Vísir - 20.04.1979, Síða 9

Vísir - 20.04.1979, Síða 9
Föstudagur 20. april 1979. Villan um slg grefur Stefnuskrá Verkamanna- flokksins vegna kosninganna sem verBa hér i Bretlandi 3. mai næstkomandi hefur vakiB at- hygli. Ekki er þaB fyrir þær sak- ir aB hún hafi aB geyma róttæk- ar tillögur. Þvert á móti hafa menn tekiB eftir þvi aB slikar til- lögur er þar ekki aB finna. Þetta var aB minnsta kosti túlkun bresku blaBanna. En hversu réttmætt er þaB álit? Ef stefnuskrá Verkamanna- flokksins er lesin getur vissu- lega ekki aB lita róttækar tillög- ur i sósiallskum anda. Þetta plagg er fullt af almennum at- hugasemdum og setningum, sem túlka má á allan hátt. Hún er dæmigerö sambræösla. Eng- inn er ýkja ánægöur, en enginn er heldur sérlega óánægöur, meB stefnuskráryfirlýsingu Verkamannaflokksins. Mislit hjörð AB minum dómi endurspeglar þetta plagg ástand mála i Verkamannaflokknum. Flokkurinn er þverklofinn. Inn- an hans starfa menn meö gjör- ólik lífsviöhorf. Foringjar flokksins eru flestir jafnaBar- menn, samkvæmt heföbundinni skilgreiningu þess orBs. Kjör- dæmisráBum, og landsstjórnum er stjórnaö af miklu vinstri sinnaöri mönnum, sem oft vinna einnig meö stjórnmálaflokkum er starfa yst til vinstri i bresk- um stjórnmálum. I Verkamannaflokknum er mislit hjörB. Og innan hans eins og raunar i Ihaldsflokknum starfa skipuleg samtök er vilja túlka stefnu flokks sins á mis- munandi hátt. í Verkamanna- flokknum eru þaB einkum tveir slikir hópar er látiö hafa aö sér kveöa á undanförnum mánuBum. Þaö er sá hópur er kallar sig Tribune hópinn og samanstendur af vinstri mönn- unum i flokknum. Hitt eru Bandalag jafnaöarmanna (Social Democratic Alliance). Vaxandi vegur vinstri manna Þaö er áberandi aö á undan- förnum árum hefur vegur hinna vinstri sinnaöri innan Verka- mannaflokksins fariö mjög vax- andi. Þeim hefur tekist meö vel skipulögBu starfi, aB ná undir sig flestum valdastofnun- um flokksins. Afleiöingin er sú til dæmis aö æ fleiri þingmenn 'koma úr rööum Tribune-hóps- ins. Þingmenn eru valdir af kjördæmisráöum flokkanna hér i Bretlandi og sést vel af þvi hversu valdamikil þau geta veriö. I grein sem Douglas Eden einn af leiötogum Bandalags jafnaBarmanna' reit I Daily Telegraph 11. april greinir hann frá nokkrum athyglisverBum staBreyndum þessa máls. Hann segir til dæmis aö ekkert sýni betur vaxandi styrkleika vinstri manna innan Verkamanna- flokksins en val á leiötoga flokksins áriö 1976. Leiötogi flokksins var kosinn i tveimur umferBum. I fyrstu umferö, fengu aöalframbjóöendur vinstri manna alls um fjörutlu prósent atkvæöa. Og i lokaum- feröinni fékk róttæklingurinn Michael Foot aöeins 39 at- kvæöum færri atkvæöi en krat- inn James Callaghan. Meö öörum oröum: Ef tuttugu þeirra er kusu Callaghan heföu þess i staB stutt Foot, væri Verka- mannaflokkurinn nú undir for- ræöi últravinstri mannsins Michael Foot. Róttæklingar i stað krata Ennfremur segir Douglas Eden i þessari grein aö talsverB brögö séu aB þvl aö þegar hinir hægfara jafnaöarmenn láti af þingmennsku, komi róttækling- ar i þeirra staö. Þessi fullyrBing hans, kemur heim og saman viö ýmsar blaöafrásagnir i vetur. Þar hefur veriB hermt aö vinstri menn i kjördæmisráBum Verka- mannafiokksins hafi hvaB eftir annaö reynt aB reka þingmenn slna og koma vinstri sinnaBri mönnum aB I þeirra staö. Svo rammt kvaö aB þessu i vetur aö einn þekktasti þingmaöur Verkamannaflokksins Harold Lever, sem jafnframt er helsti ráögjafi Verkamannaflokksins I efnahagsmálum, átti undir högg aö sækja, vegna ágangs vinstri mannanna i kjördæmi hans. Eitt atriöi enn sem Douglas þessi Eden vekur athygli á er aö vinstri menn hafa plantaö sér i framboö I þeim kjördæmum þar sem lhaldsmenn halda þing- sætinu meB litlum meirihluta. Þannig eru róttæklingar I fram- boöi fyrir Verkamannaflokkinn, i þeim fimm Ihaldskjördæmum þar sem mjóst er á mununum. Verkamannaflokkurinn þyrfti einungis aö auka fylgi sitt um eitt prósent til þess aö átta af þrettán nýjum þingmönnum flokksins veröi menn sem koma úr vinstri armi hans. Árásir á Callaghan Þaö er augljóst af öllu aö leiötogar vinstri aflanna i Verkamannaflokknum gera sér ljósa stööu sina. 1 vetur hefur þaö veriö áberandi hversu deil- ur á milli vinstri manna og krat- anna innan Verkamannaflokks- ins hafa veriö tiöar. Helsti leiö- togi vinstri mannanna, Tony Benn iönaöarráöherra hefur ekki látiö neitt tækifæri ónotaö til aö skeyta skapi sinu á Callaghan forsætisráöherra. Hann og fylgismenn hafa lagt fram sérstakt fjárlagafrum- varp I þingflokkunum þar sem gert er ráö fyrir stórauknum rikisbúskap og svo framvegis. Ennfremur hafa þeir skamm- ast út i afstööu flokksins gagn- vart Efnahagsbandalaginu. Tony Benn gekk jafnvel svo langt núna á dögunum aö kenna EBE um allt þaö sem miöur heföi fariö I bresku þjóöllfi. Meö þessu veitti hann flokksmönn- um sínum mörgum rækilega ofanigjöf vegna þess aö innan Verkamannaflokksins voru margir öflugir stuöningsmenn aöildar Breta aö EBE. Meöal þeirra sem eru fylgjandi aöild- inni eru menn eins og Callaghan forsætisráöherra og David Owen utanrlkisráöherra. Vínstri menn viðbúnir Meö framferöi sinu er ljóst aö Jemes Callaghan. forsætisráöherra Breta, kemur út úr bústaösinum viö Downing stræti. A bak viö krataleiötogann Sólskins-Jimma er skuggi vinstri manns- ins Tony Benn. vinstri menn vilja hafa fritt spil á hendi aö loknum kosningum. Ef Verkamannaflokkurinn bíður lægri hlut fyrir ihalds- mönnum geta þeir sagt sem svo: þetta sögðum viö. Stefna flokksins fellur ekki kjósendum i geö. Þaö veröur aö skipta um forystu og stefnu. — Þess ber ennfremur aö gæta aö Callaghan er oröinn nokkuö full- oröinn og fæstir búast viö aö hann ætli aö gegna forystuhlut- verki öllu lengur. Þegar til leiö- togakosninga kemur viröist enginn hinna hægfara vera öörum fremur kjörinn til þess aö gegna forystuhlutverkinu. Vinstri maöurinn Tony Benn ætlar sér hins vegar örugglega stóran hlut. Vinstri armur Verkamannaflokksins gengur þvi vel undirbúinn til leiks. Hvernig svo sem kosningarn- ar fara að þessu sinni munu þær valda tímamótum I Verka- mannaflokknum. Allt bendir til þess aö hinir róttækari muni auka itök sin. Þess vegna veröur fróölegt aö fylgjast meö framvindu mála innan Verka- mannaflokksins á næstu misserum og árum. I viðara samhengi Skoöun min er sú aö ástæöu þessarar þróunar innan Verka- mannaflokksins megi skilja ef litiö er á hana i viðara sam- hengi. AB minum dómi eru afl- vakar þessarar þróunar þeir sömu og aö myndun hins svo kallaöa Evrópukommúnisma. Evrópukommúnismi er litið annaö en breytt hernaðartaktík sósialista og kommúnista á meginlandi Evrópu. Sömu sögu er aö segja um Bretland. Munurinn er einungis sá áö i Frakklandi og á Italiu eru kommúnistaflokkarnir stórir og vel skipulagöir. 1 Bretlandi er hann lítill og fer ört minnkandi. Lengi vel voru þessir kommúnistaflokkar nátengdir Sovétrikjunum, beinum skipu- lagsböndum. Þó svo sé ekki lengur, er enn ekki dautt i hin- um gömlu glæðum. Forystu- mönnum þessara flokka er ljóst aö flokkar þeirra hafa goldiö framferöis Sovétrikjanna. Þess vegna hafa þeir breytt um bar- áttuaöferö. Vegna styrkleika sins hafa kommúnistaflokkarn- ir I Frakklandi og á Italiu getaö starfaö undir sama nafni. I Bretlandi er annaö uppi á teningnum. Ný hernaðaráætlun Engum dettur I hug aö Kommúnistaflokkur Bretlands fái mann kosinn i lýöræðisleg- Einar K. Guöfinnssón skrifar frá Bretlandi um kosningum. Sömusögu er aö segja um aöra flokka lengst úti á vinstri kantinum. Eina leiöin fyrir vinstri menn i þessum flokkum til aö komast til áhrifa er aö ganga i Verkamanna- flokkinn. I húsi hans viröast rúmast allar skoöanir. Hvort sem menn kjósa aö kalla sig marxista, trotskyista eöa eitt- hvaö annaö eiga þeir vist at- hvarf i Verkamannaflokknum. Douglas Eden, sem fyrr er vitnaö til, segir aö margir þeirra sem núna gegni áhrifa- stööum fyrir Verkamannaflokk- inn, heföu ekki einu sinni fengiö inngöngu i flokkinn fyrir nokkr- um árum. Smám saman hefur aöstaöa þessara vinstri manna batnaö innan flokksins og þeir eru vissulega orönir þaö afl núna, sem erfitt er að ganga framhjá. Einu sinni heföi þaö ekki þótt hæft fyrir viröulega þingmenn Verkamannaflokksins aö starfa náiö meö kommúnistum ýmiss konar. Núna er þaö daglegt brauö aö þingmenn þessa flokks skrifi i málgögn kommúnista, tali á fundum á þeirra vegum og svo framvegis. Þannig breytist siöferðiskenndin og hin pólitiska vitund innan Verkamanna- flokksins smám saman. Gæti orðið i höndum þeirra Ég vitnaöi til kosningaplaggs Verkamannaflokksins i upphafi greinar minnar. Hiö almenna oröalag þess gerir þaö aö verk- um aö auövelt er aö túlka þaö á alla vegu. Þaö hentar Verka- mannaflokknum ágætlega aö þaö sé kallaö hægfara eöa eitt- hvaö álika fyrir kosningar. Þetta gera hinir vinstri sinnuðu sér ljóst. Þess vegna sætta þeir sig viö túlkun Cailaghans á plagginu. Aö loknum kosningum hyggjast þeir sjá til. Staöa þeirra verður án efa þá sterkari en nú og ef mögulegt er láta þeir örugglega sverfa til stáls. 1 höndum þeirra getur slétt og fellt krataplaggið heldur betur breytt um svip. —EKG

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.