Vísir - 29.03.1979, Síða 23
VÍSIR
Fimmtudagur 29. mars 1979
Umsjón:
Þorvaldur Friðriksson
Þaö koma fjórir menn í þáttinn
og svara spurningunni: „Hvaö
ræöur skiptingu manna í stjórn-
málaflokka?” sagöi Asgeir Bein-
teinsson, sem sér um þáttinn „Viö
erum öll heimspekingar” sem er
á dagskrá útvarpsins klukkan
20.05 i kvöld.
„Mér finnst þetta grundvallar-
spurning i tengslum viö þaö
hversvegna viö höfum svo mis-
munandi skoöanir aö oft getum
viö nánast ekki skiliö hvort
annað”, sagöi Asgeir. Þessir
menn sem svara spurningunni,
þeir Árni Bergmann, Gylfi Þ.
Gislason, Ólafur Björnsson og
Siguröur Gizurarson aöhyllast
mismunandi stjórnmálaskoðanir
og þá um leiö lifsskoöun og þess
vegna fékk þá til að koma i þátt-
inn.
Þetta er siöasti þátturinn af
fimm og i lok hans bið ég hlust-
endur að senda mér athugasemd-
ir eöa spurningar, ef einhverjar
hafa vaknaö, sem ég gæti þá
hugsanlega tekiö fyrir í einhverj-
um eftirmálaþætti. Annars er
litiðum viöbrögð hjá fólki sem
vinnur efni fyrir Utvarp og sjón-
varp. Þaðer eitt af þvi sem alveg
vantar í þessa menningu okkar
hér og það er útvarpsgagnrýni.
Þaö er ekki nóg aö kynna dag-
skrána þaö þarf að hafa eitthvaö
aöhald. Menn gagnrýna kvik-
myndir, leikhús, listsýningar og
hvaöeina. en þessir sterkl menn-
ingarmiðlar, sjónvarp og útvarp '
eru ekkert gagnrýndir, heldur fá
bara að vaöa áfram án þess að
vita hvort þeir hafa hitt i mark
eða ekki”, sagöi Asgeir. —JM
Asgeir Beinteinsson
HVAfl RÆflUR SKIPTINGU
MANNA í STJURNMÁLAFLOKKA?
- en Það er erfltt” seglr séra Þorstelnn
Bjornsson sem les Passíusálmana I útvarplnu
aö loknum fréttum I kvöld
„Lesturinn i kvöld veröur um
orð Krists á krossinum og er þaö
þritugasti og niundi lestur, en
reiknað er með aö siðasti letur
veröi fyrir skirdag’,’ sagöi séra
Þorsteinn Björnsson, sem les
Passiusálma i útvarpinu aö lokn-
um fréttum klukkan 22.30 i' kvöld.
„Mér hefur þótt vænt um þetta
verkefiii, en þaö er þó dálitið
erfitt” sagöi Þorsteinn. „Ég held
að lesari Passiusálmanna þyrfti
aö kunna þá utan að til aö hafa
vald á þeim. Ég hef nú lesið þá
eftir venjulegum framburöi, en i
þeim eru ýmis orö sem eiga að
rima saman eins og, tu aæmis, ég
og mjög, og þaö þarf sérstakan
framburö til aö svo sé.
Þaö hafa ýmsir lesiö Passiu-
Sálmana gegnum árin en
pinhverra hluta vegna hefur veriö
gengið framhjá leikurum. Ég veit
að Lárus Pálsson ympraöi
einhverntima á þvi aö hann hefði
áhuga á að lesa þá iútvarpiö en af
þvi varð aldrei. Hann haföi
einstaklega góða rödd og fram-
burð og þaö heföi verið gaman aö
eiga Passiusálmana til meö hon-
um á spólu” sagði séra Þorsteinn.
—JM
Séra Þorsteinn Björnsson
„Þykir vænl um
Uella verkefnl”
Helga Stephensen, um-
sjónarmaöur þáttarins „Lagið
mitt”.
„Bðrnin úti
á landi
dugieg
að skrifa”
„Þaö er búiö aö lengja þáttinn
um tiu minútur og ég er auövitaö
kát yfir þvi,” sagöi Helga Þ
Stephensen, sem annast þáttinn
„Lagið mitt” sem er óskalaga-
þáttur fyrir börn og er á dagskrá
klukkan 16.20 i dag.
„Þátturinn i dag er sá fyrsti
eftir þessa breytingu og stendur
þvi i fimmtiu minútur en aörir
poppþættir eruheila klukkustund.
Mér finnst þaö vel við hæfi aö
gera börnunum jafnhátt undir
höfði og öörum aldurshópum, þvi
þau hafa ekki siöur gaman af
svona þáttum. Þaö berast alltaf
miklufleirikveöjur en komast aö,
og þvi er þessi lenging kærkomin.
Vinsælust i þættinum uppá siö-
kastiö hafa veriö lögin úr Grease
og tvö lög meö Björgvin Halldórs-
syni, Eina ósk, og Ég fann þig.
Eins er alltaf beöiö mikiö um lög
af plötunni Börn og dagar
Þaö berastupp i fimmtiu bréf á
viku og krakkar úti á landi eru
mjög duglegir aö skrifa. Oft
skrifa foreldrar fýrir börn sin, en
mér finnst mest gaman aö þeim
bréfum sem börnin skrifa sjálf.
Þau eru miklu persónulegri”,
sagöi Helga.
—JM
útvarp
12.25 Veöurfregnir. Fréttir.
Tilkynningar. Viö vinnuna:
Tónleikar.
14.30 Námsgreinar I grunn-
skóla : — þriöji þáttur Birna
Bjarnleifsdóttir tekur til
umfjöllunar mynd- og hand-
mennt, svo og tónmenntir.
Rætt viö námstjórana Þóri
Sigurösson og Njál Sigurös-
son
15.00 JVliödegistónleikar:
Hljómsveitin Harmonien i
Björgvin leikur Hátiöar-
pólonesu op. 12 eftir Johan
Svendsen: Karsten Andgr-
sen stj. / Streng jasveit Phil-
harmoniu leikur Holberg-
svitu op. 40 eftir Edvard
Grieg: Anatole Fistoulari
stj. / Filharmoniusveitin i
Vin leikur Sinfóniu nr. 7 i
C-dúr eftir Jean Sibelius:
Lorin Maazel stj.
16.00 Fréttir. • Tilkynningar.
(16.15 Veöurfregnir).
16.20 Lagiö mitt-
17.20 (Jtvarpssaga barnanna:
„PoUi, ég og allir hinir” eft-
ir Jónas Jónasson Höfundur
les sögulok (8).
17.40 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veöurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Fréttaauki. Til-
kynningar.
19.35 Daglegt mál Árni
Böðvarsson flytur þáttinn
19.40 lslenskir einsöngvarar
og kórar syngja
20.05 Viö erum öll heim-
spekingarFimmti og siöasti
þáttur Asgeirs Beinteins-
sonar um lifsskoöanir. Arni
Bergmann,. Gylfi Þ. Gisla-
son, Ólafur Björnsson og
Siguröur Gizurarson svara
spurningunni: Hvaö ræöur
skiptingu manna i stjórn-
málaflokka?
20.30 Samleikur I útvarpssal
21.00 Leikrit: „Zykoff-fólkiö”
eftir Maxim GorkiÁöur út-
varpaö 1959.
22.20 Einsöngur I útvarpssai
22.30 Veöurfregnir. Fréttir.
Dagskrá morgundagsins.
Lestur Passiusálma (39).
22.55 Vfösjá: Friörik Páll
Jónsson sér um þáttinn.
23.10 Afangar
23.50 Fréttir. Dagskrárlok.
Sjálfsskynjun við
hlið náttúruafla
Þá duttu mér nú allar dauöar
lýs úr höfði þegar ég las forustu-
grein Tímans i gærmorgun. Þar
er menningarpólitlk kommún-
ista tekin til bæna meö tilþrifum
sem á stökustaö ná til þess, sem
kalla mætti menningarpólitik
Framsóknar.
Til meöferöar er einhver
kvenmaöur, sem kallaöur er
„gáfaöur og hámenntaður bók-
menntafræöingur”, og veit eng-
inn um hvern er rætt nema aö
hinn gáfaöi og hámenntaði
skrifar í Þjóöviljann. Eru menn
helst að geta sér þess til aö átt
sé viö Silju Aöalsteinsdóttur,
sem ekki hefur I manna minn-
um veriö tekin alvarlega, nema
þá af kaþólikkum og kommún-
istum. Trúnaöarmenn Lúthers á
íslandi hafa yfirleitt ekki látiö
sig neinu skipta hvernig þeirri
konu liöur, eöa innræti hennar,
gáfum, menntun og bókmennta-
rjTii. Afturá mótihafaþeir ver-
iö veikir fyrir þvi aö allt sem
skrifaö er i Þjóöviljann sé gáfaö
oghámenntað. Væriég ritstjóri
Tfmans mundi ég gera allt sem i
mínu valdi stæöi til að fá slíkt,
specimen” til aö skrifa 1 flokks-
málgagniö til aö vega upp á
móti Dufgusi, Halldóri á Kirkju-
bóli og Viöavangi.
Asteitingarsteinn aö þessu
sinniersú setning hinnar gáfuöu
bókmenntakonu Þjóöviljans aö
„Félagi Jesús” sé „gott mót-
vægi viö einhliöa kristinsdóms-
fræðslu”. Ersiðan leitaö frekari
dæma um mótvægi, eins og
kanasjónvarp við móöurmáls-
fræðslu, glæpamyndii- viö
mannasiöum og eiturlyf viö
heilsufari. Ritstjórnarfulltrúi
Lúthers á Timanum er sem sagt
ekki alveg ánægður meö aö gáf-
uö og menntuð bókmenntakona
Þjóöviljans skuli telja aö gefa
þurfi út siðlausa bók meö
sænsku rövli til mótvægis viö
kristindómsfræðsluna 1 landinu.
Nú er þaö vitaö mál, aö kirkj-
an er sokkin niöur f eymd og af-
skiptaleysi fyrir aösókn
hinnagáfuöu menntuöu og bók-
menntasinnuöu Þjóöviljaljósa,
sem viröast samkvæmt oröanna
hljóöan álíta aö hér þurfi fjöl-
þættari kristindómsfræöslu, ef
þaö mætti t.d. veröa til þess aö
koma kenningum Lenins og
Stalins i bland viö trúarjátning-
una. Aratuga langt hnoð viö
kirkjuna hefur litiö sem ekkert
vakiö hana til andsvara. Prest-
ar eru eins og hnipnar rjúpur I
stólnum og telja sig ekki mega
standa fyrir svörum, kannski
vegna þess aö þeir halda aö hér
sé um pólitfk aö ræða.
En fleira en „Félagi Jesú”
kom útfyrir siöustu jól, sem lýt-
ur aö barnafræöslunni i landinu.
Má þar nefna „Tvibytnuna”,
sem kom út hjá löunni, sem nú
hefur ráöiö Gunnar Stefánsson,
sem eflaust er lika gáfaöur og
hámenntaöur bókmenntamaö-
ur, til aðskrifa lofsyröiá bókar-
kápur. Þar er lýst fyrir ungling-
um hvaöa kynvillutaktar séu
heppilegir.
Ætli svo fulltrúar Lúthers aö
halda áfram aö kynna gáfaöa og
hámenntaöa bókmenntarýna
Þjóöviljans, væriekki úr vegi aö
þeir bæöust enn formlegar af-
sökunar á þvi aö vera á annarri
skoðun en Þjóöviljagæsknin.
Jafnframt væri gott aö Tfminn
skýröi nánar, þaö sem hann
kallar „þungamiöju I sjálfs-
skynjun mannsins viö hlið
náttúruaflanna andspænis
frumglæöi ljóss, lifs og verald-
ar”. Þaö er alveg eins og Pétur
regluboöi sé aftur tekinn til viö
aö skrifa, nema þetta séu ein-
hverjar duldar meiningar til
Silju Aöalsteinsdóttur um
þungamiðju hennar sjálfrar,
sjálf sskyn jun hennar og
náttúruafl. Nema þetta sé stolið
úr „Félaga Jesú" til þess eins
aö rugla trúnaöarmenn Lúthers
i riminu. og voru þeir þó ekki
sterkir fyrir.
Svarthöföi