Morgunblaðið - 02.03.2001, Síða 5
ÍKÁRSNESI er hópur mannaönnum kafinn við bygginga-vinnu en þar rísa nú iðn-
aðarhús að kanadískri fyrirmynd.
Verkið er á vegum byggingafélags-
ins Desember ehf. sem sérhæfir sig í
byggingu iðnaðarhúsnæðis og er í
eigu Kristins Ragnarssonar, Sig-
urðar Gunn-
arssonar og Gunn-
ars Ragnars
Gunnarssonar.
Í símann svarar hins vegar bygg-
ingastjórinn Kristján Þorkelsson
sem stýrir aðgerðum á vettvangi í
Kársnesinu og öðrum þeim stöðum
þar sem Desember-menn eru að
störfum. „Hjá fyrirtækinu vinna
fimmtán og upp í tuttugu manns.
Arkitektinn er með aðstöðu á
Smiðjuveginum en skrifstofa fyr-
irtækisins er eiginlega færanleg,
hún er í gámi sem komið er fyrir á
byggingasvæðinu í hvert sinn,“ út-
skýrir Kristján.
Hann segir fyrirtækið hafa verið
stofnað árið 1996 í desember og því
hafi legið beint við að gefa fyrirtæk-
inu nafn mánaðarins.
„Já, nafnið hefur vakið býsna
sterk viðbrögð,“ svarar hann að
bragði. „Sérstaklega þegar fer að
nálgast jólin. Þá eru menn með
fimmaurabrandara um nafnið – yf-
irleitt reyndar svo lélega að ég hef
ekki lagt þá á minnið. En sumir
spyrja til dæmis hvort við skiptum
um nafn í hverjum mánuði, hvort við
ætlum að stofna Janúar ehf. í janúar
og svo framvegis. Þetta er eiginlega
orðið þreytandi því við höfum heyrt
þetta svo oft,“ segir hann og brosir.
„Annars er þetta fínt nafn og hefur
aldrei orðið okkur til trafala, ef und-
an er skilin þessi hótfyndni.“
Áttu eitt sinn Október ehf.
Hann segir mjög mikið að gera í
byggingabransanum og til að
mynda sé mikil spurn eftir kanad-
ísku iðnaðarhúsunum, eins og þeim
sem nú rísa í Kársnesinu. En Des-
ember-menn hafa fengist við fleira
en iðnaðarhús. „Já, einu sinni vorum
við með fyrirtæki sem hét Október
ehf. Það var líka byggingafyrirtæki
en sá líka um hótelrekstur. Við
gerðum til dæmis upp gamalt hús á
Njálsgötunni og standsettum þar lít-
ið hótel sem hét Öld. En svo seldum
við iðnnemum fyrirtækið á sínum
tíma.“
Þar með er Kristján rokinn aftur
til verkstjórnar og ekki gefst tóm til
þess að spyrja hvers vegna fyr-
irtækið hið fyrra var nefnt Október
ehf. Kannski er ekki nema von að
fólk spyrji hvort félagarnir ætli að
stofna Janúar ehf. í janúar.
Byggingafélagið Desember ehf.
Hótfyndni
fyrir jólin
þess að fólk setji nafnið ekki í sam-
bandið við mánaðarheitið. „En svo
eru reyndar aðrir sem spyrja hvort
ég sé fædd í júlí.“
Júlí Ósk líkar vel við nafnið sitt og
kveður sér ekki hafa verið raun af
því. „Það kom fyrir þegar ég var
yngri að krakkarnir söngluðu mán-
aðavísurnar, „Janú-a-a-r, Febrú-a-
a-r...“ og svo framvegis,“ rifjar hún
upp en bætir við að hugmyndaflug
hafi sjálfsagt ekki verið fyrir hendi
til þess að finna upp annars konar at.
Í það heila tekið finnst fólki nafnið
hennar fallegt og öllum er það eft-
irminnilegt. „Ef ég hitti aftur eftir
mörg ár fólk sem ég hef einhvern
tíma átt samskipti við, og segi til
nafns, þá lifnar yfir fólki og það seg-
ist aldeilis muna eftir þessu nafni.“
sdóttir, 17 ára
detta
ranna
Morgunblaðið/Kristján
Júlí Ósk Antonsdóttir í blíðunni á
Akureyri þar sem hún er við nám.
Heba sem er ekki íslenskt nafn.
Önnur skýring sem þeir hafa
gefið er að þetta sé karlkyns
orð, þar sem mánuðurinn apríl
sé karlkyns. En það eru ýmis
nöfn sem bæði eru til sem karl-
manns- og kvenmannsnöfn, til
dæmis Júlí. Og af hverju þá
ekki Apríl?“ spyr Heba.
Hún segir dóttur sína ekki
hafa orðið fyrir stríðni eða
óþægindum sökum nafnsins, og
undir það tekur Apríl Sól sjálf.
„Nei, aldrei,“ segir hún og sér
heldur ekki hvers vegna það
ætti að gerast. Henni finnst
nafnið hennar hreint ekkert
skrýtið. „Mér finnst þetta fal-
legt nafn,“ segir stúlkan að-
spurð.
Móðir hennar bætir við að í
bókum eins og Nöfn Íslendinga
og Hvað á barnið að heita? sé
nafnið Apríl ekki að finna.
„Apríl Sól hefur verið að fletta
í þessum bókum og auðvitað finnst
henni skrýtið að finna þar ekki sitt
eigið nafn, en hins vegar fullt af
nöfnum sem henni þykja mjög und-
„Samt er ekki eins og nafnið Apr-
íl sé ekki til á Íslandi. Í þjóðskrá
má sjá að það hefur verið gefið þó
nokkrum stúlkum, en munurinn er
sá að þær eiga allar erlenda móður
eða föður,“ bendir hún á.
Nafnið er í nefndum tilfellum rit-
að með „i“ en ekki „í“ og Heba
kveðst hafa verið tilbúin að breyta
rithættinum á þann hátt ef slíkt
yrði til þess að leyfi fengist. „En
það mátti ekki heldur. Við fáum ein-
faldlega ekki að skíra þessu nafni
því barnið á íslenska foreldra. Hins
vegar hefðum við mátt skíra hana
Aprílsól eða jafnvel Aprílínu, því þá
eru ekki lengur vandræði með
beygingarnar. En ekki Apríl Sól.“
Stúlkan var skírð í Óháða söfn-
uðinum um páskana í fyrra, en inn-
an þjóðkirkjunnar er hún óskírð.
Heba bendir á að nafn dóttur henn-
ar eigi sér þó fordæmi. Þegar nafn
hennar var ákveðið hafi tvær stúlk-
ur þegar borið nafnið, önnur hafi þá
verið búsett erlendis en hin hér-
lendis. Sú síðarnefnda var, líkt og
Apríl Sól, skráð á annan hátt í þjóð-
skrá.
Apríl Sól í geislandi sól í byrjun mars.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
arleg,“ segir hún og vísar í öll þau
sérstæðu og sjaldgæfu nöfn sem
leyfi er fyrir í íslenskum nafngift-
um.
DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. MARS 2001 D 5
ÉG HEITI nú bara íhöfuðið á afa mínumog ömmu,“ segir
Ágúst Mars Valgeirsson, mál-
ari, og þykir engin furðufregn
að tvö mánaðanöfn tengist í
nafni hans. Amman og afinn
hétu Ágúst og Marsibil; afinn
hét að líkindum eftir mánuð-
inum en meiri tilviljun er að
mánaðanafn skuli hafa komið
út úr afleiðslu af nafni ömm-
unnar. „Seinna nafn mitt hef-
ur þannig ekkert með mán-
uðinn að gera og hefur til
dæmis aldrei verið skrifað
með zetu,“ segir Ágúst Mars
sem reyndar er hættur að
nota millinafn sitt fyrir um
þrjátíu árum. „Þegar ég er
spurður að nafni, þá segi ég
bara Ágúst Valgeirsson. Ef
mér er hins vegar flett ein-
hversstaðar upp, svo sem í
þjóðskrá eða símaskrá, þá
koma alltaf bæði skírnarnöfn-
in fram.“
Hann segir reyndar enga
sérstaka ástæðu vera fyrir því að
hann hætti að nota síðara nafnið, á
sínum tíma. Það hafi bara æxlast
þannig. Sjálfur sé hann vanur nöfn-
unum og hafi alls ekkert á móti
þeim. „Ég hef heldur aldrei heitið
neitt annað,“ bætir hann við og
brosir út í annað.
Afa sínum kynntist Ágúst Mars á
sínum tíma og þykir vænt um að
bera nafn hans, en amma Marsibil
var látin áður en pilturinn fæddist.
Ekki veit hann til þess að vand-
kvæðum hafi verið bundið að fá leyfi
til þess að skíra nafninu Mars, enda
fordæmi fyrir því á landsvísu. Í nán-
ustu fjölskyldu Ágústs hefur nafnið
ekki verið notað aftur, né heldur
önnur fágæt mánaðanöfn. Eða eins
og Ágúst Mars segir kíminn að lok-
um: „Ég er einstakur á þessu sviði.“
Ágúst Mars Valgeirsson, 56 ára
Afa og ömmu
að þakka
Ágúst Mars Valgeirsson málari tók sér
kaffihlé til þess að vera á mynd.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
ber sem leitt er af latneska töluorðinu
septem ’sjö’ en samkvæmt rómversku
tímatali var þessi mánuður hinn sjö-
undi í röðinni.“
OKTÓBER. „Samkvæmt manntali
bar einn karl í Rvík nafnið sem síðara
af tveimur árið 1910.
Nafnið er sama orð og mánaðarheit-
ið október, úr latínu october, af octo
’átta’.
Mánuðurinn var áttundi í röðinni
samkvæmt rómversku tímatali.“
NÓVEMBER. „Samkvæmt mann-
tali báru fjórir karlar nafnið 1910, þar
af þrír sem síðara af tveimur. (...).
Nafnið er sama orðið og nóvember
’ellefti mánuður ársins’. Það er töku-
orð úr latínu november, af latínu nov-
em ’níu’.
Samkvæmt rómversku tímatali var
mánuðurinn hinn níundi í röðinni.“
Úr bókinni Nöfn Íslendinga eftir Guðrúnu
Kvaran og Sigurð Jónsson frá Arnarvatni,
1991. Birt eru valin brot úr hverri
nafnskýringu.
ÞEGAR hringt er í hljóðverið September ehf. svarar Matthías Matthíasson í símann, enda eini fasti starfsmaður fyrirtækisins. Það segir þó alls ekki alla söguna því á staðnum starfar jafnframt
fjöldi verktaka við ýmis verkefni. Líf og fjör er þannig meira en halda
mætti í fyrirtæki með einn starfsmann á skrá.
„Þetta er í rauninni eitt fullkomnasta hljóðver landsins,“ upplýsir
Matthías af ískrandi hógværð og bætir við að aðstaða sé til fjölbreyttrar
hljóðvinnslu. „Hingað kemur til dæmis mikið af hljómsveitum og svo erum
við talsvert í því að hljóð- og talsetja auglýsingar og
annað myndefni. Þetta er ekki sérhæft hljóðver,
heldur er það hugsað fyrir allt mögulegt.“
Fyrirtækið var stofnað árið 1997 og var strax
nefnt nafninu sem það ber. „Sagan á bak við nafnið
er sáraeinföld. Fyrirtækið September var stofnað í
september,“ upplýsir Matthías og hlær. Þrír menn stofnsettu hljóðverið en
mannabreytingar hafa síðan orðið í brúnni. Núverandi eigendur eru Sig-
geir Pétursson, fyrrum bassaleikari í Vinum vors og blóma, og tónlist-
armennirnir Bergur Geirsson og Matthías Matthíasson sem m.a. eru félag-
ar í Buff, húshljómsveit Skjás eins.
Eiga líka járnbrautafyrirtæki
Á nafni þeirra félaga er einnig skráð firmanafnið Íslenskar járnbrautir
ehf. sem er eins konar bakhjarl hljóðversins. Það er ekki síður frumlegt
nafn og Matthías er spurður um söguna að baki.
„Eiginlega er þetta gamall draumur Bergs, að eiga fyrirtæki sem heitir
Íslenskar járnbrautir. Honum hefur lengi þótt freistandi að eiga nafnspjald
þar sem letrað er The Icelandic Railroad Company og geta slegið um sig
með því í útlöndum – sérstaklega þar sem menn vita ekki að engar járn-
brautir eru á Íslandi.
Hins vegar uppgötvuðum við, tveimur dögum eftir að við skráðum nafn-
ið, að úti í bæ var nýbúið að stofna tölvufyrirtækið Íslenska eimreið-
arfélagið, þannig að þetta var allt í einu ekki eins frumlegt og ráðgert
var,“ bætir Matthías við og greina má bresti í bjartri röddinni.
Að lokum er talinu vikið aftur að September ehf. og spurt hvort árlega
sé haldið upp á afmæli fyrirtækisins í nefndum mánuði. „Að sjálfsögðu. Yf-
irleitt er haldið upp á það um miðjan mánuðinn, ég man samt ekki alveg
hvaða mánaðardag það var stofnað. Ég get þó komist að því ef þú vilt,“
býður hann en það er afþakkað. „Ég á sjálfur afmæli í september þannig að
ég reyni yfirleitt að slá veislunum tveimur saman. Eða réttara sagt: það er
afmælisveisla allan mánuðinn.“
Hljóðverið September ehf.
Afmæli
allan mán-
uðinn
VIÐ hjónin eigum bæði af-mæli 1. nóvember,“ segirKristín Helgadóttir þegar
spurt er hvers vegna Nóvember
ehf. hafi verið valið sem nafn á
útgerð hennar og eiginmannsins,
Brynjars Gunnarssonar. Brynjar
er úti á sjó þeg-
ar hringt er og
því verður
Kristín fyrir
svörum.
Gert er út frá Þingeyri og var
fyrirtækið stofnað haustið 1998.
„Fyrst vorum við reyndar að
hugsa um nafnið Dreki, því við er-
um bæði í sporðdrekmerkinu, en
þá var það í notkun,“ rifjar Krist-
ín upp.
Hún segir að nafnið þyki æði
sérstakt, sér í lagi fyrir útgerð,
enda byrji nöfn slíkra fyrirtækja
gjarnan á Fisk-, Sæ- eða öðrum
forliðum sem minni á starfsemina.
„Það sem mér finnst mjög jákvætt
og gott við þetta nafn er að allir
sem við eigum viðskipti við leggja
nafnið samstundis á minnið og
muna vel eftir okkur. Þessu fyr-
irtæki er því ekki ruglað saman
við önnur í sama geira.“
Útgerðarfélagið
Allir muna
eftir okkur
Nóvember ehf.
ÞAÐ er nú þannig að fjöldi fyr-irtækja á Íslandi er slíkur aðöll nöfn virðast bókstaflega
vera upptekin,“ segir kankvís Þor-
valdur Þorvaldsson húsasmíða-
meistari, þegar spurt er um ástæður
þess að hann nefndi byggingafyr-
irtæki sitt Maí ehf. Fyrirtækið var
stofnað í desember
síðastliðnum en er
kennt við mánuðinn
maí.
„Í húsasmíðageir-
anum er búið að
nota heiti flestra verkfæra, trjáteg-
unda og húshluta, þannig að ég fór
að velta fyrir mér nafni af öðrum
toga. Ég diskúteraði þetta við kon-
una og niðurstaðan var þetta nafn,
án þess að ég muni nákvæmlega frá
hvoru okkar það er komið. Reyndar
var annað mánaðarnafn sem við at-
huguðum fyrst, október, en þá var
það upptekið. Ég er sjálfur fæddur í
október og var líka svolítið að hugsa
um októberbyltinguna en maí er
líka ágætur mánuður. Minnir til
dæmis á 1. maí fyrir þá sem vilja.
Þetta er líka vormánuður og honum
fylgir ákveðin birta.
Og ef satt skal segja hafa fleiri
haft orð á þessu en ég bjóst við – það
er almenn skoðun fólks að léttleiki
sé í nafninu. Almennt séð finnst mér
það höfuðatriði með nöfn á fyr-
irtækjum að þau séu þjál og ekki
erfið í notkun,“ segir húsasmíða-
meistarinn.
Hann var áður með rekstur undir
sínu eigin nafni en stofnaði form-
lega Maí ehf. í vetur. Síðan þá hafa
viðskipti gengið vel, að sögn, þótt
enn sé fyrirtækið hógvært í um-
svifum. „Þetta er almennt bygginga-
fyrirtæki og eru starfsmenn nú þrír;
ég sjálfur, annar smiður og verka-
maður. En það gæti reyndar breyst
á næstunni – það er aldrei að vita.“
Byggingafélagið Maí ehf.
Október
var upp-
tekinn