Vísir - 24.02.1979, Blaðsíða 11

Vísir - 24.02.1979, Blaðsíða 11
Ólíkt hafast mennirnir aö. Einsog flestir vita — eöa ættu aö vita — er breskur plötusnúöur, Mickie Gee aö nafni, um þessar mundir aö gera tilraun til þess aö setja nýtt heimsmet i plötu- snúningi og komast þarmeö i hina frægu Heimsmetabók Guiness. Sem þýöir aö hann veröur aö snúa skifum stans- laust i a.m.k. 7 vikur og helst meir. Meöfram tilrauninni stendur Mickie Gee fyrir fjár- söfnun til styrktar dagheimili vangefinna barna aö Lyngási i Safamýri. Þessi söfnun ber yfir- skriftina „Gleymd börn ’79”. Þegar þetta birtist á Mickie Gee 34daga aö baki (og 16 eftir) ef hann stendur ennþá viö plötu- spilarana. Eftirfarandi viötal átti sér hinsvegar staö fyrir 10 dögum siöan (Helgarblaöiö veröur aö vinna fram i timann): Hálfgerö svefnganga Þegar viö hittum Mickie Gee á diskótekinu óöali, þar sem tii- raunin fer fram spyrjum viö auövitaö fyrst um lföanina. „Mér liöur alveg sæmilega, eftir atvikum. Þetta gengur svona i bylgjum: suma dagana liöur mér vel, aöra ekki. Yfir- leitt hef ég þaö gott.” — Ertu ekki oröinn ansi sybb- inn? „Ja, á nóttunni set ég breiö- skifu á fóninn og leggst fyrir og svo rétt áöur en plötuhliöin er búin kemur dómarinn og hristir mig og ég fer og set aöra á. Þetta er oft hálfgerö svefn- ganga og ef skipt hefur veriö um dómara á meöan ég svaf þá tek ég ekkert eftir þvi. Ennþá hef ég ekki oröiö brjálaöur viö aö vera vakinn. Þó hef ég vist stundum reynt aö snúa mér á hina hliöina, sem þaö þýöir ekk- ert. Ég hef gott aöstoöarfólk sem drifur mig áfram.” Mjólkog jógúrt — Þaö fylgist læknir meö þér, ekki satt? „Jú, hann kemur nú vikulega, en ég býst viö þvi aö þegar liöa fer á, komi hann tvisvar i viku og jafnvel á hverjum degi undir lokin. Þetta er ákaflega góbur læknir. Hann gerir þetta i góö- geröarskyni og vill ekki láta nafns slns getiö. Aörir aöilar eru mér einnig mjög hjálplegir t.d. Mjólkursamsalan sem færir mér mjólk og jógúrt á hverjum degi. Og svo auövitaö Óöal, — ég hef aldrei á ævi minni borbaö eins margar steikur á jafn- skömmum tima einsog þessa daga.” Geöveiki — Nú hefur þú vakaö lengi, — hefur þér aldrei fundist þú vera aö ganga af göflununi. b e.a.s. truflasi á geösmunum? „Þvi er ekki að neita, mér hefur stundum fundist þaö. Ég veu þó aó þaö er aðeins. imyndun. Tvö kvöld hafa þó verið dáldib slæm, þá fannst mér ég vera einhvers staðar annars staöar. En álagiö kemur einna helst fram i þvi að alls konar smáatriði fara aö skipta máli og angra mann t.d. ryk á nálinni og svoleiöis. Og ég hef nokkrum sinnum æst mig viö fólk útaf einhverjum hlutum sem ég heföi annars ekki gert. Þaö sagöi mér læknir áöur en ég byrjaði á þessu, aö mannslik- aminn stæöist ekki vöku I eina viku án þess aö fá fjögurra stunda samfelldan svefn. En i rauninni hef ég komið skipulagi á svefninn. Ég er meö tvær plöt- ur sem eru u.þ.b. 30 minútur á hlib og ég spila þær til skiptis nóttina á enda, þannig aö ég vakna alltaf meö jöfnu millibili. Og ég fæ bráðum plötu sem er 45 min. á hliö svo þetta kemur til meö aö verða enn betra. Ég hef alltaf veriö mikil svefnpurka og er þvl fljótur aö sofna þegar tækifæri gefst. Og ég hrýt, — þaö er merki um aö ég er I djúp- um svefni. Stundum dreymir mig meiraösegja. Þetta á þvi ekkert skylt viö fræga pynting- araöferö.” Eiturlyf og öfundsýki — Tekuröu nokkuö inn örv- andi lyf? „Nei, þaö er af og frá. Ég hef heyrt að þaö sé nokkuð útbreidd skoöun, aö ég hljóti aö neyta einhverra lyfja. Og þvi vil ég nota þetta tækifæri til þess aö lýsa þvi yfir aö þetta er meö öllu ósatt. Ekkert vin og engin eitur- lyf. Hinsvegar vantar þaö ekki, aö þaö er alltaf verið aö bjóöa mér „speed” eöa upp á glas. Sumir halda aö þaö hressi mann eitthvað. Ég drekk bara kaffi og mjólk, —reyndarhefég drukkið eitt koniaksstaup, vegna þess ég hélt þá aö ég væri aö kvefast. Annað ekki. Þaö ganga náttúrlega miklar kjaftasögur, þaö mátti sosum alveg búast viö þvi. Eina hef ég heyrt sem gengur útá þaö aö ég sofi I rauninni á nóttunni, og svo aö ég stundi hér ægilegt brenni- vinssukk og kvennafar. Menn hafa llka reynt aö skemma fyrir mér, meö þvi aö angra mig meö leiöindaglósum og stælum. En ég læt þaö ekkert á mig fá. Þeg- ar veriö er aö gera eitthvað óvenjulegt eru alltaf einhverjir sem eru aö drepast úr öfundsýki eöa ég veit ekki hverju. Einnig viröast sumir halda aö pening- arnir sem safnast renni beint i minn eigin vasa og segja: „Af hverju ættum viö aö gefa þér pening”, þegar ég er aö hvetja fólk til aö láta eitthvað af hendi rakna til Lyngáss. Svo hafa komið til min menn og reynt aö telja mér trú um, aö forsvars- menn Lyngáss muni bara fara á fylleri fyrir peninginn og mér sé þvi óhætt aö hætta þessum fifla- skap. Þaö er þó mikill minni- hluti sem lætur svona. Þessi viðleitni min hefur sem betur fer hlotið góöar og almennar undirtektir. Og það er þessi vel- vilji sem styrkir mig til dáða öðru fremur.” r :■-■ Maraþon-maðurinn á fullri .■ ■. Takmarkið 6 milljónir — En veistu nokkuö hvaö þú hefur safnaö miklu fé? „Siöast þegar ég vissi, var þaö eitthvaö I kringum ein milljón (Ath.: þetta er 14. feb.). En ég á von á þvi aö þaö aukist til muna þegar frammi sækir og hillir undir heimsmetiö. Tak- markiö er aö ná inn svona sex milljónum og ef þaö næst ekki finnst mér ég hafa eytt þessum tima og fyrirhöfnin veriö til einskis. 1 fyrstu var markiö 5 milljónir, þvi þá ætlaði ég aö vera aö I fimm vikur, þaö var gamla metiö. Svo frétti ég aö þvi heföi verið hnekkt, og væri nú 40dagar og ekki þýddi annað en aö lengja timann. En lengri timi þýöir meira fé. Og ég ætla lika aö halda þessu eins lengi áfram og ég get, svo metið veröi eitthvaö umtalsvert og erfiöara aö jafna þaö. En ég ætla ekki ab hætta söfn- uninni um leiö og heimsmetiö er sett. Ég hef hugsaö mér aö ganga þá milli fyrirtækja og reyna aö fá þau til aö láta eitt- hvaö af hendi rakna. Og ég hætti ekki fyrr en þessar 6 milljónir eru komnar, þó ég þurfi aö þræöa öll fyrirtæki landsins. Ég trúi heldur ekki ööru en þaö tak- ist, þetta er jú söfnun fyrir is- lensk börn.” Færeyingar fylgjast með — Veistu hvort þessi tilraun þin hefur spurst út fyrir land- steinana og fylgst sé meö henni annars staöar en hér? „Ja, Færeyingar fylgjast vist meö mér. Og ættingjar minir I Bretlandi vita náttúrlega af þessu, en þeir eru ekkert aö fara meö þetta I blöðin fyrr en metiö er I höfn, einsog skiljanlegt er. Þaö væri ekkert gaman aö blása þetta út og klikka svo kannski. En þaö fréttist örugglega þegar allt er yfirstaöið. Annar hef ég ekki svo miklar áhyggjur af þvi hvort þetta aflar mér heimsfrægöar eöur ei. Ég er aö þessu fyrst og sföast fyrir börnin að Lyngási. Og þetta skiptir heiminn i sjálfu sér engu máli, heldur Islendinga og þeirra „Gleymdu börn”. Viö reyndum aö ná samstarfi viö Sameinuöu þjóöirnar. þ.e. aö söfnunin færi fram I þeirra nafni og viö gætum verið meö boli meö merki barnaárs o.s.frv.. En þeir vildu ekki vera meö, þarsem söfnunin er eingöngu fyrir börn á Islandi, en ekki börn i vanþróuðu löndunum. Ég getekkiskiliö þessa afstööu: ég sé ekki aö inntak þessarar söfn- unar eigi ekki samleiö meö markmiöi barnahjálpar Sameinuðu þjóöanna á þessu ári.” Útvarpið stærsta diskótekið — En svo viö vikjum aöeins aö öðru, — hver er draumur plötusnúösins? Framhaid á næstu siöu rœtt við plötusnúðinn Mickie Gee

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.