Vísir - 26.03.1979, Qupperneq 5
islenski burstabærinn á Skandinavlska torginu á Alþjóölegu feröamálasýningunni I Berlin 3.-11.
mars.
1
5
Rðöstefna um betra
umhverfl
1 tilefni barnaárs hafa Arki-
tektafélag Islands, Félag hús-
gagna- og innanhússarkitekta, og
félag íslenskra landslagsarki-
tekta ákveðið að hafa með sér
víðtækt samstarf til þess að
stuðla að betra umhverfi barna
hér á landi.
Fyrsti þáttur þessa samstarfs
er ráðstefna sem félögin gangast
barna
fyrir í Hagaskóla laugardaginn 7.
april, þar sem 15 aðilar sem
starfa að mismunandi þáttum
þessara mála halda fyrirlestra og
taka þátt i umræðum.
Þessi ráðstefna er öllum opin
og vilja félögin hvetja sem flesta
til að mæta og taka þátt i umræð-
um og koma ábendingum á fram-
færi.
-SS-
KANHIÐ ÆTTERHI
HUNDA (TÍMA
Að marggefnu tilefni vill
Hundaræktunarfélag Islands
benda fólki á að afla sér áreiðan-
legra upplýsinga um ætterni
hunda, hafi það hug á að kaupa
hreinræktaðan hund.
Ráðleggur félagið þessu fólki
að krefjast ættbókarskirteinis fé-
lagsins með hundum sem sagðir
eru hreinræktaðir og seldir sem
slikir. -SG
„ISLENDINGAR SKILJA
EKKI TÚRISMA”
- seglr Lúðvlk Hjálmtýsson framkvæmda-
stlðrl Ferðamálaráðs
„Ferðaiðnaður vex hraðar en
nokkur annar iðnaður i heimin-
um, þó það séu til slikir ein-
angrunarsinnar á Islandi að
þeir vilji engan ferðamann inn i
landið”, sagði Lúðvik Hjálm-
týsson framk væmdastjóri
Ferðamálaráðs, þegar hann
boðaði blaðamenn til fundar til
að kynna annarsvegar starf-
semi Ferðamálaráðs og hins-
vegar til að segja frá þrettándu
alþjóðlegu ferðamálasýning-
unni, sem haldinn var i Berlin
þriðja til ellefta mars og Island
var aðili að.
„barna var fólk frá öllum
heimsálfum þó mest hafi verið
frá Evrópu,og sóttu um tiu þús-
und og fimm hundruð atvinnu-
ferðamálamenn frá hundrað og
tiulöndum þessa sýningu. Þetta
er einskonar viðskipta-
markaður,kaupstefna,og teljum
við tvimælalaust mikinn árang-
ur af þátttöku.
Við Vorum staðsettir á
skandinavisku torgi ásamt hin-
um Norðurlöndunum þar sem
hvert land útbjó svæði sem á
einhvern hátt var táknrænt fyrir
það. Við vorum til dæmis með
burstabæ og Danirnir með krá.
Þeir sem tóku þátt i þessu voru
auk ferðamálaráðs Ferðaskrif-
stofa rikisins, og ferðaskrif-
stofurnar Atlantic, Samvinnu-
ferðir og Gunnar Jónsson.
Ég tel að það sé mikilvægt að
auka ferðamannastraum til
landsins og öll landkynning i þá
átt er jafnframt ávinnmgur
fyrir viðskipti og öll menningar-
leg tengsl.
Það er undarlegt hvað menn
geta verið hræddir við að út-
lendingar eyðileggi og troði
niður landið. Islendingar skilja
ekki túrisma. Beinar og óbeinar
tekjur af erlendum ferðamönn-
um voru á siðasta ári 10.3 mill-
jarðar, en aflaverðmæti loðnu
úr sjó sfðastliðna vertið nam 8-9
milljörðum.
Ég held að land sem búið er að
þola sauðkindina i 11 hundruð ár
þoli einn og einn ferðamann”,
sagði Lúðvik. jm
Sambyggt
útvarpkassettutæki
Lang
og miðbylgja
Bæði fyrir rafhlöður
eða venjulegan straum
Verð aðeins kr.
heimilistæki sf
PHIUPS
HAFNARSTRÆTI 3 — 20455 — SÆTUN 8 — 15655