Morgunblaðið - 31.01.2001, Page 44
44 MIÐVIKUDAGUR 31. JANÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ
!
BRÉF
TIL BLAÐSINS
Kringlunni 1 103 Reykjavík Sími 569 1100 Símbréf 569 1329
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt t i l að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
ti l birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.
AUSTURSTRÆTI heitir gata ein í
Reykjavík sem byrjar og endar á
tveim afspyrnuljótum torgum, Ing-
ólfstorgi og Lækjartorgi. Mér þykir
alveg óskaplega vænt um þessa götu
þótt ekki geti ég hampað henni fyrir
fegurð og þokka.
Í svartasta skammdeginu hefur
Austurstræti á sér hálfógnvekjandi
yfirbragð, það er t.d. svo illa lýst að
vesalings veggjakrotararnir sjá
varla hvað þeir eru að gera. Á vestari
hluta götunnar, frá Ingólfstorgi til
Pósthússtrætis, eru þrír ljósastaurar
með venjulegum hvítum perum sem
lítið virðast gagnast enda einn þeirra
oftast bilaður. Þetta væri kannski í
lagi ef gatan væri þétt skipuð næt-
urklúbbum sem gætu lýstu upp göt-
una með neon-skiltum sínum en svo
er bara ekki, að minnsta kosti ekki
enn þá.
Fyrir nokkrum árum var austari
hluti götunnar endurbættur, þá voru
meðal annars sett upp 10 ljósker,
flest norðan megin í götunni. Þetta
eru afskaplega falleg ljósker en
drungaleg og járngirt hús sem við
þau standa ná einhvern veginn að
drepa þá litlu tíru sem frá þeim staf-
ar. Suðurhlið götunnar fékk úthlutað
tveim ljóskerum sem lentu bæði við
ágætlega upplýsta Lækjargötuna.
Það hefur sem sagt ekki þótt ástæða
til að lýsa gangstétt og bílastæði
sunnan megin í götunni. Gangandi
vegfarendur treysta því á að öku-
menn bifreiða sem um götuna aka
lýsi þeim leið með bílljósum sínum.
Einnig má á stöku stað finna þarna
verslanir sem einhverri birtu stafar
frá. Ef ég væri útlendingur mundi ég
varla trúa því að þetta svarthol væri
miðpunktur bæjarlífsins.
Fyrir jólin varð nokkur breyting á
næturásýnd götunnar. Fyrst ber að
nefna frábæra lýsingu sem sett var á
miðhæð Landsbankahússins. Þetta
fallega hús ljómar þarna í myrkrinu,
öðrum húsum til mikillar fyrirmynd-
ar. Ég vona bara að bankamenn láti
ekki staðar numið við þessa einu hæð
heldur lýsi upp alla norðurhlið hús-
ins sem allra fyrst. Ég gef þeim
fyrstu verðlaun fyrir vel heppnaða
viðleitni til að bæta ásýnd Austur-
strætis.
Einnig er ástæða til að hampa
Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins.
Fyrir jólin hættu þeir nefnilega að
setja niður þetta skelfilega járntjald
sem áður lokaði fyrir glugga versl-
unarinnar á nóttunni og var lítt til
yndisauka fyrir götuna. Nú skín
birta út frá versluninni og enn sem
komið er hefur enginn gluggi verið
brotinn. Það hefur eflaust þurft
kjark til að prófa þetta í svartasta
skammdeginu en vonandi fer hliðið
aldrei aftur niður.
Apótekið Lyfja opnaði verslun í
götunni rétt fyrir jól þar sem áður
var rekin ferðaskrifstofa. Búðin er
opin og björt og gluggarnir stórir.
Ég þakka eigendum verslunarinnar
fyrir að hafa ekki látið sér detta í hug
að draga járnhlið fyrir gluggana á
nóttunni.
Eftir velheppnaða ljósasýningu
Reykjavíkurborgar í nóvember sl. vil
ég leggja til að efri hæðir húss Hér-
aðsdóms Reykjavíkur verði á vet-
urna lýstar í svipuðum dúr og gert
var við Hallgrímskirkju. Þannig yrði
hið tómlega og kalda Lækjartorg
kannski ekki jafn áberandi ljótt, það
mætti jafvel lýsa það sjálft á sama
hátt.
Ég skora á Reykjavíkurborg, jafnt
sem eigendur húsa við Austurstræti
að bæta lýsingu í götunni, þar á ég
við inni í byggingum, á framhliðum
bygginga, gangstéttum og götu.
Snúum vörn í sókn, gerum Austur-
stræti að fegurstu götu bæjarins.
BRYNDÍS LOFTSDÓTTIR
verslunarstjóri.
Austurstræti – bætt
ásýnd – betri borg
Frá Bryndísi Loftsdóttur:
Morgunblaðið/Jim Smart
Iðandi Austurstræti á góðum degi. Í svartasta skammdeginu hefur það
hins vegar á sér ógnvekjandi yfirbragð vegna lélegrar lýsingar.