Morgunblaðið - 20.03.2001, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 20.03.2001, Blaðsíða 3
ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. MARS 2001 B 3 Tillaga, sem gekk undir nafninutillaga A, var samþykkt og má sjá myndræna útfærslu á henni hér til hliðar miðað við stöðuna í 1. og 2. deild eins og hún er nú um stundir. Gert er ráð fyrir 16 liðum en nýja skipulagið getur haft allt að tuttugu lið. Mótið hefst með tveimur riðlum, Norður- og Suðurriðli og raðast lið í þá eftir stöðu sinni að lokinni deild- arkeppninni í ár. Það sem er þó ljóst er að KA og Þór verða saman í Norð- urriðlinum og ÍBV og Selfoss í Suð- urriðli. Í öðrum riðlinum verða liðin sem eru í 1., 4., 5., 7., 9. og 11. sæti 1. deild- ar auk þeirra sem verða í 1. og 4. sæti í 2. deild. Leikin er tvöföld umferð þannig að hvert lið leikur 14 leiki. Í febrúar og mars leika liðin í þremur riðlum sem raðast í eftir ár- angri í forkeppninni. Í A-riðli leika þrjú efstu lið N- og S-riðils, í B-riðli verða þau lið sem urðu í 4.–6. sæti hvors riðils á næsta stigi á undan og í C-riðli verða tvö neðstu lið hvors riðils. Áfram verður leikin tvöföld umferð þannig að í þeim riðlum sem sex lið eru leikur hvert lið 10 leiki og hefur því leikið 24 leiki þegar komið er að umspilinu. Fjögur efstu liðin úr A-riðlinum komast beint í úrslitakeppnina (Fram, Haukar, KA og Afturelding eins og staðan er núna). Önnur lið þurfa að vinna sér inn rétt til að kom- ast þangað og gera það í svokölluðu umspili. Á fyrra stigi þess mætir liðið í 16. sæti (Fjölnir) liði sem er í 9. sæti (ÍBV), 15. sætið (Þór) mætir 8. sæt- inu (Stjörnunni), og á sama hátt mætast þá Víkingur og HK og Sel- foss og Breiðablik miðað við stöðu liðanna núna. Leikið verður heima og að heiman og markahlutfall látið ráða hvort liðið kemst á næsta þrep um- spilsins. Á þessu stigi á það lið sem var í neðsta sæti enn fræðilega möguleika á að komast alla leið og verða Íslandsmeistari. Á næsta stigi umspilsins er leikið með sama fyrirkomulagi, heima og að heiman og markahlutfall ræður hvaða lið kemst áfram í úrslitakeppn- ina ásamt fjórum efstu liðum A-riðils riðlakeppninnar. Úrslitakeppnin verður með sama sniði og verið hef- ur. Breytt keppnisfyrir- komulag samþykkt TILLAGA um breytt keppnisfyr- irkomulag í handknattleik karla var samþykkt á ársþingi Hand- knattleikssambandsins um helgina. Fimm voru á móti. HANDKNATTLEIKUR Mikil spenna var í leikmönnumfyrstu mínúturnar og skiptust liðin á að skora en þegar Ljana varði vítaskot og hraða- upphlaup náði Stjarnan forystu. Þegar svo tíu af 11 næstu sóknum Vík- ingum fóru í súginn eftir mikinn klaufaskap auk þess að Ljana varði tvö vítaskot til viðbótar, náðu Garðbæingar fjögurra marka for- ystu og var staðan 11:7 í leikhléi. Víkingar tóku varnarleikinn föst- um tökum eftir hlé og virtust við það ná að komast betur inn í leikinn. En sem fyrr voru þeim ákaflega mis- lagðar hendur í sókninni og vantaði alltaf tvö mörk til að jafna. Þegar tólf mínútur voru eftir fór mikil barátta gestanna að taka sinn toll og það nýttu þrautreyndar Stjörnustúlkur sér með því að gera út um leikinn með fjórum mörkum í röð. „Ég er þreytt á að tala um reynslu og betra liðið vann í kvöld en auðvit- að hefur hún sitt að segja þó að ég sé ekki viss um að það hafi skipt sköp- um,“ sagði Inga Lára, leikstjórnandi Stjörnunnar, sem átti mjög góðan leik í gær en var lúin. „Allir leikirnir þrír voru mjög erfiðir og helst að miðleikurinn hafi verið aðeins ró- legri. Það er mikið í húfi, spennan mikil og stressið eykur talsvert á þreytuna, sem er nokkur fyrir því það er mjög erfitt að spila þrjá leiki á fimm dögum og það á móti sama lið- inu, sem maður þekkir til hlítar,“ bætti Inga Lára við og leist vel á að eiga við Haukastúlkur. „Við vissum að þær yrðu næstar en það er bara góð áskorun og þess vegna er maður í handboltanum. Það verður að fá erfiða leiki líka en nú er ég þreytt þrátt fyrir mikla reynslu.“ Reynt var að hafa strangan vörð yfir Höllu Maríu en það dugði ekki betur en svo að hún skoraði nærri helming marka liðins og tók vel á í vörninni gegn sín- um gömlu félögum. Guðný Gunn- steinsdóttir og Hrund Grétarsdóttir áttu einnig góða spretti en mestu skipti að vörnin var samstillt. „Þetta gat farið á hvorn veg sem var og við ætluðum að byrja af krafti en það gekk ekki upp hjá okkur,“ sagði Guðrún Hólmgeirsdóttir úr Víkingi eftir leikinn en hún sýndi góð tilþrif í horninu. „Við sýndum í síð- asta leik þegar við unnum upp tveggja marka mun að við höfum sjálfstraust í slíkt en það gekk ekki núna. Auk þess klúðruðum við góð- um færum ásamt mörgum vítum og það skildi liðin að. Við erum búnar að missa fjóra leikmenn úr byrjunarlið- inu og einhvern veginn alltaf að byrja upp á nýtt. Við komum því sterkar næsta ár en það er ömurlegt að fara í frí núna því það er hálft ár í næsta leik og það verður líka að gera breytingar á mótfyrirkomulaginu hjá stelpunum, sagði Guðrún, en áamt henni voru Kristín Guðmunds- dóttir, Guðbjörg Guðmannsdóttir og Gerður Beta Jóhannsdóttir at- kvæðamiklar hjá Víkingum. Vítin urðu Víkingum að falli LJANA Sadzon reyndist Víkingsstúlkum erfiður ljár í þúfu er liðin mættust í oddaleik 8-liða úrslita í Garðabænum í gærkvöldi. Hún varði þrjú vítaskot fyrir hlé en auk þess fóru Halla María Helgadóttir og Inga Lára Þórisdóttir á kostum hjá Stjörnunni þegar þær skoruðu tíu af 11 mörkum liðisins fyrir hlé. Á lokasprettinum reyndist Vík- ingum erfitt að vinna upp tveggja marka mun Garðbæinga, sem unnu verðskuldað 19:14 en einmitt fimm vítaskot Víkinga fóru forgörðum. Stefán Stefánsson skrifar Morgunblaðið/Golli Halla María Helgadóttir skoraði níu mörk fyrir Stjörnuna gegn sínum gömlu félögum í Víkingi í gærkvöldi.                ! " #$%&  % !   '  $#%    (    )       *+ +   , &-*+ +*  % #% $ !     "  !  +     & &  & .    #  +   '&/    -0  1              !  2!3 $   # !     %&  '   4   % #% $ ! "   -5  1  6 +   $   4   #%  !   '  $%&    ! "  ! "   %&  '   $   #  4   7"  273 $  +  1   8  Daði á heimleið DAÐI Hafþórsson, hand- knattleiksmaður hjá danska liðinu Skjern, ætl- ar að flytja heim í vor. Hann hefur fengið fá tækifæri hjá danska félaginu í vetur, þangað sem hann kom í fyrra eft- ir tveggja ára veru hjá Bayer Dormagen í Þýska- landi. Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins hafa tvö félög hér heima sett sig í samband við Daða, Aftur- elding og hans gamla félag Fram, en með því lék Daði áður en hann hélt til Þýskalands 1998. Daði gerði tveggja ára samning við Skjern sl. vor, en hann er laus til endurskoðunar í vor og því er ekkert því til fyr- irstöðu að Daði fái sig lausan frá Skjern. Aron Kristjánsson, sem einnig leikur með Skjern, er á leið til Hauka. ÁSTHILDUR Helgadóttir, lands- liðsfyrirliði í knattspyrnu, hefur ver- ið leyst undan samningi sínum við bandaríska atvinnumannaliðið Car- olina Courage. Þetta kemur fram á heimasíðu félagsins, en alls voru sjö leikmenn leystir undan samningi. Þetta er gert til þess að liðið geti tekið þátt í lokadrætti um leikmenn sem fram fer síðar í dag, þriðjudag. Þrátt fyrir þetta mikla áfall sem Ásthildur hefur orðið fyrir er þó ekki útliokað að hún eigi enn mögu- leika á að fá samning í bandarísku deildinni. Öll liðin átta sem þar leika hafa fækkað í leikmannahópum sín- um niður í um 20-22 leikmenn. Allir þeir leikmenn, sem leystir hafa ver- ið undan samningi síðustu daga, fara í einn pott sem dregið verður úr í dag en þá fá liðin síðasta tækifærið til að bæta við leikmönnum. Hverju liði er heimilt að hafa allt að 24 leik- menn í sínum röðum. Undirbúningur fyrir keppnis- tímabilið er nú á lokastigi, mikil auglýsingaherferð hefur verið sett af stað til að kynna deildina og á miðvikudag verða öll liðin í San Diego til að taka þátt í kynningu á deildarkeppninni sem hefst í lok apríl. Ásthildur leyst undan samningi TVÆR breytingar urðu á stjórn HSÍ á ársþingi sambandins um helgina. Pálmi Matthíasson og Knútur Hauksson koma inn í stjórnina en Goði Sveinsson og Hallgunnur Skaptason ganga úr henni. Þingið gekk vel fyrir sig og miklar umræður urðu um breytt leikjafyrirkomulag og fleiri mál. Rekstur sambandsins er í járnum, skuldir um 27 milljónir og hafa lít- ið lækkað á árinu. Samþykkt var að fella niður félagsskiptagjald sem þýðir að leikmaður sem ekki er á samningi hjá félagi getur skipt í annað félag án þess að til komi greiðsla fyrir hann. Leikmannasamningar verða nú tvenns konar, A- og B-samningar. A- samning má gera til allt að þriggja ára og þá fá leikmenn ein- hver laun eða aðstoð frá félaginu en B-samningar eru til eins árs og þeir leikmenn sem eru á slíkum samningum fá ekki laun. Tillaga um jöfnunarsjóð féll á einu atkvæði en þar var gert ráð fyrir að félög greiddu 250.000 krónur fyrir hvert lið í meist- araflokki karla og kvenna og yrði sjóðurinn notaður til að jafna ferðakostnað félaga vegna þátt- töku í deildarkeppninni. Nokkuð var rætt fyrir þingið um að landsliðsþjálfari gæti einnig verið þjálfari félagsliðs. Þetta kom ekki til tals á þinginu enda ekkert í lögum HSÍ sem segir að lands- liðsþjálfari geti ekki þjálfað félagslið. Tveir nýir í stjórn

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.