Vísir - 13.02.1979, Síða 10

Vísir - 13.02.1979, Síða 10
10 /HWiP' títgefandi: Reykjaprent h/f Framkvæmdastjóri: Davfö Guömundsson Ritstjórar: ólafur Ragnarsson Höröur Einarsson Ritstjórnarfulltróar: Bragi Guðmundsson, Elfas Snæland Jónsson. Fréttastjóri’ erlendra frétta: Guðmundur G. Pétursson. Umsjón meö Helaarblaði: Arni Þórarinsson. Blaðamenn: Axel Ammendrup, Edda Andrésdóttir, Jónfna Michaelsdóttir, Jórunn Andreasdóttir, Katrfn Pálsdóttir, Kjartan Stefánsson,Oli Týnes, Sigurður Sigurðarson, Sigurveig Jónsdóttir, Sæmundur Guðvinsson, Þor- valdur Friðriksson. Iþróttir: Gylfi Kristjánsson og Kjartan L. Pálsson. Ljós- myndir: Gunnar V. Andrésson, Jens Alexandersson. títlit og hönnun: Jón Oskar Hafsteinsson, Magnús Olafsson. Auglýsinga- og sölustjóri: Páll Stefánsson. Dreifingarstjóri: Sigurður R. Pétursson Auglýsingar og skrifstofur: Sföumúla 8. Slmar 86611 og 82260. Afgreiðsla: Stakkholti 2-4 sfmi 86611. Ritstjórn: Sföumúla 14 sfmi 86611 7 linur. Askrift er kr. 2500 á mánuöi innanlands. Verö i lausasölu kr. 125 eintakið. Prentun Blaöaprent h/f Rétt olíuverð og brýnar breytingar Þær olíuverðshækkanir, sem nú eru að koma til fram- kvæmda í olíusöiuríkjum hafa orðið til að hrella ráða- menn hér á landi, ekki síður en í nágrannalöndum okkar. Hækkanirnar bæta hér gráu ofan á svart, þar sem ef na- hagsvandinn er ærinn fyrir og landsfeðurnir hafa átt fullt í fangi með að leysa hann, þótt enn ein heims- markaðshækkun á olíuvörum hefði ekkí dunið yfir. En það vekur nokkra furðu, að leiðtogar þjóðarinnar skuli ekki hafa fylgst betur með þeirri þróun sem orðið hef ur upp á síðkastið á sviði olíuverðs en raun ber vitni. Forsætisráðherra sagði um helgina, að þetta væri svo geigvænlegt vandamál að sér félli allur ketill í eld. Mjög nákvæmir spádómar komu f ram um þessa þróun þegar í ágúst og september á síðasta ári, eða fyrir tæpu hálfu ári, og ætti því að hafa verið nægur umþóttunar- tími fyrir íslensk stjórnvöld til þess að bregðast við á skynsamlegan hátt, en menn hafa verið uppteknir af svo mörgu öðru undanfarna mánuði að þess er varla að vænta að þeir hefðu haft tíma til þess að sinna þessum málum, þótt þeir hefðu vitað um vandann í tíma. Að vísu skal viðurkennt að ástandið í íran hef ur eitthvað aukið á olíuverðshækkanirnar frá því sem búist hafði verið við. Þaðeina, sem hér hefur verið gerter að liggja á olíu- hækkunum í ríkisstjórninni eins og mögulegt hef ur verið og virðast menn alls ekki hafa viljað horfast f augu við þá hækkunarþörf, sem olíufélögin hafa reynt að sýna fram á. Auðvitað hefur ákvörðun um að hleypa þessum hækkunum inn í verðlagið alvarlegar afleiðingar, og nauðsynlegt getur orðið að gera ýmsar ráðstafanir sam- hliða slíkri ákvörðun. Forráðamenn olíufélaganna hafa skýrt frá því að þann tíma, sem olíur og bensín hafi verið selt undir kostnaðarverði, hafi safnast upp skuldir innanlands sem haf i nú um helgina numið milli 800 og 900 milljónum króna, og er áætlað að mismunurinn á kostnaðarverði olíuvaranna og söluverði nemi nú um 14-15 milljónum króna á dag að meðaltali. Slíkur bolti er f I jótur að hlaða utan á sig ef hann fær að velta miklu lengur, ekki síst vegna ríkjandi haftastefnu í verðlagsmálum og þess, hvernig innlend skattheimta magnar erlendar olíuverðshækkanir. Um verðlagning- una sjálfa ætti ríkisstjórnin að fara að fordæmi frænda okkar, Dana. Dönsk stjórnvöld hafa gefið olíufélögum þar í landi ieyfi til að hækka olíu- og bensínverð sjálf- krafa með tilliti til breytinga á innkaupsverðinu, en breytingar á því verða nánast daglega og því miður allar til hækkunar. Hugmyndir um að breyta grondvelli olíuverðsútreikn- inganna stef na sumar hver jar í rétta átt, þar á meðal sú hugmynd, að skattlagning ríkisins á hvern lítra olíu eða bensíns verði föst upphæð í stað prósentu af verði . Það er fráleitt fyrirkomulag, að ríkisstjóður hagnist á hverri hækkun á olíuverði erlendis eins og verið hefur. Sömu- leiðis er óeðlilegt að um það bil helmingur útsöluverðs á bensíni f ari beint í ríkiskassann, eins og nú er. Á meðan um þessar skipulagsbreytingar er fjallað þýðir ekki fyrir ráðamenn að stinga höfðinu f sandinn og forðast þannig að horfast í augu við olíu- og bens- inhækkanir á heimsmarkaðnum. Þær verða verðlags- yf irvöld að viðurkenna, jafnvel þótt það þýði í raun enn einu sinni, að ríkissjóður fái i sinn hlut hærri upphæð en olíuf urstarnir. Því sjálfvirka hækkunarkerfi er aftur á móti brýnt að Þriöjudagur 13. febrúar 1979 VISIR FRAMLAG REYKJA- VÍKURBORGAR TIL ÁRS FATLAÐRA '81 Sjálfsbjörg, félag fatlaðra i Reykjavik, efridi i fyrrahaust til aðgerða til þess að vekja athygli á vandamálum fatlaðra i höfuð- borg islands og raunar um land allt. Fór félagið fram á það að fá aðskiptast á skoðunum viö full- trúa þeirra fiokka, sem aðild eiga að borgarstjórn Reykja- vikur og var ákveðið að sá fund- ur skyldi fara fram á Kjarvals- stöðum. Jafnframt ákvað Sjálfsbjörg að fundurinn skyldi hafa aðdraganda, fatlaðir færui fylkingarbrjösti jafnréttisgöngu frá Sjómannaskóla tii Kjarvals- staða en tilgangurinn var sá aö kanna undirtektir borgarbúa. Þær reyndust jákvæðari en nokkur hafði þorað að gera sér vonir um: blööin töldu að um tiu þúsundir manna hefðu tekið þátt i göngunni eða fvlgst meö henni og tekið undir jafnréttis- kröfuna: ég hef ekki fregnir af hliöstæðum stuöningi við fatiað fólk I nokkru ööru landi. Inni á Kjarvalsstöðum blómgaðist þennan dag mikU bjartsýni með skjótum hætti. Fulltrúar allra flokka i borgar- stjórn kepptu hver við annan i yfirlýsingum um skilning á hög- um fatlaðra, stuðning við mál- stað þeirra og mikla hlýju. Svo mikil var bjartsýnin að ferli- nefnd fatlaðra sem hefur það verkefni að fylgjast með fram- kvæmdum utan húsa og innan og kanna hvort tekið sé tillit tU fatlaðra við gerð þeirra, bauðst til þess aöfesta upp merki í and- dyri Kjarvalsstaða sem sönnun hefur meltingarfæri og flest meira að segja þvagblöðru. „Leyfið börnunum að koma til min" Jafnréttisdagurinn i fyrra kom upp i huga minn á dögun- um, þegar ég las í blöðum að allir borgarfulltrúar i Reykja- vik virtust sammála um að breyta Austurbæjarbarna- skólanum i ráðhús. Hugmyndir um ráðhús i Reykjavik hafa alla tið verið torskildar, og verða væntanlega ekki skýrðar nema með hliðsjón af kenningum Freuds; ég minnist þess t.a.m. mjög vel þegar borgarstjórn Reykjavi'kur samþykkti ein- róma að byggja ráöhús úti i Reykjavikurtjörn, væntanlega við ljós draumsjóna um Fen- eyjar á Italiu og sætti færi að dagsetja samþykktina á afmæli borgarstjórans, sjálfs Gunnars Thoroddsens. Nú virðist borgar- stjórnin afturvera sammála um ráðhús þótt samþykkt hafi enn ekki verið gerð formlega enda veit ég ekki hvort Egill Skúli á stórafmæli i bráð. Astæðan til þess að hús Austurbæjarbarnaskólans virðist liggja á lausu er sú stgfna Reykjavikurborgar að þenja byggðina út um holt og grundir; éinkanlega holt, þar sem hægt er að hýsa fólk sem hæst ofan sjávarmáls, þar sem frost verða hörðust, rammastir vindar gnauða og félagslegur kostnaður reynist mestur. I - V ■ Magnús Kjartansson skrifar: „I engu húsi í Reykjavik af svipaðri stærð hefur ver- ið komið fyrir jafn-níðangurslegu tröppukerfi"og i Austurbæjarbarnaskólanum, þaðan sem þessi mynd er. þess að húsið fullnægði öllum þörfum fatlaðs fólks. Borgar- stjórn Reykjavikur þáði þessa viðurkenningu ogtók þar með á sig siðferðilega skuldbindingu. Eftir að Kjarvalsstaðir höföu tæmstað ioknum fundinum tóku verkamenn til við að jafria möl- ina fyrir framan húsið og afmá bráðabirgðabrautina sem fatlað fólk i hjólastólum hafði notað til þessaðkomast inn þó með hjálp ófatlaðra. Siðan hefur enginn fatlaöur maður, bundinn við hjólastól, komist inn á Kjar- valsstaði til þess að skoða merkið frá ferlinefndinni, gera vettvangskönnun I bitbeini skriffinna og listamanna, eða ganga örna sinna á salerninu sem lagfært var fyrir jafnréttis- daginn f fágætum skilningi þess að fatlað fólk i hjólastólum slíkum hverfum býr nú megin- þorri ungra foreldra i Reykja- vik ásamt börnum sinum en i hinni upphaflegu Reykjavik býr aldrað fólk ogfatlað og fær fæst að sjá barnabörnin sin nema endrum og eins. 1 hverfi þvi sem Austurbæjarbarnaskólinn átti að þjóna búa nú fá börn og er þá ekki tilvalið aðstugga þeim burt og breyta skólabyggingunni i ráðhús? En það væri einnig hægt að fara hina leiðina. Ef hinn sameiginlegi flokkameiri- hluti i Reykjavikurborg og rikisstjórn vildi væri sjálfsagt að breyta Hallgrimskirkju i sambýlishús handa barnmörgu ungu fólki. Siöan væri hægt að skrá á stórhýsin bæði hin fleygu orð Jesúsar Jósefssonar: „Leyfið börnunum að koma til Grein Magnúsar Kjartanssonar, fyrrv. ráðherra, fjallar sér- staklega um þær hug- myndir, sem uppi eru um að gera Austur- bæjarbarnaskólann að ráðhúsi fyrir Reykja- víkurborg. „I engu húsi í Reykjavík af svipaðri stærð hefur verið komið fyrir jafn níðangurslegu tröppu- kerfi", segir hann. „ Ef stjórnsýslukerfi Reyk- javíkurborgar yrði komið fyrir í þessari byggingu, væri komið á algeru torleiði milli fatlaðs fólks og skrif- finnskukerfis borgar- Jnnar." Framlag til órs fatlaðra? Annars voru það ekki skipu- lagsmál Reykjavikur sem komu upp i huga minn þegar ég las i blöðum um sameiginlegan áhuga allra borgarfulltrúa á ráðhúsi við Skólavörðuholtið heldur annað vandamál sem hefur verið áleitnara við mig siðustu árin. Þegar Austur- bæjarbarnaskólinn var byggður var það viðhorf algerlega rikj- andi að fatlaö fólk væri utan- garðsmenn i þjóðfélaginu og um það ætti alls ekkert að hugsa. 1 samræmi við það var skóla- byggingin teiknuð og byggð. I engu húsi i Reykjavfk af svipaðri stærð hefur verið kom- ið fyrir jafn niðangurslegu tröppukerfi, erfið þrep sem teygja sig stall af staíli með greinum upp í afkima i öUum áttum. Þetta tröppukerfi er ær- in torfæra fyrir ófatlað fólk á öllum aldri enda hafa margir faUasti skólanum, þótt tölur um það séu trúlega engar. Ef stjórnsýslukerfi Reykjavikur- borgaryrði komið fyrir i þessari byggingu væri komið á algeru torleiði milli fatlaðs fólks og skriffinnskukerfis borgarinnar, einnig þeirra stofnana sem eiga að sinna fötluðum, öldruðum, sjúkum og snauðum. Ráðhús Reykjavikur mundi þá bætast i hóp sem ærinn er fyrir, Al- þingishús, Stjórnarráð, Þjóð- leikhús, Tryggingastofnun rikisins, Norræna húsið og Þjóð- minjasafnið, svo að dæmi séu nefnd. Þjóðminjasafnshúsið var gjöf þjóðarinnar til sjálfrar sin i tilefni lýðveldisstofnunar — en auðvitað eru fatlaðir ekki hluti af þjóðinni. Samkvæmt blöðunum eru þetta þær hugmyndir sem nú eru i fyrirrúmi hjá borgarfull- trúunum sem héldu ræðurnar fögru á Kjarvalsstöðum i fyrra- haust. Kannski á þessi fram- kvæmd að verða framlag Reykja vikurborgar til árs fatlaðra 1981.

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.