Vísir - 31.01.1979, Side 3
VISIR
Miövikudagur 31. janúar 1979 2
Aðild Fœreyinga að Norðurlandaróði rœdd í Stokkhólmi:
„HEFUR SÁRNAÐ AF-
STAÐA ÍSLENDINGA
segir Erlendur Patursson, lögþingsmaður í Fœreyjum
„Tillagan um fulla aöild Fær-
eyinga aO Norðurlandaráöi
kemur aftur á dagskrá þings
Norðurlandaráös sem haldið
verður I Stokkhólmi 19.-23.
febrúar. Mér hefur sárnað af-
staða Islendinga i þessu máli
hingaö til”, sagði Erlendur
Patursson, lögþingsmaður i
Færeyjum I samtali viö VIsi.
Erlendur sagöi að Færeying-
ar ættu ekki beina aðild aö
Norðurlandaráði heldur til-
heyrðu þeir dönsku nefndinni
þar sem Færeyingar ættu tvo
fulltrúa.
,,Um 1970 settum við fram
kröfu um beina aðild en hún
náði ekki fram að ganga. Viö
skoðum núverandi fyrirkomu-
lag alltaf sem bráðabirgöa-
lausn, enda hefur lögþing okkar
krafist beinnar aðildar”, sagði
Erlendur.
Hann sagöi að siðast heföi
þetta mál komið til atkvæöa á
Norðurlandaþinginu i Osló, en
tillaga um beina aðild Færey-
inga verið felld.
,,Þá greiddi Magnús Kjartans
son einn islensku fulltrúanna at-
kvæði með beinni aðild okkar.
Erlendur Patursson
Hinir sátu hjá eða greiddu at-
kvæði á móti. Þetta sárnaöi mér
mjög, en aö ööru leyti hefur
samstarfið viö Islendinga verið
ágætt. Nú er að vita hvað skeður
á þinginu I Stokkhólmi”, sagði
Erlendur Patursson.
—SG
Umsóknir um
netaveiðileyfi:
Svipaðar
og í fyrra
„Fjöldi umsókna um netaveiöi-
leyfi virðist vera svipaður og var i
fyrra”, sagði Jón B. Jónasson
deildarstjóri I sjávarútvegsráöu-
neytinu.
Jón sagöi að þaö hefði ekki
verið tekið saman hve marga um-
sóknir hefðu borist, enda gæfi sú
tala litlar upplýsingar um endan-
legan fjölda, þvi umsóknir gætu
verið að berast fram i marsmán-
uð. Enginn umsóknarfrestur er
gefinn og sækja bátarnir þvi um
leyfi jafnóðum og þeira fara út.
„Skylda okkar að standa
JJftf £ M M haft i för með sér mótaögeröir
við gerða samnmga
— segir Þórhallur Ásgeirsson
„Ég sé ekki, að það geti rétt-
lætt þá fullyrðingu, að ég sé
óvinur iðnaðarins, að ég telji að
standa eigi við gerða samn-
inga”, sagði Þórhallur Asgeirs-
son ráðuneytisstjóri I viðskipta-
ráðuneytinu, þegar Visir bar
undir hann ummæli ólafs Ragn-
ars Grimssonar i blaðinu þess
efnis, aö ráöuneytisstjórinn
væri fremstur i flokki þeirra,
sem hefðu lagst gegn frestun
tollalækkana og væru helstu
óvinir islensks iðnaöar.
„Þetta eru frjálsir samningar,
sem við gengum að vegna þess
að við töldum okkur hafa hag af
þvi, og þá er auðvitað skylda
okkar að standa við þá.
Ef við hinsvegar teljum okkur
ekki hafa hag af þeim lengur, er
spurning hvort eigi að segja
þeim upp. Ég held að menn sjái,
ef þeir athuga málið, að þaö yrði
ákaflega óhagstætt fyrir okkur.
Það hefur mikið gildi fyrir frek-
ari iðnþróun að hafa aðgang að
þessum tollfrjálsu löndum. Ein-
hliða frestun tollalækkana gat
serri sviftu okkur þeim friöind-
um sem við höfum haft.
Þó einhverjar iðngreinar
kunni aö hafa oröið fyrir áfalli
vegna aukinnar samkeppni álit
ég að þaö séu smámunir á móti
þvi sem áunnist hefur, vegna
þessara samninga.
Ég hef staðið i samningum viö
EFTA og Friverslunarbanda-
lagið og það er skylda hvers
embættismanns að láta i ljós
álit á hlutum sem hann hefur
sjálfur unnið að. Hinsvegar er
pólitisk ákvörðun tekin af ráð-
herra en ekki mér”, sagði Þór-
hallur Asgeirsson. —JM
KLASSÍK -POPP - KASSETTUR - JAZZ - LÉTT TÓNLIST - KLASSÍK - POPP - KASSETTUR - JAZZ
A1 ttk
Okkar landsfræga hljómplötuútsala: stendur
sem hæst. Við bjóðum upp á stórkostlegt
úrval af popptónlist, jazz, léttri tónlist,
klassik og kasettum.
F ALKIN N
Laugavegi 24, sími 18670 - Suðurlandsbraut 8, sími 84670 -
MEÐAL POPPTÓNLISTAR
ER AÐ FINNA:
BEE GEES
ANDYGIBB
TOIVI PETTY
BLUE OYSTER CULT
DARTS
DAVID GILMOUR
CHICAGO
FRANK ZAPPA
MOTORS
STRANGLERS
BOSTON
PLAYER
NEILYOUNG
KINKS
Kiss
BLACK SABBATH
STATUSQUO
COMMODORES
STEPHEN STILLS
ABBA
YES
GERRY RAFFERTY
WINGS
WHO
MOODY BLUES
GILLA
ALVIN LEE
ALLT AÐ
70%
AFSLÁTTUR
m>
POPP - KASSETTUR - JAZZ - LÉTT TÖNLIST - KLASSÍK - POPP - KASSETTUR - JAZZ - POPP