Vísir - 20.04.1979, Qupperneq 24
C7
Föstudagur 20. apríl 1979/ 88. tbl. 69. árg.
síminner86611
veðrið hén
og ðar
Veðrið kl. 6 i morgun:
Akureyri, rigning 2, Bergen,
rigning og súld 6, Helsinki,
léttskýjað -1, Kaupmanna-
höfn, rigning 3, Osló, rigning 4,
Reykjavik, úrkoma i grennd 4,
Stokkhólmur, skýjað 3 Þórs-
höfn, súld 5.
Veðrið kl. 18 i gær: Aþena
skýjað 13, Berlin, skýjað 6,
Chicago, alskýjað 16, Feneyj-
ar, léttskýjað 13, Frankfurt,
skýjað 11, Godthaab, skýjaö 0,
London, rigning 11, Luxem-
burg, léttskýjað 10, Las Palm-
as, léttskýjað 20, Mallorka
skýjað 12, Montreal léttskýjað
10, New York, léttskýjað 10,
Paris, skýjað 12, Róm, skýjað
12, Malaga, mistur 16, Winni-
peg, skúr 8.
Loki
segir
Og þá eru gárungarnir farnir
að tala um Hrædýrasafnið...
KONA ÆTLAÐI AÐ KLAPPA LJÓNINU í SÆDÝRASAFNINU:
Spásvæöi Veðurstofu tslands
eru þ^si: 1. Faxaflól. 2. ■
Breiöafjörður. 3. Vestfirðir. 4. g
Norðurland 5.Norðausturland. ■
6. Austfiröir. 7. Suðaust- 1
urland. 8. Suðvesturland.
veðursDág
dagsins
K1 6 var 990 mb lægð
skammt út af Vesturlandi og
hreyfðist NA, en lægðardrag
lá vestur um land. Hiti verður
nálægt frostmarki fyrir norð-
an, en á Suðurlandi verður
vfðast 5 stiga hiti.
SV land, Faxaflói, SV mið og
Faxaflóamið: V 3 — 4en víða 4
— 6 á miðum siðan hægari,
slydduél eða skúrir fram eftir
degi, siðan þurrt að mestu.
Breiðafjörður og Breiða-
fjarðarmið: NV 2 — 4 til lands-
ins, en 2 — 6 á miðum, snjó-
koma með köflum.
N land, NA land, N mið og
NA mið: N 2 — 3 til landins en
3 — 5 á miðum, dálitil slydda
eða rigning.
Austfirðir og Austfjarða-
mið: Léttir til með V 3 — 5.
SA land og SA-mið: V 4 — 5 á
landi 5 — 7 á miðum, skýjað.
Austurdjúp og Færeyjadjúp:
hægviðri og siðan 3 — 4 skúrir
eða slydduél.
FEKK UNI
20 SAR Á
HAHDLEGG
Ung kona slasaðist verulega á handlegg i Sædýra-
safninu við Hafnarfjörð i gærkvöldi, þegar hún fór
inn fyrir varnargrindur við annað Ijónabúrið og
reyndi að klappa ljóninu.
Að sögn Leifs Jónssonar, læknis á Borgarspítal-
anum, var konan heppin að þvi leytinu til að hún er
óbrotin. Aftur á móti er mikil hætta á ígerð, eins og i
öllum bitsárum.
Konan fékk um 20 stór og smá
sár á handlegginn og sum voru
þess eölis, að ekki var hægt að
sauma þau saman, heldur varð að
græða nýja húð á þau.
„Við höfum grun um, að konan
hafði verið undir áhrifum áfeng-
is,” sagði Jóhannes Jónsson,
rannsóknarlögreglumaður i
Hafnarfirði, i viðtali við Visi i
morgun. ,,t fylgd með konunni
var önnur kona, en sú var alsgáð
og i skýrslu hennar, sem ég tók,
kemur fram að sú, sem slasað-
ist, hefði klifraö inn fyrir varnar-
grindur, sem eru um metra frá
búrinu sjálfu. Þarna er einnig
stórtaðvörunarskilti.sem bannar
fólki stranglega að fara inn fyrir
grindurnar: Eftir að konan var
komin inn fyrir teygði hún annan
handlegginn inn i búrið og ætlaði
greinilega að klappa ljóninu.
Ljónið greip höndina og sleppti
henni auðvitað ekki.”
Visir hafði i morgun einnig
samband við Jón K. Gunnarsson,
forstöðumann Sædýrasafnsins,
og sagði hann, að varúðarráðstaf-
anir við ljónabúrið væru fullkom-
lega fullnægjandi, ef fólk færi eft-
ir þvi, sem á viðvörunarskiltun-
um stæði.
Jón sagöi, að hér væri um að
ræða kvenljónið, en kvenljónin
eru yfirleitt árásargjarnari en
karlljónin.
— SS —
Þetta er gin Ijónsins I Sædýrasafninu.
Visismynd: ÞG.
Benslnveröhækkunln verður ákveðln á briðjudaginn:
59% af verði hvers
lítra tii rfkislns
„Ég held aö væntanleg oliu-
verðhækkun hafi i för með sér
sáralitlar viðbótartekjur fyrir
rikissjóö", sagöi Tómas Arnason
fjármálaráðherra viö Visi i
morgun er hann var spuröur
hvort hlutur rikisins f hækkuninni
myndi fara af fullum þunga lit I
verölagið.
„Þaö fé sem notaö er til viö-
bótar til að greiöa fyrir oliuvörur,
þaö veröur ekki notaö til annarra
hluta t.d. til innflutnings bila.
Þetta hefur þvi óbein áhrif á af-
komu rikisins”, sagði Tómas.
Tómas sagöi að það væri veriö
aö kanna þessi áhrif hvaö tekjur
rikisins á öörum sviöum minnk-
uöu mikiö, áöur en ákvöröun um
hvort tekjur rikisins af væntan-
legri oliuveröshækkun veröi
skertar.
Um þaö hvort hugsanlegar viö-
bótartekjur rikissjóðs yrðu not-
aöar til veröjöfnunar: „Þaö er
ljóst aö þaö þarf aö greiöa niður
olíu til húshitunar en ég er and-
vigur niöurgreiöslum aö ööru
leyti.
Tómas sagöi aö embættismenn
væru ennþáaöskoöa þetta mál en
það væri stefnt að þvi að taka
þetta mál fyrir á rlkisstjórnar-
fundi á þriðjudaginn og þá yrði
tekin ákvöröun um hvehækkunin
yröi mikil.
Sem kunnugt er lýstu nokkrir
stjórnmálamenn og embættis-
menn þvi yfir viö slöustu verö-
hækkun á oliuvörum aö þaö væri
óeölilegt aö rikissjóöur hagnaöist
á þessum veröhækkunum.
Oliufélögin hafa fariö fram á
talsveröa hækkun á olium og
bensini.Til dæmiserfariöfram á
aö bensinlit rinn hækki úr 205
krónum i 258 krónur og aö litrinn
af gasoliu fariúr 68,50 krónur 1105
krónur.
Opinber gjöld af hverjum
bensínlltra er nú um 59% eöa 121
króna af hverjum litra. —KS
Gjaldprot Breiðhoils hi.:
LYSTAR KRÖFUR HEMA
420 MIUJðHUM KRÓHA
Lýstar kröfur I þrotabú
Breiðholts h f. nema nú um 420
milljónum króna aö höfuðstóli.
Þá munu vera ólýstar verðkröf-
ur á steypustöð félagsins þessu
til viðbótar og nema þær hærri
upphæð en fæst fyrir stöðina.
Unnsteinn Beck borgarfógeti
hélt skiptafund I þrotabúi
Breiöholts á miövikudaginn en
þar kom ekkert afgerandi fram.
Stööugt er unniö aö athugun á
bókhaldi Breiöholts meö tilliti
til þeirra eigendaskipta sem
áttu sér staö I félaginu fyrir ekki
alllöngu, en þeirri athugun er
ekki lokiö.
Samkvæmt þeim eignalista
sem Breiöholt hefur lagt fram
telur félagiö sig eiga um 250
milljónir upp i skuldir, en óvist
er meö öllu hvort um sé aö ræöa
svo miklar eignir. Stærsti liöur-
inn eru viöskiptamannaskuldir
sem taldar eru nema 197
milljónum króna.
—SG.