Vísir - 30.01.1979, Blaðsíða 9

Vísir - 30.01.1979, Blaðsíða 9
VÍSIR ÞriOjudagur 30. janúar 1979 Or leikritinu ,/Geggjaöa konan í París Geggjun í KM skrifar: Ég er einn af þeim sem hafa átt áskriftarkort a6 sýningum i Iönó árum saman og hefur mér þótt þaö heppileg tilhögun. Annarsvegar vegna þess að það tryggir framkvæmd í stað fyrirætlunar og hinsvegar hefur leikritaval i Iðnó oftast verið til slikrar fyrirmyndar, að enginn hefur keypt köttinn i sekknum þó hann hafi fyrirfram keypt sig inn á allar sýningar leikhússins yfir veturinn. Mér hefur samt fundist upp á siðkastið vera komið vatns- bragð af menningargrautnum þar, þó það hafi fyrst keyrt um þverbak á siðustu uppfærslunni, Iðnó Geggjuðu konurnar i Paris. Hún er sú lélegasta sem ég hef séð og beinlinis til vansa fyrir leikhús- ið. Mér er fyrirmunað að skilja hvað stjórnar sliku leikritavali (varla húmor?), en hins vegar á ég von á að áskriftarkortum fækki næsta vetur ef leikhús- gestum verður boðið upp á meira af svona geggjun. Margir eiga i vandræðum með að fylla út framtalseyðublaðið sitt. Visismynd: ÞG. Telstsöluhagnaður af íbúð til tekna? Ein i vandræðum með skattframtalið hringdi: Ég hef verið að basla við skattframtalið mitt undanfarið og blaðauki Visis um skattfram- talið var mér mikil hjálp. En einu er ég ekki klár á. Og ég vil koma einni fyrirspurn á framfæri og vonast til aö fá svar við henni: Hver er söluhagnaður af eign- um, sem viðkomandi er búinn að eiga i sex ár? Hvernig kemur þetta út skattalega séð? Þetta var ibúð, sem við seld- um og höfum ekkert keypt i staðinn. Svar: Jón Sigurgeirsson, fulltrúi hjá Rikisskattstjóra, svaraði spurn- ingunni á þennan veg: Þetta ætti ekki að koma illa út skattalega séð fyrir ,,þá i vand- ræðum”. 1 tekjuskattslögunum, 7. grein, 3. málsgrein E-liðar stendur: „Agóði af sölu fasteigna, þar með talin sala náttúruauðæfa,og keypts réttar til nýtingar þeirra, telst að fullu til skatt- skyldra tekna á söluári, hafi skattþegn átt hina seldu eign i skemur en þrjú ár. Hafi skatt- þegn átt hina seldu eign i full þrjú ár en skemur en fjögur ár, skulu aðeins 3/4 hlutar ágóðans teljast til skattskyldra tekna. Hafi skattþegn átt eignina i full fjögur en skemur en fimm ár, skal aöeins helmingur ágóðans teljast til skattskyldra tekna. En hafi hann átt eignina i full fimm ár en skemur en sex ár, skal aðeins fjórðungur ágóðans teljast til skattskyldra tekna. Hafi skattþegn átt eignina I full sex ár eða lengur telst ágóðinn ekki til skattskyldra tekna”. Þátturinn vonar, að „Ein I vandræðum” sé ekki lengur i vandræðum og að þessar upp- lýsingar valdi henni ekki von- brigðum. Tökum að okkur viðgerðir og nýsmíði á fasteignum. Smíðum eldhúslnnréttingar ásamt breytingum og við- gerðum á eldri innréttingum. Gerum við leka vegna steypugalla Verslið við ábyrga aðila. Trésmíðaverkstæðið Bergstaðastræti 33 simi 24613 og 41070 9 % Bifreiðaeigendur Ath. að við höfum varahluti í hemla, i allar gerðir amerískra bifreiða á mjög hagstæðu verði, vegna sérsamninga við amerískar verksmiðjur, sem framleiða aðeins hemla- hluti. Vinsamlega gerið verðsamanburð. STILLING HF. Sendum gegn póstkröfu Skeifan 11 simar 31340-82740. húshyggjendur ylurinn er \3 Afgreiðum einangrunarplast á Stór-Reykjavíkursvæðið frá mánudegi — föstudags. Afhendum vöruna á byggingarstað, viðskiptamönnum að kostnaðar lausu. Hagkvæmt verð og greiðsluskilmálar við flestra hæfi. Borgarplast h f Borgarneril sfrni 93 7370 kwotdoa hclsammi 93 7355 SOJft BAUNA KJÖT NUTANA PRO er sojakjöt (unnið úr sojabaunum). Það bragðast líkt og venjulegt kjöt en inniheldur minna af fitu og meira af eggjahvítu- efnum. NUTANA PRO Uxakjöt Svínakjöt Fita: 3% 74% 73% Kolvetni: 38% 0% 0% Eggja- hvítuefni: 59% 26% 27% Venjulegur málsverður (um 150 gr.) af kjöti samsvarar um 410 hitaeiningum. Ef NUTANA PRO er notað í staðinn verður málsverðurinn aðeins 85 hitaeiningar! Gód heilsa ep gæfa feveps iaaRRS FAXAFEbb HF

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.