Vísir - 20.03.1979, Blaðsíða 12

Vísir - 20.03.1979, Blaðsíða 12
12 Þriðjudagur 20. mars 1979 vtsnt vtsm Þriðjudagur 20. mars 1979, 13 ðLAFUR JÓHANNESSON MÆLTIIGÆR FYRIR FRUMVARPI SÍNU UM EFNAHAGSMÁL, SEM ALÞÝRUBANDALAGSMENN ERU ENN Á MÓTI: HNÍPNIR AB HLUSTA Á RÆÐU ÓLAFS „Frumvarp þaö sem ég nú flyt flyt ég sem þingmaður f þessari háttvirtu þing- deild og það á sér langan og merkilegan aðdraganda", sagði ólafur Jóhannesson, forsætisráðherra, i upphafi máls sfns þegar hann fylgdi úr hlaði frumvarpi sínu um efnahagsmál í efri deild í gær. Umræöum þessum var Ut- varpaö og fékk hver stjórn- málaflokkur eina klukkustund til umráöa. Þingmenn virtust ekki I neinu uppnámi þennan daginn og voru margir þeirra þreytulegir og daufir i dálkinn. Þegar forsætisráöherra hóf mál sitt, sem hann flutti af stóiskri ró, var hvert sæti skipaö i efri deild og þingpallar þétt- setnir, einkum af ungu fólki. Olafur Jóhannesson sagöi, aö ágreiningurinn um þetta frum- varp heföi komiö sér nokkuö á óvart, því fyllsta ástæöa heföi veriö til aö ætla aö samkomulag heföi veriö komiö á um þaö. Hann heföi kosiö aö þaö yröi flutt sem stjórnarfrumvarp og hann legöi þaö fram óbreytt i þeirri von, aö Alþýöubandalagiö legöi þvi liö þegar þaö heföi átt- aö sig. Mikið í mun að ekki slitni upp úr Þegar Ragnar Arnalds, sem talaöi einn af hálfu Alþýöu- bandalagsins, tók til máls, sagöi hann, aö flokki hans væri mikiö i mun aö ekki slitnaöi upp úr þessu stjórnarsamstarfi og þeir Alþýöubandalagsmenn mundu leggja sig alla fram um aö ná samkomulagi. Hinsvegar létu þeir ekki ganga yfir sig. Hann reifaöi siöan muninn á þessu frumvarpi og þvi, sem áö- ur haföi komiö fram, og skýröi þau atriöi, sem ágreiningur stæöi um. Hann lauk máli slnu á þvi aö undirstrika samstarfs- vilja Alþýöubandalagsins og sagöi aö allur þorri fólks vildi aö þessi stjórn sæti áfram. „Pólitískir geldingar" Allir fimm þingmenn Alþýöu- flokksins I neöri deild tóku til máls um frumvarpiö og var þeim meira niöri fyrir en öörum og bersýnilega þungt i huga til samstarfsflokks sins á vinstri vængnum. Talaö var um, aö gengiö heföi á ýmsu I stjórnarsamstarfinu og aö hin ábyrgöarlausu öfl heföu ráöiö of miklu. Þeir vildu láta reka á reiöanum, og aö þetta yröi ferö án fyrirheits. 1 Alþýöu- bandalaginu væru hugsjóna- menn i minnihluta, en vonandi væri aö þeir bæru hina pólitisku geldinga i flokknum ofurliöi. Þá var sagt aö þetta frum- varp væri mikill sigur fyrir Alþýöuflokksmenn, þvi svo margt I þvi væri samkvæmt stefnu hans. Veröur aö teljast vafasamt aö siikar yfirlýsingar séuséríegBjveltil þess fallnar aö auka á sáttfýsi Alþýöubanda- lagsins. Af hálfu Sjálfstæöismanna töluöu Ragnhildur Helgadóttir, Eyjólfur Konráö Jónsson og Jón Sólnes. Skrifuðu bréf og lásu blöð Þaö er athyglisvert aö fylgj- ast meö þingmönnum aö störf- um. Menn eru mikiö á feröinni og spjalla saman i göngum og hliöarsölum, eflaust um lands- ins og þingsins gagn og nauö- synjar. Einnig voru menn iönir viö aö taka til I skjalabunkanum á boröinu hjá sér og rifa upp bréf og skoöa hin ýmsu gögn. Einn þingmaöur sökkti sér niöur i Vikuna meöan forsætis- ráöherra flutti frumvarp sitt og aö minnsta kosti þrir þingmenn skrifuöu sendibréf, tveir i efri deild og einn I neöri. Tveir ungir menn, fimmtán og sextán ára, sem eru i starfs- kynningu á VIsi, voru meö blaöamanni og ljósmyndara i þinginu. Þeir höföu gaman af heimsókninni og geröu þaö sér til dundurs aö telja hvaö vantaöi aö jafnaöi marga þingmenn i salina. Þeir sögöu aö oftast heföi veriö fullsetiö I efri deild, en i neöri deild heföi jafnan vantaö tuttugu manns.stundum tuttugu og fjóra. Þeim fannst ámælisvert aö ekki skyldi vera setuskylda þegar mál væru tek- in fyrir og drógu af þvi þá álykt- un, aö þegar menn greiddu atkvæöi i málum eins og til dæmis um landbúnaöinn, sem þeir hlýddu á I neöri deild, þá hlytu þeir aö gera þaö sam- kvæmt flokksfyrirmælum en ekki af þvi þeir heföu kynnt sér málin. .íí:.xÁÍ Alþýðubandalagsþingmenn voru margir þungir á brúnina I þinginu I gær þegar ólafur Jóhannesson, forsætisráöherra, mæiti fyrir frumvarpi sinu um efnahagsmáiin. Hér sjást þeir Lúðvfk Jósepsson, formaður Alþýðubandalagsins (t.v.), Geir Gunnarsson formaður fjárveitinganefndar, og Helgi Seljan, alþingismaöur, hnipnir. « n|| W f M • ■ j W u \ Vandamálin framundan „Þaö gerist ekkert strax. Þetta veröur sett i nefnd, sem heyrist ekki frá fyrr en I fyrsta lagi eftir tiu daga, þvi þeir þurfa tima til aö brúa biliö, sem er á milli þeirra”, sagöi einn sjálfstæöisþingmaöur i samtali viö Visi. Alþýöuflokksmenn, sem viö var rætt, voru mismunandi haröir I afstööu sinni til hugsanlegra breytinga á frumvarpinu. Nokkr- ir vildu ekki giröa fyrir einhverj- ar breytingar, en aörir sögöu afdráttarlaust, aö ekkert nema minniháttar oröalagsbreytingar kæmii til greina. Þá væri stjórn- arsamstarfinu lokiö! Sjálfstæöismaöur sagöi aö stjórnin væri þegar búin aö gefast upp á aö ná veröbólgunni niöur i 30%, og þaö sem menn væru nú aö rifast um væri hvort hún ætti aö veröa 34% eöa 37%. Talaö væri nú um vinstri viöreisn til aö ráöa niöurlögum vinstri veröbólgu. Ölafur Jóhannesson heföi i raun gert sér vonir um, aö samstarfs- flokkum hans tækist aö fá ASf til aö setjast niöur og semja um nýj- an visitölugrundvöll. Heföi sú oröiö raunin á, heföi þessi stjórn átt fullan rétt á sér, en þaö heföi gersamlega mistekist. Annar sjálfstæöismaöur sagöi aö veriö væri aö deila um tvö prósent til eöa frá, en þaö væri alls ekki rætt um brýnustu vanda- málin, sem biöu þessarar rikis- stjórnar. Stærst þeirra á næstunni yröi þaklyftingin hjá BHM.sem ekki væri séö fyrir endann á hvaö heföi I för meö sér, 3% kauphækk- un BSRB j. april, og svo væri ekki endalaust hægt aö reka rikisfyrir- tækin meö halla mánuö eftir mánuö. Blaöamaöur hitti Ólaf Jóhannesson á göngunum og spuröi hvernig honum væri nú innanbrjósts þegar hann væri bú- inn aö leggja fram og mæla fyrir einkafrumvarpi sinu. „Mér liöur bara mjög vel” svaraöi hann og brosti blitt. —JM Þlngmenn úr neðri deild fylgdust sumir hverjir með umræðunum f dyragætt efri deildar. ólafur Jóhannesson flytur ræðu slna um efnahagsmálafrumvarpið á Alþingi f gær. „Mér liður bara mjög vel” sagði ólafur Jóhannesson og fékk sér kaffi eftir ræðufiutninginn. Benedikt Gröndal (t.v.) var kátur við hlið Geirs Hailgrlmssonar og Vilmundar Gylfasonar.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.