Morgunblaðið - 02.03.2001, Page 6
DAGLEGT LÍF
6 D FÖSTUDAGUR 2. MARS 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Ársalir- fasteignamiðlun Ársalir- fasteignamiðlun
Ársalir- fasteignamiðlun Ársalir- fasteignamiðlun
Björgvin Björgvinsson, lögg. fasteignasali.
Borgartún
ATVINNUHÚSNÆÐI TIL LEIGU
Húsnæði Sindra er til
leigu. Skiptist í verslunar-
húsnæði á jarðhæð, lager
í kjallara og tvær skrif-
stofuhæðir. Mögul. að
skipta í smærri einingar.
O r t u s e h f . – Fa x a f e n i 1 2 – s í m i 5 5 3 7 4 0 0
OPNUNARTÍMAR
MÁN-FÖS: 12-18
LAU: 11-16
Húsnúmer
Hurðabankarar
Innréttingahöldur
Hurðahúnar
Baðvörur
Ryðfrí lína frá PHOS
Innréttingahöldur frá SIRO
Ryðfríir íhlutir frá PHOSBaðvörur frá KEUCO
Hurðahúnar frá Karcher
EIGINLEGA algjör draum-ur ... Þannig mátti hugsaþegar litið var yfir línuna,
sem var lögð fyrir haust- og vetrar-
tískuna á tískuvikunni í London í
síðustu viku. Hentuga línan er lögð í
New York, sú yfirkvenlega í París,
en London er með unga og ferska
tískuyfirbragðið. Fötin nú einkennd-
ust af skraddaraútliti, en þó oft með
óreglulegu yfirbragði, pilsum í
óreglulegri sídd við hné og fullt af
áhugaverðum efnum.
Það eru varla einstaka litir, sem
skera sig úr, nema hvað hvítt og
svart var áberandi hjá mörgum
hönnuðum. Skórnir eru líka fremur
penir, mikið af lághæluðum og mjó-
slegnum skóm án þess að vera með
langa, mjóa tá, þótt hrikalegir og
manndrápsmjóir hælar sjáist sann-
arlega líka, að ógleymdu fallegu úr-
vali stígvéla.
Engar öfgar, en því er ekki að
neita að mest af fötunum lítur betur
út í stærðunum 36–44 en langt þar
yfir ... en það er nú varla fréttnæmt.
Stóru nöfnin
Af 61 nafni, sem þarna sýndi – það
eru stundum tveir eða fleiri hönn-
uðir að baki einu nafni – voru auðvit-
að sumir, sem drógu að sér meiri at-
hygli en aðrir. Julien MacDonald er
einna heitasti breski hönnuðurinn
um þessar mundir, ef marka má um-
fjöllun bresku blaðanna, þó föt hans
séu tæplega fyrir nema fáar útvald-
ar, sem ekki gera annað en þeysa
milli glamúrtækifæra – og slíkt
kvenfólk er sannarlega til í stórborg
eins og London.
MacDonald hefur verið kallaður
bresk útgáfa af Donatellu Versace,
því föt hans eru í þessum efnislitla
og glamúrkennda stíl, sem hefur
einkennt Donatellu. Hver hefur sinn
smekk, en ástæðan fyrir athyglinni
sem beinist að MacDonald hlýtur að
liggja í góðu kynningarstarfi og
framlagi frægra kvenna, sem taka
þátt í að auglýsa hönnuðina, sem
gefa þeim föt. Föt hans eru uppá-
komur, sem eiga fátt skylt við raun-
veruleika hvunndagsins.
Arkadius Weremczuk er annar
hönnuður, sem hefur vakið mikla at-
hygli undanfarið fyrir hæfileika til
að skapa dramatísk, en jafnframt
einkar klæðileg föt. Eins og áður var
hann hallur undir svart-hvítt. Eins
og fleiri notaði hann lífstykki utan á
skyrtum og kjólum. Mittið er ræki-
lega á sínum stað hjá Arkadius eins
og hjá fleirum. Breið belti sjást líka
oft.
Clements Ribeiro er hannað af
Suzanne Clements og Inacio Rib-
eiro. Þau hafa áður fengið bresku
tískuverðlaunin. Auk eigin merkis
hanna þau fyrir franska Cacharel.
Rendur og mynstur einkenna létt föt
þeirra og núna sýndu þau undra-
verð, röndótt pils og kjóla, þar sem
efnið er klippt svo rendurnar mynda
óregluleg, ójöfn mynstur í sjálfu sér.
Boudicca er hannað af Zovie Brosch
og Brian Kirkby. Einnig hjá þeim
gat að líta hvítt og svart í ýmsum út-
gáfum, þar sem svartir og hvítir flet-
ir skapa sláandi áhrif.
Hussein Chalayan hefur tvisvar
unnið tískuverðlaunin, en hefur
einnig farið á hausinn. Verðlaun og
athygli duga hönnuðum skammt, ef
þeir hafa ekki fjárstuðning. Chal-
ayan sýndi hrífandi einföld föt, yf-
irleitt tekin í sundur í mittið, víð pils
og stelpulegt útlit.
Það er ekki hægt að nefna tísku-
vikuna í London án þess að nefna Al-
exander MacQueen, sem nú hannar
fyrir Gucci. Sýningin hans nú var
síðasta sýningin hans í London, alla
vega í bili, því nú helgar hann sig
Gucci, sem stjórnar því nú hvar
hann sýnir. Hann hlaut tískuverð-
launin í ár fyrir sýningu, sem var
einkar slípuð og fáguð. Stíll hans er
hið fullkomna skraddarasaumaða út-
lit en með hráum og oft ósamstæð-
um línum, svart var áberandi hjá
honum.
Dýra og ódýra leiðin
Það virðist auðveldara en oft áður
að draga saman í fáum orðum hver
línan er næsta haust og vetur. Fötin
eru einföld form og kvenlegar línur.
Þó mikið sé um kjóla var mikið af
tvískiptu, það er pilsum og jökkum
eða skyrtum.
Jakkarnir eru aðskornir og ná að-
eins rétt niður fyrir mitti. Auk
svarta og hvíta litarins gat að líta
brúnt, bæði í ljósum tónum og suðu-
súkkulaðilitum, einnig grænt í ýms-
um tónum.
Síddin er eindregið rétt fyrir neð-
an hné, þó síðari pils sjáist og stöku
stuttpils. Pilsin eru oft úr skáskornu
efni, sem skapar léttleika við faldinn
og ögn flögrandi áhrif. Mikið sést af
léttum efnum, en einnig filt og veiga-
meiri ullarefni inn á milli en oftast í
mjúkum útgáfum. Skórnir eru yfir-
leitt fremur þægilegir. Þó háháhæl-
ar sjáist líka ber meira á þægilegum,
nettum skóm, oft með ökklabandi.
Þeir sem eru ekki á því að eyða
peningunum í föt frá dýrum hönn-
uðum geta farið ýmsar aðrar leiðir.
Ýmsir þekktir hönnuðir hanna fyrir
stóru bresku vöruhúsin. Hönnuðir
Clements Ribeiro hanna TS-línuna
fyrir Top Shop. Hussein Chalayan,
MacDonald og fleiri hanna Auto-
graph-línuna fyrir Marks & Spencer
og Debenhams er einnig með hönn-
uðalínu.
Mikið af snilld hönnuða liggur í
frábæru efnisvali og efnin eru oft
hreinasta undur. Þeir sem eru
snjallir að sauma geta fundið heil-
mikið af spennandi efnum að moða
úr í efnabúðunum í og í nágrenni við
Berwick Street í Soho.
ARKADIUS WEREMCZUK:
Lífstykki utan á skyrtum og kjólum.
BOUDICCA:
Svart-hvítir fletir, sláandi axlaslá.
ALEXANDER
MCQUEEN:
Skraddara-
saumað glæsiútlit
með votti af
óreglulegum
uppákomum.JULIEN MACDONALD:
Stuttur, glansandi kjóll.
Einfalt,
kvenlegt
og aðskorið
Engir víðir og síðir
jakkar, ekkert mussu-
yfirbragð, heldur að-
skornir jakkar og flögr-
andi pils í siðsamlegri
sídd fyrir neðan hné.
Sigrún Davíðsdóttir var
á tískuvikunni í London,
þar sem pent útlit sjö-
unda áratugarins gekk í
endurnýjun lífdaga og
svart sló, enn einu sinni,
rækilega í gegn.
HAUST- OG VETRARTÍSKAN 2001/2002
CLEMENTS RIBEIRO:
Samklipptar línur og mynstur í flögrandi efni.