Vísir - 20.04.1979, Side 16
vism ' Föstudagur 20. april 1979.
Umsjón:
Sigurveig
Jónsdóttir
Endurfundlr
Ljósmyndun er skemmtilega
margræö. HUn gefur i meginþátt-
um tvo möguleika. Annars vegar
sem heimild um sekúndubrotsög-
unnar, öörum til skoðunar, minn-
ingareða sönnunar, og hins vegar
er svo hin listræna beiting þegar
það, sem upp er stillt eöa inn er
raðað myndar heild, sem vekur
með manni tilfinningu. Þessa
einu sem fer I gang þegar einhver
strengur lffshörpunnar er sleginn
af skynfærunum er þau meðtaka
listina.
Svo eru sumir myndasmiöir,
sem ná að sameina þessa tvo
þætti, ná listrænu handbragði Ut
úr sögulegum atburöum. Nú veit
myndlist
P j e t u r Þ.
Maack skrifar
um ljósmyndir.
■■■■■■
ég ekki, en ég held að ætlun
fréttaljósmyndaranna hafi ein-
mitt verið þessi samtvinning. Ég
hef nefnilega oft heyrt þá lýsa
skotinu góöa sem allir virtust sið-
an keppast við að eyðileggja fyrir
þeim. Fyrst var filman framköll-
uð I einhverju sulli því það þurfti
að flýta sér i stressi blaða-
mennskunnar. Ef myndin komst
nokkuð þokkalega þar I gegn þá
var hún klippt og skorin til að
passa við annaö efni, venjuiega
prentað mál, sem á siðuna var
sett og skipaði lengst af veglegri
sess hjá bókaþjóöinni. En ég
minnist samt ágætra mynda frá
þeim öllum viö aðskiljanleg tæki-
færi, mynda sem sögðu miklu
meira en prentaða máliö, sem
þær urðusvo oft að vikja fyrir. Ég
mætti þvi spenntur út i Norræna
hús, nú réöu ljósmyndararnir
sjálfir skurði, uppsetningu og
öðrum frágangi. Ég tek nefnilega
undir um með þeim, sem segja,
að vel unnin mynd er alltaf betri
en illa gerö.
Sýning fréttaljósmyndara er
stór og mikil. Rúmlega 200 mynd-
ir hanga á veggjum Norræna
hússins til og með 25. aprfl.
Heildaryfirbragö sýningarinnar
er ágætt. Myndir unnar og frá-
gengnar undir stjórn þannig að
heildarblær er yfir sýningunni.
Ljósmyndararnir, sem þarna
sýna,eru 19 talsins og komast
nokkuð misjafnlega frá öllu sam-
an. Þeir yngstu i faginu bregöa
fyrir sig slysaskotinu upp á von
og óvon, miðaldra i faginu eru
með meiri pælingar myndbygg-
ing er atriði og biðin eftir rétta
augnablikinu vegur þungt. Þeir
elstu voru farnir að þreytast,
þeirra bestu myndir voru ekki
þær nýjustu. Flestir sýndu þó
ágæt tilþrif.
Ég ætla nú að hætta mér út á
hala isinn og pikka aöeins út. Mér
fannst mynd Rax af Storr heitn-
um sú besta á sýningunni, sterk
mynd og hreinleg. Róbert á Tim-
anum fannst mér koma sterkast-
ur út þegar á heildina er litið,
kómísk augnablik alvarlega
fólksins úr pólitikinni eru alltaf
skemmtileg. Aðrar myndir, sem
standa mérfyrir hugskotssjónum
þegar heim er komið eru t.d.
„Haust i kirkjugarði” eftir Leif,
„Fasteignamat rikissins” eftir
Hörð, þrjár ágætar eftir vin minn
Þjófinn „Konan meö eplið,”
„Andlit á glugga” og „Bakhús-
Frá ljósmyndasýningu fréttaljósmyndara
ið”, Einnig er „Ragnarsmál-
verk,” Ragga TH. klassisk mynd.
En af revnslu minni af liós-
myndun og sýningum þeirra, þá
held ég að fáar eða nokkur list-
grein sé jafn persónubundin og
ljósmyndalistin. Þvi býst ég við
að ekki séu mér allir sammála i
þessum dómum. En það er af
nóguaö taka á þessari sýningu og
ég er viss um að allir finna eitt-
hvaö við sitt hæfi. Fólki finnst
ljósmynd annaðhvort góð eða
slæm og ekkert þar á milli. Svo ef
þú gengur áð áhorfandanum þá
getur hann rökstutt hvorugt.
„The little something” kallaði
Gunnar heitinn Hannesson það,
sem eerði ljósmynd góða.
Þessi sýning ér stór og ég er
sannfærður um að þessi siöustu
15-20 ár Islandssögunnar, sem nú
hanga á veggjum Norræna húss-
ins höfða til margra. Margar
myndanna eru nefnilega góðir
kunningjar og ég átti ágætan
endurfund þessa kvöldstund.
Þökk sé nútima söguriturum,
fréttaljósmyndurunum.
Passlukórinn gegnir miklu hlutverki á Tónlistardögunum. t þetta sinn er verkefni kórsins Arstiðirnar eftir Handel.
Tonllstardagar
ð Akureyrl
Það er orðin venja á Akureyri
að efnt sé til mikillar tónlistarhá-
tiðar á hverju vori. Tónlistardag-
arnir hefjast að þessu sinni föstu-
daginn 27. april.
Sinfóniuhljómsveit Islands rið-
ur á vaðið með tónleikum i
íþróttaskemmunni að kvöldi 27.
april kl. 8.30. Hljómsveitin flytur
verk eftir Handel, Mozart og
Mahler undir stjórn Hollendings-
ins Huberts Soudants.
Stjórnandinn er ekki með öllu
ókunnur á Akureyri, þvi hann
stjórnaði Sinfóniuhljómsveitinni
á Tónlistardögum 1977. Soudant
er ungur maður, fæddur árið 1946,
en hefur eigi að siður stjórnað
frægum hljómsveitum viða um
heim, hlotið mikið lof og unnið til
ýmissa verðlauna.
Einsöngvari á þessum tónleik-
um er Sieglinde Kahmann óperu-
söngkona. Hana mun óþarfi að
kynna fyrir islenskum tónlistar-
unnendum.
Flauta og semball
Laugardaginn 28. april verða
hljómleikar i Akureyrarkirkju kl.
5. Þar koma fram listakonurnar
Manuela Wiesler flautuleikari og
Helga Ingólfsdóttir semballeik-
ari.
Þær flytja verk eftir Joh. J.
Quantz,Egil Hovland, Atla Heimi
Sveinsson, Joh. Seb. Bach, Leif
Þórarinsson, Aake Hermanson og
G.Fr. Handel. Þessa efnisskrá
fluttu þær á tónleikum i Kaup-
mannahöfn i nóvember 1978 og
luku gagnrýnendur i Danmörku
miklu lofsorði á verkefnavalið og
frábæra túlkun þeirra.
Fram til þessa hefur hlutur is-
lenskra tónskálda verið fremur
litill á Tónlistardögum, en með
þessum tónleikum er þar bætt úr,
þvi á efnisskrá þeirra Manuelu og
Helgu eru tvö ný islensk tónverk.
Árstiðirnar
Tónlistardögunum lýkur svo i
tþróttaskemmunni sunnudaginn
29. april með flutningi Arstiðanna
eftir Joseph Haydn. Árstiðirnar
eru oratorium fyrir einsöngvara,
kór og hljómsveit.
Passiukórinn á Akureyri hefur
æft þetta mikla verk á liðnum
vetri og er það frábrugðið fyrri
verkefnum kórsins að þvi leyti að
það er ekki kirkjulegt.
Eins og nafnið gefur til kynna,
fjallar það um árstiðirnar fjórar,
hefst á lofgjörð um vaknandi lif á
vori og rekur siðan söguna með
miklum blæbrigðum.
tónlist
Sigurveig Jóns-
dóttir skrifar
um tóniist.
60 manns syngja nú í Passiu-
kórnum og hafa aldrei verið
fleiri. Einsöngvarar eru þrir, þau
Ólöf K. Harðardóttir sópran, Jón
Þorsteinsson tenór og Halldór
Vilhelmsson bassi. 36 hljóðfæra-
leikarar úr Sinfóniuhljómsveit Is-
lands aðstoða við flutninginn.
Stjórnandi er Roar Kvam, en
hann hefur stjórnað Passiukórn-
um frá stofnun hans 1972.