Vísir - 13.02.1979, Page 7
Otíuverkföll f Iran
á enda?
senn
Vonir eru nú vaknaðar til þess,
að olia Irans geti senn farið að
streyma aftur á heimsmarkaöinn
um leið og hinir nýju ráðamenn
landsins hafa náð fullum tökum á
málunum.
Skut ilsveinar Khomeiny
æðstaprests létu á sér skilja við
erlenda blaðamenn i gær, að
verkföllin i oliuiðnaðinum, sem
áttu svo mikinn þátt i að knýja
keisarann úr landi hlytu að enda
hvað Ur hverju.
Eftir þriggja daga uppreisn,
sem braut niður leifarnar af þeim
stuðningi sem keisarinn naut i
Iran er nú höfuöborgin i höndum
þúsunda óeiröaseggja og her-
flokka sem snerust i lið með upp-
reisnarrnönnum.
Bráðabirgðastjórn Mehdi
Bazargan hefur útvarpað til-
kynningum, þar sem borgarar
eru hvattir til þess að skila vopn-
um, er þeir hafa komiö höndum
yfir siðustu daga. Hann hefur nú
tilnefnt nýjan yfirmann herráðs-
ins, og nýja yfirmenn fyrir lög-
reglu og flugher. — Boðaö er, aö
skólar skuli hefja kennslu aö nýju
senn hvað liður.
I augljósri viöleitni til þess að
færa þjóðinni heim sanninn um,
að keisaraveldið sé liðið undir
lok, höfðu hinir nýju ráöamenn
sýningar á ýmsum æðstu em-
bættismönnum úr keisarastjórn-
inni. Tilkynnt var, að þeir mundu
dregnir fyrir byltingardómstól. —
Meöal þeirra var Nassiri hers-
höföingi, fyrrum yfirmaöur
Savak — hinnar marghötuöu
leynilögreglu keisarans. Hann
var dreginn fyrir sjónvarps-
myndavélar, blóöugur ásýndum,
af tveim borgurum, sem héldu
höndum hans fyrir aftan bak.
Skömmu siðar sýndi sjónvarpiö
inn I fangelsi Savak i Teheran og
útlistaði hvernig hin ýmsu
pyndingartæki höfðu verið notuö
á fangana.
Rikisstjórnir tveggja mestu
stórvelda heims, Bandarikjánna
og Sovétrikjanna, hafa báðar
viðurkennt bráöabirgðastjórn tr-
ans. Vekur athygli hversu fljót
Bandarikjastjórn sem studdi
stjórn keisarans i fjölda ára og
studdi staögengil hennar, stjórn
Bakhtiars, var fljót til aö lýsa yfir
stuöningi sinum við hina nýju
ráöamenn.
Þessi sfmamynd frá Portúgal f morgun sýnir glöggt, hvernig flóöin standa. Myndin er frá Porto og f bakgrunninum sjást vöruhús fram- •
leiðenda hinna frægu Porto-vfna eða púrtvfna, eins og þau eru kölluö hér.
FLÓÐIÐ í MITTISHÆÐ
Carlos Pinto, forsætisráðherra
utanflokkastjórnarinnar f Portú-
gal, á nú við sinn mesta vanda að
glfma á ellefu vikna löngum ferli
stjórnarinnar, en þaö eru fióðin.
sem miklum usla hafa valdið i
landinu.
Um 2.000 manns hafa misst
heimili sin I þessum flóöum og
vatnselgurinn hefur viöa rofið
bæði vega- og járnbrautarsam-
band. Viöa hafa oröið rafmagns-
truflanir og vatnsból höfuö-
borgarinnar hafa orðið nánast
ónothæf, svo að þar rikir skortur
á drykkjarvatni. — Þrennt hefur
farist i þessum flóöum.
1 Lissabon hafa starfsmenn
simans verið i verkfalli, sem tor-
veldaö hefur allt hjálparstarf, og
hafa þeir haft að engu fyrirmæli
ráðamanna um að hefja störf að
nýju.
Átök íChad
Hersveitir, tryggar forseta
Chad — Felix Malloum — virðast
hafa brotið á bak aftur byltingar-
tilraun Hissene Habre, forsætis-
ráöherra, eftir margra klukku-
stunda harða bardaga i höfuð-
borginni, N’Djamera.
Franskir fallhlifahermenn,
gráir fyrir járnum, voru kvaddir
til höfuðborgarinnar að vernda
útlendinga, sem þar eru búsettir,
og standa vörð um ibúðarhverfi
Evrópumanna, en þeirra á meðal
eru um 2000 Frakkar.
Bardagarnir i gær og i fyrra-
kvöld virðast hafa veriö lokaupp-
gjör i valdabaráttunni, sem stað-
ið hefur lengi milli forsetans og
forsætisráðherrans. Ekkert hefur
spurst um, hver orðiö hafi örlög
Habre. Þar til fyrir ári var hann
íeiðtogi Frolinat, skæruliðahreyf-
ingarinnar, en var vikið úr sam-
tökunum. Gekk hann þá I liö með
stjórninni.
Þyrlur stjórnarhersins réðust
á ibúðarhús Habre i gær, og
stjórnarhermenn umkringdu
uppreisnarmenn hans. Habre er
múhammeöstrúar og hefur reynt
að æsa múhammeösmenn upp
gegn Malloum forseta, sem er
kristinn.
Var farþegavélinni
grandað
með eldflaug?
Flugmálasérfræöingar flugu i
morgun að staðnum, þar sem Vis-
count-farþegavél Ródesiu brot-
lenti, en grunur leikur á þvi aö
svartir þjóðerniss innar hafi
grandaö henni meö eldflaug. — 59
manns voru um borð i vélinni og
komst enginn lifs af.
Með athugun á brakinu vonast
sérfræöingar til þess að geta
gengið úr skugga um, hvað muni
vera hið rétta i málinu. Talsmenn
bersins eruhinsvegar sannfærðir
um að vélin hafi verið skotin
niður meö SAM-7 flugskeyti.
24 grunaðir hafa verið teknir
til yfirheyrslu. Fimm þeirra úr
áhrifastöðum þessarar útflutn-
ingsverslunar, en hinir flestir
starfsmenn Ben Gurion-flug-
vallarins.
Lögreglan telur, að þjófn-
aðurinn teygi sig yfir fimm ára
timabil. Hefur hún endurheimt
aöeins hluta þessa þýfis, eða um
25 milljón dollara verömæti.
Forsvarsmenn verslunarinn-
ar bera brigður á skýrslur lög-
reglunnar, og telja, að andviröi
hinnastolnu demanta nemiekki
meiru en 25 milljónum dollara.
Njósnir innan Nato
Vikuritið, „Der Spiegel”,
hermir aö í sfðustu viku hafi
starfsmaður viö aðalstöðvar
Nato I Brussel, veriö handtekin
fyrir njósnir. Hin 38 ára gamla
Ingrid Garbe var einkaritari i
vestur-þýska sendiráöinu og
hafði aögang aö helstu leyndar-
málum stofnunarinnar. Þar á
meðal að svo nefndum
S ALT-viðræðum Rússa og
Bandarikjamanna. Frú Garbe
hefur verið starfsmaður innan
stofnunarinnar siðan 1971,
Listaverka-
þjófnaður
Fornu grfsku marmarahöföi,
meli 'uá 150.000 doliara var stolið
úr aðallistasafninu f New York,
en þar er mjög vandað öryggis-
kerfi. Er þetta f fyrsta skipti I
llOárasögu safnsins, sem stolið
er úr því.
Rannsaka hnetu-
kaupsýslu Carters
Alrfkislögreglan (FBI) I
Bandarlkjunum hefur sett endur-
skoðendur til þess að skoða i
saumana á hnetukaupsýslu
Carter-fjölskyldunnar I Georgiu,
eftir þvi sem segir i nýjasta tima-
riti „Newsweek”.
Segir þar, að það sé hliöarspor i
rannsókn dómsmálaráðuneytis-
ins á viöskiptaháttum Bert
Lance, fyrrum fjármálaráðherra
Carter-stjórnarinnar og vinar
Jimmy forseta. Blaöiö bætir þvi
þó við, aö ekkert liggi fyrir, sem
gefi til kynna, að hnetukaupsýsla
Carter-fjölskyldunnar sé á nokk-
urn hátt skuggaleg.
Bert Lance varð aö segja af sér
fjármálaráðherraembættinu i
september 1977 vegna fortiöar
sinnar i fjármálalífinu, sem þótti
ekki alveg flekklaus. Hann og
Carter voru nánir vinir.
Eftirmálar hóp-
sjálfsmorðania
Guyanastjórn hefur krafist
réttarúrskurðar um, aö inneign-
ir „musterisfólksins”, safnaðar
Jim Jones, I þrem bönkum
Guyana verði frystar, I von um
að hafa eitthvaö upp I kostnað,
sem yfirvöld höfðu af hópsjálfs-
morðum safnaðarins.