Morgunblaðið - 09.02.2001, Page 8
AUÐLESIÐ EFNI
8 D FÖSTUDAGUR 9. FEBRÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Netfang: auefni@mbl.is
KRISTÍN RÓS
HÁKONARDÓTTIR var
útnefnd Íþróttamaður
Reykjavíkur 2000.
Hún er afreksmaður í
sundi, tryggði sér tvenn
gullverðlaun og tvenn
bronsverðlaun á
Ólympíumóti fatlaðra Í
Sydney. Ingibjörg
Sólrún Gísladóttir
borgarstjóri afhenti
Kristínu Rós bikar við
athöfn í Höfða.
Íþróttamaður
Reykjavíkur
Morgunblaðið/Ásdís
Kristín Rós brosir breitt með
bikarinn sér við hlið.
HÉRAÐSDÓMUR Reykjaness
dæmdi Ásgeir Inga
Ásgeirsson í fjórtán ára
fangelsi fyrir morð á Áslaugu
Perlu Kristjónsdóttur. Hann
mun áfrýja málinu til
Hæstaréttar.
Dómurinn komst að þeirri
niðurstöðu að Ásgeir hefði
hrint Áslaugu yfir handrið á
tíundu hæð fjölbýlishúss í
Kópavogi 27. maí. Ásgeir var
drukkinn. Hann skýrði svo frá
að þau Áslaug hefðu haft
samfarir. Hún hefði viljað
hætta og þá hefði hann
reiðst ógurlega og ýtt henni
að svala-handriðinu. Hann
hefði séð hana falla yfir
handriðið og lenda á jörðinni.
Eðlisfræðingur komst að því
með útreikningi að frásögn
Ásgeirs stæðist ekki.
Dæmdur
FRAKKAR urðu
heimsmeistarar í
handknattleik karla um
helgina. Þeir unnu Svía í
úrslitaleik í París, skoruðu 28
mörk en Svíar 25. Þetta er í
annað sinn sem Frakkar
hreppa þennan titil, síðast
unnu þeir hann á Íslandi árið
1995. Svíar hlutu silfur og
Júgóslavar brons. Íslendingar
urðu í ellefta sæti.
Að lokinni keppni voru
valdir bestu leikmennirnir.
Svíinn Stefan Lövgren hlaut
titilinn. Lið Svía þótti einnig
sýna mestan drengskap í
keppninni.
Íþróttir
Frakkar fremstir
ÞRIÐJUDAGINN 13. febrúar
verður fræðsla um
ungbarna-eftirlit í Miðstöð
nýbúa við Skeljanes, milli
klukkan átta og tíu um
kvöldið. Rætt verður meðal
annars um fæðingar-orlof,
barnabætur og mæðralaun.
Túlkað verður á rússnesku og
pólsku.
Á döfinni
Frá Miðstöð nýbúa
SHARON, leiðtogi
Likud-flokksins, vann mikinn
sigur í kosningum til
embættis forsætis-ráðherra
á þriðjudag. Með því sýndu
Ísraelsmenn óánægju sína
með stefnu Baraks að koma
á friði við Palestínumenn.
Kosninga-þátttaka í Ísrael
var lítil.
Sharon hvatti
Palestínumenn til að hætta
öllu ofbeldi og setjast síðan
að samningum. Hann hét
stuðnings-mönnum sínum
því að Jerúsalem yrði ekki
skipt, en deilurnar um
skiptingu borgarinnar hafa
verið hatrammar. Arafat,
leiðtogi Palestínu-manna,
segist virða úrslitin og
vonast til að umræður um
frið haldi áfram.
Barak hefur sagt af sér
formennsku í
Verkamanna-flokknum í
kjölfar ósigursins. Hann
segist hættur öllum
afskiptum af stjórnmálum.
Hann útilokar ekki að
flokkur hans taki þátt í
þjóðstjórn undir forystu
Sharons, en það er vilji
Sharons að mynda slíka
stjórn.
Bush Bandaríkja-forseti
hringdi í Sharon og óskaði
honum til hamingju með
sigurinn. Margir
þjóðarleiðtogar telja að
kosning Sharons þýði
endalok á friðarviðræðum.
Það var Sharon sem
heimsótti Musteris-hæðina í
Jerúsalem sem varð til þess
að óeirðir blossuðu upp í
september.
Sharon sigraði í kosningum um embætti forsætis-ráðherra í Ísrael
Jerúsalem verður ekki skipt
Reutera
Sharon fagnar sigri í hópi stuðningsmanna.
EFTIRSKJÁLFTAR urðu á
Indlandi viku eftir að stóri
skjálftinn reið yfir sem olli
dauða tugþúsunda. Lítið tjón
varð af þeim en skelfing greip
um sig meðal íbúanna.
Forsætis-ráðherra
Indlands, Vajpayee, fundaði
með fulltrúum allra flokka til
að ná samstöðu um
neyðaraðstoð á
jarðskjálfta-svæðinu (í
Gujarat- ríki). Samþykkt var
að skipa nefnd til að hafa
umsjón með hjálparstarfinu.
Það tók um viku að kalla
saman fulltrúa ríkis og
hjálparstofnana til að
skipuleggja aðstoðina. Um
hálf milljón manna hefur
misst heimili sín, vatn er
mengað og rafmagn rofið. Þá
hefur reynst erfitt að komast
til margra afskekktra þorpa.
Um helgina var því lýst yfir
að engin von væri um að fleiri
fyndust á lífi, en eftir það
hafa nokkrir fundist. Má þar
nefna ellefu mánaða gamalt
barn. Enginn skilur hvernig
það gat lifað svo lengi við
slíkar aðstæður. Mörg ríki
hafa sent hjálpargögn, eins
og mat, lyf, tjöld og teppi.
Jóhanna Lárusdóttir
læknir er ábyrg fyrir
neyðarhjálp Alþjóða--
heilbrigðis-stofnunarinnar.
Hún segir að aðstoð hafi
borist of seint í kjölfar
jarðskjálftanna. Helga
Þórólfsdóttir fór til Indlands
á vegum Rauða kross
Íslands. Hún vinnur með
áttatíu manna liði Rauða
krossins í borginni Bhuj þar
sem eyðilegging og mannfall
var hvað mest.
Eftir-
skjálftar
á Indlandi
Morgunblaðið/Ragna Sara
Hallir og musteri í Bhuj skemmdust eða hrundu til grunna.
INGVAR E. SIGURÐSSON
fékk tilboð um að leika í
kvikmyndinni K-19. Sigurjón
Sighvatsson framleiðir
myndina sem tekin verður í
Kanada og Rússlandi.
Myndin segir frá fyrsta
sovéska kjarnorkukafbátnum
sem sendur var í leiðangur
árið 1961. Leki komst í
kjarnorkuofn. Skipstjóranum
tókst að koma í veg fyrir
sprengingu sem hefði getað
komið af stað kjarnorkustríði.
Slysið kostaði um þrjátíu
manns lífið. Harrison Ford
leikur skipstjórann en Ingvar
einn af skipverjunum. Efnið
byggist á frásögn manna sem
lifðu slysið af. Tökur standa
fram á sumar en myndin
verður frumsýnd 2002.
Fresta varð frumsýningu á
leikritinu Fjandmaður
fólksins eftir Henrik Ibsen í
Borgarleikhúsinu því að
Ingvar var kallaður til Kanada
með dags fyrirvara. Ingvar
átti að leika aðalhlutverkið í
leikritinu.
Kafbátamynd
Morgunblaðið/Jim Smart
Ingvar E . Sigurðsson leikari.
STOFNUÐ voru samtökin 102
Reykjavík á fundi í Ráðhúsi
Reykjavíkur um helgina.
Markmið samtakanna er að
flugvöllurinn fari úr
Vatnsmýrinni. Formaður
samtakanna er Bryndís
Loftsdóttir.
Samtökin taka ekki
afstöðu til þess hvar
innanlands-flugið ætti að
vera árið 2015. Ýmsar
hugmyndir hafa komið fram.
Ein er að flugvöllurinn verði
áfram í Vatnsmýrinni, önnur
að innanlandsflugið flytji til
Keflavíkur.
102 Reykjavík