Vísir - 20.03.1979, Síða 9

Vísir - 20.03.1979, Síða 9
VISIR Þriðjudagur 20. mars 1979. M I . V V * " ' ■ Matthildur Guömundsdóttir (t.v.) og Brynja Nordquist hafa sýnt i mörg ár,m.a. á öllum stærstu tiskusýningum sem haldnar hafa veriö I Laugardalshöli og einnig erlendis. Félagar í Model 79 eru fimmtán talsins, þar af tveir karlmenn. Á stefnu- skránni er að gera tísku- sýningar eins glæsilegar og kostur er á og í því skyni er ætlunin að sam- tökin eignist t.d. góð hljómf lutningstæki, Ijósaútbúnað, palla og dregla, sem hægt er að setja upp við erfiðustu aðstæður. En hingað til hef ur þurft að sækja alla þessa hluti til margra aðila sem hefur kostað mikla fyrirhöfn. Allan undirbúning undir sýningar vinnur hópurinn sameiginlega. Katrln Pálsdóttir, blaöa maöur. Jens Alexandersson, Ijósmyndari. Timamot i lískusyningum Áhorfendur á Hótel Sögu á sunnudaginn ráku upp stór augu þegar svartklæddar stúlkur hlupu fram á sviðið með stjörnuljós í báðum hönd- um. Það hafði verið til- kynnt að nú ætti tískusýn- ing að hefjast, en varla gat þetta verið f tengslum við hana? Jú, reyndar og það kom áhorfendum þægilega á óvart. Hér var á ferðinni fólk í nýstofn- uðum samtökum sýning- arfólks sem nefna sig Model 79. Margir félagar í samtökunum hafa starfað við tískusýningar i allt að tíu ár, bæði hér heima og erlendis. Sýnlngin var mjög líf- leg og skemmtileg og Model 79 er greinilega með nýjungar á ferð- inni, sem við höfum ekki séðhérá landi fyrr. Enda lét Ingólfur Guðbrands- son forstjóri Gtsýnar þess getið að lokinni sýn- ingunni að hún hefði markað tímamót í tísku- sýningum á islandi. Gest- ir á Útsýnarkvöldi tóku svo sannarlega undir það með lófaklappi. Hann hefur kosið sér stjórn sem í eru: Matt- hildur Guðmundsdóttir formaður, Skúli H. Gísla- son gjaldkeri,og Hólm- fríður Gísladóttir ritari, Helga Möller og Brynja Nordquist. —KP Fram komu ýmis atriöi sem viö eigum ekki aö venjast á tfskusýningum hérlendis. Á myndinni sjáum viö einnig Þorgeir Ástvaldsson sem var kynnir sýningarinnar og stjórnandi tónlistar. Visismyndir JA Þegar sýningin hófst voru stúlkurnar allar svartklæddar meö stjörnuljós i báöum höndum. Myndin er tekin rétt áöur en þær fara inn á sviöiö, þar sem Ingólfur Guö- brandsson forstjóri Útsýnar ræöir viö þær um atriöi sýningarinnar. Þaö var mikiö aö gera aö tjaldabaki áöur en sýningin hófst en undirbúningur undir sýninguna tók um tvo tfma f þetta sinn, fyrir utan æfingar fyrr um daginn. Sýningin var sérstaklega iffleg og þar komu fram margar nýjungar sem viö höfum ekki séö á tiskusýningu hér á iandi fyrr.

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.