Morgunblaðið - 31.01.2001, Qupperneq 56
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 MIÐVIKUDAGUR 31. JANÚAR 2001 VERÐ Í LAUSASÖLU 165 KR. MEÐ VSK.
SEX þúsund manns verður boðið að
taka þátt í nýrri rannsókn íslenskra
vísindamanna á brjóstakrabbameini
sem nú stendur yfir. Verður um
1.400 konum, sem greinst hafa með
brjóstakrabbamein eða forstig þess,
boðið að taka þátt í henni ásamt ætt-
ingjum og samanburðarhópi en með
rannsóknunum á að kanna samspil
erfða og umhverfis og þátt gena við
myndun krabbameins.
Að rannsókninni standa vísinda-
menn hjá Krabbameinsfélagi Ís-
lands, Urði, Verðandi, Skuld og Ís-
lenski brjóstakrabbameinshópurinn
sem er samstarfshópur lækna á
Landspítala - háskólasjúkrahúsi og
Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri.
Samhjálp kvenna, stuðningshópur
kvenna sem greinast með brjósta-
krabbamein, leggur málinu einnig lið
með því að hvetja konur til þátttöku.
Gert er ráð fyrir að rannsóknirnar
standi í nærri þrjú ár og kosti nokkra
tugi milljóna króna. Fjármagn til
þeirra er að nokkru leyti fengið með
styrk frá bandarískum rannsókna-
sjóði en UVS stendur einnig straum
af verulegum hluta kostnaðar. „Við
munum skoða hvaða þættir geta
verndað konur, sérstaklega þær sem
bera stökkbreytingu í BRCA-geni
sem eykur líkur á brjóstakrabba-
meini,“ segir Jórunn Erla Eyfjörð,
sem stýrir rannsókninni af hálfu
Krabbameinsfélagsins. „Verða at-
hugaðir þættir eins og fæðingar,
blæðingar, reykingar, áfengisneysla,
hreyfing og fleira. Síðan verða at-
huguð áhrif annarra meðfæddra
þátta sem hafa áhrif á það hvernig
við bregðumst við áhrifum skaðlegra
efna, eins og til dæmis í tóbaksreyk.“
Leyfi frá Persónuvernd
Bjóða á núlifandi Íslendingum
sem fengið hafa brjóstakrabbamein
að taka þátt í rannsókninni en það
eru nærri 1.400 manns, mest konur
en dæmi eru um að karlar fái
krabbamein í brjóst. Felst þátttaka
þeirra í því að gefa blóðsýni og svara
spurningalista. Aðeins er kallað einu
sinni á þátttakendur en rannsóknar-
aðilar nýta gögnin hver fyrir sinn
þátt rannsóknarinnar. Fer innköllun
fram á ábyrgð viðkomandi lækna og
er óskað eftir skriflegu samþykki
þátttakenda. Fengið hefur verið leyfi
frá Persónuvernd og vísindasiða-
nefnd. Auk þess að kalla inn þá sem
greinst hafa er nauðsynlegt að fá
þátttöku tveggja til þriggja ættingja
hvers sjúklings og alls ná rannsókn-
irnar því til um sex þúsund manna.
Viðamikil rannsókn á brjóstakrabbameini farin af stað
Sex þúsund manns
verður boðin þátttaka
Þriggja ára/29
Morgunblaðið/Kristján
Kaldbakur EA kom til heimahafnar á Akureyri í gærmorgun og gekk greiðlega að landa úr skipinu.
KALDBAKUR EA, ísfisktogari
Útgerðarfélags Akureyringa hf.,
kom til heimahafnar á Akureyri í
gærmorgun með um 150–160
tonn, þar af rúmlega 100 tonn af
þorski, eftir níu daga veiðiferð.
Eins og jafnan þegar skip koma
til löndunar gengur mikið á, lyft-
arar á fleygiferð með fiskikör um
bryggjuna og handagangur í
öskjunni í fiskilestinni. Eftir lönd-
un og þrif í lestinni er svo hafist
handa við að hífa tóm fiskikör
um borð og gera klárt fyrir
næstu veiðiferð.
Landað úr
Kaldbak EA
SÝSLUMAÐURINN í Höfn í
Hornafirði hefur farið fram á gæslu-
varðhald yfir karlmanni á þrítugs-
aldri sem hefur játað á sig mikil
skemmdarverk við bæinn Hvalnes í
Lónssveit. Maðurinn hefur áður
hlotið dóma fyrir íkveikjur.
Samkvæmt upplýsingum frá
sýslumanni hefur maðurinn játað að
hafa orðið valdur að bruna íbúðar-
hússins í Hvalnesi hinn 12. janúar sl.
Þá gekkst hann í gær við því að hafa
um ári fyrir íkveikjuna stórskemmt
innréttingar og innanstokksmuni á
bænum en hann hafði áður þverneit-
að sök. Á sunnudag játaði hann að
hafa ásamt félaga sínum stolið
tveimur óskráðum jeppum frá bæn-
um og gjöreyðilagt annan þeirra.
Sýslumaður fór fram á að maður-
inn sæti í gæsluvarðhaldi til 28.
febrúar eða þar til dómur fellur enda
væru líkur á að hann myndi annars
halda skemmdarverkunum áfram.
Gæsluvarðhaldsbeiðnin var tekin
fyrir í Héraðsdómi Austurlands á
Egilsstöðum í gærkvöld.
Samkvæmt upplýsingum frá lög-
reglu liggur félagi mannsins enn á
Heilbrigðisstofnun Suðausturlands.
Því hefur lögregla ekki tekið skýrslu
af honum. Hann mun hafa brennst
nokkuð þegar þeir reyndu að kveikja
í öðrum jeppanna.
Tjónið yfir 20 milljónir
Sigurður Þóroddsson héraðs-
dómslögmaður er einn eigenda jarð-
arinnar Hvalness. Hann segir að
tjón vegna skemmdarverkanna og
íkveikjunnar nemi rúmlega 20 millj-
ónum. Þegar brotist var inn í húsið í
desember 1999 fengu eigendurnir
greiddar 1,7 milljónir króna í bætur.
Sigurður telur hinsvegar að eigend-
ur þess hafi varið hátt í þremur millj-
ónum til viðgerða. Miklum fjölda
riffilskota hafði verið skotið í veggi
og exi beitt á innanstokksmuni,
hurðir og gluggapósta.
Sigurður telur að tryggingabætur
vegna íkveikjunnar muni nema tæp-
lega 20 milljónum. Húsið sem var
rúmlega 200 fm fullbúið einbýlishús
gjöreyðilagðist í brunanum. Endur-
bætur á því hófust skömmu fyrir árið
1990 en sex fjölskyldur höfðu sam-
einast um að kaupa jörðina.
Maður á þrítugsaldri játar á sig
skemmdarverk við Hvalnes í Lóni
Farið fram á
gæsluvarðhald
til febrúarloka
HAGNAÐUR af starfsemi Íslands-
banka-FBA í fyrra var 662 milljónir.
Árið 1999 var 2.959 milljóna króna
hagnaður af rekstri bankans. Sam-
drátturinn milli ára er því 77%.
Hreinar vaxtatekjur bankans jukust
um 24,5% milli ára. Aðrar rekstrar-
tekjur drógust hins vegar saman um
19,8%. Framlag á afskriftareikning
jókst um 27,5% og nam 1.227 millj-
ónum króna á síðasta ári.
Valur Valsson, forstjóri bankans,
segir að síðasta ár hafi verið óvenju-
legt. Unnið hafi verið að sameiningu
Íslandsbanka og FBA og því hafi
fylgt ýmis kostnaður, bæði beinn og
óbeinn. Hann segir að á árinu hafi
orðið óvenjumiklar sveiflur á verð-
bréfa- og gjaldeyrismarkaði sem hafi
haft áhrif á rekstur bankans sem og
annarra fyrirtækja. Bankinn hafi
orðið fyrir áföllum vegna hækkandi
markaðsvaxta á fyrri hluta ársins og
vegna fallandi verðs á hlutabréfum á
síðari hluta ársins. Vel hafi aftur á
móti gengið í almennri starfsemi
bankans sem skilað hafi góðum
hagnaði.
Arðsemi eigin fjár 6,8%
Í tilkynningu frá Íslandsbanka-
FBA kemur fram að stjórnendur
hans telja arðsemi eigin fjár óviðun-
andi, hún var 6,8% í fyrra en 23,3%
árið 1999. Almenn starfsemi bank-
ans gengur hins vegar vel og ef ekki
verða óvæntar sveiflur á mörkuðum
á þessu ári er líklegt að markmið um
17–20% arðsemi náist á árinu.
Fram kemur í tilkynningunni að
bankaráð bankans hyggst leggja til
að aðalfundur samþykki að greiða
5% arð eða 495 milljónir króna. Í
fyrra voru 1.611 milljónir greiddar í
arð til hluthafa.
Verri afkoma hjá Íslands-
banka-FBA á síðasta ári
Hagnaðurinn úr
2.959 milljónum
í 662 milljónir
Arðsemi/16
ANDRÉSBRUNNUR verður nafn
á nýrri götu í Grafarholti en í gær
samþykkti borgarráð tillögu Þór-
halls Vilmundarsonar prófessors
um nafngiftir á nokkrum götum í
austurhluta hverfisins.
Lagt er til að sveiggata norðan
Gvendargeisla heiti Þórðarsveigur,
en Þórðarsveigur var áður nafn á
hringtorgi við austurenda Gvend-
argeisla. Þrjár T-laga götur sem
tengjast Þórðarsveigi fái þessi
nöfn vestast; Andrésbrunnur, þá
Katrínarlind og austast Marteins-
laug.
Gata milli Gvendargeisla og
Reynisvatnsvegar fái heitið Bisk-
upsgata og gata frá Reynisvatns-
vegi á athafnasvæði A fái heitið
Klausturstígur.
Andrésbrunn-
ur er nýtt
götuheiti
í Grafarholti
HÆGT er að nota GSM-síma til að
ræsa og drepa á bílum. Fyrirtækið
Aukaraf hefur útbúið fjarstart sem
tengt er við GSM-síma.
Að sögn forsvarsmanna skiptir
engu máli hvar bílnotandinn er
staddur þegar hann ræsir bílinn með
símanum, svo lengi sem ökutækið er
innan sama GSM-dreifikerfis og
hann. Bílnotandinn gæti þess vegna
verið staddur erlendis. Nú þegar eru
nokkrir bílar á landinu komnir með
þennan búnað.
Bílar ræstir með GSM-síma
Bíllinn ræstur/E 3
♦ ♦ ♦