
Undanfarinn áratug hafa fræði-
menn fjallað töluvert um valdmörk
milli stofnana lýðræðisríkisins. Um-
fjöllun af þessu tagi hefur verið áber-
andi í tengslum við samrunaferlið í
Evrópu. Meðal þess sem rannsakað
hefur verið er staða löggjafarþinga í
stjórnskipuninni. Tilgangur ráðstefn-
unnar er meðal annars sá að ýta und-
ir málefnalega umræðu um stöðu og
framtíð grundvallarstofnana lýðveld-
isins og leggja mat á þróun stjórn-
skipunar hér á landi í samanburði við
það sem gerst hefur á hinum Norð-
urlöndunum. Leitað verður svara við
spurningunni um það hvort orðið hafi
afgerandi breyting að undanförnu á
jafnvægi valdastofnana ríkisins og, ef
svo er, hvert valdið stefni. Færist það
frá löggjafarþingunum til fram-
kvæmdavaldsins? Stefnir það frá inn-
lendum stjórnvöldum til yfirþjóð-
legra stofnana, eða hvort tveggja?
Fleiri spurningum verður velt upp,
svo sem hvert raunverulegt vald lög-
gjafarþinga Norðurlanda er og hvort
lýðræðisleg stjórnskipan velferðar-
ríkisins einkennist frekar af flokks-
ræði en þingræði? Ennfremur hvaða
áhrif þátttakan í EES og ESB hefur
haft á þessa þætti.
Að loknu ávarpi Halldórs Blöndal,
forseta Alþingis, flytja eftirtaldir er-
indi: Joakim Nergelius, lektor við
Háskólann í Lundi: Löggjafarþing
Norðurlanda, Sigurður Líndal, pró-
fessor við Háskóla Íslands: Stjórn-
skipunarstaða Alþingis í sögulegu
ljósi, Eivind Smith, prófessor við
Oslóarháskóla: Hefur EES breytt
valdajafnvæginu milli löggjafar- og
framkvæmdavalds í Noregi? Claus
Larsen-Jensen, formaður Evrópu-
málanefndar danska þingsins: Full-
veldi danska þjóðþingsins gagnvart
Evrópusambandinu. Að loknum há-
degisverði flytur Ólafur Þ. Harðar-
son, prófessor við Háskóla Íslands,
erindið: Fara völd þjóðþinga þverr-
andi? Viðhorf norræna þingmanna.
Að því loknu flytur Guðmundur Al-
freðsson, prófessor við Háskólann í
Lundi, samantekt. Fundarstjóri
verður Guðmundur Heiðar Frí-
mannsson.
Að loknum framsögum munu þátt-
takendur sitja í pallborði og opnað
verður fyrir almennar umræður.
Ráðstefnan fer fram á ensku og
dönsku.
Ráðstefna um
þjóðþing og
framkvæmdavald
OPNAÐUR hefur verið
veitingastaður í Rafha-
húsinu, Lækjargötu 30
í Hafnarfirði sem ber
heitið Kaffi Lækur. Nafn sitt dregur
staðurinn af Læknum, sem hann
stendur við. Eigandi staðarins er
Njáll Sigurjónsson.
Lögð er áhersla á smurt brauð en
einkenni staðarins er „Fiskur og
franskar“ að hætti Breta. Kaffi Læk-
ur hefur að auki létt vínveitingaleyfi
og hægt er að leigja staðinn fyrir
veislur og aðrar uppákomur.
Veitingastaðurinn er opinn frá kl.
10–23.30 alla daga.
Morgunblaðið/Jim Smart
Nýr
veitinga-
staður
í Hafn-
arfirði
Njáll Sigurjónsson eigandi veitingastaðarins
Kaffi Lækur.
SÉRA Jóhanna Ingibjörg Sigmars-
dóttir heldur fyrirlestur fimmtu-
daginn 1. febrúar í boði Rannsókn-
arseturs í sjávarútvegssögu og
Sjóminjasafns Íslands, sem nefnist:
Hafdjúpin eru í hendi þinni. Um
trúarhætti íslenskra sjómanna.
Fyrirlesturinn verður fluttur í
Sjóminjasafni Íslands, Vesturgötu 8
í Hafnarfirði, og hefst kl. 20.30. Að-
gangur er ókeypis og allir velkomn-
ir.
Í fyrirlestrinum verður fjallað um
trúarhætti íslenskra sjómanna,
ýmsa þætti sem tengjast trúarlegu
atferli þeirra, siðum og venjum.
Meðal annars verður hugað að því á
hvern hátt menn iðkuðu trú sína frá
upphafi verferða til loka, áheit, sjó-
mannadaginn og á hvern hátt hann
tengist kirkjunni.
„Fiskimenn sem fóru í verið
reyndu eins og kostur var að halda
trúarháttum heimilanna. Oft á tíð-
um var erfitt að rækja kirkjugöng-
ur og var þá leitast við að bæta það
upp með lestri. Eftirtektarvert er
hversu trúar- og bænalífið var ríkur
þáttur í daglegu lífi sjómanna sem
annarra Íslendinga á fyrri öldum. Á
tuttugustu öld hafa hins vegar orðið
örar breytingar á trúarháttum,“
segir í frétt frá fundarboðendum.
Séra Jóhanna Ingibjörg Sigmars-
dóttir vígðist til Eiðaprestakalls
1999 og hefur þjónað þar síðan.
Fyrirlestur um trúar-
hætti íslenskra sjómanna
ÁRLEG þorrablótsferð Útivistar er
að þessu sinni á söguslóðir í Húna-
þingi vestra um næstu helgi, 2.–4.
febrúar. Gist er á farfuglaheimilinu
Sæbergi í Hrútafirði. Farin verður
öku- og skoðunarferð um Vatnsnesið
með léttum gönguferðum m.a. um
skemmtilega strönd við Hindisvík og
Tjörn. Byggðasafnið á Reykjum
verður skoðað og Kolugljúfur.
Þorrablót Útivistar er á laugar-
dagskvöldinu og mun Básabandið
spila fyrir söng og dansi. Nauðsyn-
legt er að panta og taka farmiða sem
fyrst á skrifstofunni á Hallveigarstíg
1 því pláss er takmarkað.
Ný sunnudagsferð verður á dag-
skrá 4. febrúar kl. 11 í stað skíða-
göngu og verður hún kynnt síðar.
Fyrsta myndakvöld ársins er í
Húnabúð, Skeifunni 11 nk. mánu-
dagskvöld 5. febrúar kl. 20, en þar
mun Þröstur Þórðarson sýna lands-
lagsmyndir, mest úr óbyggðum.
Þorrablótsferð
Útivistar
FRJÁLSLYNDI flokkurinn heldur
opinn fund í Akoges-húsinu í Vest-
mannaeyjum fimmtudaginn 1. febrú-
ar kl. 20:30.
Stuttar framsögur flytja Guðjón
A. Kristjánsson alþingismaður
og Grétar Mar Jónsson. Að því
loknu verða umræður. Allir vel-
komnir.
Opinn fundur
í Eyjum
Frjálslyndi
flokkurinn
LÍFFRÆÐIFÉLAG Íslands stend-
ur fyrir myndakvöldi miðvikudaginn
31. janúar í Lögbergi, stofu 101, kl.
20. Þar munu Gunnar Þór Hall-
grímsson og Yann Kolbeinsson fjalla
um fugla og fuglaskoðun á Suðvest-
urlandi. Þeir félagar eru áhugamenn
um fugla og ljósmyndun og munu
sýna brot af myndum sínum.
Aðgangur er ókeypis og öllum
heimill.
Fuglaskoðun-
arstaðir á suð-
vesturhorninu
♦ ♦ ♦
MÁLSTOFA verður haldin í Mið-
stöð nýbúa v/Skeljanes fimmtudag-
inn 1. febrúar kl. 20. Að þessu sinni
verður fjallað um fordóma á Íslandi,
sérstaklega gagnvart fólki af erlend-
um uppruna, og hvernig þeir birtast
okkur í íslensku samfélagi í dag.
Guðrún Pétursdóttir, félagsfræð-
ingur og starfsmaður Miðstöðvar ný-
búa, talar um fordóma, hvernig þeir
verða til og mismunandi birtingar-
myndir þeirra og Haukur Agnarsson
og Sigríður María Tómasdóttir
skýra frá niðurstöðum nýlokinnar
rannsóknar sinnar þar sem rannsök-
uð voru viðhorf þriggja kynslóða til
innflytjenda á Íslandi. Að loknum er-
indum eru opnar umræður.
Málstofan verður haldin í Miðstöð
nýbúa við Skeljanes (endastöð
strætós nr. 5). Allir velkomnir.
Málstofa um
fordóma og
mismunun
♦ ♦ ♦
♦ ♦ ♦
♦ ♦ ♦
HAFNARGÖNGUHÓPURINN
stendur fyrir gönguferð í kvöld, mið-
vikudagskvöld, frá Hafnarhúsinu,
Miðbakkamegin, kl. 20.30.
Gengið út í
Örfirisey
JUNIOR Chamber Reykjavík held-
ur kynningarfund á starfsemi félags-
ins fimmtudaginn 1. febrúar í JC-
húsinu í Hellusundi 3, kl. 20.
Hreyfingin er ætluð fólki á aldr-
inum 18-40 ára sem hefur metnað og
vilja til að láta til sín taka, segir í
fréttatilkynningu.
Kynningar-
fundur hjá JC
♦ ♦ ♦