Vísir - 27.01.1979, Page 25
Jens Fylkisson og JUiius Benediktsson hjá litlu höllinni sinni.
VISIR
Laugardagur 27. janúar 1979.
Því kóngur vill hann
í voða stóri höll
verða
Undanfarið hefur verið
nógur snjór fyrir alla
krakka til að byggja úr
hús, kerlingar, karla og
alls kyns listaverk. Þessa
stráka hitti ég í Breiðholt-
inu, þarsem þeir voru hjá
sinu snjóhúsi. Það var nú
frekar líkt einhverju
listaverki, enda kom upp
úr kafinu að þetta var
höll. Strákarnir heita
Jens Fylkisson og Júlíus
Benediktsson.
— Amma frænda míns
á heima í stórri höll, sagði
Jens. Hún er í Móritsborg
í Þýskalandi. Höllin er
mjög stór og það er saf n í
henni. Ég fer yfirleitt á
hverjuáritil Þýskalands,
hélt Jens áfram. Amma
mín á heima í Þýska-
landi. Einu sinni sá ég
sirkus og ég fer alltaf í
dýragarðinn í Halle. Mér
finnst mest gaman að sjá
höfrungana og Ijónin. Við
komum líka oft í Tívolí í
Kaupmannahöfn og það
er gaman að svo mörgu
þar, alls konar renni-
brautir og hringekjur eru 1
þar.
— Ég fer alltaf í sveit á
sumrin, segir Júlíus, til
afa míns og móðursyst-
ur. Þau búa í Þykkva-
bænum. Ég hjálpa þeim
við búskapinn. Þeir
félagar eru í Breiðholts-
skóla og báðum finnst
landafræði skemmtileg-
asta námsgreinin. Þeir
eru mjög ánægðir með
snjóinn og ætla kannske
að byggja stærri höll
seinna.
HÆ KRAKKARS
Uansjón: Anna
Brynjúlffsdóttir
Litla kvöldsagan:
l,V
Nauðungaruppboð
sem auglýst var 161., 63. og 64. tbl. Lögbirtingablaös 1978 á
Bergstaöastræti 59, þingl. eign Margrétar O. Guömunds-
dóttur fer fram eftir kröfu Ara isberg hdl., Landsbanka
islands, Gjaldheimtunnar i Reykjavlk og Jóhannesar Jó-
hannessen hdl. á eigninni sjálfri þriöjudag 30. janúar 1979
kl. 15.30.
Borgarfógetaembættiö I Reykjavik
Nauðungaruppboð
sem auglýst var I 98., 101. og 103. tbi. Lögbirtingablaðs
1977 á Hjallavegi 32, þingl. eign Gunnlaugs Jónssonar fer
fram eftir kröfu Lifeyrissj. verslunarmanna á eigninni
sjálfri miövikudag 31. janúar 1979 kl. 11.30.
Borgarfógetaembættiö I Reykjavik
Nauðungaruppboð
sem auglýst var 142., 48. og 52. tbl. Lögbirtingabiaös 1978 á
hiuta I Hrísateig 1, þingl. eign Láru Hákonardóttur fer
fram eftir kröfu Landsbanka tslands og Gjaldheimtunnar
I Reykjavlk á eigninni sjáifri miövikudag 31. janúar 1979
kl. 13.30.
Borgarfógetaembættiö I Reykja vlk.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var I 61., 63. og 64. tbl. Lögbirtingablaös 1978 á
hluta I Fálkagötu 26, þingl. eign tvars Sveinbjarnarsonar
fer fram eftir kröfu Gunnars Sæmundssonar hdl. og
Bæjarfógetans I Kópavogi á eigninni sjálfri miövikudag
31. janúar 1979 kl. 10.30.
Borgarfógetaembættið i Reykjavik
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 29. 31. og 32. tölublaði Lögbirtingablaös-
ins 1978 á eigninni Smárahvammur 2, Hafnarfirði þingl.
eign Hvamms h.f. fer fram eftir kröfu Jóns Finnssonar,
hri., á eigninni sjálfri þriöjudaginn 30. janúar 1979 kl. 3.30
e.h.
Bæjarfógetinn I Hafnarfiröi.
SKJALDBAKAN, SEM
Einn dag fór
skjaldbaka í gönguferð.
Sólin skein og skjaldbak-
an leit upp í bláan, heiðan
himininn. Ég vildi að ég
gæti flogið upp í bláa
fallega himininn, hugsaði
hún. Hún horfði svo mikið
upp í loftið, að hún tók
ekki eftir bananahýðinu
sem lá fyrir framan
hana. En áður en hún
vissi af, hafði hún runnið
á bananahýðinu og hún
flaug upp í loftið. Hún
f laug hærra og hærra. Hæ
fuglar, kallaði hún. Sjáið
þið mig, ég flýg. Hér er
dásamlegt útsýni. En þá
FLAUG
fór hún að falla niður aft-
ur. Hún var hrædd um að
hún myndi meiða sig,
þegar hún kæmi niður, en
svo lenti hún á mjúkum
runna sem bærðist í gol-
unni.
Þarna slapp ég vel,
hugsaði skjaldbakan um
leið og hún féll mjúklega
niður í grasið. Það er
mjög gaman að fljúga,
sagði hún svo við sjálfa
sig, en ég held samt að ég
haldi mig við jörðina í
framtíðinni. Það er
öruggara fyrir skjald-
böku. Og svo hélt hún
leiðar sinnar.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var 142., 48. og 52. tbl. Lögbirtingablaös 1978 á
hluta I Nönnugötu 7 þingl. eign Ólaflu Pétursdóttur fer
fram eftir kröfu Llfeyrissj. verslunarmanna á eigninni
sjálfri miövikudag 31. janúar 1979 kl. 15.00.
Borgarfógetaembættiö I Reykjavik
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 61., 63. og 64. tbl. Lögbirtingablaös 1978 á
Armúla 40, þingl. eign Jaröýtunnar s.f. fer fram eftir
kröfu Magnúsar Þóröarsonar hdl. og Gjaldheimtunnar I
Reykjavlk á eigninni sjálfri þriöjudag 30. janúar 1979 kl.
15.00.
Borgarfógetaembættiö I Reykjavlk
allt er
þegar
þrennt er